Morgunblaðið - 19.11.1999, Blaðsíða 22
VIÐSKIPTI
MorgíWbláöíð
Flugleiðir semja við Landssímann
um fj arskiptaþj ónustu á ATM-neti
Söluskrifstof-
ur tengdar við
höfuðstöðvar
FLUGLEIÐIR og Landssíminn
hafa gert með sér samning um
fjarskiptaþjónustu á ATM-neti
Símans. Með ATM-netinu geta
Flugleiðir tengt sex söluskrif-
stofur við höfuðstöðvar íyrirtæk-
isins á Reykjavíkurflugvelli og
tal- og gagnaflutningur verður
samnýttur.
„Með þessum aðgerðum eru
Flugleiðir að auka bandvídd sína
gríðarlega sem hefur fjölmarga
kosti í för með sér,“ segir í
fréttatilkynnningu. Par sem öll
símtöl og gagnaflutningur á milli
starfsstöðva eru á sömu teng-
ingu felst sparnaður og hagræð-
ing í tengingunni. Hægt verður
að svara símtölum til Flugleiða í
hvaða starfsstöð sem er og þann-
ig jafna út álag á innhringinúm-
er. Stjómunar- og viðhald-
skostnaður lækkar, þar sem
eftirlit með öllum tengingum er
miðstýrt og kostnaður sparast
vegna búnaðar, póstþjóna og
netþjóna, auk sparnaðar í
mannahaldi. Þetta gefur Flug-
leiðum færi á að bæta þjónustu
við viðskiptavini sem hringja inn
á annatímum og skapar félaginu
jafnframt möguleika til spamað-
ar í gagnaflutningskostnaði.
Landssíminn veitir þjónustu á
ATM-neti sínu þar sem mögu-
leiki er á bandbreidd allt frá 64
kb/s upp í 155 Mb/s. Viðskipta-
vinir geta því klæðskerasaumað
víðnet sitt eftir þörfum. Rekstr-
aröryggi á ATM-neti Landssím-
ans er mikið og er eftirlitsþjón-
usta veitt allan sólarhringinn.
Simplex li Compact |l ijónust a
HÖNNUN / SMÍÐI / VIÐGERÐIR / ÞJÓNUSTA
= HÉÐINN = i Stórás 6 »210 Garöabæ Hí sími 569 2100 • fax 569 2101
Skuldabréf
Þróunarfélag íslands hf.
Þróunarfélags íslands hf.
á Verðbréfaþingi íslands
Verðbréfaþing íslands hefur samþykkt að
taka skuldabréf Þróunarfélags íslands hf.,
1. flokk 1999, á skrá þingsins þann
23. nóvember 1999. Heildarnafnverð
útgáfunnar var 500.000.000 kr.
Skráningarlýsingu og önnur gögn
er hægt að nálgast hjá umsjónaraðila
skráningarinnar, íslandsbanka, F&M,
Kirkjusandi, 155 Reykjavík.
Bflaleigan Geysir
Kaupir
Bridgestone-
loftbóludekk
BÍLALEIGAN Geysir hefur samið
við Gúmmívinnsluna á Akureyri,
umboðsaðila Bridgestone-hjól-
barða á íslandi, að 70% af bílaflota
bílaleigunnar verði settur á svoköll-
uð loftbóludekk. Þetta kemur fram
í fréttatilkynningu frá íyrirtækjun-
um.
I tilkynningunnni segir að loft-
bóludekk séu sérhönnuð ónegld
vetrardekk, sem séu sérhönnuð til
aksturs við erfiðustu aðstæður að
vetri til. Slitflötur loftbóludekkja er
búinn til úr gúmmíblöndu sem er
með þúsundum af örsmáum loftból-
um í sér. Loftbólumar gera það að
verkum að þúsundir af hvössum
brúnum grípa í yfírborð vegarins,
auk þess sem bólumar soga upp
vatn á yfirborði vegar þannig að
snertiflötur er alltaf stamur. Próf-
anir sýna að þau standist fyllilega
samanburð við bestu gerðir nagla-
dekkja hvað varðar hemlunarvega-
lengd og veggrip, bæði í snjó og
hálku, segir í tilkynningunni.
