Morgunblaðið - 19.11.1999, Page 6
6 ’ ’FÖWPÚÖÁGÖMÖ; NÖVÉMSEft'l999
(i 1 'Mdft'öu'NWíiÁfeiÐ
FRÉTTIR
Svínabændur orðnir áskrifendur að norsku erfðaefni fyrir svín
Brún svín í
fyrsta skipti
flutt til landsins
Brúnt svín af Duroc-kyninu.
NORSK kynbótasvín verða flutt
með flugi til landsins í dag og fara í
Einanjgrunarstöð Svínaræktarfé-
lags Islands í Hrísey. Um er að
ræða 28 svín af þremur svínakynj-
um, meðal annars af brúna Duroc-
svínakyninu sem ekki hefur áður
verið flutt hingað til lands. Jafn-
framt hefur verið kynntur samn-
ingur um áskrift íslenskrar svína-
ræktar að erfðaefni fyrir svín frá
Noregi.
Svínaræktarfélag Islands hefur
unnið að kynbótum svína hér á
landi með innflutningi á lifandi
svínum frá árinu 1994. Fyrst voru
flutt inn svín af landkyni og síðan
aftur af landkyni og einnig York-
shire-svín. Kynbótastefna ís-
lenskra svínabænda gengur út á að
svínaræktin byggist upp á þremur
stofnum. Móðurlínan verði blend-
ingar af landkyni og Yorkshire en
föðurlínan verði blendingar af
landkyni og Duroc, Yorkshire og
Duroc eða af hreinu Duroc-kyni.
Vel hefur gengið að hrinda þessari
stefnu í framkvæmd, að því er
fram kemur í fréttatilkynningu frá
Svínaræktarfélaginu, og er nú tölu-
verður hluti gyltna á svínabúum
landsins blendingar af landkyni og
Yorkshire.
í dag kemur flugvél frá Noregi
til Akureyrar með 28 kynbótasvín
sem farið verður með í einangrun-
arstöð Svínaræktarfélagsins í
Hrísey. I hópnum ertu 15 gyltur af
norsku landkyni með fangi, 4 gylt-
ur af landkyni sem sæddar hafa
verið með sæði úr Ðuroc-göltum, 5
gyltur af Yorkshire-kyni með
fangi, 2 geltir af landkyni og 2 gelt-
ir af Duroc-kyni.
Duroc-geltirnir eru brúnir eða
rauðbrúnir á lit enda stundum
nefndir brúnu svínin og er þetta í
fyrsta skipti sem svín af þessu kyni
eru flutt til landsins. Kostir þessa
svínakyns eru aðallega þeir að
kjötið er talið bragðgott og meyrt
vegna þess að innrivöðvafita þess
er mikil.
Sláturgrísir eru 35-40% þyngri
en áður á sumum búum
Kristinn Gylfi Jónsson, formaður
Svínaræktarfélags Islands, segir
að innflutningur svína hafí skilað
íslenskri svínarækt verulegum
ávinningi síðastliðin fímm ár.
„Með kynbótastarfínu hefur tek-
ist að auka vaxtarhraða, bæta fóð-
urnýtingu og fá þyngri en jafn-
framt magrari sláturgrísi. Á sum-
um búum eru sláturgrísimir
35-40% þyngri en áður. Samt
flokkast þeir betur vegna þess að
þeir eru kjötmeiri og magrari,"
segir Kristinn Gylfi. Segir hann að
þetta hafí haft verulega þýðingu
fyrir svínaræktina því framleiðslu-
kostnaður hafí lækkað og það gert
bændum kleift að lækka verðið.
Nefnir hann sem dæmi að afurða-
verð til bænda hafi lækkað um 10%
á þessu ári.
Islenskir svínabændur eru nú
orðnir áskrifendur að erfíðaefni
fyrir svín frá Noregi fyrir stofnana
þrjá sem hér verða notaðir. Fékkst
þessi áskrift með samningi Svína-
ræktarfélagsins við Norsvin
Intemational sem er útflutnings-
fyrirtæki samtaka norskra svína-
bænda.
