Morgunblaðið - 15.10.1999, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 15.10.1999, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Nýbygging Kringlunnar opn- uð með viðhöfn NÝBYGGING verslunarmiðstöðv- arinnar Kringlunnar var opnuð með viðhöfn í gærmorgun. Með byggingunni er búið að tengja saman Kringluna, Borgarkringl- una og Borgarleikhúsið og er hús- næðið allt um 62.000 fermetrar að stærð eftir breytinguna. Nýbygg- ingin sjálf er um 10.000 fermetrar og tengibygging við Borgarleik- húsið um 2.000 fermetrar. Eldri hluti Kringlunnar er um 40.000 fer- metrar og Borgarleikhúsið um 10.000. Með nýbyggingunni bætast við Kringluna, til að byrja með, að minnsta kosti 38 nýjar verslanir og þjónustufyrirtæki og eru þau nú um 150 talsins. Áætlaður heildar- kostnaður við framkvæmdina er um þrír milljarðar króna. Ymsar nýjungar í starfsemi Kr- inglunnar koma til sögunnar nú og á næstunni og má þar nefna tengi- byggingu við Borgarleikhúsið, úti- bú Borgarbókasafnsins sem mun flytja í Kringluna á næsta ári, sér- staka unglingaálmu og útisvæði þar sem verður bæði garður og steintorg. Á torginu verður geymsla með hlutum úr verslunum Kringlunnar sem þykja dæmigerð- ir fyrir andartakið og verður henni lokað og læst um óákveðinn tíma. í samkeppni við erlenda verslun Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri Reykjavíkur hélt ræðu við opnunina og óskaði hún aðstandendum Kringlunnar til hamingju með vel heppnaða fram- kvæmd. Hún benti á að sumum gæti þótt nóg um þegar verið væri að auka svo stórlega við verslunar- húsnæði landsins en minnti svo á að verslun á Islandi væri í sam- keppni við verslun erlendis og því væri mikilvægt að aðstæður til verslunar hérlendis væru sem allra bestar. Morgunblaðið/Júlíus Sigurður Gísli Pálmason stjórnarformaður eignarhaldsfélags Kringlunnar opnaði nýbygginguna formlega með því að klippa á borða með sérsmíðuðum skærum, þeim sömu og Pálmi Jónsson faðir hans klippti borða með þegar Kringlan var opnuð árið 1987. Sigurði Gisla til aðstoðar eru Ragnar Atli Guðmundsson fram- kvæmdastjóri eignarhaldsfélagsins og Garðar Friðjónsson aðstoðarmaður hans. Straumur fólks lá í Kringluna RAGNAR Atli Guðmundsson, framkvæmdastjóri Eignar- haldsfélagsins Kringlunnar hf., segir þann fólksfjölda sem mætti til að skoða viðbyggingu Kringlunnar í gær samkvæmt björtustu vonum. „Við lögðum mikið í þetta, enda er þetta er mikil fjárfest- ing hjá okkur," segir Ragnar Atli og kveður menn hafa góð- ar væntingar til viðbyggingar- innar. Hann segist þó ekki vita hve margir hafí komið í Kringl- una á þessum degi, en segir bflastæði hafa verið full frá því ellefu í gærmorgun. Áhersla verður lögð á fjölskylduna Töluvert var af uppákomum í tilefni af opnuninni og eru þær í tengslum við nýja ímynd Kringlunnar, en markaðsselja á Kringluna meira fyrir fjöl- skylduna og þá sérstaklega börnin. Sem dæmi um þetta nefnir Ragnar Atli að eggi einu hafí verið komið fyrir hjá Herragarðinum og muni það klekjast út og veran sem þar komi út verði hluti af krakka- klúbbnum, Vinaklúbbi Kringl- unnar, sem á að stofna. Mikil vinna hefur staðið yfír undanfarna daga, en keppst hefur verið við að ljúka við- byggingunni á tilsettum tíma. Að sögn Ragnars Atla gekk vel að