Morgunblaðið - 15.10.1999, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1999 31
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stólar eftir Svein Kjarval. I bakgrunni er borð eftir Gunnar Magnússon
en á veggnum er veggspjald sem sýnir tíðaranda áranna 1950-1970.
Hönnunarsafn Islands
Islensk hönnun
áranna 1950-1970
ÍSLENSK hönnun 1950-1970 er yf-
irskrift sýningar sem opnuð verður
í kvöld, föstudagskvöld, kl. 20, á
Garðatorgi 7, nýbyggingu í miðbæ
Garðabæjar. Sýningin er kynning-
arsýning nýstofnaðs Hönnunar-
safns Islands í Garðabæ, sem til var
stofnað í desember 1998. Fyrst í
stað verður safnið starfrækt í sam-
vinnu við Þjóðminjasafn Islands á
Lyngási 7. Sýningunni er ætlað að
gera hvorttveggja í senn, að kynna
þessa nýju safnastofnun fyrir Garð-
bæingum og öðrum landsmönnum
og vekja athygli á hinum nýja mið-
bæ.
A þessari sýningu, sem Þórdís
Zoega innanhússarkitekt hefur haft
umsjón með, er að finna sýnishorn
af íslenskum húsbúnaði, húsgögn-
um, leirlist, veflist, skarti og graf-
ískri hönnun frá sjötta og sjöunda
áratugnum, en segja má að á þeim
ánim hafi hönnunarhugtakið fest
sig í sessi á Islandi í nútímalegum
skilningi og Garðabær tekið að mót-
ast í átt til sjálfstæðs bæjarfélags.
A sýningunni er að finna húsgögn
eftir Svein Kjarval, Gunnar H. Guð-
mundsson, Gunnar Magnússon,
Helga Hallgrímsson og Pétur P.
Lúthersson, auk lampa eftir þann
síðastnefnda, veflistaverk eftir
Júlíönu Sveinsdóttur og Asgerði
Búadóttur, leiilist eftir Gest og
Rúnu, Ragnar Kjartansson, Hauk
Dór, Steinunni Marteinsdóttur og
Jónínu Guðnadóttur, skart eftir
Leif Kaldal, Ásdísi Sveinsdóttur
Thoroddsen, Jens Guðjónsson, Jó-
hannes Jóhannesson, Guðbrand
Jezorski og Ófeig Bjömsson og loks
grafíska hönnun af ýmsu tagi eftir
Gísla B. Bjömsson, Kristínu Þor-
kelsdóttur, Hilmar Sigurðsson,
Friðrikku Geirsdóttur, Torfa Jóns-
son og samstarfsfólk þeirra.
Sýningunni er fylgt úr hlaði með
sýningarskrá þar sem er að finna
efni eftir Björn Bjarnason mennta-
málaráðherra, Ingimund Pálsson
bæjarstjóra, Gunnar Jóhann Birgis-
son, formann Þjóðminjaráðs, Stefán
Snæbjömsson, innanhússarkitekt
og formann stjórnarnefndar safns-
ins, og Aðalstein Ingólfsson, nýráð-
inn umsjónarmann Hönnunarsafns
íslands.
A sýningunni verður kynnt tillaga
að merki (logo) Hönnunarsafnsips.
Félag íslenskra teiknara (FÍT)
gekkst fyrir samkeppni meðal fé-
lagsmanna sinna og var ein tOlagan
valin til áframhaldandi úrvinnslu.
Arangur samkeppninnar er hugsað-
ur sem framlag FIT til safnsins.
Sýningin stendur til 15. nóvem-
ber 1999, og er opin mánudaga-
föstudaga kl. 14-19 og laugardaga-
sunnudaga kl. 12-19.
Málþing
Hönnunarsafn Islands efnir
einnig til málþings í fyrirlestrasal
Fjölbrautaskólans í Garðabæ við
Skólabraut á morgun kl. 10.
