Morgunblaðið - 15.10.1999, Page 24
24 FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
UR VERINU
Aðalfundur Landssambands smábátaeigenda hófst gær
Morgunblaðið/Golli
Arthúr Bogason, formaður Landssambands smábátaeigenda, Hjálmar Árnason alþingismaður
og Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra ræða málin við upphaf aðalfundar LS í gær.
„Sjávarútvegurinn býr
við millibilsástandu
Vændi sem skipu-
lögð þrælaverslun
teygir anga sína
til Norðurlanda
ÍSLENSKUR sjávarútvegur býr við
algert millibilsástand þar til laga-
greinin um úthlutun aflaheimilda
hefur verið reynd fyrir Hæstarétti,
að mati Arthúrs Bogasonar, for-
manns Landssambands smábátaeig-
enda. Hann hélt þessu fram við setn-
ingu aðalfundar sambandsins í gær.
Arthúr sagði síðastliðið ár hafa ver-
ið eitt það viðburðaríkasta í sögu fé-
lagsins og rifjaði í þvi sambandi upp
dóm Hæstaréttar í kvótamálinu svo-
kaliaða. Sagði Arthúr að í dómnum
væri að fínna hreinar og klárar stað-
reyndarvillur, villur sem hefði mátt
komast hjá með einfaldri söguskoðun.
Ennfremur hefðu viðbrögð stjórn-
valda við dómnum vakið furðu sína.
,A svipstundu afsöluðu þau sér nán-
ast öllum rétti til að takmarka sterð
eða samsetningu fískiskipaflotans. Ég
spyr: Er hægt að færa rök fyrir því
að þau viðbrögð sem ákveðin voru séu
í takt við þá vaxandi umræðu á al-
þjóðavettvangi að draga beri úr orku-
notkun við veiðar, brottkast físks og
notkun stórvirkra veiðarfæra? Og ég
spyr: Fyrst svo kolröng ákvörðun gat
verið tekin af stjómvöldum um að
takmarka fjölda veiðileyfa, er þá sú
ákvörðun þeirra eitthvað traustari
FRESTUN á krókaaflahámarkskerf-
inu gæti haft í för með sér stóraukna
sókn í utankvótategundir og er því
ekki á dagskrá. Þá stendur ekki til að
breyta reglum um stærðartakmark-
anir smábata. Þetta kom fram í
ávarpi Árna M. Mathiesen sjávarút-
vegsráðherra á aðalfundi Landssam-
bands smábátaeigenda í gær.
Við upphaf kvótakerfisins var afli
smábáta u.þ.b. 25 þúsund tonn af
þorski á viðmiðunarárunum frá 1.
nóvember 1980 til 31. október árið
1983. Uthlutun smábáta var þá tæp-
lega 4% í úthlutun í þorski og ýsu hjá
bátum undir 10 tonnum en er nú
rúm 13% hjá bátum undir 6 tonnum
fyrir fískveiðiðárið 1999/2000. Ráð-
herranri sagði marga hafa gagnrýnt
þennan aukna hlut smábáta og talið
að aukningin bitni á öðrum innan
kvótakerfísins. ,Aðrir hafá hins veg-
ar mælt þessu bót þar sem veiðar
smábáta dreifa álagi á miðin og veið-
arfærin séu umhverfisvænni en til
dæmis togveiðarfæri."
Hætta á aukinni sókn
í utankvótategundir
Margir smábátasjómenn hafa
farið fram á frestun á krókaílahá-
markskerfinu sem tekið verður í
hverjum skuli úthlutað réttinum til
sjálfra aflaheimildanna? Það er mitt
mat að sjávarútvegurinn búi við al-
gert millibilsástand þar til lagagrein-
in um úthlutun aflaheimilda hefur
verið reynd fyrir Hæstarétti. Því
fyrr, því betra,“ sagði Arthúr.