Þar er haft eftir Garðari K. Vil-
hjálmssyni, framkvæmdastjóra
bílaleigunnar Geysis, að loftbólu-
dekkin hafi reynst vel við íslenskar
vetraraðstæður.
Harðkornadekk og
loftbóludekk gerólík
Stefán Antonsson, markaðsstjóri
Gúmmívinnslunnar hf. á Akureyri,
vekur á því athygli í samtali við
Morgunblaðið að loftbóludekk og
svonefnd harðkornadekk séu ger-
ólík.
„Loftbóludekkin era ný dekk en
harðkomadekk era sóluð. Einnig
er það okkar mat að harðkoma-
dekk séu ekki sérlega umhverfis-
væn. Það era kom í þeim sem fara
út í umhverfið og þyrlast upp af
malbikinu sem ryk. Um slíkt er
ekki að ræða í loftbóludekkjum.
Það er ástæða til að taka þetta fram
því sumir setja samasemmerki milli
harðkomadekkja og loftbólu-
dekkja, en Bridgestone er eini
dekkjaframleiðandinn í heiminum
sem framleiðir loftbóludekk, sem
era uppfinning fyrirtæksins,“ segir
Stefán Antonsson.
----- -----------B
<>
J E R A
Aldamótakjólar
Samkvæmisjakkar
Kjóldragtir
Mikið úrval
Aðalstræti 7,101 Reykjavík
Sími 5113100
Opiðvirka daga 12-18
Lau. 11-14
fa ral
Sviptingar
á norræna
póst-
markaðnum
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið
POST Danmark og Svenska
posten, sænski og danski póst-
urinn, hafna því að samrani fyr-
irtækjanna sé á döfinni eins og
sænska viðskiptablaðið Dagens
Industri fullyrti nýlega í annað
skiptið á skömmum tíma. Hins
vegar láta forráðamenn fyrir-
tækisins í ljós væntingar yfir að
samstarf fyrirtækjanna muni
aukast, án þess að vilja fullyrða
hver niðurstaðan verði.
Það era umsvif hins þýska
íyrram ríkispóstfyrirtækis
Deutsche Post, sem með umsvif-
um sínum á Norðurlöndum og í
nágrenni þeirra þrýstir á að
sænski og danski pósturinn
starfi saman. Ný einkafyrirtæki
era einnig tekin að hasla sér völl
á þessu sviði. Það stefnir því í að
póstgeirinn umbyltist á næstu
áram líkt og gerst hefur í síma-
geiranum. Um tíma virtust póst-
fyrirtæki stefna á samstarf við
banka, en aukin áhersla á net-
þjónustu hefur orðið til þess að
póstíyrirtæki stefna sjálf á net-
þjónustu af ýmsu tagi. Afnám
ríkiseinkaleyfis á póstþjónustu í
Evrópu eftir rúm þrjú ár mun
enn ýta undir umbyltingar á
þessu sviði.
Á undanförnum áram hefur
gömlu norrænu ríkispóst- og
'símafyrirtækjunum verið skipt í
póst- og símahluta og þeim
breytt í hlutafélög. I Danmörku
gerðist þetta 1995, en ríkið er
enn eini hluthafinn. Sama er
upp á teningnum í Svíþjóð. í
báðum löndum leita fyrirtækin
ákaft nýrra leiða í starfsemi
sinni. Bæði fyrirtækin leggja
áherslu á sendingarþjónustu af
ýmsu tagi og netumsvifum.
Pósthúsun breytt í gjafa-
og smávörubúðir
Post Danmark hefur lagt
áherslu á að breyta stærri póst-
húsunum í gjafa- og smávöra-
búðir, sem sinni fleiri þörfum
viðskiptavinanna en bréfa- og
pakkasendingum. Fyrirtækið
hefur þróað BilletNet, sem er
umfangsmikið sölunet miða á
ýmiss konar skemmtanir eins og
leikhús og tónleika. Fyrirtækj-
um er sinnt með tilboðum um
prentun bæklinga og skipu-
lagningu póstherferða, auk
sendingarþjónustu, sem meðal
annars er í samvinnu við hrað-
sendingarfyriræki.
