Morgunblaðið - 15.10.1999, Page 16
16 FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1999
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Bændur í Eyjafírði voru í heyskap fram undir mánaðamót
Heygæði eru mjög
misjöfn eftir svæðum
ÞRÁTT fyrir slæmt útlit með hey-
skaparhorfur hjá fjölmörgum
bændum í Eyjafirði í vor vegna
kals í túnum, gekk heyskapur
nokkuð vel, að sögn Ólafs G.
Vagnssonar, ráðunautar hjá Bún-
aðarsambandi Eyjafjarðar. Þá eru
kartöflubændur á svæðinu nokkuð
ánægðir með sinn hlut, að sögn
Ólafs, enda uppskera nú í haust
Tónlistarfélag
Akureyrarkirkju
Björn
Steinar
leikur Bach
BJÖRN Steinar Sólbergsson
kemur fram á tónleikum Tón-
listarfélags Akureyrar sunnu-
daginn 17. október kl. 20.30.
Hann mun flytja verk eftir Jo-
hann Sebastian Bach á tónleik-
unum.
Bjöm Steinar er orgelleikari
við Akureyrarkirkju, stjóm-
andi Kórs Akureyrarkirkju og
kennari í orgelleik við Tónlist-
arskólann á Akureyri. Hann
hefur haldið fjölda tónleika
bæði hér heima og í útlöndum.
Hlaut hann mikið lof gagn-
rýnenda fyrir túlkun sína á
orgelkonsert Jóns Leifs með
Sinfóníuhljómsveit Islands
sem út kom á geisladiski hjá
sænska útgáfufyrirtækinu BIS
í apríl síðastliðnum.
Aðalfundur
Varðar
AÐALFUNDUR Varðar, fé-
lags ungra sjálfstæðismanna á
Akureyri, heldur aðalfund á
morgun, laugardaginn 16.
október, og hefst hann kl. 14.
Sérstakur gestur fundarins
verður Halldór Blöndal, forseti
Alþingis, sem ávarpar fundinn.
Aðalfundarhóf verður að
kvöldi sama dags
víða mjög góð.
Einstaka bændur í Eyjafirði
voru í heyskap alveg fram undir
síðustu mánaðamót en miklar rign-
ingar í september gerðu mönnum
erfitt fyrir. Ólafur sagði heygæði
mjög misjöfn og fóðurgildi í sum-
um tilfellum lítið. Hann sagði ekki
einhlíta skýringu á því en þó hefði
kuldi í byrjun sumars vafalítið haft
þar einhver áhrif. Ólafur sagði ljóst
að einhverjir bændur þyrftu að
verða sér úti um hey fyrir vetur-
inn.
Gerðu ráðstafanir
„Menn hafa gert ýmsar ráðstaf-
anir, t.d. farið í grænfóðurrækt,
einhverjir höfðu orðið sér úti um
viðbótarland til sláttar og í öðrum
tilfellum hafa menn getað fengið
keypt hey. Það á örugglega eftir að
fara fram frekari heymiðlun milli
manna en ég held að þó megi full-
yrða að staðan sé þokkaleg í hérað-
inu. Það eru hér miklar heykistur
og þá sérstaklega framan Akureyr-
ar. Þar er jafnframt lítill bústofn á
mörgum jörðum og eru menn því
bæði að heyja til sölu og eins að
leigja tún.“
Olafur hefur undanfarnar vikur
heimsótt sauðfjárbændur í Eyja-
firði og aðstoðað þá við val líffjár.
Við það verk notar Ólafur ómsjá
eða sónartæki, sem hann segir
menn hafa verið að sannfærast bet-
ur og betur um að sé mjög gott
hjálpartæki. „Það er tekin sneið-
mynd af baki kindarinnar og
þannig mæld þykkt á bakvöðva og
fitulagi þar ofan á. Og með því að
þukla lömbin einnig með gamla
laginu er hægt að finna út hversu
mikill vöðvi er á hverju lambi og
þannig hægt að velja úr bestu ein-
staklingana, þ.e. þá vöðvamestu, til
ásetnings."
