Morgunblaðið - 15.10.1999, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 15.10.1999, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1999 27 ERLENT Ránið á starfsmönnum Sameinuðu þjóðanna í Abkasíu Fjórir gíslar látnir lausir Tblisi. Reuters. FJÓRIR af þeim sjö starfsmönn- um Sameinuðu þjóðanna, sem teknir voru í gíslingu af óþekktum byssumönnum í Abkasíu á mið- vikudag, voru í gær látnir lausir. Öryggismálaráðherra Georgíu staðfesti þetta í gær, en Abkasía tilheyrir landinu fonnlega, þótt íbúarnir hafi sagt sig úr lögum við Georgíu. Gíslarnir fjórir sem fengu frelsi eru frá Þýskalandi, Sviss, Úrúgvæ og Tékklandi. Að sögn georgískra stjómvalda voru fjórmenningarnir heilir heilsu og hafði þeim ekki ver- ið misþyrmt af mannræningjunum. Einum Svía, einum Grikkja og inn- fæddum túlki, er enn haldið í gísl- ingu. Mennimir eru meðlimir eftir- litssveita SÞ, sem fylgjast með því að vopnahlé milli georgíska stjóm- arhersins og abkasískra skæmliða sé virt. Hóta að skjóta gíslana til bana Talið er að mannræningjarnir hafist við á Kodori-fjallasvæðinu, um 350 km norðvestur af Tblisi, höfuðborg Georgíu. Svæðið er af- skekkt og þar hefur reynst ókleift að halda uppi lögum og reglu. Byssumennirnir kröfðust á mið- vikudag 200 þúsund dollara lausn- argjalds fyrir gíslana, og fyrripart- inn í gær skýrðu rússneskar frétta- stofur frá því að þeir hefðu hótað að skjóta gíslana til bana hvern af öðmm, yrði greiðslan ekki innt af hendi. Ekki er ljóst af hverju mannræningjarnir ákváðu að láta fjórmenningana lausa, en yfirvöld í Georgíu sögðu fyri’ um daginn að samningar hefðu tekist um að tveir þeirra fengju frelsi. Gili, Kjalarnesi s. 566 8963/892 3041 Eitthvert besta úrval landsins af vönduðum gömlum dönskum MARGT SJALDSÉÐRA HLUTA , - .. ... , - .. GOTT URVAL husgognum og antikhusgognum borðstofuhúsgagna a+u ■......_ Opið lau.-sun. kl. 15.00-18.00 Ath. einungis ekta hlutir og ^rí og fjmkvöíd kL 20.30-22.30 eóa eftir nánara samkomulagi. Ólafur^Á Kjarnorku- tækni smygl- að til Irans um Svíþjóð Kaupmannahöfn. Morgunbladið. HÁSKÓLANEMI af írönskum ættum í tækniháskólanum í Halm- stad er nú eftirlýstur eftir að hafa tvisvar orðið sér úti um rafeinda- búnað í kjarnavopn, sem álitið er að hann hafi komið áfram til írans. Gmnur hefur leikið á að Iranir, sem ekki ráða yfir kjarnorkuvopn- um, vinni að því að koma sér upp slíkum vopnum. Tækin komu frá bandarísku fyrirtæki, sem stóð í þeirri trú að þau yrðu notuð í tækniháskólanum, en tæki af þessu tagi má ekki selja til landa, sem ekki ráða yfir kjarnavopnum. Samkvæmt fréttum sænska út- varpsins var það tollurinn á Ar- landaflugvelli, sem fyrir þremur vikum opnaði sendingu, sem fara átti til Irans. I Ijós kom að í pakk- anum var rafeindabúnaður, sem hægt er að nota í kveikbúnað kjarn- orkuvopna. Sendandinn var há- skólanemi á þrítugsaldri, sem er fæddur í Iran en hefur alist upp í Svíþjóð. Neminn var handtekinn og tekinn til yfirheyrslu en honum síð- an sleppt. Eftir nánari athugun átti að taka hann fastan en þá kom í ljós að hann hefur látið sig hverfa, svo nú er hann eftirlýstur. Svo virðist sem neminn hafi í fyrra keypt sams konar búnað frá sama fyrirtæki og þá fyrir beiðni skyldmennis í Iran. Um er að ræða búnað, sem kallast „tyratron", og var þróaður tO að nota í kjarna- vopn. Er hann nú einnig notaður í aðra hátækni, tO dæmis í rönt- gentæki. Neminn hafði keypt bún- aðinn frá Stokkhólmsskrifstofu bandaríska fyrirtækisins Richard- son Electronics og látið líta svo út að búnaðurinn yrði notaður í skól- anum með því að falsa skjöl. I samtali við sænska útvarpið sagði yfirmaður Stokkhólmsskrif- stofunnar að afleitt væri að þessi búnaður hefði fengist en erfitt væri að verjast svindli af þessu tagi. Málið styrkir grun, sem þegar er fyrir hendi um að íran sé að koma sér upp kjarnorkuvopnum, sem gætu orðið til taks á næstu árum. FRAMÚRSKARANDI, FJÖLVIRK DÍSELOLÍA Fjiilvirk hœtiefni í Gteðadisel ESSO „Premium Diesel" Olíufélagið hf. ESSO býður nú aðeins díselolíu sem uppfýllir Evrópustaðalinn EN 590 um umhverfisvemd - og til að auka endingartima og tryggja þýðan gang vélarinnar bcetir Olíufélagið fjölvirkum bætiefnum í alla sína díselolíu. Einstakt frostþol - allt að -24 °C Nú eru helstu kuldavandamálin einnig úr sögunni þar sem ESSO Gæðadísel þolir að vetrarlagi allt að 24 stiga frosti. ESSO Gæðadíselolía inniheldur: • Dreifi- og hreinsiefni. • Cetanetölubætiefni sem stuðlar að réttum bruna eldsneytis við öll skilyrði. • Smur- og slitvamarefni. • Tœringarvamarefni. • Antioxidant stöðugleikaefni. • Demulsifier vatnsútfellingarefni. • Froðuvamarefni. • Lyktareyði. • Bakteríudrepandi efni. £ssoj ESSO gœðaeldsneyti á bílinn - afhreinni hollustu við vélina og umhverfið. Olíuf élagið hf www.esso.is • Hindrar tœringu í eldsneytiskerfinu. VEISTU UM AÐRA BETRI? * Fullkomnar eldsneytisbrunann vegna hœkkaðrar cetanetölu. - innihéldur ekki klór. • Ver eldsneytiskerfið gegn sliti. • Kemur í vegfyrir að ol freyði við áfyllingu tanka. • Heldur kuldaþoli olíunnar í hámarki. • Fullkomnar bruna í vélum, hvort sem þœr eru með eða án forbrunahólfs. » Dregur úr reyk- og hávaðamengun. • Stenst ströngustu kröfur vélaframleiðenda - oggott betur! • Heldur kerfum vélanna hreinum og hreinsar upp óhrein kerfi. DÍSEL ESSO bœtir um betur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.