Morgunblaðið - 26.08.1999, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 26.08.1999, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1999 47^ handleiðslu hans. Ólafur var hreint ótrúlega vel að sér í fræðigrein sinni og þrátt fyrir mikið annríki hafði hann alltaf tíma tU þess að miðla þekkingu til yngra fólksins á sinn rólega og hæverska hátt. Sjúk- lingarnir voru ekki bara „sjúkratil- felli“ heldur persónur með sál. Hann var fágætlega ættfróður og vissi oft meira um uppruna og um- hverfi sjúklinganna en þeir sjálfir. Þórarinn Björnsson, heitinn, skólameistari Menntaskólans á Akureyri, sagði eitt sinn í ræðu: „Læknamir þurfa ekki aðeins alla þekkinguna, þeir verða líka að eiga listina, kunnáttuna að fara með fólkið. Návist þeirra þarf að vera eins og smyrsl - færa frið og líkn og gefa kraft um leið. Þeir þurfa í senn styi'k og mýkt, nærfærinn kraft. Anda göfugrar þjónustu, þar sem færni og hjartahlýja fara saman.“ Þannig læknir var Ólafur Sigurðs- son. Félag íslenskra lyflækna vottar látnum heiðursfélaga þökk og virð- ingu og sendir eiginkonu, bömum og öðrum ástvinum hlýjar samúðar- kveðjur. _ Ástráður B. Hreiðarsson. I. Af ferðum vindanna eirðarlausu um víðáttu hvolfsins hafa engar spumir borist. (Úr kvæðinu Vetrardagar eftir Stefán Hörð Grímsson). II. Ó höfðingi, haf þú útlegð þína í heiðri! (Úr ljóðflokkunum Útlegð eftir franska ljóð- skáldið Saint-John Perse. Það kulaði ekki í viðræðustíl Ólafs Sigurðssonar, en hann var sérstæður svo sem sumt annað í hans fari. Að mæla fátt sjálfur, svara enn sparlegar, spyrja af ein- lægum áhuga og hlýða grannt og nema glöggt, - og þá geislaði af djúpstæðum augum hans: Viðmæl- endunum fundust þeir sjálfir ein- hvers virði! Undarlegt sambland af brim- sorfnu bergi og feiknstöfum annars vegar - og af viðkvæmnis- og blíð- legum andlitsdráttum hans hinsveg- ar - ófst saman með sérsökum hætti í ásjónu Ólafs Sigurðssonar. í minningu minni gekk hann ögn álútur, hárið slútti yfir ennið líkt og af bjargbrún yfir hafdjúpi. Og þá var sem hann rýndi fast í innstu af- kima hugans. Nokkuð mun það vera fjarri því að vera eina dæmið með þjóð vorri, að nokkuð afhroð guldu íslenskar bókmenntir við það að hæfileika- menn sem Ólafur Sigurðsson - forð- um sökum örbyrgðar, síðar etv. annarra saka - kysu ekki að helga ofurmátt og vald á íslenskunni, og meitlaða athygli, í þágu tungunnar okkar fögru og einstæðu. Fágaðar ritsmíðar samdi Ólafur læknir um ýmis efni, eina þá síðustu í lesbók Morgunblaðsins sem fjall- aði um „Fallið" sem þema í mann- legri veru og skáldskap, prýðisverk. „Fegurð harmsins“ hefði etv. átt vel við, sem heiti á henni. (MSK). Magnað og kjarnmikið var orðalag Ólafs í mergjuðum kveðjuorðum hans um merka vini. Þær eru og minnisstæðar og útgáfuverðar lesn- ingar sem risu hátt, að öðrum slík- um ólöstuðum. Höfundur þessara línubrota ætl- ar sér ekki að meta, hvort hljóta muni æðri hlut fyrir augliti eilífðar- innar: annars vegar a) „marmara- líkneskjur þjóðskálda hátt uppi á stöllum“ (minnist samt tilefni íróníu Jóns Helgasonar og þversagnar ljóðs hans) eða hins vegar b) hið dulúðga gefandi viðmót í kyrrþey sem þessi oftlega þungt þjakaða þjóð hefur megnað að sýna og eiga til að bera - og gerir enn! Slíka auð- legð tel ég eina hennar meginprýði, ef ekki þá dýrustu. Ef til vill getur hvorugt án hins verið! Minning og andi Ólafs Sigurðs- sonar læknis á Akureyri mun hald- ast á lofti af eigin rammleik. Þökk. Magnús Skúlason. HREFNA GUNNLA UGSDÓTTIR + Hrefna Gunn- laugsdóttir, sjúkraliði fæddist í Iteykjavik 15. sept- ember 1930. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Skógabæ 11. ágúst síðastlið- inn. Hún var dóttir hjónanna Gunn- laugs Bárðarsonar og Pálínu Schvev- ing. Þau eru bæði látin. Hálfsystkini Hrefnu eru Friðrik Jörgensen, Ásta Steingrímsdóttir og Hermann Steingrímsson (lát- inn). Hrefna var gift Trausta Frímannssyni, sem einnig er látinn og eignuðust þau fimm börn. Útför Hrefnu fór fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík 23. ágúst. Elsku „amma mús“. Ég sakna þín ofsalega mikið og elska þig ótrúlega mikið og þú verður alltaf í huga mér elsku „amma mús“. En nú ertu farin úr heiminum í allt aðra veröld, sem er gott, því nú ertu laus við sjúkdóminn og búin að hitta afa og allt er gott. En samt er sorglegt að þú skulir vera farin end- anlega frá mér því