Morgunblaðið - 19.11.1999, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 19.11.1999, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGIJR 19. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT AP Komið með hinn ákærða, Shawn Berry, til dómshússins í Jasper í gær. Réttarhöldum í Texas vegna haturs- morðs á blökkumanni lokið Ákærði viðstadd- ur verknaðinn en neitaði aðild Jaspcr. AP, AFP. RÉTTARHÖLDUM í máli Shawns Berry, 24 ára gamals Texasbúa, lauk í gær með því að kviðdómur sakelldi hann fyrir aðild að morði á tæplega fimmtugum blökkumanni sumarið 1998. Sýnt þykir að kyn- þáttahatur hafi legið að baki hinu hrottafengna morði og hefur málið fengið mikla umfjöllun í fjölmiðlum vestanhafs. Berry er þriðji maður- inn sem réttað er yfir vegna morðs- ins en þegar hafa tveir menn verið dæmdir til dauða fyrir þátt sinn í því. Réttarhöldin yfir Berry hófust í síðustu viku og neitaði hann í vitna- leiðslum staðfastlega að hafa tekið þátt í misþyrmingum sem leiddu til dauða blökkumannsins. Hann neit- aði einnig að hafa ekið pallbifreið sem blökkumaðurinn hafði verið bundinn aftan í. Sagðist hafa verið lamaður af hræðslu Það var 7. júní á síðasta ári að Berry og tveir félagar hans stöðv- uðu pallbifreið, sem var í eigu Berr- ys, til að taka blökkumanninn Ja- mes Byrd upp í. Enda þótt Berry hafi vitað að félagar hans, 25 og 32 ára, væru yfirlýstir kynþáttahatar- ar og meðlimir Ku klux klan-hreyf- ingarinnar sagðist hann við réttar- höldin ekki hafa séð neitt athugavert við að bjóða Byrd far. Berry sagði að félagar hans hefðu oft lýst áformum um að beita blökkumenn ofbeldi en að hann hefði ekki tekið orð þeirra trúanleg. Hann sagði að eftir að bifreiðin hefði verið stöðvuð hafi hann reynt að koma í veg fyrir að félögum hans tækist að draga Byrd út úr bflnum. Annar þeirra hafi þá hótað sér með barsmíðum ef hann reyndi að verja blökkumanninn. Berry kvaðst hafa orðið lamaður af hræðslu og sagðist hafa staðið álengdar og fylgst með því þegar félagar hans börðu mann- inn og spörkuðu endurtekið í hann, ásamt því að spreyja málningu í andlit hans. Samkvæmt framburði Berrys bundu félagar hans því næst fætur blökkumannsins aftan í pallbifreið- ina með keðju og sagðist hann hafa setið milli þeirra þegar bifreiðinni var ekið um fimm kflómetra leið með blökkumanninn í eftirdragi. Hann játaði að hann hefði tekið þátt í að þrífa bifreiðina eftir ódæðið vegna þess að hann hefði verið viss um að það eitt að hann var viðstadd- ur glæpinn nægði til að sakfella hann. Berry játaði einnig að hafa sagt ósatt í fyrstu um atburðarásina til að verja sig. Blóð úr fórnarlambinu á fötum hins ákærða Réttarhöldin fóru fram í smá- bænum Jasper í Texas þaðan sem mennimir eru og ódæðið var fram- ið. Saksóknarar í málinu bentu við réttarhöldin á mikið ósamræmi í málfiutningi hins ákærða, auk ann- arra atriða sem gerðu frásögn hans tortryggilega, t.d. hafi blóð úr fóm- arlambinu fundist á fötum Berrys. Mikil áhersla var lögð á að sanna að Berry hefði ekið bifreiðinni. Sak- sóknarar fullyrtu að enda þótt vitað væri að Berry hefði ekki tilheyrt samtökum kynþáttahatara og hefði því ef til vill ekki haft sömu ástæðu og