Morgunblaðið - 15.10.1999, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 15.10.1999, Qupperneq 10
10 FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ Evrópumálin til umræðu á Alþingi Unnið að gerð stöðuskýrslu í utanríkis- ráðuneytinu UNNIÐ er að gerð stöðuskýrslu í utanrfldsráðuneytinu um þróun samrunaferlisins í Evrópu og von- ast Halldór Ásgrímsson utanríkis- ráðheiTa til þess að skýrslan geti reynst grundvöllur að umræðu um Evrópumál á Islandi. Utanríkis- ráðherra neitaði því á Alþingi í gær að stjórnarflokkarnir útilokuðu fyrirfram nokkra valkosti í þeirri umræðu og sagði ekki rétt að reynt hefði verið að stöðva umræðu um Evrópumálin á íslandi. Það var Sighvatur Björgvinsson, þingmaður Samfylkingar, sem átti frumkvæði að umræðu um Evrópu- mál á Alþingi í gær með því að fara fram á utandagskrárumræður um ný viðhorf um aðild Islands að ESB. Tilefnið voru ummæli sem utanríkisráðherra lét falla í frétta- tíma Stöðvar 2 á miðvikudagskvöld í kjölfar fregna þess efnis að fram- kvæmdastjórn ESB hefði mælt með því að teknar yrðu fullgildar aðildarviðræður við sex ríki til við- bótar þeim sex, sem fengu að hefja slíkar viðræður í fyrra. Þau orð Halldórs í fréttatíman- um, að þetta breytti mjög miklu fyrir íslendinga, og að löndin á Evrópska efnahagssvæðinu (EES) þyrftu að endurskoða stöðu sína, ALÞINGI sagði Sighvatur athyglisverð um- mæli. Ummæli sem gengju þvert á þá yfirlýsingu Davíðs Oddssonar forsætisráðherra að Evrópumálin væru ekki á dagskrá. „Fyrir mig, sem er sannfærður um það að það sé bara tímaspurn- ing hvenær ísland verður aðili að Evrópusambandinu, er það mikið áhyggjuefni að sú stefna hæstvirts forsætisráðherra að taka málið ekki einu sinni á dagskrá hefur valdið því að íslenskir hagsmunir standa verr en ástæða værí til að ætla að vera myndi ef öðruvísi hefði verið haldið á málum,“ sagði Sighvatur. Lýsti hann því ánægju með að utanríkisráðherra fylkti nú liði með Samíylkingunni að taka málið á dagskrá. Halldór Ásgrímsson utanríkis- FRÉTTIR Morgunblaðið/Kristinn Hafnfírðingarnir og FH-ingarnir Guðmundur Árni Stefánsson og Árni Mathiesen ræða málin. Fyrir framan eru Sturla Þorsteinsson varaþingmaður og Kristján Pálsson. ráðherra sagpi í ræðu sinni að vita- skuld yrðu Islendingar að spyrja sig hverjar afleiðingar það gæti haft á samskipti Islendinga við ESB, að sambandið hefði nú ákveð- ið að hefja aðildarviðræður við sex nýjar þjóðir. Lýsti hann í lokaorð- um sínum við umræðuna ennfrem- ur áhyggjum sínum vegna þeirrar afstöðu ESB að vilja ekki ræða við aðildarþjóðir Vestur-Evrópusam- bandsins (VES) um stofnanaþátt þess vegna samrunaferlisins í Evr- ópu fyrr en eftir að búið sé að leggja VES niður, og sameina það ESB. Engir valkostir útilokaðir Halldór greindi frá því að í utan- ríkisráðuneytinu væri nú unnið að stöðuskýrslu um Evrópumálin. Kom fram að hún yrði tilbúin í byrjun næsta árs og þá lögð fyrir ríkisstjórn og síðan utanríkismála- nefnd Alþingis. í framhaldinu yrði síðan ákveðið hvað gera ætti með skýrsluna og hvort ástæða þætti til frekari vinnu í framhaldi af henni. I þeirri umræðu sem af hlytist sagði Halldór að ríkisstjómar- flokkarnir myndu auðvitað ekki útiloka neina kosti, „og ég held að það geti í reynd enginn útilokað eitt né neitt. Menn verða að hafa þama að leiðarljósi hagsmuni ís- lensku þjóðarinnar og við munum ekki einir ráða þessari ferð.