Rætt verður um stöðu og hlut-
verk hönnunarsafna í nútíð og fram-
tíð, og eru frummælendur Volker
Albus, prófessor í hönnun við há-
skólann í Frankfurt, Reyer Kras,
deildarstjóri hönnunardeildar
Stedelijk-safnsins í Amsterdam, en
hann setti saman umtalaða sýningu
á norrænni hönnun í safni sínu fyrr
á þessu ári, Paul Thompson, for-
stöðumaður Design Museum í
Lundúnum, Anniken Thue, for-
stöðumaður hönnunarsafnsins í
Ósló og Aðalsteinn Ingólfsson, um-
sjónarmaður Hönnunarsafns Is-
lands.
Að loknum ræðum frummælenda
gefst almenningi tækifæri til að
skeggræða við sérfræðinga um hug-
myndir þeirra og skoðanir.
Þátttöku má tilkynna til Þjóð-
minjasafns Islands.
Nýjar bækur
• ÞJÓÐRÁÐ er
eftir Hörð Berg-
rnann.
í fréttatil-
kynningu segir:
„Þjóðráð er inn-
legg í umræðuna
um þróun og
framtíð íslensks
þjóðfélags,
vandamál þess
og viðfangsefni í
upphafi nýrrar aldar. Höfundur
skÖgreinir hvaða vanda er helst við
að etja og varpar fram rökstuddum
tillögum um lausnir sem felast ekki
í auknum fjárframlögum og meiri
hagvexti, heldur breytingu á mark-
miðum, lífsháttum og viðhorfum."
í bókinni vekur höfundur máls á
fjölmörgum vandamálum íslensks
nútímasamfélags, veltir fyrir sér
leiðum til að leysa þau og bendir á
ráð sem hann telur að dugi best.
Meðal þeirra spurninga sem varpað
er fram í bókinni eru þessar:
Hvernig er unnt að efla lýðræði í ís-
lensku samfélagi og draga úr völd-
um fámennra þrýstihópa? Eru
brýnustu verkefnin á dagskrá í
þjóðmálaumræðunni? Hvemig má
draga úr efnahagslegu kynslóðabili
og auðvelda ungu fólki leiðina inn í
samfélagið? Hvernig getur stjórnun
fiskveiða og úthlutun aflaheimilda
orðið haldgóð og réttlát?
Hörður hefur áður sent frá sér
bókina Umbúðaþjóðfélagið - Upp-
gjör og afhjúpun, sem út kom árið
1989.
Utgefandi er Bókaútgáfan Iðunn.
Menningarsjóður styrkti útgáfu
bókarinnar sem er 142 síður, prent-
uð í Prisma - Prentbær ehf. Teikn-
ingai' eru eftir Halldór Baldursson.
Verð: 1.890 kr.
Hörður
Bergrnann
Létt og fjölbreytt
TÖJVLIST
lláskólabíó
SÖNGLEIKJATÓNLEIKAR
Forleikir, söngleikjalög og dúettar
eftir Suppé, Straus, Lehár, Stolz,
Zeller, Offenbach, Kern, Bernstein,
Gershwin og Rodgers. Einsöngvarar:
Hanna Dóra Sturluddttir; Bergþór
Pálsson. Sinfdníuhljómsveit íslands u.
stj. Bernharðs Wiikinson. Fimmtu-
daginn 14. október kl. 20.
