Morgunblaðið - 18.11.1999, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1999 51
1
I
_____UMRÆÐAN__
Upplýsingar
vegna hæsta-
réttardóms
ÞAR sem undirrituð hefur ver-
ið víðs fjarri Islandsströndum frá
því snemma í nóvem-
ber hef ég ekki
fylgst með umræðu í
fjölmiðlum um
hæstaréttardóm
þann sem svo mjög
hefur verið til um-
ræðu á þessum tíma.
Eg hef hins vegar
fregnað að nafn mitt
hafi ítrekað verið
dregið inn í umræð-
una um þennan dóm
á þann máta að ég
tel að mér beri að
reyna að varpa skýru
ljósi á þátt minn í
þessu dómsmáli.
Leitað var til mín
sem sérfræðings um
mjög þröngan og afmarkaðan
þátt í þessu máli sem snerti hugs-
anlegar afleiðingar umferðar-
slyss. Það var leitað svara við
þremur spurningum sem beind-
ust að gögnum úr undirrétti, og
fara þær hér á eftir ásamt svör-
um mínum.
1. Er unnt að útiloka þann
möguleika, að X hafi hlotið vægan
heilaskaða í bílslysinu, varanleg-
an eða tímabundinn?
Svar: Undirrituð telur á grund-
Hæstaréttardómur
Mat á sekt eða
sakleysi sakbornings,
segir Þuríður J.
Jónsdóttir, var al-
gerlega fyrir utan
ramma rannsóknar
minnar og álitsgerðar.
velli þekkingar sinnar á vægum
heilaskaða af völdum slysa og
með hliðsjón af þeim upplýsing-
um sem hún hefur undir höndum,
þar með talinni skýrslu taugasálf-
ræðings og vitnaleiðslu, ekki unnt
að útiloka þann möguleika að X
hafi hlotið vægan heilaskaða í
bílslysinu.
2. Er unnt að útiloka þann
möguleika, að X hafi beðið slíkt
taugasálfræðilegt (eða einfaldlega
sálfræðilegt) tjón á síðari hluta
árs 1996 og fyrri hluta árs 1997,
að valdið hafi þeirri líkamlegu og
andlegu vanlíðan sem hún kvart-
aði um?
Svar: Það er að mati undirrit-
aðar ekki hægt að útiloka að X
hafi beðið slíkt taugasálfræðilegt
tjón að það hafi getað valdið
henni bæði líkamlegri og andlegri
vanlíðan.
3. Er hugsanlegt að slíkt tjón
hafi átt þátt í því að gægjufíkn
föður hennar hafi orið að því kyn-
ferðislega ofbeldi í huga hennar,
sem hún sakaði föður sinn um,
eða a.m.k. átt þátt í að „auðvelda"
henni að bera föður sinn röngum
sökum til stuðnings við móður
sína í deilum sem upp voru komn-
ar milli foreldranna?
Svar: Ég tel slíkt hugsanlegt.
Svörunum fylgdi svo ítarleg
greinargerð með tilvitnunum í
birtar fræðilegar rannsóknir og
lagði ég fram fylgiskjöl þar að
lútandi. Álit mitt var alfarið
bundið við taugasálfræðilegan
þátt málsins (sem var eflaust lítill
þáttur í þessum málflutningi). Ég
las eingöngu þau gögn sem gátu
talist varða umbeðnar spurning-
ar, því þannig taldi ég mig best
geta unnið verk mitt á hlutlausan,
fræðilegan og heiðarlegan hátt án
tilfinningalegra við-
bragða.
Mat á sekt eða sak-
leysi sakbornings var
algerlega fyrir utan
ramma rannsóknar
minnar og álitsgerð-
ar. Ég gerði mér hins
vegar grein fyrir al-
vöru þessa máls og
fannst eðli þess krefj-
ast eins heiðarlegra,
agaðra, fræðilegra og
vandaðra vinnu-
bragða og unnt væri
að beita. Það var af
þeirri ástæðu að ég
tók þetta mál að mér
eftir langa og vand-
lega íhugun. Persónu-
legir hagsmunir mínir voru vissu-
lega ekki hafðir að leiðarijósi.
Ritað í Vancouver í Kanada, 16.
nóvember 1999.
Höfundur er taugasálfræðingur.
Enginn
fellur
Gylfí
Pálsson
AÐ GEFNU tilefni og til að
upplýsa upprennandi stjórnmála-
menn Sjálfstæðisflokksins á Ak-
ureyri og ráðherra í Reykjavík
finnst mér rétt að minna á að
samkvæmt gildandi lögum um
grunnskóla er ekki hægt að falla
á grunnskólaprófi. Þeim sem
þreyta prófið eru gefnar einkunn-
ir í hverri námsgrein frá einum til
tíu. Nemandi sem fær einn í öll-
um greinum lýkur grunnskóla-
prófi með meðaleinkunnina einn.
Hins vegar er ákveðið með
Einkunnir
Samkvæmt gildandi
lögum um grunnskóla,
segir Gylfí Pálsson, er
ekki hægt að falla á
grunnskólaprófi.
reglugerð hvaða einkunnamörk-
um nemendur útskrifaðir úr
grunnskóla þurfi að ná til að fá
inngöngu í ákveðnar námsbrautir
framhaldsskóla.
Hitt er svo enn annað mál að
skólaeinkunnir eru ekki einhlítur
mælikvarði á manngildi.
Þuríður J.
Jónsdóttir
Ef þú hefðirfjárfest í Framsækna alþjóða
hlutabréfasjóðnum í Lúxemborg þegar hann var
stofnaður þann 10. desember á síðasta ári,
þá hefði fé þitt aukist um 50,4%.
Sjóðurinn nýtir reynslu helstu sérfræðinga
heims í sjóðstýringu með því að fjárfesta í
safni hlutabréfasjóða sem sýnt hafa góða
ávöxtun, Stefha sjóðsins er að fjárfesta í
félögum í vaxandi atvinnugreinum og félögum
á nýjum hlutabréfamörkuðum. Einnig er
fjárfest f félögum sem verið er að einkavæða
og eru að koma ný inn á markaðinn.
Ávöxtun tæknigeirans
ávöxtun á ársgrundvelli
3 ár 204,24% 44,90%
5 ár 543,60% 45,12%
10 ár 1058,20% 27,76%
Vinsamlegast athugið að gengi getur lækkað ekki síður en
hækkað og ávöxtunartölur liðins tíma endurspegla ekki
nauðsynlega framtíðarávöxtun.
*
BIINAÐARBANKINN
VERÐBRÉF
- byggir á trausti
Ilafnarstræti 5 • sími 525 6060 • fax 525 6099 • www.bi.is • verdbref@bi.is
«
4
Höfundur var einu sinni skólastjóri.