Morgunblaðið - 15.10.1999, Blaðsíða 70

Morgunblaðið - 15.10.1999, Blaðsíða 70
70 FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1999 MGRGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Bennu Gerede í Baráttunni um börnin Mynd sem verður hötuð eða elskuð Tyrkneska leikkonan Bennu Gerede fer með hlutverk móður dætranna tveggja í íslensku myndinni Baráttan um börnin. Pétur Blöndal talaði m.a. við hana um hlutverkið og forræðisdeilu Sophiu Hansen og Halims Al. BARÁTTAN um börnin nefnist kvikmynd tyrk- neska leikstjórans og handritshöfundarins Canan Gerede sem að „nokkru leyti er innblásin“ af for- ræðisdeilu Sophiu Hansen og Halims AI. Má búast við að myndin eigi eftir að vekja sterk viðbrögð, jafnt hérlendis sem í Tyrklandi. Leikkonan Bennu Gerede, dóttir leikstjórans, fer með hlut- verk móður dætranna, Sólar. Hún segir að hlutverkið hafí verið krefjandi. „Það reyndi mikið á mig enda dramatískt, átakamikið og tilfinningasveifl- urnar miklar,“ segir hún. Aðspurð hvernig það sé að vinna svo náið með móður sinni svarar hún: „Þetta er í annað skipti sem við vinnum saman og það heppnaðist mun betur en hið fyrra. Ætli það sé ekki vegna þess að ég hef þroskast meira. Það getur verið erfítt að gera greinarmun á móður sinni og leikstjóranum en það tókst í þetta sinn.“ Hvernig heldurðu að viðbrögðin við myndinni verði í Tyrklandi? „Ég held að hún verði ekki sýnd hér fyrr en um áramótin þar sem öll kvikmyndahús eru yfirfull en þegar að því kemur má búast við að myndin verði mjög umdeild, enda er þetta eldfímt og viðkvæmt pólitískt mál. Þarna koma allar öfgarnar fram í dagsijósið og Tyrkir eiga eftir að hata eða elska myndina. Það verður enginn millivegur. Ég hallast að því að þeir eigi ekki eftir að hafa gaman af henni; ég held raunar að enginn eigi eftir að hafa gaman af henni. Þetta er mjög svört mynd.“ Hvort finnst þér myndin taka Tilbúinn á rjúpuna? Rjúpnavesti kr. 13.250,- Gore-Tex jakki kr. 29.980,- Rjúpnaskot 32 gr. 25 stk. frá kr. 550,- Skotbelti frá kr. 1.650,- Vettlingar, grifflur frá kr. 720,- Rjúpnakippur, leður frá kr. 720,- Utanyfirbuxur. Mikið úrval. Gore-Tex legghlífar, frá kr. 4.580,- Göngusokkar frá kr. 990,- Sjúkrapúðar frá kr. 3.380,' Neyðarblys frá kr. 1.490,' Fleece peysur frá kr. 3.990,- GPS staðsetningartæki frá kr. 11.900,- Sjónaukar frá kr. 2.290, Áttaviti kr. 1 Haglabyssur frá kr. Margargerðir. Gönguskór, Meindl Island kr. 16.900,- Nærfatnaður, bolur og buxur frá kr. 6.270,- Skotveiðimenn, sýnum aðgát við meðferð skotvopna og látum vita af ferðum okkar. Göngum vel um landið og tínum upp tóm skothylki. Berum virðingu fyrir bráðinni og afkomu stofnsins. Njóttu útilífsins meó búnaði frá okkur. jt jr UTILIF Munið eftir fríkortinu! GLÆSIBÆ Sími 581 2922 • www.utilif.is Sól reynir að flýja með dæturnar. Hlutverk móðurinnar var mjög kreljandi, að sögn Bennu. málstað Halims A1 eða Sophiu Hansen? „Canan reyndi að taka ekki afstöðu,“ svarar Bennu. „En mér fínnst hún lýsa Halim sem betri manni en Sophiu. Hún blandar ekki skoðunum sínum í myndina en mér líkar ekki konan sem ég leik; ég finn ekki til sam- úðar með henni. Annað gildir um Sophiu Hansen.“ Hefurðu hitt hana? „Ég hitti hana og Halim A1 fyrir tveimur árum. Hann var nyög opinn og hlýr og varði miklum tíma í að útskýra málstað sinn fyrir okkur. Sophia var fjarlægari. Ég skil það vel því forræðisdeilan hlýtur að hafa höggvið mjög nærri henni og verið sár- saukafull fyrir hana; að geta ekki hitt börnin og verið með þeim. Hún var ekki mjög hjálpleg en ég hef fullan skilning á því.“ Afslappaðra á íslandi Hvenær heyrðirðu fyrst af þessu máli? „Fyrir þremur árum í Ham- borg þegar Friðrik Þór lagði til við Canan að hún gerði mynd- ina. Þá hafði handritið verið í undirbúningi í nokkurn tíma.“ Hver heldurðu að afstaða Tyrkja sé almennt gagnvart þessari forræðisdeilu? „Meirihluti strangtrúaðra múslima stendur bak við Halim AI og þess vegna hefúr hann komist upp með að taka börnin frá móður sinni. Nú þegar þau hafa vanist þessum menningar- heimi og verið heilaþvegin veit ég ekki hvort þau eiga eftir að rífa sig upp frá föður sinurn." Hvernig kunnirðu við þig á íslandi? „Alveg frábærlega," svarar hún. „Tökurnar á Islandi heppn- uðust vel og andrúmsloftið var afslappað; ekki eins taugaveikl- að og í Tyrklandi. Það voru meiri fagmenn sem stóðu að tökunum." Að hveiju ertu að vinna núna? „Ég kom á fót tímariti með vini mínum og fjallar það um tísku og menningu. Það er nokkuð stórt blað, hið fyrsta sinnar tegundar í Tyrklandi og við erum að reyna að móta tíða- randann.“ Ertu þá líka blaðamaður? _„Nei,“ svarar hún og hlær. „Ég tek myndirnar fyrir tíma- ritið.“ Og hvað um leiklistina? „Ég á ýmislegt eftir ógert á því sviði; vonandi fæ ég bráðum tækifæri til að leikstýra.“ dLife Nýi dömuilmurinn G oo
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.