Morgunblaðið - 15.10.1999, Blaðsíða 62
^ 62 FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Grettir
Hundalíf
Ljóska
AF HVERJU SITURÐU ÞARNA?! ÞETTA ER BÓK! ÞÚ VEIST HVAÐ Ekkert, mamma. Ég er bara
BÓK ER, ER ÞAÐ EKKI? að hvetja hann til að lesa.
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Jörðin er hnöttótt!
Frá Bjarna Ásbjörnssyni:
SR. RAGNAR Fjalar virðist hafa
lagt eld að stórri púðurtunnu er
hann skrifaði grein í Morgunbiaðið
hinn 14. september síðastliðinn.
Viðbrögðin hafa verið sterk enda
málefnið eldfimt. Nokkrar blaða-
greinar fylgdu í kjölfarið og hafa
bæði sr. Ragnar Fjalar og þjóð-
kirkja okkar Islendinga fengið væn-
an skammt af óvæginni gagngrýni.
Þjóðkirkjunni hefur verið lýst sem
harðri, kaldri, gamaldags stofnun í
engum takti við nútímamanninn,
nánast að syngja sitt síðasta, rétt
eins og síðasta risaeðlan. Og prest-
urinn fyrrverandi fékk langan lista
yfir lesti guðfræðiiegra raka sinna,
en þó með reglulegum samúðar-
kveðjum.
Eftir að hafa lesið eina greinina
sem vakti athygli mína og bar nafn-
ið „Jörðin flöt“ fannst mér vert að
staldra við og íhuga málið. Er okkar
lúterska þjóðkirkja svona langt frá
sannleikanum? Hefur hún staðið
gegn vísindum? Hefur hún staðið
gegn réttindum kvenna? Hefur hún
kúgað blámanninn? Nei, það er
varla hægt að segja að það hafi ver-
ið á stefnuskrá hennar. En hvað um
kirkjumennina harðsvíruðu? Jú,
vissulega hefur verið margur mis-
jafn sauðurinn þar, og ekki hafa
þeir allir farið eftir þeim beitta kær-
leiksboðskap sem er í bókinni sem
þeir ættu að boða sem fulltrúar
kristinnar kirkju. Margir hafa látið
bókina lönd og leið, en stýrst af
stundlegum gróða, eigin hagsmun-
um og almenningsáliti.
En hvað um sr. Ragnar Fjalar
sem er sagður í ofannefndri grein
„hafa tjáð brenglaðar skoðanir sín-
ar opinberlega". Hann sagðist nú
bara vera að benda á orð biblíunnar
og Jesú Krists en á þeim á víst að
byggja kristna kirkju, segir hann.
Eg fór þá að velta fyrir mér hvað
þessi stórmerkilega bók segði um
lögun jarðar. Er hún bein eða bog-
in? Það sem ég fann á nokkuð
mörgum stöðum varðandi þetta at-
riði var að þar er talað um jarð-
kringluna. Sem þýðir jarðhnöttur
samkvæmt þeim íslensku orðabók-
um sem til eru. Og eftir að ég kann-
aði málið nánar að þá komst ég að
því að það er ekkert á frummáli
biblíunnar sem segir að jörðin sé
flöt. Hún er merkileg þessi bók sem
stenst tímans tönn svo fyllilega. Það
virðist því vera svo að kennimenn
kirkjunnar hafa gert sín stærstu
mistök þegar þeir hafa gleymt að
nýta sér þessa stórmerkilegu heim-
Od eða hreinlega ekki haft mikla trú
á henni. sr. Ragnar heldur því hins
vegar statt og stöðug fram að
blessuð bókin hafi rétt fyrir sér, en
fær að launum nánast daglega
krossfestingu í fjölmiðlum landsins.
Eg bið lesendur vel að lifa.
BJARNIÁSBJÖRNSSON,
Vallarás 4, Reykjavík.
Smábátar og línu-
bátar eiga að róa
Frá Gísla Holgerssyni:
HRAÐBRAUTIR milli helstu þétt-
býlisstaða á landsbyggðinni og
Reykjavíkur tengja best saman
fólkið í landinu.
Það er ömurlegt til þess að hugsa
að sveitir þessa heilaga lands hér í
hánorðri skuli vera að riðlast af
vinnuleysi og skorti á djörfung tO
góðra verka vegna þess að búið er
að færa alla vinnu frá vinnandi fólki
í sjávarþorpum tO rekstraraðila
sem finna sínum hag best borgið á
öðrum stöðum en í heimabyggð.
Vel byggðir firðir og fallegar
sveitir eru að fara í auðn vegna
vinnuleysis og svaðOfara í atvinnu-
vegum víðs vegar um landið. Það er
illt að heyra, að um 2.000 lands-
byggðarmenn skuli flytja tO
Reykjavíkur á hverju ári.
Það hlýtur að vera flestum ljóst
að það verður að leyfa mönnum við
sjávarsíðuna aUt í kringum landið
að veiða óheft og óáreitt án kvóta
svo framarlega sem þeir veiða á
færi eða línu. Það gengur ekki leng-
ur að hefta menn frá vinnu sem búa
við hafið og færa okkur besta aflann
og langbesta hráefnið. Smábátar á
færa- og línuveiðum breyta ekki
hafsbotninum og umturna veiði-
svæðum. Þessir bátar eiga að róa.
Það skiptir ekki neinu máli fyrir
mig hvort bátarnir umhverfis landið
eru eitt þúsund eða fimm þúsund.
Regluruglið er of margbrotið. Þess-
0’ veiðimenn eiga að vera kvótalaus-
ir og veiða af guðsnáð eftir veðri og
vindum. Það fólk sem fæðist í návist
við hafið á ekki að vera í nagi við yf-
irvöld um það hvort það megi sækja
sjó á sínum smábátum sem veiða
með færi og línu.
I þessari grein á enginn kvóti að
vera til og þess vegna engin óregla
að myndast.
Gefum þessum mönnum veiði-
leyfin að nýju því þeir munu stoppa
landflóttann hingað suður tO
Reykjavíkur og verða sjálfum sér
og allri heimabyggð tO mestra bóta.
Látum stórútgerðina um kvót-
ann, hún er að sumra sögn á heims-
mælikvarða.
Við eigum að sýna því fólki hvar
sem er á landsbyggðinni þann
manndóm að þakka því og lofa fyrir
að vinna við okkar aðalatvinnuveg
og telja því að minnsta kosti trú um
að það sé fínt og ég endurtek mjög
fínt að vinna við fisk.
Forráðamenn þessarar þjóðar
eiga að vera í fararbroddi við að
telja okkur trú um að okkar fiskur
sé sá besti og langbesta afurð á öl-
um heimsmarkaðnum. Þess vegna
er það stolt hvers og eins að vinna
við fiskframleiðslu okkar og aðalat-
vinnuveg.
GÍSLI HOLGERSSON
kaupmaður.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.