Morgunblaðið - 15.10.1999, Síða 64
MORGUNBLAÐIÐ
f 64 FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1999
KIRKJUSTARF
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Blönduóskirkja.
Safnaðarstarf
Kristileg hljóm-
sveit í
Húnavatns-
prófastsdæmi
HELGINA 16. og 17. október mun
kristileg popphljómsveit heimsækja
þéttbýlisstaði Húnavatnsprófasts-
dæmis. Hljómsveitin leikur tónlist
undir almennan söng auk þess sem
hún leikur frumsamið efni. Hljóm-
sveitin hefur spilað í mörgum kirkj-
um á höfuðborgarsvæðinu og þá
ýmist verið með tónleika eða spilað
undir á samkomum. Nú um helgina
verður viss blanda af samkomu og
tónleikum. A laugardag verður
hljómsveitin kl. 18 í Blönduóskirkju
og kl. 21 í Hólaneskirkju á Skaga-
strönd. A sunnudag verður hljóm-
sveitin kl. 14 í Hólmavíkurkirkju og
kl. 21 í Hvammstangakirkju. Þessi
1 heimsókn er liður í fjölbreyttu
kirkjustarfi safnaðanna í prófasts-
dæminu og þess vænst að sem flest-
ir til sjávar og sveita sjái sér fært að
sækja þessar samkomur.
Söfnuðir Húnavatns-
prófastsdæmis.
Sveitasöngkona
í Krossinum
SVEITASÖNGKONAN Oddbjörg
Poulsen verður í heimsókn í Kross-
inum um helgina. Hún mun syngja
á samkomu kl. 16.30 á sunnudaginn.
Langholtskirkja. Opið hús fyrir alla
aldurshópa kl. 11-13. Létt hreyfing,
slökun og kristin íhugun. Kyrrðar-
og bænastund í kirkjunni kl. 12.
Orgelleikur, sálmasöngur. Fyrir-
bænaefnum má koma til sóknar-
presta og djákna. Kærleiksmáltíð,
súpa, salat og brauð eftir helgi-
stundina.
Laugameskirkja. Morgunbænir kl.
6.45. Mömmumorgunn kl. 10-12.
Kaffispjall fyrir mæður, góð upplif-
un fyrir böm.
Hafnaríjarðarkirkja. Opið hús í
Strandbergi laugardagsmorgna.
Trú og mannlíf, biblíulestur og
kyrrðarstund.
Ffladelfía. Unglingasamkoma kl.
20.30. Mikill og hress söngur. Allir
hjartanlega velkomnir.
Landakirkja, Vestmannaeyjum. Kl.
10 foreldramorgunn ungra barna.
Kaffi, bæn og spjall. Kl. 16 upphafs-
fundur vetrarstarfsins með núver-
andi og nýjum kórfélögum í Litlum
lærisveinum Landakirkju.
Hofskirkja. Kirkjuskóli kl. 13.30.
Sjöunda dags aðventistar á íslandi:
Aðventkirkjan, Ingólfsstræti: Bibl-
íufræðsla kl. 10.15. Guðsþjónusta kl.
11.15. Ræðumaður Björgvin
Snorrason.
Safnaðarheimili aðventista, Blika-
braut 2, Keflavík: Guðsþjónusta kl.
10.15. Biblíufræðsla eftir guðsþjón-
ustu. Ræðumaður Elías Theodórs-
son.
Safnaðarheimili aðventista, Gagn-
heiði 40, Selfossi: Biblíufræðsla kl.
10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumað-
ur Erie Guðmundsson.
Aðventkirkjan, Brekastfg 17, Vest-
mannaeyjum: Biblíufræðsla kl. 10.
Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður
Jón Hjörleifur Jónsson.
Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafn-
arfirði: Biblíufræðsla kl. 11. Leið-
beinandi Ólafur Kristinsson.
Aðalfundur Félags tónlistarskólakennara
Vilja fá áheyrnarfull-
trúa í skólanefndum
AÐALFUNDUR Félags tónlistar-
skólakennara var haldinn nýlega í
Kennarahúsinu.