Svínaræktarfélagið mun á
hverju ári flytja inn sæði úr
norskum svínum til notkunar í
einangrunarstöðinni í Hrísey.
„Þannig tryggir svínaræktin sér
aðgang að hágæða erfðaefni úr
sjúkdómalausum og heilbrigðum
svínum og uppfærir þannig svína-
stofninn hér á landi,“ segir í
fréttatilkynningu.
Kristinn Gylfi segir að svína-
stofninn á Islandi sé tiltölulega lít-
ill og kynbætur því erfiðari en í
umfangsmikilli og þróaðri svína-
rækt á hinum Norðurlöndunum.
Með því að tengjast svínaræktinni í
Noregi með beinum hætti eigi ís-
lenskir svínabændur að geta staðið
jafnfætis norrænum svínabændum
að þessu leyti. „Með þessu fyrir-
komulagi getum við betur einbeitt
okkur að framleiðslu sláturgrísa
með sem hagkvæmustum hætti,“
segir Kristinn Gylfi Jónsson.
Handtekinn
með þýfi
TVEIR rannsóknarlögreglumenn í
eftirlitsferð í Holtunum í Reykjavík
handtóku þjóf á miðvikudagsmorgun
með þýfi. Þjófurinn hafði brotist inn
í fyrirtæki við Skipholt aðfaranótt
miðvikudags, stolið þaðan tölvu og
falið hana í nágrenninu. Þegar þjóf-
urinn ætlaði að sækja þýfið var hann
gripinn glóðvolgur. Lögreglumenn-
irnir tóku þýfið og færðu manninn á
lögreglustöð til yfirheyrslu.
Þjófurinn var í framhaldinu færð-
ur fyrir héraðsdómara sem kvað upp
dóm yfir honum vegna fyrri mála
hans sem voru til meðferðar hjá hér-
aðsdómi.
Eiganda fyrirtækisins var ekki
kunnugt um innbrotið fyrr en rann-
sóknarlögreglumennirnir færðu hon-
um tölvuna aftur. Þjófurinn hefur
nokkrum sinnum áður komið við
sögu afbrotamála hjá lögreglu.
Morgunblaðið/Margrét Póra
Bók wítaDnBfDnr
CH0C0LATE ECSTASY
Uppskriftir að 75 hættulega góðum
sælkeraréttum. Ríkulega myndskreytt
með nákvæmum leiðbeiningum.
Gift of the Nile
Erlendar bækur
daglega
GÍÍleiasNiIe
(öáe>iD 9 iðik.
'-rasr M
l ýnumdsson
Austurstræti 5111130* Kringlunni 533 1130 • Hafnarfirði 555 0045
Tómas Búi og Gunnlaugur Búi skoða skjalið sem fannst í flöskunni
undir gangstétt við gömlu slökkvist öðina.
Skjal í flösku undir
gangstétt í 37 ár
GANGSTÉTT við gömlu slökkvi-
stöðina í ráðhúsi Akureyrarbæjar
við Geislagötu var brotin upp ný-
lega og kom þá í ljós flaska en í
henni var skjal. I skjalinu stóð:
Þessi stjett var steypt 11. ágúst
1962. Slegið upp fyrir henni af
Henning Kondrup og Hróari Lauf-
dal. Steypan flutt að frá Möl og
sandi. Oddur Kristjánsson stjórn-
aði verkinu. Oddur Kristjánsson
kom með 1 flösku og ætlaði að
gefa Kondrup af henni. Skjalið
skrifað af Sveini Tómassyni."
Sveinn helgaði slökkviliðinu
meiripart starfsævi sinnar, var
tækjavörður þess frá 1945 en starf-
aði sem óbreyttur slökkviliðsmað-
ur í mörg ár þar á undan. Þegar
fastar vaktir voru teknar upp hjá
liðinu árið 1953 varð hann vara-
slökkviliðsstjóri og slökkviliðsstjóri
frá 1958 til 1974 þegar hann lét af
störfúm fyrir aldurs sakir. Þá tók
við bróðursonur hans, Tómas Búi
Böðvarsson, sem áður hafði verið
varaslökkviliðsstjóri með honum.
