Morgunblaðið - 15.10.1999, Síða 48

Morgunblaðið - 15.10.1999, Síða 48
^8 FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR + Eiginmaður minn, LUCIEN LÚÐVÍK MESSIAEN, Skólastíg 3, Akureyri, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri föstudaginn 8. október. Jarðarförin ferfram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 18. október kl. 13.30. Ólöf Þórhallsdóttir. Lokað Vegna útfarar HARALDAR Z. GUÐMUNDSSONAR verður lokað frá kl. 13.00 föstudaginn 15. október. Tösku- og hanskabúðin ehf., Skólavörðustíg 7. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordper- fect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. SIGRÚN JENSDÓTTIR + Sigrún Jens- dóttir fæddist á Veisu í Fnjóskadal 7. febrúar 1915. Hún lést á Dvalar- heimilinu Hlíð 4. október siðastliðinn og fór útför hennar fram frá Akureyr- arkirkju 11. októ- ber. Jarðsett var í Bægisárkirkju- garði. Elsku amma mín. Nú kveð ég þig, þó að það sé sárt en ég veit að þú ert hvíldinni fegin og pabbi sem dó í fyrra, alltof fljótt, tekur vel á móti þér ásamt öðrum ástvinum. Eg man svo vel eftir því þegar ég, mamma, pabbi og systkini mín komu í heimsókn til þín, Inga og Svenna að Naustum þar sem þú varst ráðskona í mörg ár og seinna kom ég með Torfa manninn minn og börnin mín og alltaf var svo gott að koma til ykkar. Þú vildir yfirleitt að við færum inn í stofu til Inga og Svenna með- an þú helltir uppá kaffi og settir kökur á diska. Það fannst mörgum skrítið að við vorum að heimsækja föðurömmu mína sem var ráðskona hjá bræðrum móðurömmu minnar, þannig að það voru bæði amma og frændur, enda var yndislegt að heimsækja ykkur og skreppa niður í fjós eða uppí fjár- hús, tala nú ekki um alla hundana sem voru á bænum og voru mjög hændir að þér. Þú fórst oft með mig upp í herbergið þitt og sýndir mér allar myndirnar sem þú fékkst af afkomendum þínum og ég þurfti að spyrja hver væri hver, því ég þekkti ekki börn systkina pabba nema að litlum hluta, því við fluttumst frá Akureyri þegar ég var 10 ára og samgangur var ekki mikill á milli hans og systkina hans. Það er ekki fyrr en ég kom aftur norður fyrir þremur árum sem ég er farin að þekkja flesta. Þegar ég kom í heimsókn til þín á elliheimilið Hlíð hafðir þú alltaf eitthvað um að tala, börnin þín og barnabörn. Þú hugsaðir mikið til okkar allra og fylgdist vel með okkur. Það var mikill styrkur sem ég fékk frá þér þegar pabbi dó. Þú sagðir að það hefði vantað einhvern til að stjórna í einhverju og hann hefði verið valinn því betri maður væri ekki til. Þú baðst alltaf fyrir svo góða kveðju til mömmuþví þér þætti svo vænt um hana. Eg kom til þín á sunnudeginum, nokkrum klukkustundum áður en þú skildir við þennan heim. Eg sá hvert stefndi, hélt í höndina á þér, bað Faðir vorið og sá ljós við gluggann. Það var kominn svo mikill friður yfir þig. Því kveð ég þig, elsku amma mín, með kærri þökk fyrir öll árin sem ég fékk að njóta þín og fjölskyldan mín líka. Þín sonardóttir Signín Jensdóttir. ATVINNUAUGLÝSIIMGA Fiæðslumiðstöð Reyiqavíkur Laus störÍF í grunn- skólum Reykjavíkur Starfsmenn óskast til ýmissa starfa í grunnskólum Reykjavíkur Meginmarkmið með störfunum: Að taka þátt í því uppeldisstarfi sem fram fer innan skólans þar sem áhersla er lögð á vellíð- an nemenda. Enqiaskóli. sími 510 1300. Starfsmaður til að annast nemendur í leik og starfi, gangavörslu o.fl. 50—100% starf eftir hádegi. Upplýsingar gefa skólastjóri og aðstoðarskóla- stjóri. Umsóknir ber að senda í skólann. Fossvoqsskóli. sími 568 0200. Starfsmaður til að annast nemendur í leik og starfi, við gangavörslu o.fl. 70—100% starf. Starfsmaður til að annast ræstingu. Upplýsingar veita skólastjóri og aðstoðarskóla- stjóri. Umsóknir ber að senda í skólann. Selásskóli, sími 567 2600. Leikskólakennara, kennara eða starfs- mann með menntun í tómstundastarfi vantar í skóladagvist. Upplýsingar gefur Hrefna Björk Karlsdóttir, ^umsjónarmaður skóladagsvistar. Umsóknir ber að senda í skólann. Laun skv. kjarasamningum Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttarfélag. • Fríkirkjuvegi 1 • ÍS-101 Reykjavík, • Sími: (+354) 535 5000 • Fax: (+354) 535 5050 • Netfang: fmr@rvk.is Byggingaverkamenn jOkkur vantar nokkra duglega verkamenn í vinnu á nýbyggingasvæði okkarvið Hulduhlíð í Mosfellsbæ. Hafið samband við Einar Ágústsson í síma 898 0997. , Wt 'ÁI f t á r ó s » www.alftaros.is vantar við Nýlendugötu. Upplýsingar í síma 569 1122. Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar fréttir og upplýsingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á íslandi sem er í upplagseftirliti og eru seld að meðaltali rúmlega 54.000 eintök á dag. Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru í Kringlunni 1 i Reykjavík þar sem eru yfir 300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa í Kaupvangsstræti 1. Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913. Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins. Skrifstofustarf/ gagnaskráning Opinber stofnun óskar eftir að ráða starfsmann til skrifstofustarfa, m.a. símsvörun, ritvinnslu, gagnaröðun, tölvuskráningu, auk sendiferða. Krafist er góðrar þekkingar í Word og Excel, nákvæmni og skipulagðra vinnubragða. Við- komandi þarf að hafa góða framkomu, vera stundvís og greiðvikinn. Góð starfsaðstaða og reyklaus vinnustaður miðsvæðis í Reykja- vík. Umsóknir þar sem fram komi aldur, menntun, fyrri störf og meðmæli, sendist afgreiðslu Mbl. fyrir 21. október nk. merktar: „Skrifstofa — 8842". Afgreiðslustarf á kassa Kjötumboðið Goði hf. óskarað ráða af- greiðslumann „kassadömu" á kassa í kjöt- markað okkar á Kirkjusandi. Æskilegur aldur 30 ára og eldri. Nánari upplýsingar veitir Óskar í síma 568 6366. Lúgusjoppa á stór- Reykjavíkursvæðinu Óska eftir að ráða starfskraft á „besta aldri". Um er að ræða 70—100% vaktavinnu. Nánari upplýsingar gefur Kristín í síma 565 8050 á milli kl. 8.00 og 12.00 og 14.00 og 16.00. Múlakaffi Veisluréttir Óskum eftir að ráða kraftmikinn og duglegan starfskraft í uppvask og aðstoð í eldhúsi. Góð laun í boði. Upplýsingar veitir yfirmatreiðslumaður á staðnum. Trésmiðir og málarar Okkur vantar trésmiði og málara í vinnu strax. Upplýsingar í síma 564 3225. Byggingafélagið Viðar. Hjá Jóa Fel. Brauð og kökulist Okkurvantar hresst og duglegt fólk til starfa í afgreiðslu á tvískiptum vöktum í bakaríi okkar. Upplýsingar í síma 897 9493. SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF I.O.O.F.12 = 180101581/2 = Sp Frá Guðspeki- félaginu l/igólfsstræti 22 Askriftarsími Ganglera er 896-2070 I kvöld kl. 21 heldur séra Tóm- as Sveinsson erindi: „Hin heilögu augnablik" í húsi félagsins, Ingólfsstræti 22. Á iaugardag kl. 15-17 er opið hús með fræðslu og umræð- um, kl. 15.30 í umsjón Sigríðar Einarsdóttur: „Úr fræðum Paul Bruntons". Á sunnudögum kl. 17—18 er hugleiðingarstund með leið- beiningum fyrir almenning. Hugræktarnámskeið Guð- spekifélagsins verður fram- haldið fimmtudaginn 21. októ- ber kl. 20.30 í umsjá Jóns L. Arnalds: „Hver er ég?". Á fimmtudögum kl. 16.30— 18.30 er bókaþjónustan opin með miklu úrvali andlegra bókmennta. Guðspekifélagið er 122 ára alþjóðlegt félag um andleg mál, hið fyrsta sem byggði á hugmyndinni um algert frelsi, jafnrétti og bræðralag meðal mannkyns. I.O.O.F. 1 = 18010158y2 = Sp. Aðalstöðvar KFUM og KFUK, Holtavegi 28 VAKA Samvera fyrir ungt fólk föstu- dagskvöid. Allir hittast við hús KFUM & K á Holtavegi 28 skömmu fyrir kl. 20.00. Gengið verður út i Langholtskirkju. Par verður lofgjörð og heilög kvöldmáltíð. Gott samfélag og hress söngur. Athugið breytt- an samkomustað. Allir velkomnir. SÍK Fasteignir á Netinu <|> mbUs —ALLTAfz £ITTHVAO UTTl—

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.