Morgunblaðið - 15.10.1999, Síða 32

Morgunblaðið - 15.10.1999, Síða 32
32 FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Fyrsta verkefni vetrarins hjá leikfélaginu Hugleik Leikendur í baðstofudramanu Völin & kvölin & mölin sem sýnt verður í Möguleikhúsinu við Hlemm. Baðstofudrama með rómantísku raunsæi LEIKFÉLAGIÐ Hugleikur í Reykjavík frumsýnir nýtt leik- verk sem nefnist Völin & kvölin & mölin í Möguleikhúsinu við Hlemm annaðkvöld, laugar- dagskvöld, kl. 20.30. Leikritið er eftir þau Ilildi Þórðardóttur, Sigríði Láru Sigurjónsdóttur og V. Kára Heiðdal. Leikendur eru Unnar Geir Unnarsson, Hulda Hákonardóttir, Rúnar Lund, Silja Björk Ó. Huldudóttir, Ylfa Mist Helgadóttir, Einar Þór Ein- arsson og Sigurður Atlason. Leikritið Völin & kvölin & mölin, haustverkefni félagsins, er baðstofudrama í rómantísk- um raunsæisstíl. Það gerist á seinni hluta 19. aldar og fjallar um ungan mann sem yfírgefur foreldra og heitmey til að afla sér menntunar í Reykjavfk. I höfuðstaðnum kynnist hann broddborgurum samfélagsins, Danadindlum og hugumstórum sjálfstæðishetjum. En þar er einnig brennivín að bergja á og bragðvísar konur sem bergja á honum. Hið innra togast á þráin eftir unnustunni heima í sveit- inni góðu og hinum tálfögru meyjum á mölinni. Leikstjóri er Þorgeir Tryggvason. Leikmynd og bún- ingar eru eftír Magnús Pétur Þorgrímsson og lýsingu annast Gunnar Gunnarsson. Þetta er 16. starfsár Hugleiks en það hefur jafnan sett a.m.k. eitt nýtt íslenskt leikrit á svið ár- lega, en í ár verða þau þijú. Síð- ustu tvö ár hefur Hugleik verið boðið að sýnaA leiklistarhátíð- um erlendis. í fyrra var farin leikför til Noregs, í sumar fór hópurinn til Litháen og nú er hann nýkominn frá Þórshöfn í Færeyjum, þar sem sýnd voru tvö leikrit, annað í Norður- landahúsinu og hitt í Sjónleik- arahúsinu. Næstu sýningar verða fimmtu- daginn 21. og laugardaginn 23. október. Garðar Cortes syngur ljóðatón- list á geislaplötu TVÖFÖLD geisla- plata, þar sem Garðar Cortes syngur ljóða- tónlist við undirleik Eriks Werba, kemur út á næstunni. Hér er um að ræða hljóðrit- un á tónleikum sem fram fóru á vegum Tónlistarfélagsins í Austurbæjarbíói 3. mars árið 1984. Einn- ig verður gefin út hljóðritun Ríkisútvar- psins af nánast sömu efnisskrá. Halldór Hansen rifjar tónleikana upp í bæklingi sem fylgir útgáfunni en Halldór les einnig texta sinn inn á aðra geislaplötu, sem er nýlunda í tónlistarútgáfu á Islandi. Halldór segir meðal annars: „Það er meira að segja heil kynslóð vaxin úr grasi, sem hefði aldrei getað heyrt þá, ef ekki vildi svo skemmtilega til, að efnisskráin sjálf var hljóðrituð, ekki einungis einu sinni, heldur tvisvar. I fyrra skiptið á tónleikunum sjálfum, en í síðara skiptið í hljóðveri Ríkis- útvarpsins. Á bak við þá tilhögun er skemmtileg saga. Á lifandi tón- leikum getur ýmislegt farið úr- skeiðis. En að þessu sinni voru það ekki listamennirnir sjálfir, sem varð á \ messunni, heldur áheyrendur. I miðjum klíðum var sem húsið ætlaði að rifna af ein- skærum