Þeir Tómas Búi sem enn gegnir
starfí slökkviliðsstjóra og sonur
Sveins, Gunnlaugur Búi, skemmtu
sér yfir skjalinu á stöðinni í gær.
Gunnlaugur Búi hóf störf hjá
slökkviliðinu árið 1950, þá 18 ára
gamall, og lét af störfum nýlega
vegna aldurs eftir hartnær hálfrar
aldrar starf. Þeir gerðu fastlega
ráð fyrir að drukkið hefði verið úr
flöskunni sem geymdi skjalið áður
en hún var sett undir gangstéttina
við slökkvistöðina fyrir 37 árum.
FPI vill
breyta
lögum um
eignarhald
FORSTJÓRI Fishery Prod-
ucts International (FPI), Vict-
or Young, segir hagsmunum
félagsins og hluthafa þess best
borgið breyti stjórnvöld á
Nýfundnalandi lögum um há-
markseignaraðild einstaklinga
eða félaga í fvrirtækjum. Lög
á Nýfundnalandi kveða á um
15% hámarkseignaraðild ein-
staklinga eða félaga í fyrir-
tækjum þar í landi.
Young sagði við kanadíska
dagblaðið The Telegram að
iyrirtækið hefði áður farið
fram á afnám laganna, enda
stæðu lögin vexti fyrirtækisins
fyrir þrifum. Lögin voru sett á
árið 1987 þegar FPI var einka-
vætt og var markmið laganna
að halda meirihlutaeign félags-
ins innan Nýfundnalands.
Krafa um afnám laganna hefur
nú komist í hámæli vegna
kauptilboðs NEOS Seafoods í
FPI en tilboðið vai' bundið
þeim skilyrðum því að lögin
yrðu afnumin eða þeim breytt.
NEOS er nýstofnað félag í
eigu Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna hf. og kanadísku
fyrirtækjanna Barry Group og
Clearwater Fine Foods. For-
stjóri Clearwater, John Risley,
hefur lýst yfir ánægju sinni
með þessa afstöðu Young og
segir að viðræður um yfirtök-
una hafi þannig tekið nýja
stefnu. Talið er að stjóm FPI
hafi skipað sérstaka nefnd til
meta tilboðið og hefja viðræð-
ur við NEOS.
Fjórðung-
ur þjóðar-
innar í
þolfimi
SAMKVÆMT könnun
PricewaterhouseCooþers á
íþróttaiðkun landsmanna
stundar rúmlega helmingur
Islendinga einhvers konar lík-
amsrækt reglulega. í könnun-
inni var notað 1.200 manna úr-
tak og var svarhlutfallið rúm
60%. Fleiri konur en karlar
stunda líkamsrækt eða um
57% kvenna miðað við 53%
karla. Samkvæmt könnuninni
stunda fleiri á höfuðborgar-
svæðinu líkamsrækt en á
landsbyggðinni.
Vinsælasta líkamsræktin
samkvæmt könnuninni er
þolfimi en hana stundaði fjórð-
ungur þeirra sem stunda ein-
hverja líkamsrækt. Um helm-
ingur þeirra hefur aðgang að
lfkamsræktarstöðvum. Göngu-
ferðir njóta einnig mikilla vin-
sælda en hana stunduðu um
20%. Þar næst komu lyftingar
en þær stunda rúm 19% þeii'ra
sem stunda líkamsrækt. Vin-
sælasta hópíþróttin er knatt-
spyrna en 11% stunda hana.
Tillaga um
óbreytt útsvar
BORGARRÁÐSFULLTRÚA
R Reykjavíkuriista hafa lagt
fram tillögu um að útsvar
verði óbreytt eða 11,99% á
tekjur á árinu 1999.
Á fundi á þriðjudag var til-
lögunni vísað til borgar-
stjórnai'.
I