“ Málið verði tekið til umfjöllunar Margir þingmenn tóku til máls í umræðunni í gær og lögðu þing- menn Samfylkingar mikla áherslu á að Evrópumálin yrðu tekin til rækilegrar umfjöllunar. Undir þetta tóku Valgerður Sverrisdóttir, þingmaður Framsóknarflokks, og Ógmundur Jónasson, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, en hinn síðarnefndi tók jafnframt skýrt fram að hann væri andvígur aðild Islands að ESB. Tómas Ingi Olrich, þingmaður Sjálfstæðisflokks og formaður ut- anríkismálanefndar Alþingis, sagði málatilbúnað Sighvats Björgvinssonar hins vegar byggð- an á misskilningi, yfirlýsing fram- kvæmdastjórnar ESB teldust eng- in stórtíðindi. Með henni væri ein- faldlega verið að friðþægja þær þjóðir, sem fast hafa sótt að fá að- ild að ESB. Þingmenn lýsa áhyggjum sínum vegna þróunar klámiðnaðar á Islandi Lög um samþjöppun eignarhlutdeildar í sjávarútvegsfyrirtækjum Vilja sporna við með öllum ráðum RÍKUR vilji er til þess meðal fulltrúa á Al- þingi að spomað verði við þróun klámiðnaðar á íslandi með lagasetningu en við utandag- skrárumræður á Alþingi í gær lýstu margir þingmenn áhyggjum sínum vegna aukinna umsvifa nektardansstaða hér á landi. Fram kom í máli Sólveigar Pétursdóttur dómsmála- ráðherra að til athugunar væri að breyta lög- um um atvinnuréttindi útlendinga hér á landi, og eins að skerða sérstaklega reglur um at- vinnuleyfi fyrir listdansara, en undir því yfir- skini hafa nektardansmeyjar gjaman hingað komið. Guðrún Ögmundsdóttir, þingmaður Sam- fylkingar, átti framkvæði að umræðunni í gær og vísaði hún í upphafi máls síns í orð Vaira Vike-Freiberga, forseta Lettlands, á ráðstefn- unni Konur og lýðræði um síðustu helgi en þar lýsti Freiberga þessari skuggahlið mann- lífsins í sínu heimalandi. í máli Guðrúnar kom fram að það væra einkum stúlkur frá fyrrverandi austantjalds- ríkjum sem bæra uppi nektardansstaðina, sem fjölgað hefur gífurlega í Reykjavík á und- anfömum misseram. „Margar þessara stúlkna koma úr mikilli fátækt og eymd og ýmsar ástæður liggja þar að baki. Það gæti t.d. verið draumurinn um betra líf á vestræna vísu og ónóg tækifæri í sínu heimalandi," sagði Guðrún. „Jafnframt getur verið um vímuefnaneyslu að ræða og þá er þetta ein leiðin til að fjármagna hana.“ Guðrún sagði það vel þekkta staðreynd að klám og vændi væra angi af fíkniefnaheimin- um. I mörgum löndum væri stúlkum jafnvel rænt og þær neyddar til að starfa við vændi, slíkt væri að sjálfsögðu þrælahald, nútíma þrælahald. „Við tölum um að ráðast gegn þeim sem versla með vímuefni, hér er þó líklega margt ljótara á ferðinni, það er verslun með mann- eskjur. En sem betur fer höfum við ekki heyrt af neinu slíku hér ennþá,“ sagði Guðrún en hvatti til þess að menn héldu vöku sinni. Lagasetningu verði beitt Undir vamaðarorð Guðrúnar tók allur þingheimur. Lýstu margir þingmenn þeim ótta sínum að í skjóli nektardansstaðanna þrifist vændi og önnur undirheimastarfsemi, og jafnframt lýstu menn áhyggjum vegna starfsemi alþjóðlegra glæpahringja og bama- níðinga, sem nýttu sér Netið óspart til að lokka til sín saklaus börn. „Það er skylda okkar íslendinga að beijast gegn þessum ófögnuði með öllum tiltækum ráðum,“ sagði Össur Skarphéðinsson, þing- maður Samfylkingar, og Hjálmar Jónsson, Sjálfstæðisflokki, hvatti til þess að lagasetn- ingu væri beitt í því skyni. Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráðherra sagði að von væri á tillögum nefndar, sem skipuð var til að kanna starfsemi klámbúllna í Reykjavík, innan tíðar. Upplýsti hún að á fundum nefndarinnar hefði verið rætt um hvort gera skyldi breytingar á lögum um at- vinnuréttindi útlendinga, svo og lögum um veitinga- og gististaði. „Það er persónuleg skoðun mín að endur- skoðun síðamefndu laganna sé löngu tímabær í ljósi gerbreytts umhverfis frá því sem var í þessum geira er lögin vora samin,“ sagði Sól- veig. Kom fram í máli bæði hennar og Páls Pét- urssonar félagsmálaráðherra að til athugunar væri að breyta lögum um atvinnuréttindi út- lendinga hér á landi, og eins að skerða sér- staklega reglur um atvinnuleyfi fyrir listdans- ara, en undir því yfirskini hafa nektardans- rneyjar gjarnan komið hingað. Taka einnig til eignarhaldsfélaga VIÐ utandagskráramræður um þróun eign- arhalds í sjávarútvegi, sem fram fóru á Al- þingi á þriðjudag, kom fram í máli Árna M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra að ekki væri í bígerð að bregðast við samþjöppun eignarhlutdeildar í sjávarútvegsfyrirtækj- um, enda hefði ekki enn verið náð þeim mörkum sem Alþingi sjálft ákvað um há- mark eignaraðildar. Tók Ámi fram að 11. grein laga um stjórn fiskveiða tæki ekki að- eins til einstakra fyrirtækja eða einstaklinga heldur tæki hún einnig til tengdra aðila og eignarhaldsfélaga. Utandagskrárumræðan á þriðjudag fór fram að framkvæði Svanfríðar Jónasdóttur, þingmanns Samfylkingar, og var markmið hennar að spyrjast fyrir um hvort með kaup- um sjávarútvegsfyrirtækja og eignarhaldsfé- laga á hlutabréfum í öðram sjávarútvegsfyr- irtækjum hefði fundist leið fram hjá lögum sem takmarka eignarhald á kvóta. Svanfríður vitnaði sérstaklega til fjárfest- inga Samherja og Burðaráss, eignarhaldsfé- lags Eimskipafélagsins, í Skagstrendingi og sagði hún að fyrir lægi að Burðarás hefði fjárfest fyrir þrjá milljarða í sjávarútvegi á fyn-i árshelmingi. „Lauslega reiknað virðist Burðarás vera komið með umtalsverðan, og stundum ráðandi hlut, í fyrirtækjum sem hafa yfir 60 þúsund þorskígildum að ráða, eða um það bil 16% af heildaraflahlutdeild- um,“ sagði Svanfríður m.a. í svari Árna M. Mathiesen sjávarútvegs- ráðherra kom fram að ákvæði í lögum um stjóm fiskveiða, sem ætlað er að girða fyrir of mikla samþjöppun og koma í veg fyrir að aflahlutdeild fisldskipa í eigu einstakra aðila eða tengdra aðila geti farið umfram tiltekið hámark, taki einnig til eignarhaldsfélaga. Árni tók fram að um það hverjir teldust tengdir aðilar giltu flóknar reglur. „Grand- vallaratriðið er hvort einhver aðili hefur raunveruleg yfirráð yfir öðram svo sem vegna þess að hann eða dótturfyrirtæki hans á meirihluta hlutafjár eða stofnfjár, fer með meirihluta atkvæðisréttar eða hefur sambærileg ítök. Þá geta fyrirtæki talist tengd ef sömu aðilar eiga meirihluta hluta- fjár, stofnfjár eða fara með meiri hluta at- kvæða í stjórnum fyrirtækjanna,“ sagði Árni. Öll fyrirtæki innan marka Ennfremur kom fram í máli hans að það væri mat Fiskistofu, sem eftirlit hefur með framkvæmd laganna, að enginn aðili hefði enn náð þeirri stærð að ákvæði 11. greinar laga um stjórn fiskveiða tækju til hans. „I upphafi nýhafins fiskveiðiárs höfðu tíu stærstu útgerðarfyrirtækin ráðstöfunarrétt á samtals 36,7% úthlutaðra þorskígilda. Hlutur þeirra hafði aukist um 2,5% frá 1. desember síðastliðinum. Samherji hafði flest, 6,75%. Hvað varðar einstakar tegundir var engin útgerð með hærri ráðstöfunarrétt en heimildir leyfa. Aflahlutdeildarþaki var held- ur ekki náð þó tillit væri tekið til reglna um tengda aðila.“ Itrekaði sjávarútvegsráðherra í lokaorð- um sínum við utandagskrárumræðuna að 11. grein laganna um stjórn fiskveiða tæki að- eins til þeirra sem ættu aflamark, hún tæki einnig til eignarhaldsfélaga. „Það sama á við um þá eins og alla, að fyrirtæki geta talist tengd ef sömu aðilar eiga meirihluta hluta- fjár, stofnfjár eða fara með meirihluta at- kvæða í stjórnum fyrirtækjanna,11 sagði Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.