Ólafur sagði að þótt bændur
væru margir hverjir mjög snjallir
að velja sér líflömb, hafi ómsjáin
komið að góðum notum og jafn-
framt sannað að í sumum tilfellum
hafí menn metið lömb rangt. Væn-
leiki sauðfjár á þessu hausti er yf-
irleitt góður og vel yfir meðallagi,
að sögn Ólafs, þótt vissulega séu til
undantekningar.
Morgunblaðið/Benjamín Baldursson
Omsjáin notuð við mælingar. Ráðunautarnir Þórður Sigurjónsson, t.h.,
og Ólafur G. Vagnsson að mæla hrútinn Sigga en eigandinn, Sveinn
Sigmundsson, bóndi á Vatnsenda í Eyjafjarðarsveit, heldur í.
Könnun um fylgi flokka á Akureyri og í nágrenni
VG með
meira
fylgi en
Framsókn
Stórhöfða 17, við Ciullinbrú • S. S6-7 4844
www.flis.is • Netfang flisC' flis.is
VINSTRIHREYFINGIN - grænt
framboð nýtur meira fylgis á Akur-
eyri og í næsta nágrenni en Fram-
sóknarflokkurinn, samkvæmt skoð-
anakönnun Ráðgarðs hf. á Akureyri
um fylgi stjórnmálaflokkanna, sem
gerð var í síðasta mánuði. Spurt
var: Hvaða stjómmálaflokk/afl
myndir þú kiósa ef kosið væri í dag
til Alþingis?
Aðeins var spurt einnar spurn-
ingar um fylgi stjórnmálaflokkanna
og sögðust rúmlega 43% aðspurðra
ekki vita hvað þeir myndu kjósa eða
neituðu að svara. Af þeim sem tóku
afstöðu sögðust tæp 37% aðspurðra
kjósa Sjálfstæðisflokkinn, 23,24%
kjósa Vinstri - græna, 22,82%
Framsóknarflokkinn og 6,22% Sam-
fylkinguna en fylgi Frjálslyndra
mælist vart.
í úrtakinu voru 700 einstaklingar
á aldrinum 18-75 ára frá Akureyri
og nágrenni og var um að ræða til-
viljunarúrtak úr þjóðskrá. Könnun-
Spurt á Akureyri og í nágrenni í oktober 1999
Hvaða stjórnmálaflokk/afl myndir þú kjósa ef kosið
væri í dag til alþingis? Til hliðsjónar:
Þeir svarendur sem tóku afstöðu úrsiit Aiþingiskosninga
á Norðuriandi eystra
Hlutfall (%)
8. maí 1999
Framsóknarflokkur 22,82 □I 29,2%
Sjálfstæðisflokkur 36,93 HPlÍi 29,9%
Samfylkingin 6,22 I I 16,8%
Vinstri-grænir 23,24 22,0%
Frjálslyndi fl. 0,41 l 1,9%
Annað 2,07 □ 0,3%
Skila auðu/kýs ekki 8,30
in fór fram í gegnum síma og var
nettósvörun rúm 64%.
Ef miðað er við niðurstöðu al-
þingiskosninganna í Norðurlands-
kjördæmi eystra í maí í vor, má sjá
að fylgi Samfylkingar hefur minnk-
að töluvert og fylgi Framsóknar-
flokks minnkað nokkuð, en íylgi
Sjálfstæðisflokks aukist. Fylgi
Vinstri - grænna er svipað og það
var í kosningunum í vor en hefur þó
aukist lítillega.
í alþingiskosningunum í vor fékk
Sjálfstæðisflokkurinn 29,9% at-
kvæða í Norðurlandskjördæmi
eystra. Framsóknarflokkurinn
29,2%, Vinstrihreyfingin - grænt
framboð 22%, Samfylkingin 16,8%,
Frjálslyndi flokkurinn 1,9% og
Húmanistaflokkurinn 0,3%.
Erlingur í
Listfléttunni
ERLINGUR Jón Valgarðsson er
listamaður mánaðarins í Listflétt-
unni. Erlingur Jón er Akureyring-
ur, fæddur árið 1961. Hann sótti
námskeið við Myndlistarskólann á
Akureyri og var á námskeiði hjá
Rafael Lopes í Falun í Svíþjóð auk
þess að stunda listnám við Haralds-
boskolan í Falun árin 1989 til 1990.
