Morgunblaðið - 24.10.1999, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 24.10.1999, Qupperneq 6
6 SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Frambjóðendum í forkosningimum í Bandarrkjunum fækkar um þriðjung Urðu undir í baráttu um peninga - ekki kosningum Elizabeth Dole ákvað í vikunni að draga sig úr slag repúblikana vegna forsetakosninga á næsta ári. Sagði hún ástæðuna vera fjárskort. Fjórir frambjóðendur í forkosningunum vegna forsetakosninganna í Bandaríkjunum á næsta ári hafa nú dregið sig í hlé vegna þess að þeim tókst ekki að tryggja sér nægileg- an stuðning meðal þeirra sem leggja fé í kosningasjóðina. ELIZABETH Dole varð í fyrradag fimmti repúbMkaninn sem hætt hefur við framboð í for- kosningum flokksins vegna forseta- kosninganna á næsta ári. Fjórir þessara stjórntnálamanna sögðu ástæðuna þá að þeir hefðu ekki get- að safnað nægu fé til að standa straum af þeim gífurlega kostnaði sem fylgir kosningabaráttunni. „I hinum sönnu Bandaríkjum er málefnabaráttan mikilvægari en bai-áttan um fé í kosningasjóði," sagði Dole þegar hún tilkynnti ákvörðun sína. En í bandarískum stjómmálum „snýst þetta um pen- inga þegar öllu er á botninn hvolft," bætti hún við. Fjáðasti frambjóðandinn sigrar „Það er ekki hægt að gera of mik- ið úr mikilvægi peninganna," sagði Larry Makinson, talsmaður óháðrar hreyfingar sem fylgist með fjár- framlögum í kosningasjóði banda- rískra stjómmálamanna. Peningamir gera frambjóðend- unum kleift að koma skilaboðum sínum á framfæri í sjónvarps- og út- varpsauglýsingum og með pósti. Allur þessi áróður hjálpar þeim síð- an að afla enn meiri fjár. Sagan sýnir að fullyrðing Dole er engin fjarstæða. í öllum forkosning- um repúblikana frá 1976 hefur nið- urstaðan orðið sú að sá sem aflaði mestra peninga árið fyrir kosning- arnar fór með sigur af hólmi og varð forsetaefni flokksins. Bush setur ijáröflunarmet Samkvæmt þessu má gera ráð fyrir því að George W. Bush, rílds- stjóri Texas, verði forsetaefni repúbUkana í kosningunum á næsta ári. I lok síðasta mánaðar hafði hann sett nýtt fjáröflunarmet og safnað 57 milljónum dala, andvirði fjögurra milljarða króna. Þetta er næstum tíu sinnum meira fé en nokkur hinna frambjóðendanna sex hefur safnað. Miklu minni munur er hins vegar milli helstu frambjóðendanna í for- kosningum demókrata. A1 Gore varaforseti og Bill Bradley, fyrrver- andi öldungadeildarþingmaður frá New Jersey, heyja mjög tvísýna baráttu um hylli kjósenda og pen- ingamanna. Bradley hefur sótt í sig veðrið í skoðanakönnunum og fjár- öflun á síðustu mánuðum og hefur fengið ívið meira fé en Gore, eða 10,7 milljónir dala, andvirði 750 milljóna króna. Munurinn er aðeins um 30 milljónir króna. Auðkýfingurinn Steve Forbes, sem fjármagnar kosningabaráttu sínu að mestu leyti sjálfur, er sá eini sem hefur haft fjárhagslegt bolmagn til að keppa við Bush um athygli kjósenda. I lok síðasta mánaðar hafði hvor þeirra eytt um 19 milljónum dala, rúmum 1,3 milljörðum króna, í kosningabar- áttuna. Dole hafði þá aðeins eytt tæpum fjórum milljónum dala; andvirði 280 milljóna króna. I kosningasjóði hennar voru þá að- eins tæpar 40 milljónir