Formaður, Sigríður Sveinsdóttir,
flutti skýrslu stjórnar. Þar kom m.a.
fram að á liðnu starfsári stóð stjóm-
. in fyrir málfundum í Reykjavík og á
Akureyri, haldið var námskeið fyrir
malmblásturskennara í samstarfi við
SÍL, FÍH og Samband ísl. skóla-
lúðrasveita. Þá var í fimmta skipti
haldið námskeið í Skálholti. Á fund-
inn komu Eiríkur Jónsson, formaður
Kennarasambandsins, og Guðrún
Ebba Ólafsdóttir, varaformaður
þess, og ávarpaði Eiríkur fundar-
gesti. Sameiningarmál kennarafélag-
anna voru kynnt og drög að nýjum
lögum félagsins lögð fyrir fundinn og
samþykkt.
Tvær ályktanir voru samþykktar á
■*. fundinum:
,Aðalfundur Félags tónlistar-
skólakennara beinir þeim tilmælum
til menntamálaráðherra og rekstrar-
aðila tónlistarskóla á íslandi að hrað-
að verði uppbyggingu nýs prófdæm-
ingarkerfis í tónlistarskólum lands-
ins. Nauðsynlegt er að slíkt kerfi
taki gildi um leið og ný aðalnámskrá
* tónlistarskóla."
„Aðalfundur Félags tónlistarskóla-
kennara telur mikiivægt að efla tengsl
tónlistarskólakennara og skólanefnda
í tónlistarskólum. Þess vegna beinir
fundurinn því til rekstraraðila tónlist-
arskóla að tónlistarskólakennarar fái
áheymarfulltrúa í skólanefndum tón-
listarskóla þar sem fulltrúar kennara
sitja ekki nú þegar.“
Nýr formaður kjörinn
Sigríður Sveinsdóttir gaf ekki kost
á sér til formanns, en hún hefur
gegnt því starfi frá 1988. Voru henni
þökkuð vel unnin störf í þágu félags-
ins en hún mun starfa áfram sem
fulltrúi þess á skrifstofu félagsins.
Nýr formaður var kosin Sigrún
Grendal Jóhannesdóttir, Tónlistar-
skóla Kópavogs.
Aðrir sem voru kjörnir í stjórn
eru: Kristín Stefánsdóttir Tónlistar-
skóla Kópavogs, Sigríður Jónsdóttir
Tónlistarskólanum á Akranesi,
Hannes Þ. Guðrúnarson Tónlistar-
skóla Akureyrar og Eiríkur G.
Stephensen Tónlistarskóla Eyja-
fjarðar. í varastjórn sitja: Jón Hrólf-
ur Sigurjónsson Tónmenntaskóla
Reykjavíkur, Valgerður Ákadóttir
Tónlistarskóla Seltjarnarness og
Brynhildur Ásgeirsdóttir Tónlistar-
skóla Sigursveins D. Kristinssonar.
f DAG
VGLMKMDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Gott framtak
hjá Dominos
ÉG las nýiega litla frétt í
Morgunblaðinu þar sem
sagt var frá að 12 ára
drengur hefði verið að
gera at og pantað pizzur
hjá Dominos og þeir hjá
Dominos hefðu látið hann
vinna fyrir kostnaðinum
sem af þessu hlaust.
Finnst mér þetta gott
framtak hjá þeim hjá
Dominos því ég veit um
krakka sem gætu tekið
upp á svona og það eina
sem þau læra af, er ef tek-
ið er svona á þessu. Veit ég
um svipuð tilvik þar sem
krakkar hafa lært sína lex-
íu ef gripið hefur verið til
svipaðra ráða.
Uppeldissinnuð kona.
Gott hjá Dominos
MIG langar til að hrópa
húrra fyrir forsvarsmönn-
um Dominos. Finnst mér
að foreldrar nú til dags láti
börnin ekki bera næga
ábyrgð á því sem þau eru
að gera og finnst mér það
alveg meiriháttar að börn
séu látin vinna upp í þann
kostnað sem þau valda.
Drengurinn átti bara að
láta móður sína vita hvar
hann var og hvers vegna.
Móðir.
Stramniamyndir
RÚNA hringdi í Velvak-
anda og iangaði að athuga
hvort einhver gæti gefið
henni ómálaðar eða hálf-
kláraðar strammamyndir.
Rúna er í síma 452 2767.