Hann hefur haldið nokkrar einka-
sýningar á Akureyri og Reykjavík
og tekið þátt í samsýningum á
Akureyri og í Svíþjóð.
Listfléttan er opin virka daga frá
kl. 11 til 18 og á laugardögum frá 11
til 14, en fyrsta laugardag hvers
mánaðar er opið til kl. 16.
--------------
Kirkjustarf
MÖÐRUVALLAPRESTAKALL:
Kvöldguðsþjónusta verður í Glæsi-
bæjarkirkju næstkomandi sunnu-
dag, 17. október, kl. 21. Kór kirkj-
unnar syngur, organisti er Birgir
Helgason.
Framkvæmdir við viðbyggingu Snæfells á Dalvík komnar í gang
Hríseyingar leita
Til sölu
Til sölu er 3ja hæð (efsta hæð) í húseigninni nr. 22 við
Tryggvabraut 22 á Akureyri. Hér er um að ræða 333,5 fm
húseign sem nú er innréttuð sem líkamsræktarstöð.
Húsnæði þetta hentar einnig vel sem skrifstofuhúsnæði.
Upplýsingar hjá fasteignasölunni Eignakjör ehf.,
Skipagötu 16, Akureyri, sími 462 6441.
nýrra atvinnutækifæra
FRAMKVÆMDIR við rúmlega 700
metra viðbyggingu við frystihús
Snæfells á Dalvík eru komnar í full-
an gang en þangað verður pökkun-
arstöð félagsins fyrir frystar afurðir
flutt frá Hrísey. Gengið hefur verið
frá samningi við Tréverk á Dalvík
um byggingu hússins en Magnús
Gauti Gautason framkvæmdastjóri
Snæfells, vildi ekki gefa upp kostn-
að við framkvæmdina.
Magnús Gauti sagði stefnt að því
að taka húsnæðið í notkun undir lok
janúar á næsta ári en fram undir
þann tíma yrði pökkunarstöðin
áfram rekin í Hrísey. Við breyting-
una mun fjölga um 10 heilsdags-
störf hjá Snæfelli á Dalvík og sagði
Magnús Gauti að Hríseyingum
stæði til boða vinna á Dalvík.
Hríseyingar leita nú allra leiða til
að finna ný atvinnutækifæri í kjöl-
far ákvörðunar Snæfells. Við þá
breytingu tapast fjölmörg störf í
eynni, auk þess sem nokkur óvissa
er með framhald á annarri starf-
semi Snæfells í Hrísey.
Pétur Bolli Jóhannesson sveitar-
stjóri sagði að Haraldur Líndal
Haraldsson ráðgjafi hjá Nýsi hefði
verið ráðinn til þess að vera Hrísey-
ingum til aðstoðar en það er
Byggðastofnun sem greiðir kostnað
vegna starfa hans. „Hlutverk Har-
aldar er að finna leiðir til atvinnu-
uppbyggingar í Hrísey og gera til-
lögur í þeim efnum. Síðan er þetta
spuming um að keyra á hlutina.
Það er í gangi ákveðin forvinna sem
við komum einnig að. Það er ýmis-
legt í gangi, sem ég get þó ekld tjáð
mig um á þessari stundu en ég von-
ast til að það skýrist eitthvað í þess-
ari viku,“ sagði Pétur Bolli.
Þurfum niðurstöðu
sem allra fyrst
Hann sagði heldur bjartara yfir
íbúum Hríseyjar þessa dagana,
enda stefndi þessi vinna í rétta átt.
Hins vegar væri nauðsynlegt að
vinna hratt og fá niðurstöðu sem
allra fyrst. „Við erum í sambandi
við mjög marga aðila, bæði þing-
menn og fleiri og það verður spenn-
andi að sjá hvað út úr þessari vinnu
kemur.“
Pétur Bolli sagði að Atvinnuþró-
unarfélag Eyjafjarðar væri að vinna
að því að senda nýtt erindi með nýj-
um forsendum til Nýsköpunarsjóðs,
varðandi möguleika á að setja upp
fyrirtæki sem framleiddi sælgæti úr
lífrænt ræktuðu hráefni. Hins vegar
væri erfitt að segja til um hvort og
þá hvenær eitthvað kemur út úr því.