Morgunblaðið - 19.11.1999, Blaðsíða 27
iFÖST.UpAgUR,19.NQVLMBLR,1999
ERLENT
Rússar hertaka einn bæinn enn í Tsjetsjníu
Hringurinn um
Grosní þrengist
Moskvu, Kavkaz. AFP, AP.
HERSVEITIR Rússa í Tsjetsjníu tóku í
gær bæinn Achkoi-Martan, sem er um 30
km vestan við Grosní, höfuðborg sjálf-
stjórnarlýðveldisins. Rússneska sjónvar-
psstöðin NTV greindi frá þessu í gær og
sýndi myndir af Vladimír Shamanov, yfir-
manni rússnesku hersveitanna á svæðinu,
þar sem hann gekk um miðbæinn og
spjallaði við íbúa. „Hér stendur hershöfð-
ingi sem er þreyttur á bardögum. Látum
okkur lifa í friði. Segjum „þetta er nóg“ og
með sameiginlegu átaki getum við látið
hlutina ganga upp,“ sást Shamanov segja
við nærstadda óbreytta borgara, sem kink-
uðu kolli og sögðu: „Heyr, heyr“.
„Við munum leysa öll vandamál með yf-
irveguðum hætti, svo að við getum eins
fljótt og auðið er lifað lífinu í friði,“ bætti
hershöfðinginn við.
Rússneskir heimildarmenn fréttastofa
gáfu nýlega í skyn að sendiboðar íbúa
Achkoi-Martan hefðu sett sig í samband
við herforingja Rússa með það fyrir aug-
um að hlífa bænum við frekari stórskota-
liðsárásum og götubardögum. Sagði NTV-
sjónvarpið rússneska herinn stefna næst á
Samashki, nágrannabæ Achkoi-Martan og
þrengja þannig æ meir hringinn um Grosní
sjálfa.
Herför gegn
sjálfstæðisvilja
Þetta stríð í Tsjetsjníu hófst fyrir 11
vikum með það yfirlýsta markmið að ráða
niðurlögum íslamskra „hryðjuverka-
manna“, en hefur magnazt upp í vægðar-
lausa herför gegn sterkum sjálfstæðisvilja
sj álfstj órnarlýðveldisins í Norður-Kákasus.
Þremur árum eftir að stjórnvöld í
Moskvu drógu herlið sitt auðmýkt út úr
Tsjetsjníu, sem sagði sig úr lögum við
Moskvuvaldið og lýsti einhliða yfir fullu
sjálfstæði, eru rússneskir hershöfðingjar
nú í hefndarhug.
Tsjetsjníustríðið fyrra, sem stóð í 21
mánuð á árunum 1994-1996, kostaði á að
gizka 80.000 manns lífið. I þessu nýja
stríði berast fréttir af sívaxandi fjölda
óbreyttra borgara sem týna lífi og gríða-
rlegur flóttamannastraumur liggur út úr
átakasvæðinu. Þetta hefur vakið hörð við-
brögð á Vesturlöndum, en rússneski for-
sætisráðherrann, Vladimír Pútín, sem fer
með yfirstjóm aðgerða í Tsjetsjníu, hefur
átt stórauknum vinsældum að fagna meðal
rússnesks almennings eftir að stríðið hófst.
Til stríðs þessa var sáð fyrir þremur
mánuðum, þegar hópar íslamskra skæru-
liða fóru undir forystu tsjetsjenska stríðs-
herrans Shamils Basayevs frá Tsjetsjníu
yfir fjöllótt landamærin til grannhéraðsins
Dagestans. Yfirlýst takmark skæruliðanna
var að endurreisa hið íslamska ríki sem á
19. öld var við lýði á landsvæði þessara
tveggja rússnesku sjálfstjórnarlýðvelda.
Þegar menn Basayevs hörfuðu loks frá
fjallaþorpunum sem þeir höfðu hertekið í
Dagestan nokkrum vikum síðar höfðu að-
stæður breytzt, sem hleyptu aukinni hörku
í átökin.
Hinn 4. september sprakk sprengja í
fjölbýlishúsi í bænum Buniaksk í Dagest-
Reuters
Sadako Ogata, mannréttindafulltrúi
Sameinuðu þjóðanna, og Nikolai Koshm-
an, erindreki Rússlandsstjómar í Tsjet-
sjníu (lengst t.v.) skoðuðu aðstæður á
Iandamæmm Ingúshetíu og Tsjetsjníu í
gær, hér í landamærabænum Kavkaz.