félagar hans til að fremja verkn- aðinn, nægði það eitt að hann hefði ekið bifreiðinni til að sakfella hann. Kviðdómurinn sem komst að þeirri niðurstöðu að hinn ákærði væri sekur var skipaður sjö konum og fimm körlum, öllum hvítum á hömnd. Berry á yfir höfði sér annað hvort lífstíðarfangelsi eða dauða- dóm en ættingjar hans og vinir reyna nú ákaft að bjarga lífi hans. Lykillinn að lengra lífi fundinn? París. AFP. STÖKKBREYTTAR mýs lifa þriðjungi lengur en aðrar en það svarar til þess hjá mönnum, að þeir yrðu almennt 100 ára og eldri. Var sagt frá þessu í vísinda- timaritinu Nature í fyrradag. Það er hópur átta ítalskra vís- indamanna, sem stendur að þess- um rannsóknum, en þeir telja sig hafa fundið mjög mikilvægan þátt ellihrömunar. Vísindamennimir ólu upp mýs, sem skorti erfðavísi, sem stjómar ákveðnu eggjahvítuefni, p66shc. Talið er, að það eigi mikinn þátt í hrömun og er eins konar rofi, sem greiðir fyrir viðgerð á fmmum, sem skemmst hafa af ýmsum um- hverfísþáttum, t.d. útfjólubláu ljósi eða einhverjum efnum. Áður hefur tekist að Iengja líf músa með öðmm breytingum á erfðavísum en þá fylgdi sá böggull skammrifi, að mýsnar vom minni og ekki jafn fijósamar og aðrar mýs. Það á hins vegar ekki við um langlífu mýsnar, sem ítölsku vís- indamennirnir ólu. Þær em jafn hraustar og fijósamar og aðrar í ættinni. Verði þessar niðurstöður stað- festar er hugsanlegt, að fundin sé aðferð til að lengja líf manna án nokkurra aukaverkana. Það sem vitað er um hrap EgyptAir-þotunnar Að morgni 31. október var himininn heiðskír, skyggni gott og lítill vindur 33.000 fet (10.000 m) 890 km/klst Áður en þotan steypist niður: Einn flugmannanna virðist hafa yfirgefið flugstjórnarklefann. Einhver fór með bæn eða guðsorð Sjálfstýringin er tekin úr sambandi, Þotan tekur dýfu, dregið er úr eldsneytisgjöf og hægt á hreyflunum Farþegar finna fyrir þyngdarleysi er þotan stefnir niður á við í 40° horni Hraðinn fer yfir 1.100 km/klst sem er um 94% af hljóðhraða Um 24.000 fet (7.300 m) . 100 km Hæðarstyri a steli fer í gagnstæða stöðu .ovu m/ - . 16.700 fet Mass. m . N.Y. New Y°rk Long Conn, island R.l. Flugleið Kennedy^^s^véiarinnar flugvöllur Hverfur af ratsjám Atlantshaf enn með v Einhver slökkti á báðum hreyflunum Farþegarnir finna fyrir aukinni þyngd þegar þotan klifrar aftur (eins og þegar öflugum bíl er gefiö snögglega inn, 2,5 G þyngdarkraftur). Engar frekarí upplýsingar r í flugritum T Þotan hverfur af ratsjám Steypist í ha og brakið sekkur niður á rúmlega 80 m dýpi Boeing 767-366 ER (langflugsútgáfa 767) cmi Grunsemdir um glæpsamlegt athæfí um borð í EgyptAir-þotunni styrkjast „Ég hef tekið ákvörðiin“ Reuters. Raouf Noureddin, afleysingaflugmaður; Adel Anwar, aðstoðarflug- stjóri, og Ahmed al-Habashi flugstjóri. Washington, Kairó. Reuters, AP. EGYPSKIR sérfræðingar komu í gær til Washington tfl að taka þátt í rannsókn á hljóðrita EgyptAir-þot- unnar en egypsk dagblöð sökuðu Jim Hall, formann bandaríska sam- gönguöryggisráðsins, um að reyna að koma sökinni á EgyptAir. Upp- lýsingar, sem bandarísku sérfræð- ingamir létu frá sér fara í fyrra- kvöld, styðja hins vegar enn frekar grunsemdir um að slysið hafi