Morgunblaðið - 24.10.1999, Qupperneq 58
58 SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
M
%
• >
*
Endumæra
fyrir sálina
Tilfinningaátök á
Smíðaverkstæðinu
Samband þeirra var þrungið tilfinningum
og tortímingu í Fávitanum, þau voru
mæðgin í eldfímri
stöðu í Hamlet og
____________________núna hrindir hin
brennandi ást Fedru á stjúpsyni sínum
Hyppolytosi af stað harmrænni atburðarás.
Dóra Ósk Halldórsdóttir talaði við Tinnu
Gunnlaugsdóttur og Hilmi Snæ Guðnason
sem hafa átt í þessum átakamiklu samskipt-
um á leiksviðinu.
Morgunblaðið/Ásdís
s
IVERKUM stórskáldanna hafa
þau mæst á sviðinu, fyrst í leik-
riti byggðu á skáldsögu Fjodors
Dostojevskís, Fávitanum, síðan í
einu mest leikna verki leikbók-
menntanna, Hamlet eftir William
Shakespeare, og nú mætast þau á
Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins í 17.
aldar verki franska höfundarins Je-
an Racine þar sem ástir grísku
drottningarinnar Fedru á stjúpsyni
sínum Hyppolytosi skapa persónun-
um örlög sem ekki verða umflúin.
- Hvernig er það að leika stöðugt
þessi átakahlutverk á móti hvort
öðru?
Hilmir: „Eg hef nú ekkert sérstak-
lega hugsað út í það fyrr, en jú,
vissulega er það svolítið sérstakt,"
segir Hilmir og brosir út í annað.
„Eg veit nú ekki af hverju við höfum
valist svona oft saman í þessi tilfínn-
ingaþrungnu hlutverk, en þannig
hefur það bara verið.“
Tinna: „Það er gaman að takast á við
erfið hlutverk og spennandi að glíma
við flókin og margslungin leikrit,
sérstaklega þegar leikhópurinn nær
að finna samhljóm í því sem fram fer
á sviðinu. - Þá gerist galdurinn."
- Ertu farin að h'ta á Tinnu sem
þína listrasnu móður?
Hilmir: „Neei,“ segir Hilmir og
hlær. „Ekki sem móður, bara fyrst
og fremst sem góða leikkonu sem
gaman er að vinna með og sem ég á
vonandi eftir að vinna oft með í
framtíðinni."
- Tekur ekki stundum á að túlka
miklar tilfínningar á sviðinu?
Hilmir: „Maður reynir sem mest að
vera skynsemisvera utan sviðsins, en
í undirbúningi fyrir hlutverk sem
krefjast mikilla tilfinningaátaka fer
ekki hjá því að hversdagurinn beri
dálítinn keim af því. Maður veit allan
daginn að maður er að fara að leika
um kvöldið og er ekki í rónni.“
inna: „Reyndar finnst mér
átökin fyrst og fremst vera á
æfingatímabilinu. Þá reynir á
að ná fram sönnum tilfinningum og
einlægni í túlkunina. Möguleikamir
eru svo margir og engin ein leið sú
rétta, þar kemur alltaf til persóna
leikarans sjálfs og sá hugmyndaheim-
ur og tilfinningadýpt sem hann ræður
yfir.“
Hilmir: „Þá þarf maður stundum
sem leikari að kasta frá sér allri
tækni til að ná fram þeirri tdlfmninga-
dýpt sem hlutverkið krefst. Síðan
þarf maður að vinna úr því, móta per-
sónuna og vinna með upplifunina.“
- Aga tilfínningarnar?
Tinna: „Stundum er erfitt að ganga
heim af æfingu og inn í hversdags-
leikann, með hjarta og sál í „upp-
námsóró", eins og Fedra orðar hug-
arástand sitt sjálf. En það er nauð-
synlegt að geta
losað um allar
hömlur á æfinga-
tímabilinu og tekið
áhættu, þá gerist
eitthvað spenn-
andi.“
- Hvað skiptir
mestu máli í undir-
búningi fyrir svona
tilfínningaátök á sviðinu?
Tinna: „Ég held að það sé lykilatriði
að geta treyst mótleikurum sínum og
leikstjóranum. Það er besta tilfinn-
ingin í leikhúsi að vera með mótleik-
ara sem þú getur treyst - einhvern
sem tekur boltann og kastar honum
hærra. Það finn ég mjög sterkt í
samleik með Hilmi að ég get treyst
honum.“
ilmir: „Ég get sagt það sama
um Tinnu og þar kemur
kannski það besta við að leika
oft á móti sama leikara. Traustið vex
og maður þorir að kanna möguleika
túlkunarinnar til fullnustu."
- Nú er ástin sýnd sem eyðileggj-
andi afl í Fedru. Er ástin þetta
brennandi bál sem rænir menn ráði
ogrænu?
Hilmir: „Það eru til svo óteljandi
margar hliðar á ástinni og það er
ástæðan fyrir því hve mennirnir
þreytast seint á að yrkja um hana,
leikrit, skáldsögur, ljóð. Hún getur
verið á svo marga vegu. Hún getur
verið eins og niðurrifsafl í tilverunni
eða uppbyggjandi, falleg og gefandi.