hávaða. Við nánari at- hugun hafði hreyfihamlaður áheyrandi verið að reyna að koma sér fyrir með ofangreindum en óviljandi afleiðingum. Listamenn- irnir létu þetta þó ekkert á sig fá, heldur héldu áfram eins og ekkert hefði í skorist, þó að það tæki áheyrendur nokkurn tíma að jafna sig. Allt þetta má heyra á fyrri upptökunni frá tónleikunum sjálfum." Á efnisskrá tónleikanna voru Ijóð úr ýmsum áttum. Þeir hófust á gömlum ítölskum antíkaríum, þá komu nokkur lög eftir Haydn en að þeim loknum íslensk söng- lög eftir Árna Thor- steinsson og Karl 0. Runólfsson. Þá fylgdu lög eftir Brahms og Strauss auk nokkurra laga eftir ensk tónskáld. Meiri útgáfa á döfinni Ýmislegt annað er á döfinni varðandi út- gáfu á sönglist Garð- ars Cortes, enda hafa plötur með söng hans vart verið fáanlegar nema örfá lög í félagi við aðra söngvara. A næsta ári stendur til að endurút- gefa hljómplötu Garðars þar sem hann syngur íslensk einsöngslög við undirleik Krystynu Cortes. Þessi plata var gefin út á áttunda áratugnum og hefur verið ófáan- leg í fjölda ára. Einnig stendur til að gefa út alþjóðlega slagara sem Garðar Cortes og sænski djass- píanistinn Robert Sund hafa tekið upp undanfarið ár. -------------------- Nýjar plötur • f JÖKLANNA skjóli er með söng Karlakórsins Jökuls í Horna- firði. Kórinn flytur hefðbundin karlakóralög, lög og eða ljóð eftir homfirska höfunda, auk þess nokk- ur lög eftir Magnús Eiríksson. Þetta er fyrsti hljómdiskur kórs- ins, en hann hefur starfað frá árinu 1973. Stjórnandi Jökuls, Jóhann Morávek, útsetti fyrir kórinn lög Magnúsar Eiríkssonar og fékk hann til liðs við kórmenn félaga úr hljómsveit Hauks Þorvaldssonar, auk 15 ára gamals saxófónleikara, Sveinbjörns Pálssonar og slag- verksleikarans Jóns Björgvinsson- ar. Píanóleik annast Guðlaug Hestnes. Kórinn gefur sjálfur út en Skífan sér um dreifingu. Upptökum stjórnaði Sigurður R. Jónsson hjá Studio Stemmu. Garðar Cortes Bókaður til 2001 Kolbeinn Ketilsson tenórsöngvari er stadd- ur hér á landi og tekur þátt í óperutónleik- um Islensku óperunnar. Hróður Kolbeins sem óperusöngvara hefur vaxið hröðum skrefum á fáum árum en hann hefur frá því í fyrra verið fastráðinn við Kölnaróperuna í Þýskalandi. Hann segir nú orðið tímabært að reyna fyrir sér á eigin vegum enda bók- aður langt fram á árið 2001. Kolbeinn Ketilsson tenórsöngvari og Gerrit Schuil píanóleikari á æfingu fyrir óperutónleikana í Islensku óperunni. „DAGSKRÁIN hefur verið mjög stíf hjá mér undanfarið," segir Kol- beinn sem kom beint hingað til Is- lands á miðvikudaginn eftir að hafa sungið í Carmen í óperunni í Darm- stadt kvöldið áður. „Ég söng í nýrri uppfærslu á Madanje Butterfly í óperunni í Essen í maí og síðan tók Carmen við í Darmstadt í júní og nú í haust hófust sýningar aftur. Báðum þessum sýningum var mjög vel tekið. Annars hefur þessi vika verið nokkuð ævintýraleg því hún hófst á því að ég var beðinn að koma á mánudagsmorguninn til Brussel til að prufusyngja fyrir La Monnaie-leikhúsið en þar hafði söngvari