Sænski pósturmn leggur
mikla áherslu á netþjónustu,
sem reiknað er með að aukist
enn og þá samþættingu net-
sendinga og venjulegrar póst-
þjónustu. Þessi stefna hefur
leitt til þess að bankastarfsemi,
sem stefnt var á um tíma, hefur
verið afskrifuð. Sænski póstur-
inn var í samstarfi við Nordban-
ken, en því hefur nú verið slitið,
þar sem gert er ráð fyrir minnk-
andi áherslu á bankaútibú og
vaxandi áherslu á netvædda
bankaþjónustu.
Almennt gildir að bréfum hef-
ur fjölgað sökum þess hve mikið
er borið út af auglýsingaefni. Á
hinn bóginn er taxtinn fyrir efni
af þessu tagi lægri en taxti fyrir
venjuleg bréf og hér er sam-
keppnin hörð við ný fyrirtæki á
markaðnum, sem bætast við
samkeppni frá Deutsche Post.
Sænska fyrirtækið CityMail er
dæmi um slíkt íyrirtæki. Það
var stofnað 1996 og nær nú til
þriðjungs allra sænskra heimila.
Fyrirtækið starfar á Stór-
Stokkhólmssvæðinu, Gautaborg,
Málmey og á Gotlandi.
Finnar taka Deutsche Post
framyfir norrænt samstarf
Danmörk, Finnland, Noregur
og Svíþjóð hafa undanfarið
starfað saman um pakkaflutn-
inga í Pan Nordic Logistic. Auk
þess hafa danski og sænski
pósturinn sérstakt samstarf um
að þjóna Eyrarsundssvæðinu,
sem búist er við að verði enn
veigameira eftir að brúin um
sundið milli Danmerkur og Sví-
þjóðar verður opnuð næsta sum-
ar.
Nú hefur finnski pósturinn
dregið sig^ út úr Pan Nordic
Logistics. Ástæðan er sú að þar
á bæ hafa menn tekið upp sam-
starf við Deutsche Post, sem er
sérlega framsækið íyrirtæki og
horfir þá einnig til Norðurlanda.
Annað dæmi um norræna fram-
sókn þýska póstsins er að hann
keypti nýlega sænskt flutninga-
fyrirtæki, ASG. Sænski póstur-
inn hafði augastað á íyrirtæk-
inu, en Þjóðverjamir vora
skjótari til.
Það er gríðarlegur stærðar-
munur á þýska póstinum og nor-
rænu póstunum. Ársvelta Post
Danmark losar 10 milljarða
danskra króna, Svenska posten
er með tvöfalda þessa veltu, en
velta Deutsche Post er tæplega
110 milljarðar danskra króna.
Rúmlega 30 þúsund starfsmenn
starfa hjá danska fyrirtækinu,
42 þúsund hjá hinu sænska, en
261 þúsund hjá því þýska.
Stærðarmunurinn er því mikill
og möguleikar Deutsche Post til
að verða sér úti um fé mun enn
aukast á næsta ári þegar fýrir-
tækið fer á hlutabréfamarkað.
Stjórnmálamenn óákveðnir
um framtíð póstsins
Þar sem sænski og danski
pósturinn era enn í umsjá ríkis-
ins þó fyrirtækjunum hafi verið
umbreytt í hlutafélög er það að
hluta undir stjómmálamönnum í
þessum löndum komið að
ákveða feril fyrirtækjanna.
Mogens Lykketoft fjármálaráð-
herra Dana aftekur að áform
séu um að stefna á samrana við
sænska póstinn, en orð hans
virðast aðeins eiga við nánustu
framtíð.
Helge Israelsen fram-
kvæmdastjóri Post Danmark
segir í samtali við Berlingske
Tidende að enn sé of snemmt að
segja fyrir um hvaða form sam-
starfi póstfyrirtækjanna verði
valið. Samstarfið eins og það sé
nú sé vart hið endanlega, en nið-
urstaðan sé einnig háð pólitísk-
um vilja. Þegar fyrirtækið hafi
verið stofnað sem Post Dan-
mark 1995 hafi fæstir getað séð
fyrir þá miklu og öra þróun,
sem síðan hafi orðið í póstgeir-
anum.
Frekari upplýsingar má finna
á vefsíðum fyrirtækjanna:
www.postdanmark.dk,
www.posten.se og www.cityma-
il.se.
I
I