Morgunblaðið - 15.10.1999, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 15.10.1999, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Morgunblaðið/Golli Thomas Gregers Honoré frá IBM og Eyþér Amalds, framkvæmda- stjóri Íslandssíma, kynna samstarf fyrirtækjanna í hugbúnaðarþróun. íslandsbanki F&IVI selur 10,2% í Hraðfrystihúsinu - Gunnvöru hf. Söluverðið 360 milljónir króna Islands- sími og IBMí samstarf FULLTRÚAR Íslandssíma og IBM á Norðurlöndum kynntu í gær samstarf um þróun, markaðssetn- ingu og sölu á upplýsinga- og reikn- ingakerfi fyrir símafyrirtæki. Að sögn Eyþórs Amalds, fram- kvæmdastjóra Islandssíma, mun Is- landssími hefja notkun á kerfinu um næstu mánaðamót. Hann segir um verulegan spamað að ræða og að samstarfið skili umtalsverðum tekjumöguleikum fyrir Islandssíma og íslenskan hujgbúnaðariðnað. I samstarfi Islandssíma og IBM felst annars vegar að Islandssími þróar upplýsingakerfið í samvinnu við IBM og hins vegar sameiginleg markaðssetning fyrirtækjanna á upplýsinga- og reikningakerfinu er- lendis. Að sögn Eyþórs mun mark- aðssetningin hefjast að sex til níu mánuðum liðnum, eftir að reynsla verður komin á kerfið hjá Islands- síma. Islandssími fær ágóðahlut- deild í sölu á hugbúnaðinum þegar hann verður fullbúinn og fer í al- menna sölu. I samtali við Morgun- blaðið sagðist Eyþór ekki treysta sér til að segja til um væntanlegan hagnað af sölu á alþjóðamarkaði en hann býst við að um einhvers konar helmingaskiptasamning verði að ræða þegar þar að kemur. Byggist á miðlægum gagnagrunni Upplýsingakerfmu er ætlað að auðvelda viðskiptavinum Islands- síma að fylgjast með viðskiptum sínum. Það byggist á miðlægum gagnagrunni IBM en hugbúnaðar- þróunin verður í samvinnu sérfræð- inga Islandssíma og IBM. Hægt verður að fá greiðslu- og notkunar- yfirlit og í sumum tilfellum geta notendur afgreitt sig sjálfir, t.d. óskað eftir aukinni bandvídd eða nýju símanúmeri, að sögn Eyþórs. „Markmiðið er að setja sem mest á vefinn.“ Netviðskipti það sam koma skal „Allar upplýsingar úr síma- og gagnakerfum okkar verða færðar í miðlægan gagnagrunn. Þannig byggist lausnin á því að allar upp- lýsingar verða aðgengilegar á ein- um stað en ekki í mörgum kerf- um,“ segir Eyþór. Að hans sögn er tvímælalaust markaður fyrir hug- búnaðarlausn af þessu tagi. „Það er hvergi meiri hreyfing en í fjar- skiptamarkaðnum og það er hróp- andi þörf fyrir nettengdar lausn- ir.“ Thomas Gregers Honoré, fram- kvæmdastjóri gagnalausna IBM á Norðurlöndum, segir ástæðu sam- starfs IBM og Íslandssíma þá að fyrirtækin hafi sömu skoðanir á þjónustu tengdri Netinu. „Viðskipti í heiminum eru að breytast og net- viðskipti eru það sem koma skal. Is- landssími er fyrirtæki að okkar skapi, félögin vilja bæði fara nýjar leiðir." Honoré segir Islandssíma fram- sækið fyrirtæki á íslenskum mark- aði og félagið sé í þann mund að fara að bjóða viðskiptavinum sínum síma- og gagnaflutningaþjónustu byggða á einu kerfi. „Það sem Is- landssími er um það bil að fara að bjóða viðskiptavinum sínum er eitt- hvað sem enginn hefur áður gert, aðeins hefur verið talað um þetta. Astæðan fyrir því að þetta er mögu- legt, er að íslendingar eru framar- lega í tölvu- og netnotkun." ÍSLANDSBANKI hf. - F&M seldi í gær 10,2% hlut, 60 milljónir króna að nafnverði, í Hraðfrystihúsinu - Gunnvöru hf. Eignarhlutur Is- landsbanka F&M hefur þar með farið á undanförnum dögum úr tæpum 19,7% í 3,1%. Kaupandi 10,2% er Þormóður rammi - Sæ- berg hf., sem á þá 20,2% í félaginu en hluturinn nú var keyptur á genginu 6 og er söluverðið því 360 milljónir króna. 