Morgunblaðið - 15.10.1999, Side 1
234. TBL. 87. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Alþjóðabank-
inn varar
Rússa við
Moskvu. Rcuters.
MICHAEL Carper, aðalfulltrúi Ai-
þjóðabankans í Moskvu, varaði
Rússa við því í gær að bankinn kynni
að hætta að veita þeim lán ef út-
gjöldin til hersins færu úr böndunum
vegna átakanna í Tsjetsjníu.
„Ef útgjöldin til hermála snar-
aukast og stofna fjárlögunum í
hættu... myndi það gera okkur
ókleift að halda áfram greiðslu að-
lögunarlána," sagði Carper.
Alþjóðabankinn heimilar ekki að
slík lán séu notuð til kaupa á vopnum.
■ Rússar halda áfram/28
• •
Oldungadeild Bandarrkjaþings hafnar banni við kjarnorkutilraunum
Washington, Peking, París. Reuters.
RAÐAMENN í Evrópu sögðust í gær hafa miklar áhyggjur af því að sú
ákvörðun öldungadeildar Bandaríkjaþings að hafna samningnum um alls-
herjarbann við kjarnorkusprengingum í tilraunaskyni gæti grafið undan tO-
raunum til að stemma stigu við útbreiðslu kjarnavopna í heiminum. Við-
brögð kjamorkuveldanna í Asíu voru þó ekki eins neikvæð og spáð hafði
verið og Kínverjar og Indverjar sögðust enn styðja samninginn.
Tveh' þriðju öldungadeildarinnar,
eða 67 þingmenn, þurftu að sam-
þykkja samninginn um tilrauna-
bannið en aðeins 48 þingmenn
studdu hann í atkvæðagreiðslunni í
fyrrakvöld. 51 þingmaður greiddi at-
kvæði gegn honum.
Þetta er í fyrsta sinn sem öldunga-
deildin hafnar mikilvægum alþjóða-
samningi frá Versala-samningnum
eftir fyrri heimsstyrjöldina. Niður-
staða atkvæðagreiðslunnar þýðir að
samningurinn getur ekki gengið í
gildi þar sem hann kveður á um að til
þess þurfi 44 ríki, sem eiga eða geta
framleitt kjarnavopn, þ.á m. Banda-
ríkin, að staðfesta hann.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
sagði þó að því færi fjarri að „orrust-
unni“ væri lokið og kvaðst sannfærð-
ur um að öldungadeildin myndi sam-
þykkja samninginn síðar. Hann bætti
ap við að Bandaríkjastjóm myndi ekki
streng í forystugrein og segir að
ákvörðun öldungadeildarinnar geti
valdið utanríkisstefnu og þjóðarör-
yggi Bandaríkjanna verulegum
skaða. Erfiðara verði að koma í veg
fyi’ir að ríki eins og íran, írak og
Norður-Kórea smíði kjarnavopn og
kjarnorkuveldi eins og Rússland
kunni þegar fram líði stundir að
freistast til að hefja leynilegar kjarn-
orkutilraunir.
Kínverjar, sem hafa undirritað
samninginn, sögðust þó ætla að flýta
staðfestingu samningsins á kín-
verska þinginu og beita sér fyrir því
að hann gangi í gildi.
Stjóm Indlands, sem sprengdi
kjamorkusprengjur í tilraunaskyni í
maí á síðasta ári, kvaðst ætla að
halda áfram að beita sér fyrir þvi að
samningurinn yrði staðfestur á þingi
landsins.
Ekki var vitað um afstöðu Pakist-
ana, sem svöraðu kjarnorkuspreng-
ingum Indverja með eigin kjarnorku-
tilraunum á síðasta ári. Nawaz
Sharif, íyrrverandi forsætisráðherra,
sem pakistanski herinn steypti af
stóli á þriðjudag, hafði lofað að undir-
rita samninginn innan árs.
afnema bann við
kjamorkutilraun-
um, sem hún setti
að eigin fram-
kvæði, og skoraði
á önnur ríki að
gera hið sama.
Niðurstaða at-
kvæðagreiðslunn-
ar er þó mikill
ósigur fyrir Clint-
on, sem undirritaði samninginn 1996
og hefur gert baráttuna gegn út-
breiðslu kjarnavopna að forgangs-
máli í utanríkisstefnu sinni.
Bill Clinton
Kínverjar hyggjast flýta
staðfestingu samningsins
Ráðamenn í nokkram Evrópuríkj-
um sögðust hafa miklar áhyggjur af
þvi að niðurstaðan á Bandaríkjaþingi
gæti torveldað tilraunir til að koma í
veg fyrir frekari útbreiðslu kjarna-
vopna í heiminum. Franska utanrík-
isráðuneytið sagði t.a.m. að öldunga-
deildin hefði grafið undan trúverðug-
leika Bandaríkjamanna sem forystu-
þjóðar í baráttunni gegn kjarnorku-
vánni.
The New York Times tekur í sama
Kínverjar og Indverjar
segjast styðja bannið
Hróp gerð
að forseta
Serbíu
ÞÚSUNDIR stjórnarandstæð-
inga gerðu í gær hróp að Milan
Milutinovic, forseta Serbíu, þeg-
ar hann vígði brú sem eyðilagð-
ist í bænum Nis í loftárásum
Atlantshafsbandalagsins fyrr á
árinu.
