Morgunblaðið - 15.10.1999, Side 50
£0 FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Maður - nýting'
- náttúra
Á RÁÐSTEFNU
Sameinuðu þjóðanna í
Ríó de Janeiro um
umhverfismál og þró-
un árið 1992 var sam-
þykkt yfírlýsing og
dagskrá 21, sem er
framkvæmdaáætlun í
umhverfís-^ og þróun-
ármálum. I framhaldi
af Ríó-ráðstefnunni
samþykkti þáverandi
ríkisstjórn fram-
kvæmdaáætlun í
umhverfismálum og
umhverfisráðherra
skipaði sjö starfshópa
til að fylgja henni eft-
ir. Einn þessara hópa
fjallaði um umhverfismál, iðnþróun
og orkumál. Hópurinn lagði m.a. til
að iðnaðarráðherra yrði falið í sam-
ráði við umhverfisráðherra að
skipa stai-fshóp til að leggja drög að
langtímaáætlun um nýtingu vatns-
afls og jarðhita.
Á umhverfisþingi sem umhverf-
jsráðherra boðaði til í október 1996
var fjallað um tillögur hópanna og í
framhaldi af því samþykkti þáver-
andi ríkisstjórn framkvæmdaáætl-
un í umhverfismálum. I henni segir
m.a.: Iðnaðarráðherra, í samráði
við umhverfisráðherra, láti gera
rammaáætlun til langs tíma um
nýtingu vatnsafls og jarðvarma og
skal henni lokið fyrir árið 2000.
Áætlunin sé í samræmi við sam-
hæfða stefnu í umhverfis-, orku-;
iðnaðar- og efnahagsmálum. I
jtenni verði sérstaklega fjallað um
verndargildi einstakra vatnasvæða
og niðurstöður færðar að skipulagi.
í því sambandi verði sérstaklega
könnuð áhrif smárra virkjana.
Umfangsmikið verk
Við undirbúning verkefnisins
hefur verið höfð til hliðsjónar
reynsla Norðmanna af því að gera
áætlun um nýtingu
vatnsfalla. Ljóst er
hins vegar að staða
okkar er önnur. Búið
var að nýta meiri hluta
vatnsorkunnar í Nor-
egi, eða um 60%, þeg-
ar vinnan þar hófst.
Hér á landi er hins
vegar einungis búið að
nýta um sjöunda hluta
vatnsorkunnar og enn
minni hluta jarðhitans
og áætlunin okkar
þarf því að taka til
mun stærri hlútar ork-
ulindanna. I áætlun
okkar þarf einnig að
flokka jarðhitasvæðin.
Þetta verkefni verður mjög um-
fangsmikið. Það tók því eðlilega
Umhverfi
Rammaáætlunin er lið-
ur í því, segir Finnur
Ingólfsson, að tryggja í
senn lýðræðisleg vinnu-
brögð og þá festu sem
nauðsynlegt er að ríki
við undirbúning virkj-
anaframkvæmda.
langan tíma að skipuleggja verk-
efnið, afla fjár til þess og finna hæft
fólk til að stýra því. Síðastliðinn
vetur var skipuð verkefnisstjóm
undir forystu Sveinbjörns Bjöms-
sonar fymverandi rektors Háskóla
Islands. I sumar var leitað eftir til-
nefningum á um 40 einstaklingum,
frá sveitarstjómum, félagssamtök-
um, stofnunum, fyrirtækjum o.fl., í
fjóra faghópa sem eiga að fara yfir
virkjunarkost hver frá sínum sjón-
arhóli, flokka þá og gera tillögur til
verkefnisstj órnarinnar.
Allir með
Brýnt er að rammaáætlunin njóti
trausts í samfélaginu. Því er mikil-
vægt að allir eigi þess kost að fylgj-
ast með framgangi verkefnisins,
koma sjónarmiðum sínum á fram-
færi við faghópana og verkefnis-
stjórnina. Til þess að undirstrika
þetta var óskað eftir því við Land-
vernd að samtökin tækju að sér að
annast samráðsvettvang í þessu
skyni. Samtökin urðu við þessari
beiðni. I dag verður opnuð heima-
síða fýrir verkefnið til að auðvelda
almenningi að fylgjast með fram-
gangi þess og koma sjónarmiðum á
framfæri (www.landvernd.is/natt-
uruafl).
Fagleg
vinnubrögð
Undirbúningur bæði vatnsafls-
og jarðvarmavirkjana tekur langan
tíma og oft líða áratugir frá því að
undirbúningsathuganir hefjast þar
til rekstur virkjunar hefst. Því er
þýðingarmikið að langtímasjónar-
miða sé gætt. Rammaáætlunin er
liður í því að tryggja í senn lýðræð-
isleg vinnubrögð og þá festu sem
nauðsynlegt er að ríki við undir-
búning virkjanaframkvæmda. Fag-
leg og málefnaleg umfjöllun um
nýtingu orkulindanna, áhrif hennar
á hið náttúrulega umhverfi, efna-
hag þjóðarinnar og atvinnu- og
byggðaþróun er hafin með þessu
verkefni. Þess er vænst að þetta
verkefni geti orðið liður í því að ná
almennri sátt um sambýli manns og
náttúru við nýtingu auðlindanna.