Ogata heim-
sækir flótta-
menn
Umkringd rússneskum óeirðalögreglum-
önnum heimsótti Ogata búðir tsjetsjenskra
flóttamanna í Ingúshetíu, í því skyni að
Ieggja áherzlu á áhyggjur alþjóðasamfé-
lagsins af örlögum óbreyttra borgara í
stríðsátökunum í Tsjetsjníu.
Samkvæmt opinbemm tölum höfðu í gær
verið skráðir 214.300 flóttamenn frá Tsjet-
sjníu og eru flestir þeirra í Ingúshetíu.
an, með þeim afleiðingum að 56 manns létu
lífið, flestir fjölskyldur rússneskra her-
manna. Ráðamenn í Moskvu gerðu tsjet-
sjenska öfgamenn ábyrga og sendu sólar-
hring síðar heilar sveitir orrustuflugvéla til
að varpa sprengjum á meintar bækistöðvar
skæruliða í Tsjetsjníu. Almenliur ótti í
Rússlandi við hættuna af hryðjuverkum
breiddist út er tvö fjölbýlishús í Moskvu
og eitt í suður-rússnesku borginni Volg-
odonsk jöfnuðust við jörðu í sprengingum.
Samtals dóu 292. Lögreglan efndi til her-
ferðar gegn meintum samverkamönnum
tsjetsjenskra hryðjuverkamanna út um allt
Rússland og Pútín, sem þá var nýtekinn
við forsætisráðherraembættinu, lýsti
Tsjetsjníu alla eitt stórt bæli hryðjuverka-
manna.
Eftir nærri mánaðarlanga hrinu loft-
árása réðst 1. bktóber mörg þús'und manna
landher, með skriðdreka- og stórskotaliðs-
deildir sér til fulltingis, inn í Tsjetsjníu.
Grosní verður
ekki auðtekin
Með sjónir fast á þingkosningunum sem
fram fara í Rússlandi hinn 19. desember
og forsetakosingunum á komandi sumri
hefur stjórnin haldið aftur af hernum að
reyna að taka Grosní, þar sem hann sætti
mest auðmýkjandi ósigrunum í fyrra
Tsjetsjníustríðinu. Þúsundir hermanna
létu lífið í janúar 1995, þegar herinn gerði
tilraun til að taka Grosní á sitt vald. Skrið-
drekar festust á mjóum götunum, þar sem
skæruliðar léku sér að því að eyða þeim
með litlum sprengjuvörpum.
En það kitlar óneitanlega metnaðar-
girnd rússneskra ráðamanna, að freista
þess að ná aftur völdum yfir tsjetsjensku
höfuðborginni, nú þegar skoðanakannanir
sýna að 60% Rússa styðja stríðsaðgerðirn-
ar.
Ekki ber að efa, að Tsjetsjenar, sem af
ýtrasta mætti vörðust ásælni Rússa til
áhrifa í Norður-Kákasus á 19. öld og stóðu
fyrir síendurteknum uppreisnartilraunum
gegn yfirráðum Moskvuvaldsins, reyni
einnig nú allt hvað þeir geta að verja sjálf-
stæði sitt.
S 1999 lcelandair.
All rights reserved.
3ll réttWi éskilin.
vrebmastergi ice landa ir. is
Skemmtiferöir
Upplýsingar fyrir þá sem skipuleggjö fríiö
Viöskiptaferöir
Upplýslngar fyrir fólk í viöskiptaerindum
Netklúbbur
Upplýsingar um nýjustu nettilboöin
Ferðabókanir
Hér kaupir þú flugferðir, hótelgistingu og pantar bílaleigubíl
Um félagiö
Upplýsingar umsogufélagsins,fréttatilkyningar, fjórmálaupplýsinga
3tarfsemi Flugleiða v
Önnur biónusta *v
Ferðatilboð á Flugleiðavefnum:
Netklúbburinn
Á Flugleiðavefnum eru birt reglulega freistandi
ferðatilboð vikunnar. Með því að gerast félagi í
Netklúbbi Flugleiða - á vefnum - gefst þér
svo kostur á enn fleiri hagstæðum ferðatilboðum.
Opnaðu þína eigin ferðaskrifstofu
www.
icelandair.is
Á nýja Flugleiðavefnum, www.icelandair.is,
býðst þér alhliða ferðaþjónusta inni
á þínu eigin heimili eða á vinnustað.
■ Á www.icelandair.is færðu allar nauðsynlegar upplýsingar
um áfangastaði og flugáædun
✓
■ A www.icelandair.is geturðu pantað flugfar, hótelgistingu
og bílaleigubíl.
■ Á www.icelandair.is geturðu bókað á Saga Buisness Class
— meiri hagkvæmni og minni kostnaður.
Velkomin um borð - á vef Flugleiða
lCELANDAIR
www.icelandair.is