króna á sama tíma og Bush og Forbes bjuggu sig undir að hefja nýjar auglýsingaherferðir fyrir hundruð milljóna króna. Joe Lockhart, fjölmiðlafulltrúi Bandaríkjaforseta, sagði að ákvörð- un Doles væri til marks um að for- kosningar repúblikana snerust að- eins um peninga, ekki hugsjónir eða málefni. Makinson er ekki á sama máli og segir að þótt fjárhagslegi stuðning- urinn skipti miklu máli í kosninga- baráttunni sé ekki rétt að hún snú- ist eingöngu um peninga. Fram- bjóðendumh' verði að vera sigur- stranglegir til að geta aflað fjár í kosningasjóði sína. Því meiri sem sigurlíkur þeirra séu þeim mun meiri peninga fái þeir. „I byrjun taldi mikilvægur hópur manna að George W. Bush væri lík- legastur til að komast í Hvíta hús- ið,“ segir Makinson. „Þannig að þessi hópur, hundrað eða nokkur þúsund manna, tryggði honum for- ystu í baráttunni með því að gefa honum miklar fjárhæðir.“ Auk Doles hafa Dan Quayle, fyrr- verandi varaforseti, Lamar Alex- ander, fyrrverandi ríkisstjóri Tenn- essee og John Kasich, fulltrúadeild- arþingmaður frá Ohio, hætt við þátttöku í forkosningum repúblik- ana vegna fjárskorts. Robert Smith, öldungadeildai'þingmaður frá New Hampshire, sóttist einnig eftir því að verða forsetaefni repúblikana en hætti við það í sumar og sagði sig úr flokknum. Málefnin urðu Dole einnig að falli Diana Jean Schemo, blaðamaður The New York Times, telur að fjár- skortur hafi ekki verið það eina sem varð Elizabeth Dole að falli. Henni hafi ekki verið hafnað vegna þess að hún er kona heldur vegna þess að hún hafi ekki markað sér skýra málefnalega sérstöðu í kosninga- baráttunni. Margar konur gerðu sér vonir um að framboð Doles yrði baráttunni fyrir auknu vægi kvenna í banda- rískum stjórnmálum til framdráttar og urðu því íýrir vonbrigðum þegar hún ákvað að draga sig í hlé. Schemo segir að Dole hafi ekki reynt að höfða sérstaklega til kvenna og forðast að tileinka sér hefðbundin „kvennamálefni" af ótta við að styggja karlmenn sem kynnu annars að kjósa hana. Hún hafi þess í stað lagt áherslu á sömu málefni og keppinautarnir, svo sem mennta- og varnarmál og baráttuna gegn eiturlyfjabölinu. Þá hafi andstaða hennar við fóstureyðingar mælst illa fyrir meðal kvenna sem taka frjálslyndari afstöðu í því deilumáli. Skoðanakannanir bentu ekki til þess að verulegur munur væri á fylgi Doles eftir kynjum. Bill Bradley velgir Gore undir uggum Heilbrigðismál efst á stefnuskránni BILL Bradley, fyrrverandi öldungadeild- arþingmaður frá New Jersey, er nú farinn að ógna A1 Gore, varaforseta Bandaríkj- anna, æ meir í baráttunni um útnefningu sem forsetaframbjóðandi Demókrata- flokksins. Þrátt fyrir að í nýlegri skoðana- könnun hafi Gore enn mælst með 60% fylgi á móti 30% fylgi Bradleys þykir það nokkuð góð vísbending um að Bradley sé að saxa á forskotið að svo virðist sem hann hafi fram til þessa safnað meira fé í kosn- ingasjóði sína en varaforsetinn. Bradley fæddist árið 1943 í Crystal City í Missouri og lagði stund á nám í ekki ómerkari háskólum en Princeton og Ox- ford. Hann gat sér frægð á sjöunda og átt- unda áratugnum sem leikmaður með körfuknattleiksliðinu New York Knicks og