Morgunblaðið - 19.11.1999, Blaðsíða 18
MORGUNBLAÐIÐ
18 FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1999
LANDIÐ
Stækkun Grunnskóla
Eyrarsveitar lokið
Grundarfirði - Haldið var upp
á það nýlega að lokið er
stækkun Grunnskóla Eyrar-
sveitar í Grundarfirði en síð-
astliðin ár hefur verið unnið
að viðbótum og endurnýjun
hans. Byggt var ofan á það
húsnæði sem tekið var í notk-
un fyrir rúmum tuttugu árum,
en rúm þrjátíu ár eru frá því
að byrjað var á þeirri bygg-
ingu sem nú er orðin glæsilegt
skólahúsnæði. fbúum Grundar-
fjarðar hefur fjölgað jafnt og
þétt síðustu áratugi og hefur
skólahúsnæði verið stækkað í
samræmi við það.
Teknar voru í notkun 8 nýj-
ar kennslustofur auk þess sem
sérgreinastofur voru innrétt-
aðar og endurbættar. Aðstaða
fyrir heimilisfræði, raungrein-
ar, myndmennt og handmennt
er nú eins og best verður á
kosið. Bókasafn skólans hefur
fengið nýtt og betra húsnæði
og aðstaða kennara og skóla-
stjórnenda hefur verið bætt til
muna. A síðustu fjórum árum
hefur rými skólans verið
stækkað um helming. Skóla-
hald raskaðist ekki mikið með-
an á framkvæmdunum stóð, en
auðvitað hafa nemendur og
aðrir þurft að hliðra til og
sýna þolinmæði á þessum tíma.
Tækjakostur bættur
Samhliða þessari stækkun
skólans hefur verið unnið
markvisst í því að bæta tækja-
kost og hefur tölvum verið
fjölgað til muna í vetur. f tölvu-
veri skólans eru nú 12 nem-
endatölvur, tölva er í hverri
stofu 1.-5. bekkjar og stendur
til að bæta við í allar stofur. Þá
eru 10 tölvur til viðbótar í sér-
kennslustofum, bókasafni,
vinnuherbergjum kennara og
hjá skólastjórnendum. Náms-
efni frá tölvuskóla framtíðar-
bama er kennt í öllum bekkjum
skólans.
Nemendur skólans eru 215.
Anna Bergsdóttir er skólastjóri,
Ragnheiður Þórarinsdóttir að-
stoðarskólastjóri. Fjöldi kenn-
ara og annars starfsfólks er 30
manns. Anna Bergsdóttir skóla-
stjóri er ánægð með hversu hátt
hlutfall réttindafólks starfar við
skólann og hversu metnaðar-
fullu starfsfólki hann hefur á að
skipa.
Viðbætur þessar og breyting-
ar voru í umsjón arkitektastof-
anna Glámu og KÍM. Mönnum
ber saman um að vel hafi tekist
til enda er starfsaðstaða og að-
búnaður allur stórbættur sem
fyrr segir.
Nemendur og kennarar Grunnskóla Eyrarsveitar. Morgunblaðið/KVM
Þörf fyrir staðbundnar umræður
um umhverfismál
Náttúruverndar-
samtök Vestur-
lands endurvakin
Reykholti - Líflegar umræður áttu
sér stað á aðalfundi hjá nýendur-
reistum samtökum um náttúruvernd
á Vesturlandi sem haldinn var ný-
lega á Hvanneyri. Samtökin voru
upphaflega stofnuð árið 1974, en
hafa verið svo til óvirk síðustu árin.
Undirbúningur þessarar endurvakn-
ingar hefur staðið yfir frá því í haust
og var kosin ný sjö manna stjóm á
aðalfundinum.
Ragnhildur Sigurðardóttir, um-
hverfisfræðingur á Snæfellsnesi, og
Björg Gunnarsdóttir, landfræðinemi,
sem búsett er á Hvanneyri, hafa haft
forgöngu að þessari endumýjun.
Ragnhildur segir það von þeirra að
samtökin verði öflugur vettvangur
fyrir umræður um umhverfis- og
náttúmvemdarmál á Vesturlandi og
einnig á landsvísu í samvinnu við
önnur félög sem vinna að þessum
málum. Samtökin em aðili að Land-
vemd.