ég elska þig óti’úlega mik- ið. En ég man ekki mikið frá því þegar þú varst yngri en ég var líka svo lítil þegar þú fékkst þennan sjúk- dóm. En þú varst ofsakrútt þegar þú komst fram og ég tók glas úr uppþvottavél- inni og þú yljaðir þér á höndunum með því og ég setti kók svo í glas- ið og þú tókst sopa og gerðir svo svona „aaaaa“. Það var ofsa krútt, ég gleymi því aldrei. Ég hugsa oft um hvað var yndislegt að vera með þér, tala og spila við þig. Það var samt leiðinlegt að horfa á „ömmu litlu mús“ svona veika. Ég elska þig elsku „amma mús“. Gott er sjúkum að sofna, meðan sóhn er aftanrjóð, og mjallhvítír svanir syngja sorgblíð vögguljóð. Gott er sjúkum að sofa, meðan sólin í djúpinu er, og ef tíl vill dreymir þá eittvað, sem enginn í vöku sér. (Davið Stef.) Þitt bamabam, Pálína María Gunnlaugsdóttir. + Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, GERÐUR SIGURÐARDÓTTIR, Mýrarvegi 116, Akureyri, sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri miðvikudaginn 18. ágúst, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju á morgun, föstudaginn 27. ágúst, kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Svavar Guðni Gunnarsson, Sigurður Svavarsson, Peggy Lynn Berry, Gunnar Þór Svavarsson, Steinunn Ásta Zebitz, Kristlaug Þórhildur Svavarsdóttir, Bernard Zuidema, Ari Svavarsson, Ágústa Gullý Malmquist og barnabörn. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, INGIMARÍA ÞORBJÖRG KARLSDÓTTIR, Freyjugötu 43, Reykjavík, áður til heimilis í Álfafelli, Hveragerði, verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju föstu- daginn 27. ágúst kl. 15.00. Kolbrún Gunnarsdóttir, Róbert Pétursson, Auður Gunnarsdóttir og fjölskyldur. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐNIÓLAFSSON útgerðarmaður og skipstjóri, Brimhólabraut 30, Vestmannaeyjum, sem lést á Sjúkrahúsi Suðurlands föstudaginn 20. ágúst, verður jarðsunginn frá Landakirkju ( Vestmannaeyjum laugardaginn 28. ágúst kl. 14.00. Gerður Guðríður Sigurðardóttir, Agnar Guðnason, Svanhvít Yngvadóttir, Sigurður Óli Guðnason, Rannveig Þyri Guðmundsdóttir, Bjarki Guðnason, Ragnheiður Guðfinna Guðnadóttir og barnabörn. + Hjartkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi okkar, STEINN DALMAR SNORRASON, Syðri-Bægisá, lést þriðjudaginn 17. ágúst. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju mánu- daginn 30. ágúst kl. 13.30. Jarðsett verður í Bægisárkirkjugarði. Þeir, sem vilja minnast hans, vinsamlegast láti Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri njóta þess. Hulda Aðalsteinsdóttir, Katrín Steinsdóttir, Jóhannes Sigfússon, Helgi B. Steinsson, Ragnheiður M. Þorsteinsdóttir og barnabörn. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JAKOBÍNA HULDA ÁGÚSTSDÓTTIR. Sólvangi, Hafnarfirði, áður Kelduhvammi 9, verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju á morgun, föstudaginn 27. ágúst, kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á að láta sjúkrahúsið Sólvang njóta þess. Friðrik Ágúst Helgason, Margrét Guðmundsdóttir, Þorvaldur Árnason, Eva Ákermann, Hjördís Árnadóttir, Sigurður Kristófersson, Margrét Árnadóttir, Arnar Jónsson, Ingibjörg Hildur Árnadóttir, Gerður Árnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, HANS LINDBERG ANDRÉSSONAR skipasmiðs, Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði. Ala Lindberg Tómasdóttir, Pétur Hansson, Una Björk Harðardóttir, Inngeborg Lindberg, Bjarne Pedersen, Jón Andrés Hansson, Erling Tómas Lindberg, Sigrún Sigurðardóttir, Hildur Lindberg, Jón Númi Ástvaldsson, Valgerður Lindberg, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskulegur faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi, DAGBJARTUR HANNESSON bóndi, Gljúfurárholti, Ölfusi, er lést fimmtudaginn 19. ágúst, verður jarðsunginn frá Hveragerðiskirkju laugar- daginn 28. ágúst kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Brynja Dagbjartsdóttir, Þorleifur Sigurðsson. + Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, syst- ur, ömmu og langömmu, HREFNU HERBERTSDÓTTUR, áður til heimilis að Álftamýri 48. Sérstakar þakkir til starfsfólks Droplaugar- staða og deildar 3L á Landakotsspítala. Herbert Árnason, Herdís Magnúsdóttir, Ólafía Árnadóttir, Reynir Olsen, Hertha Árnadóttir, Gerða Herbertsdóttir, Hebba Herbertsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.