Morgunblaðið - 26.08.1999, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 26.08.1999, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1999 23 ERLENT Þúsundir manna fylkja liði á Austur-Tímor til að krefjast sjálfstæðis frá Indónesíu Ottast upp- lausn fyrir kosningar Dili, Austur-Tímor, New York. Reuters. AUSTUR-TÍMORBÚAR fylktu liði á götum Dili í gær og kröfðust sjálfstæðis frá Indónesíu. Var mót- mælagangan sú fjölmennasta síðan eyjan féll undir herstjórnina í Jakarta árið 1976. Ráðgert er að halda kosningar, sem Sameinuðu þjóðirnar hafa skipulagt, næst- komandi mánudag þar sem kosið verður um sjálfstæði eyjunnar, en þau áform hafa kynt undir illind- um milli andstæðinga og stuðn- ingsmanna herstjórnarinnar í Jakarta. Framkvæmdastjórn Sameinuðu þjóðanna sagðist á þriðjudag óttast upplausn og nýja öldu ofbeldisverka á Áustur-Tímor fyrir kosningarnar á mánudaginn. Hún ætlar þó ekki að víkja frá áformum sínum og sagði það löngu tímabært að kosið yrði um framtíð stjórnarskipulags á Austur-Tímor. Kofi Annan, aðal- framkvæmdastjóri SÞ, kvaðst vona að Austur-Tímorbúar fyndu farsæla lausn á deilum sínum. Síðastliðin tuttugu ár hafa um tvö hundruð þúsund manns týnt lífí í átökum eða af völdum farsótta, pyntinga og fá- tæktar síðan Indónesar réðust inn í landið árið 1975. Annan sagði fram- kvæmdastjómina hafa ákveðið að fjölga í friðargæsluliði SÞ á eyjunni um tæplega 200 manns, en friðar- gæsluliðið hefur eftirlit með fram- gangi mála að kosningunum lokn- um. Austur-Tímorbúar munu geta valið eða hafnað þvi hvort eyjan verði sjálfstjómarríki innan lögsögu Indónesíu. Hafni þeir þeim kosti er stjómvöldum í Jakarta skylt að veita landinu sjálfstæði innan ákveðins tíma, sem framkvæmda- stjóm SÞ ákvarðar. Bjartsýnn á útkomu kosninganna Leiðtogi sjálfstæðishreyfingar Austur-Tímor, Xanana Gusamo, sem situr í fangelsi í Jakarta, boðaði almenna uppgjöf saka fyrir póli- tíska glæpi öðlist Austur-Thnor sjálfstæði í kosningunum á mánu- dagfan kemur. Sagði hann það ásetning þjóðar sinnar að halda frið við Indónesíu og að farið yrði fram á að Austur-Tímor mundi nota mynt Indónesíu á meðan á stjómar- farsbreytingunum stendur. Að- spurður kvaðst hann fullviss um að níutíu af hundraði Austur-Tímorbúa mundu kjósa sjálfstæði landsfas í vil. Reuters Stuðningsmenn sjálfstæðis í Austur-Tímor með andlitsmálningu í fánalitum sjálfstæðishreyfingarinnar. Leiðtogi Talebana slapp ómeiddur Kabúl. Reuters. MULLAH Mohammad Omar, leið- togi Talebana í Afganistan, slapp í gær ómeiddur þegar sprengja sprakk nærri bústað hans í borg- inni Kandahar í suðurhluta Afganistans. „Óvinir Talebana stóðu fyrir þessu skemmdarverki og við getum ekki haldið nein ein- stök samtök til ábyrgðar,“ sagði Abdul Mutmaen, helsti talsmaður Talebana. Annar heimildarmaður úr röðum Talebana sagði árásina hafa verið vel skipulagða en vildi ekki vera með getgátur um hver hefði staðið hér að verki. Árásin er sú fyrsta í Kandahar, sem er eins konar trúar- legur höfuðstaður Talebana, síðan þeir komust til valda í Afganistan fyrir þremur árum. Borgin er fjögur hundruð kíló- metra suður af víglfaunni sem skil- ur að yfirráðasvæði Talebana, sem ráða 90% alls Afganistans, og skæruliðaforingjans Ahmads Shas Masoods, en segja má að sveitir hans standi nú einar í vegi þess að Talebanar tryggi yfirráð sín í öllu Afganistan. Að sögn talsmanna Talebana lét- ust tíu þegar sprengjan sprakk í vörubíl sem stóð nálægt húsveggj- um heimilis Omars, en sjálfur slapp leiðtoginn ómeiddur. Fjörutíu særðust en flestir hinna látnu ku hafa verið lífverðir leiðtogans. Oslo Bergen Stavanger Amsterdam Ziirich París Kaupmannahöfn 22.340 25.640 25.640 25.640 29.820 29.470 30.060 22.130 22.550 22.340 23.570 23.540 Arosar Álaborg Malmö Stokkhólmur Gautaborg Lágmarksfyrirvari er 7 dagar. Síðasta heimflug 30. október. Flugvallarskattar eru innifaldir (verði. Haustfargjöld SAS eru ótrúlega hagstæð. Þau gilda fyrir ferðatímabilið frá 18. september til 30. október og er flogið með SAS á laugardögum. Hámarksdvöl ereinn mánuður. Allar nánari upplýsingar fást á næstu ferðaskrifstofu eða hjá SAS. Haustlitaferðir SAS Frábær tilboó á fargjöldum STAR ALLIANCE S4S Söluskrifstofa SAS Laugavegi 172 Sími 562 2211 Netfang: sasis@sas.dk Scandinavian Airlines
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.