Arthúr sagði það umhugsunarefni
hvort skilningur nútíma dómstóla
lýðræðisríkja væri að taka stakka-
skiptum varðandi afstöðu til nýtingar
auðlinda. Nefndi hann í því sambandi
að Hæstiréttur í Kanada hafí nýverið
fallist á kröfu indjánaþjóðflokka að
þeir hefðu frumborinn rétt til að
veiða sér til lífsviðurværis. „I ljósi
alls þessa tel ég því erfíðara að gera
sér grein fyrir framþróun mála. Það
er sjálfsagt fyrir menn að tala digur-
barkalega og láta jafnvel sem físk-
veiðilögin hafí verið treyst í sessi með
síðustu lagabreytingum. Það haggar
ekki þeirri skoðun minni að í skugga
þessa ástands erum við að vinna.“
„Taugakerfið"
Arthúr sagði að áfram yrði haldið
uppi kröfum gagnvart stjórnvöldum
varðandi málefni smábáta. „Þannig
er óþolandi að enn skuli fyrirfínnast
innan fiskveiðistjórnunarkerfisins
gagnið á næsta fiskveiðaári, ekki
síst vegna þess að ýmsir telja ekki
ráðlegt að taka strax upp kvóta á
ýsu, steinbít og ufsa. Ráðherrann
sagði að með kvótadómnum svo-
kallaða væri ekki lengur heimilt að
neita mönnum um veiðileyfí. „Af
þeim sökum var hætta á stórauk-
inni sókn smábáta í þær tegundir
sem ekki voru bundnar kvóta. Al-
þingi brást við dóm hæstaréttar
með þessum hætti og mjög óeðli-
legt að fresta slíkum viðbrögðum
áður en lögin raunverulega taka
gildi. Það eina sem ég get séð að
hugsanlega geti haft áhrif á þetta
eru niðurstöður nefndar sem ég
skipaði á dögunum og hefur það
hlutverk að endurskoða lög um
stjórn fiskveiða."
Ráðherra sagði að ekki stæði held-
ur til að breyta stærðartakmörkun-
um með tilkomu krókaflamarksins.
„Ef við færum að hnika til í þeim
efnum væri farið að opna á þann
möguleika að færa kvóta á milli
kerfa. Eða þá að við stæðum uppi
með tvö kerfí með sambærilegum
bátum að stórum hluta þar sem
munurinn lægi einungis í veiðarfær-
um og frjálsum aðgangi að einstök-
um tegundum. Auk þess tryggir tak-
fyrirkomulag sem knýr menn, unga
sem aldna, til að leggja út í 25 til 30
klukkustunda samfelldan vinnudag.
Enda hefur sóknardagakerfið fengið
viðurnefnið taugakerfið og á það vel
við. I fljótu bragði fæ ég ekki betur
séð en að stjórnvöldum leggist veg-
legur liðsauki til að breyta þessu
óskapnaðarfyrirkomulagi. Fyrir
Evrópuþinginu liggur tillaga um
vinnutíma sjómanna, meðal annars
þess efnis að hámarksvinnutími skip-
verja á fiskiskipum skuli vera 14 tím-
ar á sólarhring. Ég skora á nýskip-
aðan sjávarútvegsráðherra að ganga
strax til verks í þessu máli.“
Arthúr sagði einnig með ólíkindum
hvernig mál hafí þróast varðandi
kvótasetningu annarra tegunda en
þorsks í aflahámarkinu. Eftir Hæsta-
réttardóminn í kvótamálinu hafí slík
kvótasetning orðið að aðalatriði.
„Fjöldi þeirra sem völdu sig yfir í
aflahámarkið með litlar þorskveiði-
heimildir gerðu það einmitt á grund-
velli þess frjálsræðis sem ríkti gagn-
vart öðrum tegundum. Það þarf ekki
flókna útreikninga til að sjá að marg-
ar þessara útgerða eiga enga framtíð
fyrir sér, gangi núgildandi lög
óbreytt eftir,“ sagði Arthúr Bogason.
mörkun á stærð bátanna tengslin við
byggðirnar. Ef við færum að hrófla
við þessu væri að mínu mati búið að
sniðganga tilganginn með lagasetn-
ingunni."
Nefnd um meðferð sjávarafla
Árni kom einnig inn á gæðamál í
ávarpi sínu og rifjaði upp gagnrýni
sem komið hefur fram vegna þess að
smábátum sé heimilt að koma með
óslægðan físk að landi. „Mér er sagt
að það komi alltof oft fyrir að bátar
komi með óslægðan, óísaðan og
óþveginn afla að landi. Auk þess er
mér sagt að hráefnið fari oft illa við
löndun og það kemur fyrir að aflinn
stendur á bryggjunni í einhvern
tíma áður en hann fer í hús. Ég veit
og vitna oft til þess, að það eru fylli-
bytturnar sem koma óorði á brenni-
vínið. En þetta má alls ekki gerast,
ekki í einu einasta tilviki," sagði
Árni.