Léleg þjónusta
UNG kona hafði samband
við Velvakanda og vildi
koma á framfæri kvörtun
vegna samskipta sem hún
átti við verslunina Týnda
hlekkinn. Þessi unga kona
hafði keypt peysu í verslun-
inni og vildi fá henni skipt.
Hún hringdi í verslunina og
þar svaraði stúlka og var
afskaplega dónaleg. Sagði
að hún gæti ekkert fyrir
hana gert og skellti síðan á.
Tapað/fundið
Myndavél týndist
í Dublin
SILFRUÐ Olympus
myndavél í svörtu hulstri
týndist í anddyri Hótel
Riplyeicourt í Dublin við
brottför til Islands mánu-
daginn 11. október. Ef ein-
hver íslendingur hefur
tekið vélina í misgripum er
sá hinn sami vinsamlega
beðinn að hafa samband
Kristínu í síma 557 4169.
Lamex-penni týndist
í gestaboði
SVARTUR Lamex kúlu-
penni merktur með stöfum
og símanúmeri eiganda
hefur líklega verið tekinn í
misgripum í gestaboði hér
í borg. Penninn er vinar-
gjöf er hans sárt saknað.
Sá sem tekið hefur penn-
ann í misgripum er vin-
samlega beðinn að hringja
í símanúmerið á pennan-
um.
GSM-sími týndist
GSM-sími týndist aðfara-
nótt laugardags, mjög
sennilega í leigubíl. Síminn
er af gerðinni Ericsson og
er grár að lit. Skilvís finn-
andi er vinsamlegast beð-
inn að hafa samband í síma
897 0594 og/eða 551 1208.
Fundarlaun í boði.
Dýrahald
Hver skilaði svörtum
skógarketti?
SÁ/sú sem kom Þórði
mínum, sem er svartur
skógarköttur, til skila
uppá Dýraspítala hafi
bestu þakkir fyrir. Þórður
hafði verið týndur í fjórar
vikur. Hann varð fyrir
barðinu á veiðihundi í
hverfinu og tók svo ræki-
lega til fótanna að hann
gjörsamlega tapaði áttum.
En gaman væri að vita
eitthvað um ferðir hans
eða hvar hann fannst. Vin-
samlega hringið í Helgu í
síma 569-1221.
Fress vantar heimili
3JA ára gamlan, bröndótt-
an fress, vantar heimili
strax vegna flutnings.
Hann er gæfur og góður.
Upplýsingar hjá Sigrúnu í
síma 699 2778.
Hvolpa vantar heimili
FALLEGIR skosk-ís-
lenskir hvolpar eru að leita
að góðum eiganda. Upp-
lýsingar í síma 565 0353.
SKAK
llmsjón Margeir
Pétnrsson
Eftir fyrri hluta deilda-
keppninnar hefur Taflféiag
Reykjavíkur tveggja vinn-
inga forskot á Islandsmeist-
arana í Helli. Seinni hlutinn
fer fram í vor.
STAÐAN kom upp í
deildakeppni Skák-
sambands Islands
um síðustu helgi.
Helgi Áss Grétars-
son, stórmeistari,
hafði hvítt og átti
leik gegn Snorra
Bergssyni. 13.
Hxh7! - Bxf3 (Eftir
13. - Kxh7 14.
Rg5+ fellur svarti
biskupinn á g4) 14.
Dxf3 - Kxh7 15.
Dh3+ - Bh6 16. f5 -
gxf5 17. Bxh6 -
Rg7 18. 0-0-0 - Dd7
19. Hhl og svartur
gafst upp. Hvítur leikur og vinnur.
Með morgunkaffinu
TM Reg. U.S. Pat. Otl, — «N rights reserved
(e) 1999 Los Angoles Tmes Syndicate
að leyfa henni að
bakka í stæði.
Ast er...
Ég er konan þin, bjáni.
Var ég ekki búin að
segja þér að muna eftir
gleraugunum.
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI hefur oft bölvað hátt
og í hljóði yfir háttalagi ungra
ökumanna. Af einhverjum ástæðum
virðist ökukennurunum ekki takast
að fá þessa nemendur sína til að
nota stefnuljós þegar skipt er um
akrein, það er greinilega talið miklu
„kúlara“ að sveiflast á milli akreina
eins og svigskíðakappi á Ólympíu-
leikum. Það er að segja, mjög
taugaveiklaður og illa þjálfaður
skíðakappi.