Um 6.000 stuðningsmenn
bandalags serbnesku stjórnar-
andstöðunnar komu saman í
miðbænum og stóðu andspænis
2.000 stuðningsmönnum Sósíal-
istaflokksins, flokks Slobodans
Milosevic, forseta Júgóslavíu. Um
hundrað óeirðalögreglumenn
komu í veg fyrir að hópunum
lysti saman.
Eftir að Milutinovic fór af
staðnum gengu lögreglumenn-
irnir í skrokk á tíu stjórnarand-
stæðingum og einn þeirra var
fluttur á brott með sjúkrabfl.
Serbneska sljórnarandstaðan
hefur staðið fyrir daglegum mót-
mælum gegn stjórn Milosevic frá
21. september og vonast til þess
að geta steypt henni af stóli í
kosningum. Sljórnarandstöðu-
flokkarnir náðu í gær samkomu-
lagi um hvernig haga bæri kosn-
ingunum til að tryggja að þær
yrðu fijálsar og lýðræðislegar.
„Við krefjumst hringborðsum-
ræðna við yfirvöld og að kosn-
ingar verði skipulagðar eins
fljótt og mögulegt, er,“ sagði Vuk
Obradovic, leiðtogi eins sljórnar-
andstöðuflokkanna. Þeir vilja að
efnt verði til kosninga í Serbíu
ekki síðar en í byijun næsta árs.
Yfírmenn hersins í Pakistan lýsa yfír neyðarástandi í landinu
Stjórnarskráin numin úr
gildi og þingið leyst upp
íslamabad. Reuters, AFP.
AP
Óeinkennisklæddir lögreglumenn handtaka stuðningsmann Nawaz
Sharifs, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans, í Lahore.
HER Pakistans lýsti yfir neyðar-
ástandi í landinu í gærkvöldi og
kvaðst hafa numið stjórnarskrána úr
gildi og leyst upp þingið. „Allt
Pakistan verður undir stjórn hers-
ins,“ sagði í yfirlýsingu frá Pervez
Musharraf, yfirmanni hersins, sem
steypti Nawaz Sharif forsætisráð-
herra af stóli í valdaráni hersins á
þriðjudagskvöld.
í yfirlýsingunni var ennfremur til-
kynnt að allir ráðherrar og héraðs-
stjórar í landinu ættu að láta af störf-
um. Musharraf yrði æðsti embættis-
maður framkvæmdavaldsins en Rafiq
Tarar forseti héldi þó embætti sínu.
Þinghúsinu lokað
Áður en herinn lýsti yfir neyðar-
ástandi lokaði hann þinghúsinu í
Islamabad eftir að hafa skipað öllum
starfsmönnum þingsins að fara það-
an. Fyrir valdaránið hafði verið
ákveðið að neðri deild þingsins kæmi
saman í dag.
Fregnir hermdu ennfremur að
Nawaz Sharif hefði verið fluttur frá
íslamabad til heimaborgai’ sinnar,
Lahore.
Talsmenn hersins héldu áfram að
úthúða Sharif til að verja valdaránið,
sökuðu hann um að hafa gert sam-
særi gegn hernum og „lekið hernað-
arlegum leyndarmálum".
Pakistönsk dagblöð sögðu að
nokkrir stuðningsmenn Sharifs í
hernum yrðu leiddir fyrir herrétt,
m.a. undirhershöfðingi, sem Sharif
hugðist gera að yfirmanni hersins
þegar hann reyndi að reka Mus-
harraf.
Pólitíska tómarúmið í landinu og
orðrómur um að sett yrðu herlög
urðu til þess að gengi pakistanskra
hlutabréfa lækkaði um 7% í gær.
Vilja mynda
bráðabirgðastjórn
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, skoraði á
pakistanska herinn að koma á borg-
aralegri stjórn sem allra fyrst. Ráða-
menn fjölmargra ríkja hafa tekið í
sama streng og hvatt herinn til að
boða strax til kosninga en nokkrir
pakistanskir stjórnmálamenn hafa
sagt að fyrst þurfi að mynda bráða-
birgðastjórn. Farooq Leghari, fyrr-
verandi forseti, sem sagði af sér eftir
valdabaráttu við Sharif, sagði að
mynda þyrfti bráðabirgðastjórn til
að skera upp herör gegn spillingu og
undirbúa kosningai’.
Leiðtogi Lashkar-e-Taiba, her-
skárrar hreyfingar múslima, krafðist
hins vegar þess að stofnað yrði ís-
lamskt ríki og sagði að lýðræði væri
engin lausn á vanda landsins.
Manm-éttindasamtökin Amnesty
International sögðu að valdaránið
væri afleiðing versnandi ástands í
mannréttindamálum í Pakistan.
Valdaránið sýndi að brýnt væri að
koma á lagalegum og stjórnarfars-
legum umbótum til að tryggja að
mannréttindi yrðu höfð í heiðri.
Pakistanskir fjölmiðlar sögðu að
herinn hefði séð sig knúinn til að
steypa Shai’if af stóli vegna eimæð-
istilburða hans. „Ólýðræðislegir
stjórnarhættir kjörinna valdhafa
Pakistans urðu til þess að herinn -
öflugasta og traustasta stofnun
landsins - átti einskis annars úrkosti
en að skerast í leikinn,“ sagði í for-
ystugrein dagblaðsins The News.