Morgunblaðið - 19.11.1999, Page 70
MORGUNBLAÐIÐ
70 FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1999
Dýraglens
Hundalíf
Ljóska
Smáfólk
jQjUWtS/YVOofy, 'JJruu Mrt&thiAr
OúbxtMHAs JJjofftmtd, Xo JbCtfL Jl^n^ /ruucju. i i & -n s JjlWL OmeL. tbsL r Atwv ÁA/ M • ! f í 1 m jtit
J&W í? ð
i, III χk
Kæri Snati. Ég hef verið að Veðrið hérna Himininn er blár
Hvað varð um bíða eftir þeim. hefur verið ágætt. og sólin skín.
Adda og Óla?
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Reykjalundur
- arðbærasta
fjárfestingin
Frá Sveini Indriðasyni:
í BLAÐINU Berklavörn, frá ár-
inu 1946, segir Sigurbjörn Einars-
son, þáverandi dósent og síðar
biskup.
„Hlutverk Reykjalundar er eitt
hið göfugasta, sem með höndum
er haft í landi hér.“
Þá hafði Reykjalundur starfað á
annað ár. Þó nú séu breyttir tím-
ar, þá hefur hlutverk Reykjalund-
ar ekkert breyst.
Hugsjónamenn meðal berkla-
sjúklinga hófu byggingu Reykja-
lundar á lýðveldisári 1944. Vinnu-
heimilið tók syo til starfa 1.
febrúar 1945. í sama blaði er
sendibréf frá einum af vistmönn-
um, Júlíusi Baldvinssyni, og segist
honum svo frá:
„1. febrúar 1945 verður mér
löngum minnisstæður. Þann dag
komum við fyrstu vistmennirnir
að Reykjalundi. Það eru ekki mót-
tökurnar, ræðurnar, eða andlitin,
sem ég man. Miklu fremur hugs-
anir mínar, þegar þeim degi var að
ljúka í friði einverunnar, sem kom
mér svo einkennilega fyrir, eftir
að hafa verið „dvalargestur" í átta
manna stofu, síðastliðin þrjú ár.
Allt frá upphafi vega Reykjalund-
ar hefur þjóðin tekið þátt í upp-
byggingu Reykjalundar. Það sást
best á síðasta ári, þegar þjóðin
safnaði svo myndarlega til bygg-
ingar sundlaugar og endurhæfing-
arhúss. Nú fer að koma að fram-
kvæmdum og þá vantar meira fé.
Og það er sannarlega arðbært að
fjárfesta í Reykjalundi. Þeir sem
fjalla um heilbrigðishagfræði hafa
lengi vitað að ekkert er arðbærara
í þjóðfélaginu, en endurhæfing
sjúkra og slasaðra. Það hefur ver-
ið nefnt að þjálfun gigtsjúkra skili
sér tuttugu sinnum aftur til þjóð-
félagsins og gigtsjúkir hafa lengi
verið fjölmennastir þeirra sem til
Reykjalundar leita í þjálfun. I því
góðæri, sem talað er um að þjóðin
búi við, er það ekki sæmandi að
hundruð manna séu á biðlista eftir
þjálfun, meira og minna þjáðir og
óvinnufærir, meðan á biðinni
stendur. Tómas Guðmundsson
segir í einu af sínum ágætu ljóð-
um.
Því meðan til er böl, sem bætt þú gast,
og barist var á meðan hjá þú sast,
er ólán heimsins einnig þér að kenna.
Reykjavíkurdeild SÍBS hét áð-
ur Berklavöm í Reykjavík. Þessi
deild hefur jafnan verið einn af
máttarstólpum SIBS og safnað
miklu fé til Reykjalundar.
í deildinni eru margir af vist-
mönnum Reykjalundar á fyrstu
árunum, afkomendur þeirra og
aðrir velunnarar Reykjalundar.
Þessir liðsmenn Reykjalundar
eiga margir Reykjalundi líf og
heilsu að launa og svo er um ætt-
ingja hinna mörgu, sem Reykja-
lund hafa gist.
Reykjavíkurdeildin mun hafa
opið í herbergi félagsins í Suður-
götu 10, þriðjudaga og fimmtu-
daga kl. 16-18. Þar verður tekið á
móti framlögum til nýbyggingar á
Reykjalundi, nýir félagar boðnir
velkomnir og ætlunin er að reyna
að safna saman myndum, bréfum
og frásögnum frá árum frum-
byggjanna á Reykjalundi.
Við erum sannfærð um að það
sé enn í fullu gildi að vinna undir
hinu góða kjörorði SÍBS, „Styðj-
um sjúka til sjálfsbjargar".
SVEINN INDRIÐASON,
Árskógum 8, Reykjavík.
Gott hjá þér
Pétur Geir
Frá Þórði Ásgeirssyni:
ÞAÐ var gott að sjá í bréfi Guð-
mundar Amar Benediktssonar á
Kópaskeri til blaðsins að trillukarl-
inn Pétur Geir Helgason slægir,
þvær og ísar allan sinn afla á sumr-
in. Það er til fyrirmyndar en breyt-
ir ekki því að sjávarútvegsráð-
herra, Árni M. Mathiesen, hafði
rétt fyrir sér þegar hann lýsti því á
fundi Landssambands smábátaeig-
enda að mjög algengt sé að trillu-
karlar geri þetta ekki. Eg sé ekki
betur en að við Guðmundur og Pét-
ur séum allir sammála um að það
hafi verið spor aftur á bak þegar
slægingarskyldan yfir sumarið var
afnumin og því skil ég ekki útúr-
snúning þeirra félaga á orðum sjáv-
arútvegsráðherra sem einmitt var
að boða endurskoðun á reglum um
aflameðferð smábáta.
Og til að verða við tilmælum
Guðmundar Amar vil ég upplýsa að
ég átti sæti í nefnd þeirri sem ráð-
lagði þáverandi sjávarútvegsráð-
herra að afnema slægingarskyld-
una. Ég skilaði þar séráliti þar sem
ég varaði við slíkri breytingu á
reglunum og taldi hana myndi leiða
til verri aflameðferðar eins og ég
held að hafi komið á daginn.
ÞÓRÐUR ÁSGEIRSSON,
fiskistofustjóri.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.