ljúka frágangi á sameign Kringlunnar. Hann segir meiri óvissu þó hafa ríkt hjá sumum fyrirtækj- anna, því mörgum hafi reynst erfítt að fá iðnaðarmenn til starfa. Iðnaðarmenn að fram á morgun „Við vorum alltaf mjög bjart- sýnir á að þetta myndi ganga,“ segir Ragnar Atli. Hann kveður þó hafa verið ljóst að þetta yrði mikil vinna fyrir marga nóttina fyrir opnun. Enda hafí, þegar leið að opnun viðbyggingarinn- ar, þurft að reka út nokkra iðn- aðarmenn sem enn voru að störfum. Með nýrri viðbyggingu munu um 60 fyrirtæki í Kringlunni gera tilraun til að hafa opið á sunnudögum og stendur sú til- raun til aprflloka. Bók ^BtamnrQar ALEX FERGUS0N- MANAGING MY LIFE Bók um arkitektúr 20. öldin í máli og myndum Nýjar erlendar bækur daglega ivmimdsson Austurstræti • Kringlunni Torfí Ólafsson. Kristín Kjartansdóttir og Guðbjörg Jónsdóttir. Morgunoiaoio/övernr Guðmundur Marteinsson og Brynja Karlsdóttir. Geir Helgi Birgisson, Stefán Orn Oskarsson og Stefán Hjartarson. Viðskiptavinir voru ánægðir FJÖLDI manns mætti í Kringluna í gær til að skoða Kringluna og var ekki annað að heyra en að viðskipta- vinir væru almennt ánægðir með þessa viðbót. Þau Brynja Karlsdóttir og Guð- mundur Marteinsson voru búin að rölta töluvert um og skoða. Þau voru sammála um að vel hefði tekist til með bygginguna, en sögðu klifur- vegginn við rúllustigann þó einna áhrifamestan. Bæði sögðust þau koma nokkuð oft í Kiángluna 1 flestir Reykvíkingar. Torfí Olafsson var önnum Kannn við að leita sér að fatnaði í Nano'q'. Hann sagðist ekki vera búinn að sjá mikið af viðbyggingunni ennþá, en kvað það þó glæsilegt sem hann hefði séð. Enda ætlaði hann að skoða bygginguna betur. Við arineldinn í bókasafninu í versluninni Nanoq létu þeir Stefán Hjartarson, Stefán Örn Óskarsson og Geir Helgi Birgisson fara vel um sig. Þeir voru allir sammála um að nýja viðbyggingin væri flott og sögðust vera ánægðir með hana. Stefáni Erni fannst þó unglinga- gangurinn bera af og sagði gott fyrir unglinga að eiga sér stað í Kringl- unni. Sigurjón Marinósson skoðaði Kr- ingluna í fylgd eiginkonu og dóttur- sonar. Hann sagði að sér litist vel á það sem hann hefði séð, en bætti við að það væri þó ekki mikið. Kr- ingluröltið væri rétt að hefjast. Sig- urjón sagðist þó hafa heyrt því fleygt í sumum verslananna að Kr- inglan færi nú að verða of stór. Þrjár hæðir væru meira en við- skiptavinirnir nenntu að labba um. Þær Guðbjörg Jónsdóttir og Kristín Kjartansdóttir voru búnar að skoða viðbygginguna vel. Guð-, björgu leist mjög vel á. Kristín var henni sammála og sagði bygginguna bæði íburðarmikla og flotta. „Þetta er mjög sérstakt," sagði Guðbjörg. „Eg er búin að vera mikið í útlönd- um og ég hef ekki séð neitt þessu líkt, en þetta sýnir það líka að Is- lendingar eiga nóg af peningurn." Helena Kristjánsdóttir var ekki síður ánægð með viðbyggingu Kr- inglunnar en aðrir sem rætt var við. Hún sagði að sér litist vel á bygging- una í heild og væri hönnunin vel heppnuð. Helena sagði viðbygging- una þá ekki síður fjölbreytta. Þar væri að finna gott úrval verslana og aldrei að vita nema hún ætti eftir að nýta sér þær einhvern tímann. Sigurjón Marinósson ásamt dóttursyni. Helena Kristjánsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.