6,4% voru seld tO ýmissa fjárfesta. í lok júní sl. keypti íslandsbanki hf. - F&M tæpan 19% hlut í Hrað- frystihúsinu hf. og 67% hlut í Gunnvöru hf. eftir að fyrir lá vilja- yfirlýsing um sameiningu félag- anna tveggja auk íshúsfélags Is- firðinga hf. Með kaupunum öðlað- ist Islandsbanki - F&M tæpan 40% hlut í hinu sameinaða félagi, þ.e. Hraðfrystihúsinu - Gunnvöru hf. Þegar var seldur 20% hlutur, 10% til Þormóðs ramma - Sæbergs hf. og 10% til Ránarborgar ehf., sem er í eigu Þorsteins Vilhelms- sonar. íslandsbanki - F&M átti því tæp 20% eftir í sinni eigu. Keypt til að stuðla að samruna Að sögn SteinjDÓrs Pálssonar, forstöðumanns Islandsbanka - F&M, fóru kaupin upphaflega fram til þess að greiða fyrir sam- runa fyrirtækjanna og til að stuðla að umbreytingu og hagræðingu fyrirtækja í sjávarútvegi. Með þessu hefði orðið til gott sjávarút- vegsfyrirtæki á Vestfjörðum. „Með eignaraðild okkar náðist þetta fram, en að undanfömu höfum við verið að selja bréfin okkar til ýmissa fjárfesta og okkar hlutur er nú kominn niður í þetta rétt rúm 3%. Þetta er í fullu samræmi við það sem við ætluðum okkur að gera. Við komum þama inn sem stórir og öfl- ugir aðilar í byrjun en síðan er það annarra að taka við og reka félagið inn í framtíðina", segir Steinþór. Hvað varðar síðustu þrjú pró- sentin, sem íslandsbanki - F&M á í Hraðfrystihúsinu - Gunnvöra, segir Steinþór að sent hafi verið út sölutilboð til allra starfsmanna sameinuðu félaganna þriggja, sam- kvæmt starfsmannalista frá 30. júní. í tilboðinu er starfsmönnum boðið að skrá sig fyrir hlutum, allt að 50.000 krónum að nafnvirði, til 20. október nk. Um 3-400 starfs- menn er að ræða. „Við bjóðum þeim þetta á geng- inu 5,7 en gengi undanfarinna daga hefur verið um 6 og rétt rúmlega. Með þessu viijum við auka fjölda hluthafa þannig að fyrirtækið kom- ist á Aðallista sem fyrst. Auk þess finnst okkur eðlilegt að starfsfólkið fái tækifæri til þess að taka þátt í rekstri félagsins,“ segir Steinþór að lokum. Breytingar á ynrstjórn OZ.COM vegna aukinna umsvifa og styrkingar felagsms Morgunblaðið/RAX Nýr fram- kvæmdastjóri OZ.COM Skúli Mogensen, forstjóri OZ.COM, og Skúli Valberg Ólafsson, fram- kvæmdastjóri OZ.COM. „Með tilkomu framkvæmdastjóra verður hægt að fjölga starfsmönnum án þess að vaxtarverkir verði of miklir." SKÚLI Valberg Ólafsson hefur ver- ið ráðinn framkvæmdastjóri hug- búnaðarfyrirtækisins OZ.COM en Skúli MogenSen mun áfram gegna starfi forstjóra. „Vöxtur fyrirtækis- ins hefur verið ör og við teljum nauðsynlegt að gera þessar breyt- ingar á yfirstjóm. Það er að stóram hluta byggt á árangri samstarfsins við Ericsson að við eram að færa út kvíamar nú,“ segir Skúli Mogensen forstjóri. Skúli Valberg mun sinna dagleg- um rekstri fyrirtækisins en Skúli Mogensen mun í auknum mæli snúa sér að stefnumótun og fram- tíðarmöguleikum fyrirtækisins. „Til að geta farið á næsta stig í þróun fyrirtækisins var ákveðið að ráða framkvæmdastjóra sem ber ábyrgð á daglegri starfsemi fyrirtækisins," segir Skúli Mogensen. „Þetta gerir mér kleift að huga frekar að stefnu- mótun og þróun félagsins til nýrra tækifæra ásamt uppbyggingu fyrir- tækisins erlendis en það er mjög eðlileg þróun í eflingu fyrirtækisins að greina rekstrarlega þáttinn frá framtíðarstefnumótun," segir Skúli Mogensen. Hann segir að með til- komu framkvæmdastjóra verði til sú umgjörð sem geri fyrirtækinu kleift að fjölga starfsmönnum án þess að vaxtarverkir verði of mikl- ir. Fimmtíu lausar stöður Skúli Valberg hefur starfað hjá EJS frá árinu 1986. Hann er iðnað- ar- og kerfisverkfræðingur að mennt og starfaði m.a. sem aðstoð- armaður forstjóra EJS og aðstoðar- framkvæmdastjóri sölusviðs fyrir- tækisins. „Fyrir mig er þetta spennandi tækifæri," segir Skúli Valberg. „St- ai'f OZ.COM er mjög vænlegt til ár- angurs en það er í þeim geira upp- lýsingatækninnar sem mest er að gerast. Allir lykilþættir era til stað- ar til að ná árangri með verkefni fyrirtækisins. Innan fyrirtækisins er mikil þekking og markaðurinn kallar á vörur okkar,“ segir Skúli Valberg. Hann segir nauðsynlegt að skipulag fyrirtækisins endur- spegli kröfur og þarfir markaðar- ins. Nú séu um fimmtíu lausar stöð- ur hjá OZ.COM í Stokkhólmi, Boston