Sagðist Árni hafa skipað nefnd
sem hafí það hlutverk að fjalla um
meðferð sjávarafla og koma með til-
lögur til úrbóta sé þess þörf. Nefndin
hefur einnig það hlutverk að skoða
sérstaklega hvernig tryggja megi
gott hráefni til vinnslu þegar eftir-
spurn er meiri en framboð.
Kaupmannahöfn. Morgunblaðid.
FJÓRIR menn hafa verið hand-
teknir og hins fimmta er leitað fyrir
vændismiðlun í Stokkhólmi. Hópur-
inn hafði á sínum snærum um 25
konur frá Austur- og Mið-Evrópu og
hópurinn tengist sams konar glæpa-
flokkum í fimm öðrum löndum, þai' á
meðal Danmörku og Noregi. Vændi,
rekið með konum frá þessum lönd-
um, verður æ meira áberandi í Vest-
ur-Evrópu og þá einnig á Norður-
löndum. I raun er um að ræða þræla-
verslun eins og Anita Gradin, fyrr-
verandi fulltrúi í framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins, bendir á í sam-
tali við Svenska Dagbladet.
I skýrslu sem Bamahjálp Samein-
uðu þjóðanna, Unicef, gaf út nýlega
um breytingarnar í Austur- og Mið-
Evrópu og áhrif þeirra á konur, er
bent á skipulagt vændi sem vaxandi
vandamál. Lögreglumenn í Finn-
landi og víðar benda einnig á, að
vændi og eiturlyfjasala sé hvort
tveggja liður í skipulagðri glæpa-
starfsemi.
Fölsk loforð og
glansmynd af vændish'finu
Vændissalarnir í Stokkhólmi eru
sakaðir um að hafa lokkað stúlkur,
flestar frá Tékklandi og Slóveníu, til
starfa í Stokkhólmi gegn loforðum
um há laun. Þegar stúlkurnar komu
voru vegabréf þeirra tekin af þeim
og þeim þröngvað til að selja sig.
Þær öfluðu allt að 200 þúsund ís-
lenskra króna á viku, sem fóru beint
til vændissalanna, en sjálfar fengu
þær aðeins að halda eftir nokkrum
þúsundum. Vændissalarnir, fjórir
menn og ein kona, eru sakaðir um
vændismiðlun, aðstoð við vændis-
miðlun og nauðgun.
I Danmörku hefur vaxandi fjöldi
vændiskvenna frá Austur- og Mið-
Evrópu einnig valdið áhyggjum.
Þeir, sem fylgjast með þessum mál-
um, segja, að stúlkunum sé haldið
sem þrælum. Vegabréfin séu tekin
frá þeim, þær kunni ekki málið og
geri sér enga grein fyrir þeirri hjálp,
sem þær gætu fengið.
Refsingar of vægar
Sumar eru lokkaðar á folskum for-
sendum með loforðum um vinnu,
sem ekki stenst. Aðrar komi vitandi
vits um að vændi bíði þeirra en
margar hafa gjörsamlega óraunsæja
mynd af því, sem það felur í sér. Þær
sjái fyrir sér saklausa mynd af
vændi, líkt og brugðið er upp í
bandarísku kvikmyndinni „Pretty
Woman“. Hinn harði raunveruleiki
með mörgum viðskiptavinum á sólar-
hring, fjárskorti, misþyrmingum og
hörmulegum aðbúnaði sé langt frá
þeirri glansmynd.
BORIS Jeltsín Rússlandsíorseti vísaði
í gær á bug ásökunum um að hann
hefði gerst sekur um spillingu. Neitaði
hann því reiðilega að hann eða ætt-
ingjar hans ættu stóra bankareikninga
eða glæsilegar fasteignir erlendis.
Jeltsín gaf út yfirlýsinguna eftir
að fyrrverandi ríkissaksóknari Rúss-
lands, Júrí Skúratov, fullyrti í gær
að forsetinn hefði vikið sér úr starfí
til að standa vörð um „hagsmuni sína
og fjölskyldu sinnar". Skúratov hafði
áður en hann var rekinn hafíð rann-
sókn á ásökunum um spillingu á
æðstu stöðum innan rússneska
stjórnkerfísins. Segist hann hafa
fengið staðfestingu fyrir því að
Jeltsín og dætur hans hafí þegið
mútur frá svissneska fyrirtækinu
Anita Gradin bendh' á, að refsing-
ar við þrælasölu af því tagi, sem
vændismiðlun er, séu alltof litlar.