Umhverfisrannsóknir í Hvalfirði á
vegum Islenska jámblendifélagsins
vom kynntar sérstaklega í fyrirlestri
og einnig vora rakin mismunandi
sjónarmið um mat á umhverfisáhrif-
um, m.t.t. vegarlagningar á Vatna-
heiði. Sköpuðust líflegar umræður í
kringum þessi mál.
Ragnhildur segir samtökin eiga að
rúma ólík sjónarhom og vera vett-
vang fyrir fræðslu um umhverfismál
og gagnrýna umræðu á þessu sviði.
Að auki verði farið í skoðunarferðir
um fjölbreytta náttúm Vesturlands.
Hún telur þörfina vera brýna fyrir
markvissa, staðbundna umræðu og
að þessi endurvakning sé tákn um
breyttan hugsunarhátt í þessum
málum og aukinn áhuga fólks á um-
hverfi sínu. Hún telur það góðs viti
að í hinni nýskipuðu stjóm sitji fólk
víða að af Vesturlandi. Samtökin séu
öllum opin og að leitast verði við að
fá styrktaraðila.
Morgunblaðið/Sigriður Kristinsdóttir
Hvanneyringurinn Ríkharð Brynjólfsson sýnir fundargestiun Moltuna
á Hvanneyri þar sem h'frænum úrgangi er safnað saman til jarðgerð-
ar. (F.v.) Tryggvi Felixson hjá Landvemd, Skúli Alexandersson og
Ríkharð Brynjólfsson.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Fossvallabrú
lagfærð
Vaðbrekka, Jökuldal - Vega-
gerðin vinnur nú að lagfæring-
um á gömlu Fossvallabrúnni
sem aflögð var er ný brú var
byggð við Selland árið 1993. Nú
er verið að rífa ofan af henni
tréverkið sem sett var á brúna
uppúr 1970 og er gamla brúin
sem byggð var árið 1931 komin í
ljós.
Verið er að setja á hana
bráðabirgðahandrið svo hættu-
laust sé að ganga yfir hana.
Vegagerðin áformar síðan að
gera hana upp í upprunalegri
mynd í framtíðinni. Undir þess-
ari brú frá 1931 mótar enn fyrir
hlöðnum stöplum elstu brúarinn-
ar á Jökulsá á Dal eftir að stein-
bogann við Brú tók af.
A myndinni vinnur Kristján
Larsen við að hreinsa timbrið
úr „nýju“ brúnni. Gamla brúin
er komin í ljós fyrir aftan hann
þar sem Dvalinn Hrafnkelsson
og Ríkharður Einarsson eru að
koma upp bráðabirgðahand-
riði.
Gaul-
verjabæj-
arkirkja
90 ára
Gaulveijabæ - Kirkjan í Gaulverja-
bæ var vígð 21. nóvember 1909.
Réttum 90 áram síðar uppá dag,
sunnudaginn 21. nóvember nk.,
verður þess minnst með afmælis-
messu sem hefst kl. 14. Séra Sig-
urður Sigurðarson, vígslubiskup
Skálholtsstiftis, mun prédika.
Eftir messuna er boðið til kaffi-
drykkju í Félagslundi. Þar mun
Berglind Einarsdóttir, söngkona
og söngkennari í Brandshúsum,
syngja einsöng. Einnig mun Helgi
ívarsson, meðhjálpari og bóndi í
Hólum, rekja sögu kirkjunnar.
Alitið er að Gaulverjabær hafi
verið kirkjustaður og áður prest-
setur nánast frá öndverðri kristni í
landinu. Var prestakallið ávallt eft-
irsótt og sátu prestar lengi. Var
það fjölmennt þar sem undir það
heyrði „Stokkseyrarsókn á Eyrar-
bakka“, líkt og getið er í gömlum
skjölum. Einnig er talið að kirkju-
byggingar á staðnum hafi verið
veglegar á öldum áður og ber
stærð og hæð núverandi altari-
stöflu frá 1775 þess vitni.
Þótt sóknin sé fámennari nú hef-
ur kirkju og kirkjugarði ætíð verið
sómi sýndur af sóknarbömum og
velunnumm. Nú síðasta vor var
lokið við gerð bflastæði með varan-
legu slitlagi og gangstétta við
kirkjuna. Sóknarprestur er séra
Úlfar Guðmundsson prófastur og
situr á Eyrarbakka.