Astin á sér ýmsar hliðar, og ekki all-
ar góðar,“ segir Hilmir og hlær við.
- Er sá ástfangni fangi „hinnar illu
Venusar"?
Tinna: „I heimi verksins ei'u persón-
urnar ekki alveg sjálfráðar. Órlögin
skapa manninum farveg og álög guð-
anna stjórna lífinu. Venus ástargyðja
leggur bölvun ástarinnar á Fedru,
eins og fleiri konur í fjölskyldunni
hafa kynnst á undan henni. Vegna
vélráða Venusar leggur móðir Fedru
ofurást á naut og
fæðir af sér
skrímslið Minótár
sem er lokað inni í
völundarhúsi á
Krít. Síðan er það
Þeseifur sem kem-
ur og drepur þetta
skrímsli og sú sem
hjálpar honum er
systir Fedru, sem elskar Þeseif. En
hann svíkur hana og hún grætur úr
sér augun ein og yfirgefin á á kletta-
eyju. Þegar svo Fedra, þá orðin kona
Þeseifs, finnur til þessarar óstjórn-
legu ástar á Hyppolytosi, syni hans,
er það enn eitt merki þess að bölvun
Venusar hvílir á ættinni.
S
g er sammála Hilmi að ástin
getur hvort heldur sem er
verið skemmandi eða mann-
bætandi afl og þess vegna er hún
líka svona heillandi yrkisefni og þá
skiptir tíminn ekki máli. Ástin er
söm við sig á hvaða tíma sem er
vegna þess að maðurinn er samur
við sig á öllum tímum. Það sem
Fedra kallar guðagrimmd myndum
við sennilega kalla þráhyggju í dag.
Reyndar á tíma Forn-Grikkja, sem
er sá tími sem Racine byggir leikrit
sitt á, var litið á hádramatísk verk
eins og Fedru sem dæmisögur sem
nýttust hinum almenna borgara sem
sáluhreinsun, eða kaþarsis.
Dæmisögur sem sýndu hvemig farið
gæti ef tilfinningarnar fengju að
ráða yfir hugsuninni."
- Siðmenningin er nú iðulega sögð
byggð á bælingunni.
Hilmir: „Jú, það er eflaust margt til
í því. Það gæti orðið skrautlegt
ástand ef allir hrykkju og stykkju
eftir öllu því sem tilfinningarnar
blésu þeim í brjóst, án þess að hugs-
unin kæmi þar nokkuð nærri. Það
gæti vissulega orðið svolítið ei'fítt."
- Verður skynsemin að stjórna til-
finningunum?
ilmir: „Því verður náttúm-
lega hver og einn að svara
fyrir sig. Það er sú spurning
sem allir verða að spyrja sig þegar
þeir standa frammi fyrir ástinni.
Ástin er hættuleg. Við eram öll að
leita að einhverju jafnvægi í okkar
lífi, en þegar ástin heltekur þig, eins
og í tilfelli Fedru, veistu aldrei
hvernig það endar; hvort þú tortím-
ist eða hvort draumar þínir rætist."
Tinna: „Það sem gerir það að verk-
um að listir höfða til okkar og næra
andann er að þar fáum við að upplifa
víddir sem eru utan þess hversdags-
lífs sem við hræramst í dags dag-
lega. Það er nærandi fyrir sálina
vegna þess að við erum öll tilfinn-
ingaverur. Við erum samt svo skyn-
söm að við vitum að við getum ekki
leyft okkur að lifa eingöngu lífi á for-
sendum tilfinninganna. En við þrá-
um öll þessar víddir. Þegar vel tekst
til getur góð leikhúsupplifun fengið
okkur sem áhorfendur til að sam-
sama okkur með þeim persónum
sem við fylgjumst með á sviðinu.
Við göngum með þeim spölkorn og
lifum lífi þeirra nokkur andartök.
Skynjun okkar og hugmyndaheimur
auðgast af þeirri reynslu og ég tel
að leikrit eins og Éedra, þar sem
virkilega er tekist á við stórar til-
finningar, sé endurnærandi fyrir
sálina, fyrir tilfinningarnar og fyrir
hugann."
Síðasta
hraðlestrarnámskeiðið...!!
á öldinni hefst 26. október. Ef þú vilt bæta ár-
angur í námi og starfi skaltu skrá þig strax.
Margfaldaðu afköstin!
H RAÐLESTR ARS KÓLl N N
Sími: 565-9500 Fax: 565-9501
www.ismennt.is/vefir/hradlestrarskolinn
veit nema
að þú heyrir eitthvað nýtt
Við berum enga ábyrgð
á sambandi þínu við
berum við 2 ára ábyrgð
á öllum okkar tækjum.
Meridian 561 stafreent hljóðstýrikerfi
Merdian 506 gcislaspilari
KIPHOLTI 25 • l 05 REYKJAVÍK • SÍMI 5II 6333 • INFO@ROGB.IS