Morgunblaðið - 19.11.1999, Síða 66
66 FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBE R 1999 ,
HESTAR
MORGU.NBUADID
Endingargóðir
hestar með sterkar
sinar og góð sinaskil
NOKKRIR þættir í kynbótadóm-
um hafa oft vakið efasemdir þar
sem engar rannsóknir hafa verið
gerðar og vísindalegar upplýsingar
því ekki legið fyrir um þá. Sem
dæmi má nefna fótagerð hesta og
margir hafa velt því fyrir sér hvort
sú fótagerð sem fær hæsta einkunn
sé sú sem endist best. Samkvæmt
rannsókn sem gerð var fyrir
nokkru á 100 hestum, 15 vetra og
eldri, virðist einmitt sú vera raunin.
Rannsóknin fór fram að mestu
fram á Víðidalssvæðinu í Reykja-
vík. Valdir voru 100 hestar, 15
vetra og eldri, sem alltaf hafa verið
í mikilli notkun og sýnt góða end-
ingu. Dæmd var fótagerð þessara
hesta samkvæmt þeim skala sem
notaður er við kynbótadóma.
Agúst Sigurðsson hrossaræktar-
ráðunautur segir að ákveðið hafi
verið að gera þessa rannsókn þar
sem upplýsingar um þetta atriði
skorti verulega. Hingað til hafi
fótagerð verið skilgreind sam-
kvæmt reynslu og engu öðru. „Til-
gátan var sú að ef þessir hestar
sýndu ekkert frávik frá meðaltali
stofnsins hafi það sem dæmt hefur
verið ekkert með endingu að gera.
Ef þeir dæmdust hins vegar hærra
á skalanum benti það til þess að
menn væru að gera eitthvað sem er
í rétta átt,“ sagði Ágúst.
„Og það varð einmitt niðurstað-
an. Þessir endingargóðu gamlingj-
ar dæmdust hærra en meðaltal
stofnsins. Til samanburðar voru at-
hugaðir dómar kynbótahrossa sem
dæmd voru sama ár í Reykjavík,
um það bil sami fjöldi hrossa. Sá
hópur endurspeglaði landsmeðaltal
hvað varðar einkunn fyrir fótagerð.
Munurinn á hópnum ög gamlingj-
unum var tölfræðilega marktækur.
Um árabil hefur verið krossað
við ákveðna eiginleika á dómablað-
inu. Þær athugasemdir sem gerðar
voru við gamlingjana voru að þeir
væru með sterkar sinar og góð
sinaskil. Óneitanlega líður manni
mun betur að vita þetta með
vissu,“ sagði Ágúst.
~~ HUSASKILTI ”
Pöntunarfrestur fyrír
jól er 20. nóvemDer
PIPAR0GSALT
Klapparstíg 44 4 Sími 562 3614
Pljlífcb
, FIRAí
wjóstahali
\ xndónesisKd \
**•*■•' 1 tréstyttui" \
| ^ ^20%atsl__J
Fjöldi aðila með
spennandi vöru á góðu verði.
Ný tilboð alla föstudaga!
KOIAPORTIÐ
Þar sem Ulboóin yiida bara einu slnni
Barna- og unglingastarf í hestamannafélögum
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Kátir krakkar í Mosfellsbæ með Sigrúnu reiðkennara.
Ahugi og stuðningur
sveitarfélaganna
skiptir sköpum
Það vekur athygli og veldur mörgum
áhyggjum hversu fá börn og unglingar eru
skráð í hestamannafélögin í landinu.
Anægjulegar undantekningar er þó að
finna til dæmis hjá Hestamannafélaginu
Herði í Mosfellsbæ, en þar eru langflest
börn og unglingar 16 ára og yngri og
stærsta hlutfall af félögum eða 130 félagar
af 486. A síðasta ársþingi LH fékk Hörður
æskulýðsbikar LH í viðurkenningarskyni
fyrir gott starf. Asdís Haraldsdóttir kynnti
sér í hverju það hefur helst verið fólgið.
GUÐNÝ ívarsdóttir, sem nýlega
hætti sem formaður Harðar, segir
mikla áherslu hafa verið lagða á
barna- og unglingastarfið í félag-
inu, sérstaklega á tveimur undan-
förnum árum. Þar skiptir sköpum
mikill áhugi og stuðningur sveitar-
félagsins við málefnið, einnig góð
aðstaða og góður kennari, en félag-
ið réð Sigrúnu Sigurðardóttur reið-
kennara til að starfa með unga fólk-
inu. Börnum og unglingum í Mos-
fellsbæ er líka boðið að kynnast öll-
um íþróttagreinum sem stundaðar
eru í sveitarfélaginu í skólanum og
er hestamennska þar með talin.
Hestar dreifbýlisbarna
fluttir á milli
Mosfellsbær leigir Hindisvíkur-
reiðhöllina fyrir námskeiðahaldið
og Hörður niðurgreiðir námskeiðs-
gjaldið fyrir börnin. Reyndar bauð
félagið upp á frí námskeið fyrra
veturinn en síðastliðinn vetur
greiddi hvert barn 2.000 krónur.