ÞRÁTT fyrir yfirgengilega
neyzlustýringu einkaútvarpsstöðva
á seinni árum, sem ekki sízt er
áhyggjuefni meðan tónlistarnotkun,
smekkur og forsendur almennings
haldast að mestu óþekktar stærðir
vegna sinnuleysis félagsfræðinga,
virðast eldri gerðir af léttri óperu,
þ.e. óperetta og „musical" frá
gullöld Broadways (um 1930-70)
enn eiga talsverðu fylgi að fagna,
eins og álykta mátti af húsfylli í Há-
skólabíói í gær. Vönduð könnun
myndi eflaust segja nánar til um
hvaða þjóðfélagshópar hallast að
hverri grein, en í fljótu bragði væri
ekki fráleitt að ætla, að vínaróper-
ettan höfði mest til elztu kynslóðar,
sígræna Breiðvangsefnið til manna
um fimmtugt og upp úr, en
rokksöngleikirnir frá um 1970 með
Lloyd-Webber fremstan meðal jafn-
ingja til fólks frá þrítugu og fram á
sextugsaldur. Væri slík meginskipt-
ing raunar í eðlilegu samræmi við
blómaskeið hverrar greinar fyrir
sig - að viðbættri 5-10 ára seinkun
vegna einangrunar landsins - með
seinni heimsstyrjöld og hippaskeið-
ið um 1970 sem afgerandi vatnaskil.
Tónleikar Hönnu Dóru Sturlu-
dóttur, Bergþórs Pálssonar og Sin-
fóníuhljómsveitarinnar undir tón-
sprota Bemharðs Winlkinson í gær-
kvöld, í grænu röðinni svokölluðu
sem skv. vetrarskrá er helguð „létt-
leika og fjölbreytni", einkenndust af
téðum eldri greinum. Fyrri hlutinn
var frá þeim tímum er þýzkan var
alþjóðamálið í léttri tónlist og Vín-
arborg nafli tónlistarheimsins, enda
viðfangsefnin öll eftir þýzka eða
austurríska óperettuhöfunda að
undanskildu Can-can eftir Jaques
Offenbach, franskan höfund sem
var fyrirmynd margra þýzkumæltra
óperettuhöfunda á síðari hluta 19.
aldar. Meðal þeirra var Franz von
Suppé (d. 1895) sem var fyrirferðar-
mikill á tónleikaskrám Hljómsveitar
Reykjavíkur hér áður fyrr. Reið
hann á vaðið með czardas-ívafna
forleiknum Leichte Kavallerie;
dæmigerðri „hljómskálamúsík" sem
segja má að hafi runnið sitt síðasta
skeið með perlum Leroys Anderson
og Roberts Famon á 5. og 6. ára-
tug. Er íhugunarefni hvað veldur
því að síðari tíma tónskáld hafi gjör-
sneitt hjá slíkri skemmtitónlist, en
vera má að aukið afþreyingarfram-
boð sjónvarpsins, ásamt miskunnar-
lausri frumleikakvöð nútímans, hafi
vegið þyngst á metunum.
Smámeistarinn Oscar Straus átti
heiðurinn af bráðfallegum
„Traumwaltz" úr óperettunni Walz-
ertraum, þar sem Hanna Dóra og
Bergþór sungu dúett við liðugan
Vínar- „Schwung" hljómsveitarinn-
ar. Berþór söng Gem hab’ ich die
Frauen gekusst úr „Paganini“ eftir
Lehár, sem var eins og klæðskera-
saumað fyrir raddtýpu hans. Einn
síðasti vínaróperettuhöfundurinn
var Robert Stolz (d. 1975), og söng
Hanna Dóra eftir hann Kaiser
meine Seele sein við hlýjar undir-
tektir. Þau Hanna og Bergþór
sungu þvínæst annan fallegan vals,
Schenkt man die Rosen; dúett eftir
Karl Zeller (d. 1898) sem sagður er
hafa rifið vínaróperettuna úr tíma-
bundnum doða í lok 19. aldai' (milli
J. Strauss og Lehárs) með óperett-
unni Fuglasalanum 1891. Fyrri
hálfleik lauk svo með íðilfallegri út-
færslu Sinfóníuhljómsveitarinnar á
Can-Can úr Orfeifi í Undirheimum
sem eftir sinfónískulegan fyrripart
lauk á samnefndum pilsasviptandi
dansi, er varð tilefni álíka mikils
dansæðis sunnar í álfu laust fyrir
1860 og tangóinn í byrjun þessarar
aldar.