Höfundur er iðnaðar- og viðskiptar-
áðherra.
Finnur
Ingólfsson
Hráskinnaleikur
með Listaháskóla
STAÐSETNING
Listaháskóla Islands
hefur verið nokkuð til
umfjöllunar á umliðn-
um vikum og mánuð-
um og verður ekki
annað séð en að ráð-
herra menntamála,
þingmaður Reykjavík-
ur, rói að því öllum ár-
um að skólinn flytjist
úr Laugarnesi í Hafn-
arfjörð. Ef það er mat
hans og forsvar-
smanna skólans að
það sé farsælast fyrir
skólastarfið og tryggi
best tengsl þess við
menningar- og lista-
starfið í landinu þá er
lítið við því að segja. Þeir bera
ábyrgð á uppbyggingu og rekstri
skólans, þeir hafa málið á sínu for-
ræði og ráða því hvar og hvemig
listaháskóli byggist upp.
Mál þetta er í sjálfu sér mjög
einfalt. Listaháskóli Islands ræður
yfir glæsilegri 10.300 fm byggingu
á besta stað í borginni með útsýni
til hafs og fjalla. Byggingin er í
næsta nágrenni og beinum tengsl-
um við miðborg Reykjavíkur. Lóð-
in er 24.175 fm og býður upp á
aukna byggingarmöguleika í fram-
tíðinni bæði til norðurs og vesturs.
Hún liggur vel við umferðaræðum,
aðkoma og staðsetning einkabíla er
auðveld, almenningssamgöngur
eru á næsta leiti og bein tengsl eru
við hjóla- og göngustígakerfi borg-
arinnar.
Að óreyndu hefði mátt ætla að
forsvarsmenn Listaháskólans
mættu vel við una og gætu snúið
sér óskiptir að því að byggja upp
innra starf skólans. Þeir settu hins
vegar stefnuna á miðborg Reykja-
víkur með það að leiðarljósi að
„skólinn geti sem best þjónað þvi
markmiði að vera lifandi listamið-
stöð í nánum tengslum við lista- og
menningarlífið í landinu".
Undanfarin misseri
hefur aukin umræða
átt sér stað um mið-
borg Reykjavíkur sem
miðstöð menningar og
lista í landinu. Nýjar
menningarstofnanii’ á
vegum Reykjavíkur-
borgar opna í mið-
borginni á árinu 2000
og þar á ráðstefnu- og
tónlistarhús að rísa
þegar fram líða stund-
ir. Forsvarsmenn
Listaháskólans hafa
því eðlilega rennt
þangað hýru auga og
óskað eftir því að
kannað verði til hlítar
hvort hægt sé að
koma skólanum fyrir í miðborginni
áður en endanleg ákvörðun verður
tekin um húsnæðismál skólans.
Borgaryfirvöld hafa fyrir sitt
leyti tekið þessu erindi vel og m.a.
bent á húseignir í eigu ríkisins í
miðborginni sem mætti nýta fyrir
Listaháskóla ef einhver vilji væri
til þess af hálfu eigendanna. Gam-
anið fer hins vegar að káma þegar
forsvarsmenn skólans gera kröfu
til þess að fundin verði lóð hið
fyrsta í miðborginni þar sem reisa
mætti 10.000 fm nýbyggingu fyrir
skólann en slík bygging er á við tvö
ráðhús.
Það sér það hver heilvita maður
að slíkar lóðir liggja ekki á lausu í
miðborginni. Engu að síður hefur
verið látið að því liggja, m.a. af
hálfu menntamálaráðherra, að það
sé áhugaleysi borgaryfirvalda að
kenna að ekki hafi tekist að finna
slíka lóð. Borgaryfirvöld bjóði ekki
nógu vel og Hafnarfjörður kunni
því að verða fyrir valinu.
Forsvarsmenn Listaháskólans,
þ.á m. menntamálaráðherra, verða
að gera það upp við sig hvað þeir
vilja og hvað þeir telja skólanum
fyrir bestu.
Ef þeir hafa raunverulegan
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
Skólavörðustíg 35,
sími 552 3621.
Bókhaldskerfi
KERFISÞRÓUN HF.
I Fákafeni 11 • Sítni 5B8 8055
Sj www.islandia.is/kerfisthroun
Eymalokkagöt
Nú einnig
100 gerðir af eyrnalokkum
3 stœrðir
Hárgreiðsíustofan
Klapparstíg (Sími 551 3010)
I XStofnað 1918 O
Fibromyalg'ia - veQagigft
SKILGREINING:
Sjúkdómur eða
heilkenni (syndrome)
sem einkennist af
langvarandi útbreidd-
um verkjum frá stoð-
kerfi líkamans og
aumum blettum á viss-
um stöðum.
Ekki finnast nein
merki um liðbólgur
eða bólgur í vöðvum.