Félagssvæði Harðar nær einnig
yfir Kjalarnes og Kjós og voru
hestar barna þar sóttir og geymdir
yfír nótt í Mosfellsbænum svo þau
gætu sótt námskeið hjá Sigrúnu. Á
námskeiðunum var börnunum skipt
í hópa eftir getu og auk þess var
boðið upp á keppnisþjálfun. Mikill
áhugi var á því enda sagði Guðný
að þau hefðu verið hvött til að taka
þátt í keppni.
Hún segir að eftir þessa tvo vet-
ur hafi börn og unglingar skilað sér
vel inn í félagið. Einnig hefur félag-
ið boðið upp á sérstakt fjölskyldu-
gjald og fólk hvatt til að skrá alla
fjölskylduna í félagið.
Mosfellsbær - Berlín
„Harðarfélagar voru mjög stoltir
að fá þessa viðurkenningu sem
æskulýðsbikarinn er,“ sagði Guðný.
„Hér hefur verið unnið hörðum
höndum við að efla þetta starf, en
ég held að við hefðum ekki getað
þetta nema vegna þess hve sveitar-
félagið hefur stutt okkur dyggilega.
Einnig njótum við þess að hafa frá-
bæra aðstöðu inni í reiðhöll.“
í sumar fór hópur barna úr
Herði til Berlínar en komið hefur
verið á vinabæjasambandi milli
barna og unglinga í Herði og í Is-
landshestafélaginu í Berlín. Ferðin
tókst mjög vel og fór hópurinn
einnig á heimsmeistaramótið í
Þýskalandi. Næsta sumar eru
væntanlegir um 20 krakkar frá
Berlín til Mosfellsbæjar.
Einnig er reynt að tengja saman
þéttbýlið og dreifbýlið með því að
bjóða upp á sameiginlega reiðtúra
með grillveislu.
Síðastliðið sumar var svo í fyrsta
skipti sérstakt gæðingamót fyrir
börn og unglinga. „Þessi tilraun
tókst vonum frarnar," segir Guðný,
„þrátt fyrir að margir hefðu verið
búnir að spá henni illu. Raunin varð
sú að foreldrarnir, sem margir eru
sjálfir að keppa á sameiginlegum
mótum, höfðu nú nægan tíma fyrir
börnin. Auk þess höfðu börn, sem
ekki eiga sinn eigin hest, aðgang að
góðum keppnishestum sem oft eru
notaðir í fullorðinsflokkum. Stefnt
er að því að hafa þetta fyrirkomu-
lag aftur á næsta sumar.
Guðný segir að nú sé tekin við ný
stjórn í félaginu. Hún segir að
barna- og unglingastarfið sé í góð-
um höndum enda mikill áhugi á að
halda áfram á þessari braut.
Æskulýðsstarf verði eflt
innan félaganna
Æskulýðsnefnd LH hefur nýlega
sent öllum formönnum hesta-
mannafélaga á landinu bréf um að
skipa æskulýðsfulltrúa í hverju fé-
lagi. Þannig telur æskulýðsnefndin
að boðleiðir milli LH og félaganna
verði bættar þar sem æskulýðsfull-
trúi verði nokkurs konar tengiliður
viðLH.
Á 50. ársþingi LH um síðustu
mánaðamót var samþykkt áskorun
frá æskulýðsnefnd þingsins á stjóm
og æskulýðsnefnd LH að beita sér
fyrir því að æskulýðsstarf innan að-
ildarfélaganna yrði eflt með því að
auka fjárstyrk til æskulýðsstarfs og
leita einnig til annarra aðila, t.d.
sveitarfélaga, um fjáröflun. Að láta
útbúa handbók fyrir leiðbeinendur í
æskulýðsstarfi hestamanna þar sem
áhugi ungmenna er virkjaður með
ýmiss konar leikjum og keppni sem
allir geta tekið þátt í til viðbótar við
hinar hefðbundnu keppnisgreinar.
Einnig að við skipulagningu dag-
skrár hestamannamóta sé þess gætt
að jafnræði ríki með öllum keppnis-
flokkum. Þá hvatti ársþingið til þess
að efnt yrði til samráðsfundar með
dómurum og reiðkennurum FT í
unglingastarfi LH. Viðfangsefni
fundarins verði að samræma viðhorf
og vinnubrögð þessara aðila varð-
andi taumhald og ásetu.
í greinargerð með áskoruninni
segir að í skýrslu stjórnar komi
fram að lítil sem engin aukning hafi
verið á fjölda barna og unglinga í
samtökunum þrátt fyrir að félags-
gjöld þeirra til LH væru felld nið-
ur. Ennfremur að mjög lágum fjár- |i
hæðum hafi verið varið til æsku-
lýðsmála hjá LH á síðasta ári. Þar |
sem framtíð samtakanna byggist á
endurnýjun félagsmanna hlýtur að 1
vera forgangsmál að æskulýðsstarfi :
sé vel sinnt.