Morgunblaðið - 19.11.1999, Síða 35

Morgunblaðið - 19.11.1999, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1999 35 eeöi Haiitviavöví .ei HbbAáijifeö'T ÍÉ LISTIR Nýjar bækur • „MINERVA and the Muses. The Placc of Reason in Aest- hetic Judgment‘ er heimspekirit eftir Stefán Snævarr. Bókin er byggð á sam- nefndri doktors- ritgerð höfundar sem hann varði í fyrra. Hann reynir að hrekja þá skoðun að dómar manna um gæði listaverka séu öldungis smekk- bundnir. Slíka dóma má rökstyðja misvel. Þeir eru aukinheldur hrekj- anlegir, segir í fréttailkynningu. Stefán Snævarr er dósent í heimspeki við Svæðisháskólann í Lillehammer. Þetta er áttunda bók hans en hann hefur áður gefið út sjö ljóðabækur. Utgefandi er Hpyskoleforlaget (Nordic Academic Press) í Kristj- ánssandi. Netfangið er bestilling- @bestilling. hoyskoleforlaget.no. Stefán Snævarr • ÞAR sem blómið vex og vatnið fellur er sjálfstætt fram- hald sögunnar Landið handan fjarskans eftir Eyvind P. Ei- ríksson. í fréttatil- kynningu segir m.a.: „Þar sem blómið vex og vatnið fellur gerist á horfinni öld en er þó í raun tímalaus saga. Aðalpersónan er komin til „landsins handan fjarskans" í leit að friði. Nýtt líf í fátæku samfélagi þessa kaldranalega lands bregst hans dýru vonum í fyrstu. Hann brýtur þó af sér fjötra þess og held- ur á vit stórbrotinnar náttúru og undarlegs mannlífs norðurbyggða í leit að þeim draumkennda stað þar sem blómið vex og vatnið fellur." Eyvindur hlaut Bókmenntaverð- laun Halldórs Laxness 1997 fyrir bókina Landið handan fjarskans og var hún tilnefnd til Islensku bók- menntaverðlaunanna sama ár. Útgefandi er Vaka-Helgafell. Bókin er 398 bls., prentuð í Odda hf. Magnús Valur Pálsson hannaði bókarkápu. Málverk á kápu er eftir Frederik Kloss. Verð:4.460 kr. • ÞAÐ verða engir skuggar hefur að geyma fimmtán erindi Einars Aðal- steinssonar um andleg mál og hugrækt sem hann skrifaði á 20 ára tímabili í tímaritið Gang- lera og eru þau í tímaröð. Einar fæddist á Akureyri árið 1941 og lést á Ítlaíu árið 1998. Hann var áhugamaður um andleg málefni og var félagi í Guðspekifé- lagi Islands og forseti þess árin 1977-79 og 1989-97. Útgefandi erAnna S. Björns- dóttir. Bókin er 124 bls., prentuð hjá Odda hf. Bókin er tileinkuð guðspekinemum og fæst íhelstu bókaverslunum oghjá Guðspekifé- lagi íslands í Ingólfsstræti. Skissur af konunni á sýningu HULDA Vilhjálmsdóttir opn- ar sýningu í Galleríi Nema hvað, Skólavörðustíg 22c, í dag, föstudag. Þar sýnir hún málverk og skissur af kon- unni. Sýningin er opin fimmtu- daga til sunnudaga frá kl. 14- 18 og stendur til 30. nóvem- ber. Gleðigjafi! BÆKUR U n g 1 i n g a s a g a BESTU BARNA-BRAND- ARNIR-SVAKASTUÐ Káputeikning: Hjördís Ólafs- dóttir. Bókaútgáfan Hólar 1999 - 88 síður. ÞETTA er kilja, fjórða bókin í flokki gamanmála fyrir unglinga 10 til 14 ára, segir í kynningu. Eg get fullvissað þá, er að söfnun stóðu, að sjötugur karl, og vel það, veltist um af hlátri við lest- urinn. Já, við áttum saman góða stund bókin og eg, og hún rak á dyr ótta minn við að eg skilji ekki lengur fyndni hinna ungu. Sá ótti minn hefir verið að hlaðast upp, hið innra með mér, fyrir framan sjónvarpsskjá, er eg stari á auglýsta gamanþætti en finn enga hláturtaug titra. En nú brá svo við, að eg hló og hló, hafí þau þökk er til bókarinnar söfnuðu, dýpsta þær fjórar er í formála eru af starfsliði nefndar. Þetta er ekki bók klúrheita eða „tómat- sósubullbrandara“, heldur stend- ur kímnin hér hækjulaus, bæði innlend og erlend; ný og gömul. Víst er erfitt að lýsa kímni, leitum því til bókarinnar í beiðni um hjálp: Dýrafræðikennarinn: „Jæja, Solla mín. Getur þú nefnt mér skepnu sem er tannlaus?" Solla: „Já, langömmu." I Þjóðleikhúsinu: „Af hverju ertu alltaf að klappa? Þetta er ömurlegt leikrit." „Til þess að halda mér vakandi." „Pabbi! Eru mannætur í Borg- arnesi?“ „Nei, af hverju spyrðu?" „Æ, fréttamaðurinn í sjónvarpinu var að segja að stór hluti Borg- nesinga lifði á ferðamönnum." „Mamma! Ef ég er að læra þegar þú kemur aftur viltu þá vera svo væn að vekja mig?“ I fatabúðinni. Viðskiptavinur- inn: „Þessi selskinnsjakki er mjög fallegur að sjá en þolir hann rigningu? Afgreiðslumaðurinn: „Auðvitað! Hefurðu einhvern tí- mann séð sel með regnhlíf?“ Já, hér er vel að verki staðið og úr varð bók, sem margan ungl- inginn mun fýsa að eignast. Hefði prófarkalestur verið ögn betri, þá hefði ég hrópað frábær bók, en verð að láta nægja að skrifa mjög góð bók. Sig. Haukur fólksflutnmgabíll Transit I ^, ' ,,,,1 Ford Transit 10-15 manna Réttu bHarnir þeqar farmurínn er fólk Greið leið inn, nóg pláss, góð sæti, öryggisbelti fyrir alla og sérhver hlutur á réttum stað. Þetta eru þeir kostir sem gera Ford að rétta bílnum þegar farmurinn er fólk. Útkoman er þægindi og öryggi, jafht fyrir ökumann sem farþega. Allir kostir við fjármögnun eru fyrir hendi, þ.á.m. rekstrarleiga. Nýttu þér þjónustu sölumanna okkar við að finna rétta bílinn og útbúa hann eftir þínu höfði. Brimborg Akurcyri 1 Bílcy 1 Betri bílasalan 1 Bílasalan Bílavik | Tvisturinn Tryggvabraut 5, Akureyri Búðareyri 33, Reyðarfirði Hrísmýri 2a, Selfossi Holtsgötu 54, Rcykjancsbæ Faxastlg 36, Vestmannacyjum simi 462 2700 1 sími 474 1453 1 sími 482 3100 | slmi 421 7800 | sfmi 481 3141 Brimborg • Bddshöfða 6 • Simi 515 7000 • www.brimborg.is Ford Econoline Club Wagon 12-15 manna brimborg
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.