forfallast vegna væntan- legrar Carmen-uppfærslu. La Monnaie er eitt virtasta óperuhús Belgíu svo það er eftir nokkru að sækjast. En ég þurfti að vakna klukkan 3 og fljúga til Brussel og syngja klukkan 9 sem er ekki allra besti tíminn fyrir röddina. Svo fór ég til baka og söng í Carmen um kvöldið í Darmstadt. I morgun (fimmtudag) fékk ég svo fréttir af því að ég hefði verið ráðinn í La Monnaie svo ég fer héðan á laugar- daginn til Brussel og þar hefst æf- ing klukkan 14,“ segir Kolbeinn og hlær og segir að þetta sé nú ekki alltaf svona en það þurfi að vera við öllu búinn og vissara að hafa rödd- ina og taugarnar í lagi. „Á sunnu- daginn syng ég svo í óperettu í Köln.“ Söng fyrir Zubin Mehta í sumar söng Kolbeinn á tónlist- arhátíðinni í Vín og segist jafn- framt hafa prufusungið í óperunni í Múnchen fyrir Zubin Mehta og stjórnandinn frægi hafi haft góð orð um að samstarf væri á næsta leiti. „Framundan er ýmislegt og frumsýningar á döfinnþí Köln þar sem ég er fastráðinn. I desember tek ég þátt í flutningi á óperu eftir Hindemith. I apríl fer ég til Laus- anne í Sviss og syng þar í Frei- schutz eftir Weber en það er gaman að geta þess að ég syng einmitt aríu úr þeirri óperu á tónleikunum í Is- lensku óperunni. Næsta sumar er mjög stórt og spennandi verkefni framundan á tónlistarhátíðinni Sa- lzburg. Þá syng ég tenórhlutverkið í einni stærstu óperu sem skrifuð hefur verið, Les Troyens eftir Ber- lioz. Óperan verður flutt í fullri lengd sem er heldur óvanalegt þar sem hún er oft flutt í tveimur hlut- um. Ég hef þó sungið þetta tvisvar áður á undanfömum árum, bæði í Dortmund og einnig í Lissabon í Portúgal. Það eru ekki svo margir tenórar sem hafa sungið þetta. Þetta er stórt stökk upp á við og viðurkenning fólgin í því að taka þátt í þessari frægu tónlistarhátíð." Kolbeinn segist ætla að hætta við Kölnaróperuna næsta vor en þá rennur samningur hans út. Það segir talsvert um hversu langt hann hefur náð í söngheiminum þar sem óperan í Köln er svokallað A- hús í Þýskalandi og mjög eftirsótt að komast að. „Það lítur vel út með framhaldið því ég er bókaður til að syngja Don José í Carmen í Genf í desember á næsta ári og einnig mun ég syngja í Hollendingnum fljúgandi í Ósló árið 2001. Ýmislegt fleira er í bígerð sem of snemmt er að nefna en er þegar komið í um- ræðu.“ Kolbeinn segir söngferil sinn vera á þeim punkti þar sem allt er að springa út. „Það er mikið fylgst með manni og ef manni tekst vel upp á einum stað þá fylgja til- boðin annars staðar frá í kjölfarið. Maður þarf líka að gæta svolítið að sér og velja og hafna og því ég gæti verið að syngja annan hvern dag ef ég tæki allt sem býðst. Það er mik- ilvægt að hafa góðan umboðsmann sem hugsar ekki bara um að græða sem mest á manni heldur ber svol- itla umhyggju fyrir manni líka. En maður verður að trúa þeim sem maður telur að vilji manni vel,“ seg- ir Kolbeinn og hyggur gott til fram- tíðarinnar í óperuheiminum á meg- inlandinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.