Eðlil. læknisskoðun
og eðlil. niðurstöður
blóðprófa og röntgenr-
annsókna.
80-90% þeirra sem
veikjast eru konur á
aldrinum 30-50 ára.
Orðið vefjagigt (í er-
lendum tímaritum ýmist kallað fi-
brositis eða fibromyalgia) hefur
verið notað yfir sérstakan gigtar-
sjúkdóm, sem einkennist af lang-
varandi dreifðum
stoðkerfisverkjum og
stirðleika ásamt fjöl-
mörgum aumum blett-
um víða um líkamann.
Ekki eru allir læknar
þó sammála um að hér
sé um að ræða sér-
stakan sjúkdóm. Vitað
er, að vefjagigt leggst
oftast á konur á barn-
eignaaldri (80-90%).
Yfirleitt er um að
ræða samtvinnaða or-
sakaþætti. Vel er
þekkt, að sjúkdómur-
inn getur byrjað t.d. í
kjölfar sýkingar eða
slyss. Talið er, að í
flestum tilfellum megi
rekja einkennin til langvarandi
truflunar á nætursvefni, sem aftur
getur haft margvíslegar frumor-
sakir. Læknar eru ekki á einu máli
Gigt
Eitt aðalatriðið í með-
ferð sjúklinga með
vefjagigt, segir Július
Valsson, er að auka al-
mennt líkamlegt þrek
þeirra.
um hvað það er, sem orsakar hina
aumu bletti, hvort það er almennt
lækkaður sársaukaþröskuldur eða
einungis staðbundin eymsli. Ljóst
er þó, að almennt lélegt ástand
vöðva og þar með léleg súrefnis-
upptaka, gerir þá mun viðkvæmari
fyrir öllu hnjaski en ella. Mikilvægt
er að útiloka aðra sjúkdóma svo
sem langvinna gigtarsjúkdóma,
innkirtlasjúkdóma sérstaklega
skjaldkirtilssjúkdóma, langvinnar
sýkingar og jafnvel illkynja sjúk-
dóma. Fræðsla um sjúkdóminn er
mjög mikilvæg.
Meðferðin er einstaklingsbund-
in. Mikilvægt er að reyna að kom-
ast að orsökum einkennanná, til
dæmis ef þau stafa af slæmum líf-
svenjum. Athuga þarf atriði svo
sem reykingar, óhóflega áfengis-
og kaffidi-ykkju, of mikið vinnuálag
og langar vökur.
Meginmarkmið meðferðarinnar
eru eftirfarandi: 1) að minnka verki
með verkjalyfjum, 2) bæta svefn-
mynstrið, 3) draga úr geðsveiflum
og minnka andlegt álag t.d með
reglulegri slökun, 4) auka blóðflæði
til vöðva og mjúkvefja með lík-
amsæfingum og 5) auka líkamlegt
þol.
Yfirleitt kemur lyfjameðferð t.d.
með bólgueyðandi lyfjum að litlu
gagni en rétt er að reyna meðferð
með verkjalyfjum og jafnvel stutt-
verkandi svefnlyfjum ef verkir og
svefntruflanir eru mjög áberandi í
sjúkdómsmyndinni. Ekki er ástæða
til mikilla breytinga á mataræði en
sjálfsagt er að bæta slæmar matar-
venjur. Yfirleitt þarf að beita sam-
an líkamsæfingum og slökun. Eitt
aðalatriðið í meðferð sjúklinga með
vefjagigt er að auka almennt líka-
mlegt þrek þeirra. Oft er um að
ræða einstaklinga, sem hafa lítið
líkamlegt þrek og eru mjög út-
haldslausir. Ekki er ólíklegt að ein-
mitt lélegt líkamlegt þrek stuðli að
því, að menn fái frekar vefjagigt.
Sjúklingurinn sjálfur getur gert
ýmislegt til að bæta líðan sína t.d.
með reglulegum gönguferðum,
sundi og jafnvel léttri leikfimi. I
flestum tilfellum er ekki ástæða til
að hann hætti að vinna.
Segja má, að vefjagigtin sé ein af
mörgum enn óleystum gátum
læknisfræðinnar. Ef rétt er staðið
að málum frá upphafi eru horfur
sjúklinga með vefjagigt góðar en til
þess þurfa að koma markviss og
samhæfð vinnubrögð þeirra aðila,
sem starfa að greiningu og meðferð
gigtarsjúklinga svo sem lækna,
sjúkra- og iðjuþjálfara o.fl. Rann-
sóknir á vefjagigt fara nú fram í
ýmsum löndum og verður fróðlegt
að íylgjast með niðurstöðum þeirra
á næstu árum. í dag þekkjum við
ekki nákvæmlega orsakir sjúk-
Höfundur er læknir.
f Ég skal se
[5G
Eg skal segja þér hvernig 35 kíló hverfa 1,2 og 3!
-1-
3
Brúðhjón
AIIuí borðbdnaður - Glæsileg (jjaídvard Brdðhjðnalistar
VERSLUNIN
Laugnvegi 52, s. 562 4244.
Júlíus
Valsson