Gradin beitti sér fyrir því á sínum
tíma, að ESB samþykkti lög, sem
létu verslun með fólk varða við lög.
Enn eru þó viðurlögin alltof lítil að
hennar mati.
Vændissalarnir í Stokkhólmi eiga
fyrir höfði sér tveggja til sex ára
fangelsi en algeng refsing er eitt eða
eitt og hálft ár. Refsing fyrir smygl
og sölu eiturlyfja er mun þyngri en
þetta og Gradin nefnir að fyrir slík
brot geti hún verið allt að 10-15 ára
fangelsi.
Skýrsla Unicef um aðstöðu þeirra
150 milljóna kvenna og fimmtíu
milljóna stúlkna, sem búa í fyrrum
Sovétríkjunum, Mið- og Austur-Evr-
ópu, sýnir, að þótt ýmis góð teikn
séu á lofti þá er sala kvenna vaxandi
vandamál. Konur, sem búa við slæm-
ar aðstæður, eru auðveld bráð kald-
rifjaðra glæpamanna, sem græða of-
urfúlgur á vændi stúlknanna á Vest-
urlöndum.
Önnur hlið á vanda kvenna er vax-
andi eyðnismit. Árið 1994 voru þrjá-
tíu þúsund manns smitaðir af eyðni í
fyrrum Sovétríkjunum, Austur- og
Mið-Evrópu, en í lok 1998 var þessi
tala komin upp í 270 þúsund.
Vændi og skipulögð
glæpastarfsemi fara saman
Skipulagt vændi er í raun aðeins
ein hliðin á skipulagðri glæpastarf-
semi. I Finnlandi segir lögreglan að
um leið og vændi með stúlkur frá
Austur- og Mið-Evrópu kemur upp,
fylgi því eiturlyfjasala. Fyrir því hef-
ur finnska lögreglan fundið rækilega
enda teygir mikið af þeirri glæpa-
starfsemi, sem þrífst á svæðinu í
kringum Sankti Pétursborg, anga
sína yfir finnsku landamærin.
Á undanförnum árum hefur
sprottið upp mikið af neyðarathvörf-
um og öðrum stöðum, þar sem konur
leita hjálpar. I viðtali við sænska út-
varpið sagði starfskona á neyðarat-
hvarfí í Sankti Pétursborg að stafs-
fólk þar væri nýlega farið að einbeita
sér að því að hjálpa konum, sem
hefðu áhuga á að leita starfa erlend-
is. Mikið af slíkum tilboðum væri
ávísun á vændi og þrælasölu. Einnig
reynir athvarfíð að ná til kvenna,
sem eru erlendis, og leiðbeina þeim
um aðstoð.
I Rússlandi eru sjötíu prósent at-
vinnulausra konur, svo það eitt er
ærin ástæða til að þær láti freistast
af atvinnutilboðum erlendis, auk
löngunar til að læra tungumál og sjá
sig um í heiminum. Margar kvenn-
anna hafa góða menntun, sem þær
geta ekki nýtt heima fyrir.
Mabetex, sem sá um framkvæmdir í
Kreml.
Starfsmenn i lögfræðideild sviss-
neska bankans Banca del Gottardo
sögðu í gær að bankinn hefði útveg-
að tryggingu fyi'ir kreditkort á nafni
Jeltsíns og dætra hans, samkvæmt
beiðni frá Mabetex. Er þetta í fyrsta
sinn sem trúverðugar vísbendingar
koma fram um að forsetinn hafí þeg-
ið mútur frá fyrirtækinu.
Sambandsráðið, efri deild rúss-
neska þingsins, fjallaði um brott-
vikningu Skúratovs á miðvikudag og
meirihluti þingmanna neitaði að
staðfesta hana. Samkvæmt rúss-
neskum lögum þarf Sambandsráðið
að samþykkja brottvikningu ríkis-
saksóknara til að hún öðlist gildi.
Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra á aðalfundi LS
„ Kr ókaaflakerfínu
verður ekki frestaðu
Jeltsín neitar ásökunum um spillingu
Vísbendingar koma
fram um miítuþægrii
Moskva. AFP, AP.