og Reykjavík. „Við þurfum að fara yfir aðferðarfræðina og gljáfægja gæðastjórnunina og fá fleiri til liðs við okkur,“ segir Skúli Valberg. Skúli Mogensen segir rúmlega 900 milljóna króna fjárfestingu HRAÐFRYSTIHÚSIÐ Gunnvör hefur selt hlutabréf í Sölumiðstöð Hraðfrystihúsanna að nafnverði 60 milljónir króna. Eignarhlutur félags- ins í SH hefur þar með minnkað úr tæplega 127 milljónum, eða 8,5% af heildarhlutafé í 4,4% hlutafjár eða um 67 milljónir króna. Einar Valur Kristjánsson, fram- kvæmdastjóri Gunnvarar hf., sagði í samtali við Morgunblaðið í gær um ástæðu sölunnar, að það væri yfirlýst stefna félagsins að létta á skuldum Ericsson í OZ.COM síðastliðið vor hafa styrkt félagið mikið. Félögin hafa unnið saman að hönnun búnað- ar sem nefnist iPulse. Notendur iPulse geta haft samskipti með tölvu, síma, boðtæki eða farsíma, allt eftir því hvemig þeir skilgreina sig og Skúli Mogensen segir búnað- inn hafa fengið góðar viðtökur. „Á síðustu vikum höfum við til dæmis tekið þátt í mörgum sýningum er- lendis og fleiri standa fyrir dyrum. Við vildum ganga úr skugga um að markaðurinn væri tilbúinn að taka m.a. með því að selja eignir sem ekki nýtast í rekstrinum og þessar aðgerð- ir tækju mið af því. Hvorki fékkst uppgefið hvert væri sölugengi bréf- anna né hver stæði að kaupunum, en Einar Valur sagði gengið viðunandi. Ef tekið er mið af gengi bréfa í SH á Verðbréfaþingi Islands sem var 4,60 þegar kaupin fóra fram, nemur söluverðmæti bréfanna rúmlega 270 milljónum króna. Mikil viðskipti hafa verið með hlutabréf SH að undanfórnu og um við iPulse. Vöruþróunin heldur áfram en hún hefur gengið vel hing- að til.“ Umtalsverð lækkun á gengi hlutabréfa I hálf fimm-fréttum Búnaðar- bankans Verðbréfa í gær kemur fram að viðskipti með hlutabréf í OZ.COM hafi verið á genginu 2 dollarar í gær og hafi það lækkað úr 4,9 dolluram á hlut frá því í vor. Samkvæmt því sé markaðsvirði fé- lagsins átta milljarðar. 10% hlutafjár í félaginu hafa skipt um eigendur á síðustu dögum. Ný- lega keypti Ránarborg ehf., eignar- haldsfyrirtæki Þorsteins Vilhelms- sonar, 5,5% hlut Kristjáns Guð- mundssonar hf. á Rifi í SH. Um var að ræða 82,8 milljónir króna nafn- verðshlut sem seldur var á genginu 4,45 og kaupverðið því ríflega 368 milljónir. Þorsteinn Vilhelmsson sagðist í samtali við Morgunblaðið ekki standa að kaupum á 60 milljóna króna nafnverðshlut Gunnvarar í SH. Dasa og Aéro- spatiale í eina sæng London. Reuters. DAIMLERCHRYSLER Aer- ospace og Aérospatiale-Matra í Frakklandi hafa skýrt frá því að fyrirtækin muni sameinast í stærsta flugiðnaðar- og hergagna- fyrirtæki Evrópu og hið þriðja stærsta í heiminum. Samningurinn markar mikilvægt skref fram á við í langtíma fyrir- ætlunum um að koma á fót einu, evrópsku flugiðnaðar- og her- gagnafyrirtæki til að keppa við bandaríska risa eins og Boeing. Tilraunimar hafa hingað til strand- að á pólitískum afskiptum. Árleg sala hins nýja félags mun nema 22,6 milljörðum dollara og það mun skipa sér í þriðja sæti í greininni á eftir Boeing og Lock- heed Martin. Starfsmenn verða um 90.000. Verður skráð í Hollandi Núverandi hluthafar munu eiga 60% í hinu stækkaða fyrirtæki, en 40% verða að lokum boðin til sölu. Nýja félagið verður kallað Evr- ópska flugiðnaðar-, landvarna- og geimfyrirtækið til bráðabirgða. Höfuðstöðvar þess verða í Miinchen og París og það verður skráð í Hollandi af skattaástæðum. Sameiginlegir stjómendur nýja fyrirtækisins verða formaður stjórnar Dasa, Manfred Bischofft, og Jean-Luc Lagardere, yfirmaður Lagardere, sem á 33% í Aérospati- ale-Matra. Pólitískur og viðskiptalegur ágreiningur hefur komið í veg fyrir fyrirætlanir um stofnun eins evr- ópsks flugiðnaðar- og hergagnafyr- irtækis með þátttöku samrunaaðil- anna og British Aerospace, umsvifa- mesta aðilans á þessu sviði í Evrópu. Gunnvör selur bréf í SH
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.