gat notfært, sér vinsældir sínar til hljóta kjör sem öldungadeildarþingmaður árið 1979. Bradley lét af þingmennsku árið 1997, en þá hafði hann setið þrjú kjörtíma- bil í öldungadeildinni. Síðan hefur körfuknattleikshetjan fyrrverandi varið tíma sínum við háskólakennslu, ræðuhöld og bókaskrif. Frá því Bradley lýsti formlega yfir áhuga á framboði í desember á síðasta ári og fram í september hafði Gore iðulega 40-50% forskot á hann í skoðanakönnun- um. Nú er hins vegar ljóst að Bradley er að sækja á varaforsetann, einkum í norð- austurríkjunum, þar sem nýleg skoðana- könnun CNN og Gallup benti til að munur- inn væri einungis 12 prósentustig. Vill tryggja börnumviðunandi framfærslu Bradley hefur nú hafið fundaherferð til að kynna stefnu sína og áform. Heilbrigð- ismál eru honum hugleikin og hefur hann lagt fram ítarlega áætlun um umbætur í heilbrigðisgeiranum, sem miða að því að fækka þeim Bandaríkjamönnum sem ekki hafa sjúkratryggingu. Menn á hægri vængnum í Demókratafiokknum liafa gagnrýnt áætlunina á þeirri forsendu að hún myndi hafa í för með sér of miklar Bill Bradley skattahækkanir, rétt eins og áform Bills Clintons, sem hann reyndi að hrinda í framkvæmd á fyrra kjörtímabili sínu, en ekki hlutu náð fyrir augum þingsins. Eitt helsta kosningamál Bradleys er vel- ferð barna. Hann hvatti til þess í ræðu á föstudag að öllum börnum yrði tryggð við- unandi framfærsla og að „fátækt barna“ yrði útrýmt eftir áratug. Lagði hann fram lista af úrræðum sem beita mætti til að ná þessu marki. „Sú staðreynd að 13,5 millj- ónir barna lifa undir fátæktarmörkum er einfaldlcga óviðunandi,“ sagði Bradley í ræðu sinni og bætti við að það skyti sér- staklega skökku við í eins auðugu landi og Bandaríkjunum. Nógu gott leiðtogaefni? Við upphaf kosningabaráttu sinnar hét Bradley því að hann myndi „takast á við erfiðar áskoranir“ og verða „forseti sem er reiðubúinn að taka áhættu og skera úr um mikilvæg mál“. Ýmsir hafa þó orðið til að draga í efa að Bradley sé það leiðtogaefni sem hann vill vera láta. Bent er á að þótt hann hafi beitt sér af ákveðni fyrir nokkrum málum í öld- ungadeildinni hafi hann yfirleitt ekki látið ýkja mikið fyrir sér fara. Haft hefur verið á orði að hann hafi verið góður baráttu- maður fyrir málum sem vöktu áhuga hans, en hann hafi Iítið gefíð gaum að öðrum málum. Ýmsir telja þetta ástæðu til að draga í efa að hann hafi það sem þarf til að verða leiðtogi áhrifamestu þjóðar heims. Aðrir hafa vísað þessari lýsingu á Bra- dley á bug og segja framgöngu hans fyrir atkvæðagreiðslur í þinginu ekki gefa full- nægjandi mynd af því hvort hann sé góður leiðtogi eður ei. Þá liafa margir lofað hann fyrir yfirvegaðan málflutning og segja það augljóst að hann myndi sér skoðanir á fræðilegan hátt og láti ekki sljórnast af skoðana- og vinsældakönnunum. Meðal þeirra mála sem Bradley beitti sér fyrir á þingi voru niðurfelling skulda þró- unarríkja, trygging fyrir greiðslu barns- meðlaga og bætt samskipti kynþátta. Hann hefur einnig látið til sín taka í umhverfis- málum og fyrir vikið hlotið stuðning um- hverfisverndarsamtaka.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.