verið af mannavöldum. Bandarísku sérfræðingarnir eru sannfærðir um, að annai- afleysinga- flugmaðurinn, Gamil al-Batouti, hafi notað tækifærið er flugstjórinn fór út úr flugstjórnarklefanum til að fyrirfara sjálfum sér og öllum um borð. Vangaveltur um bænarorðin óþörf? Eins og áður hefur komið fram fór hann með bæn eða hversdagsleg guðsorð áður en hann tók sjálfstýr- inguna úr sambandi og beindi flug- vélinni bratt niður. Nú hefur verið skýrt frá því nákvæmlega hvað hann sagði en það var þetta: „Ég hef tekið ákvörðun. Ég fel mig guði á vald.“ Fyrri setningin, að hann hafi tekið ákvörðun, styrkir menn enn betur í þeirri trú, að Batouti hafi ætlað sér að tortíma vélinni og gerir kannski um leið vangaveltur um guðsorðin óþarfar. Þegar flugstjórinn, Ahmed al-Ha- bashi, kom aftur í flugstjómarklef- ann, segir hann: „Hvað er um að vera? Hvað gengur á?“ og síðan: „Hjálpaðu mér, taktu í.“ Þá virðist hann vera að reyna að ná vélinni upp en allt bendir tíl, að Batouti hafi á sama tíma beint henni niður. Fyrir Egypta er þetta mál mjög viðkvæmt enda óttast þeir þá niður- stöðu, að einn flugmannanna hafi beinlínis valdið þessum hönnulega atburði. Hún yrði mikill álitshnekkir fyi-ir þá og ÉgyptAir og gætí haft slæm áhrif á ferðaþjónustuna í land- inu. Egypska dagblaðið Al-Akhbar sakaði í gær Jim Hall, formann bandaríska samgönguöryggisráðs- ins, um að reyna að koma sökinni á EgyptAir og sagði, að sögumar, sem látnar væm leka út, væm til þess gerðar að hvítþvo Bandaríkja- menn. Þá sagði dagblaðið Al-Wafd, að bandarísku sérfræðingamir væm að reyna að firra Boeing- verksmiðjumar ábyrgð af ótta við, að fyrirtækið þyrfti að borga gífur- legt fé í skaðabætur kæmi í ljós, að um vélarbilun hefði verið að ræða. Lýst sem trúræknum og heiðarlegum manni Fjölskylda Batoutis vísar því harðlega á bug, að hann hafi getað gerst sekur um skelfilegan glæp og hálfbróðir hans, Essam Dahi, segir, að hann hafi verið heiðarlegur mað- ur og mjög trúrækinn. Ahmed Wasef, kokkur á hótelinu í New York þar sem flugliðamir dvöldust, segir, að framkoma Ba- toutís hafi verið eðlileg og hann hafi hlakkað til að geta sest í helgan stein og verið meira með fjölskyldunni. „Hann var önnum kafinn við að kaupa ýmislegt fyrir fjölskylduna og hringdi heim og bað um að vera sótt- ur út á flugvöll þegar hann kæmi. Það gera menn yfirleitt ekki ætli þeir að stytta sér aldur," sagði Wa- sef. Batoutí hafði verið kvæntur í 27 ár og átti fimm böm. Hafði hann starfað hjá EgyptAir frá 1987 en þjálfaði þar áður flugmenn hjá egypsku flugmálastjóminni og flug- hemum. Yngsta dóttir hans þjáist af erfiðum húðsjúkdómi, ónæmissjúk- dómi, og hefur verið til meðferðar í Bandaríkjunum. Flugstjórinn, Ahmed al-Habashi, var einn af reyndustu flugmönnum EgyptAir, hafði flogið í meira en 35 ár. Ljúka allir miklu lofsorði á hann. Hann var kvæntur og átti þrjú böm. Aðstoðarflugstjórinn, Adel Anwar, var kominn eitthvað yfir þrítugt og hafði starfað hjá EgyptA- ir í 12 ár. Ætlaði hann að gifta sig nokkrum dögum eftir hinstu ferðina. Fjórði maðurinn í flugáhöfninni var Raouf Noureddin, 52 ára og margreyndur flugmaður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.