Þar við bætist að viðbrögðin eru
hröð, eins og vera ber hjá ungu
fólki, sveigt er eldsnöggt fram fyrir
aðra bíla af fullkomnu tillitsleysi.
Þessir Pallar eru allir einir í heimin-
um, aðrir vegfarendur koma þeim
greinilega ekkert við. Taugar bíl-
stjóra í grennd við ungu ökuþórana
eru oft í tætlum þegar hættan er
loks horfin út í fjarskann, gjarnan
hulin bláu reykskýi eftir að hafa
stigið bensínið í botn og spænt upp
malbikið.
Svona er þankagangurinn stund-
um hjá Víkverjanum sem hér skrif-
ar. En ung vinkona hans hefur aðra
og betri reynslu af ungum öku-
mönnum og varar hann við því að
fordæma allan skóginn þótt hann
finni eitt fölnað laufblað.
Þrisvar sinnum hefur hún orðið
fyrir því að þeir hafa sýnt að enn
eru til sjentilmenn og riddarar á Is-
landi og það ungir að árum.
Hún festi bílinn sinn í snjó síðast-
liðinn vetur, klukkan var sex að
morgni og þeir fáu sem voru á ferli
sinntu henni í engu. Sama var hvað
hún reyndi, ekkert gekk, bfllinn
haggaðist ekki. Og hríðin buldi á
farartækinu, varla sá út úr augum.
Þá bar að ungan mann í kraft-
galla með lambhúshettu og gekk
hann hart fram við að ýta.
Herslumuninn vantaði, enda bíllinn
á bólakafi í fönninni. En að lokum
tókst unga manninum að stöðva að-
vífandi jeppa og tókst þá að draga
bílinn úr skaflinum. Miskunnsami
Samverjinn í gallanum varði þannig
drjúgum hálftíma af vinnutíma sín-
um í að hjálpa bláókunnugri kon-
unni.
I annað skipti var keyrt á mann-
lausan bfl hennar í stæði. Skilinn
var eftir miði þar sem „tjónvaldur-
inn“ baðst afsökunar og gaf upp
nafn og símanúmer ef í ljós kæmi að
einhverjar skemmdir hefðu þrátt
fyrr allt orðið á bflnum. Er hægt að
vera öllu heiðarlegri?
Einn góðan veðurdag ók hún svo
niður Bankastrætið og þá sveigði
fram fyrir hana ungur ökumaður,
þvingaði hana til að stoppa. Ekki
vegna þess að hann ætlaði að ræna
hana eða annað verra, heldur ein-
ungis til að benda henni á að eitt
dekkið á bflnum hennar væri
sprungið.
VÍKVERJA brá í brún þegar
hann sá frásögn af því hvemig
portúgalska verslunar- og ferða-
mannaráðið stuðlaði að því að rit-
höfundurinn José Saramago hlaut
Nóbelsverðlaunin haustið 1998. Ár-
ið á undan kostaði ráðið mikla kynn-
ingarherferð um skáldið og vetur-
inn 1997-1998 sá sænskt almanna-
tengslafyrirtæki síðan um að koma
honum á framfæri þar í landi aka-
demíunnar sem velur verðlaunahaf-
ana. Einnig á kostnað Portúgal-
anna.
Víkverji er farinn að sætta sig
við að hávaði og skvaldur nútíma-
samfélags sé meiri en svo að því
megi treysta að góð list fái tæki-
færi á borð við það sem alltaf
rennur svo ljúflega niður
kverkarnar hjá okkur, sjálf af-
þreyingin. Og kannski hefur
svona markaðssetningu lengi ver-
ið beitt til að næla sér í Nóbels-
hafa. En samt er það með
nokkrum trega að Víkverji veltir
fyrir sér framhaldinu.
Það gætu orðið auglýsingar
þar sem Lagerlöv, Shaw eða
Hemingway okkar tíma er hamp-
að eins og morgunkorni með
kakóbragði eða nýju, æsispenn-
andi ropvatni í endurvinnanlegum
og umhverfisvænum umbúðum. Á
tilboðsverði.