Eftir hlé færðist fókusinn yfir á
meistara Broadways. Jerome Kern
hóf gullöldina þar vestra með Show-
boat (1927), þaðan sem fyrst var
leikinn forleikur í dæmigerðum am-
erískum leikhúsvaðalstfl 3. áratug-
ar, svo minnti jafnvel á sirkus.
Hanna Dóra söng léttblúsaða gim-
steininn Can’t Help Lovin’ Dat Man
með hrífandi tilþrifum er komu
undirrituðum á óvart, enda við-
fangsefnið allólíkt hefðbundnum óp-
erusöng. Bergþór tók þarnæst fyrir
eitt af glansnúmerum sínum, 01’
Man River og vakti sem von var
mikla hrifningu, þó að „twangy“
raddbeiting hans í anda Als Jolsons
- hér sem stundum síðar - jaðraði
við að verka belgingsleg: m.a.s.
vottaði fyrir henni í Some
Enchanted Evening, þar sem sízt
átti við.
Hljómsveitin fékk að taka á öllu
sínu í líklega snjallasta musical-for-
leik allra tíma við Candide eftir Le-
onai'd Bernstein, sem leikinn var í
frísklegu tempói og heppnaðist
ágætlega vel, burtséð fra einstaka
krossrytmasnurðu í tréi og pjátri.
Einsöngvararir sungu síðan saman
dúett Gershwins, I Got Rhythm úr
„Girl Crazy“ (1930) og tóku nokkur
létt dansspor við rífandi undirtekth'.
Einhvert heilsteyptasta verk
allra Broadwaysöngleikja er South
Pacific frá 1949, sem margir telja
kóróna aldarfjórðungssamstarf
Richards Rodgers og textahöfund-
arins Oscars Hammersteins II,
enda hlaut verkið Pulitzer-verð-
launin. Bergþór söng fyrst ódauð-
legan ástaróð LeBecques, Some
Enchanted Evening, sem þrátt fyr-
ir afar góðar móttökur áheyrenda
hefði að mínu viti komið enn betur
út án fyrrgreindra Jolson-takta - og
ótímabærra áttundarupphækkana
laglínu í lokum fyrstu erinda.
Hanna Dóra spreytti sig á Happy
Talk, heilræðavísum betelhnetu-
maulandi Tonkin-kerlingarinnar
„Bloody Mary“ til Liat dóttur sinn-
ar, og kom aftur á óvart með sann-
færandi túlkun, sem aðeins vantaði
örlítið liprari sveiflu til að ná full-
komnun. Þessi dillandi söngur er
eiginlega fyrir lægra söngsvið -
mezzosópran - og hefði hljómsveitin
mátt taka aðeins minna á með tilliti
til þess.
Síðastur á skrá var dúettinn You
Will Never Walk Alone úr „Carou-
sel“ eftir Rodgers og Hammerstein
frá 1945, sem Bergþór og Hanna
Dóra sungu saman með miklum
bravúr. Hljómsveitin lék hér sem
víðast hvar áður furðu liðugt og lip-
urt undir snaggaralegri forystu
Bernharðs, miðað við hvað efnið er
sjaldviðrað á sinfóníupalli Háskóla-
bíós, og áttu fleiri meðlimir hennar
fallega mótaðar strófur en tjóir að
tíunda í stuttu máli.
Ríkarður Ö. Pálsson
SMÁSKÓR
Sérverslun m/barnaskó
í bláu húsi við Fákafen,
sími 568 3919.
SOKKABUXUR
SIMI557 7650
Full búd af nýjum vörum
PÓSTSENDUM
SAMDÆGURS
Kringlunni, 1. hæð,
sími 568 9345.
^ Nýkomnir hlýir og fallegir
barnakuldaskór
með ekta ullarfóðri
Stærðir: 22-35
Lifir: blátt-rautt-
grænt-vínrautt.
Verð 3.995