Morgunblaðið - 23.11.1999, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 23.11.1999, Blaðsíða 39
u 38 ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1999 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. OVENJULEG FJÁRFESTING ISLENZK fyrirtæki og fjárfestar hafa sótt fram á erlend- um vettvangi í stórauknum mæli eftir að aukið frelsi í viðskiptum hélt innreið sína í efnahagslíf landsmanna ekki sízt í gjaldeyrismálum. Aður fyrr voru það fyrst og fremst stóru sölusamtök sjávarútvegsins sem fjárfestu erlendis með byggingu verksmiðja. Nú til dags er það fjölbreyttur hópur fyrirtækja, sem kaupir erlend fyrirtæki að fullu eða hluti í þeim, svo og festa margir íslendingar fé á erlendum verðbréfamörkuðum. Stórtækastir í þeim efnum eru lífeyr- issjóðirnir sem sækjast þannig eftir góðri ávöxtun og dreif- ingu áhættu. Segja má að alþjóðavæðing íslenzks viðskipta- lífs sé hafin fyrir alvöru. Fullyrða má að sérstæðasta fjárfesting íslendinga er- lendis til þessa séu kaupin á enska knattspyrnufélaginu Stoke City. Augljóslega er þar um mikla áhættufjárfest- ingu að ræða enda var fjárhagur félagsins erfiður og frammistaða þessa fornfræga félags í ensku deildarkeppn- inni í mikilli lægð. Ljóst er einnig að kaupin á Stoke City byggjast að verulegu leyti á tröllatrú fjárfestanna á þjálfar- anum Guðjóni Þórðarsyni sem nýlega lét af störfum sem þjálfari íslenzka landliðsins eftir frækilega frammistöðu þess á alþjóðavettvangi. Kaupum íslenzku fjárfestanna á Stoke City hefur verið vel tekið af heimamönnum í Stoke-on-Trent samkvæmt frá- sögn hér í blaðinu sl. sunnudag. Stuðningsmenn félagsins, ekki síður en fjárfestarnir, gera sér greinilega miklar vonir um að Guðjón Þórðarson geti rifið félagið upp úr lægðinni og komið því úr 2. deild og upp í 1. deild og jafnvel síðar í úrvalsdeildina. Takist það mun hagur fjárfestanna vænkast svo um munar, því það tryggir stórauknar tekjur af aðsókn, auglýsingum og fyrir sýningarrétt í sjónvarpi. Þótt fjárhagur Stoke City hafi verið erfiður um skeið og gengi félagsins slakt er heimavöllur þess nýlegur og talinn einn hinn bezti á Bretlandseyjum. Það á stóran og tryggan hóp stuðningsmanna sem er mikils virði í þeirri uppbygg- ingu sem framundan er. Atvinnuástand er slæmt í heima- högum félagsins og setja margir traust sitt á það að ný sókn knattspyrnuliðsins muni hafa jákvæð áhrif á þróun þar. Hagsmunir íslenzku fjárfestanna og heimamanna fara saman í þeim efnum. ÆTTLEIDD BÖRN ÆTTLEIÐINGUM á börnum frá útlöndum hefur fjölg- að mjög á síðastliðnum árum. Um þessar mundir liggja inni umsóknir frá um 40 hjónum sem er 100% aukn- ing miðað við árin á undan. A undanförnum áratugum hafa hátt í 400 börn verið ættleidd hingað til lands frá 23 lönd- um, flest frá Indlandi. Eins og fram kom í grein hér í blað- inu á föstudaginn eru ættleiðingar sem þessar vandasamar, foreldrar og barn ganga í gegnum flóknara ferli en gerist hjá kynforeldrum og barni þeirra og við bætist að umhverf- ið er ekki alltaf vinsamlegt. Fjölgun ættleiðinga er liður í því að íslenskt þjóðfélag er alltaf að verða alþjóðlegra. Að mestu leyti hefur gengið vel að aðlagast þessari þróun en ýmis vandamál hafa komið upp sem fyrst og fremst stafa af andvaraleysi. Þannig virð- ist því farið um stöðu íslenskukennslu fyrir útlendinga og bága stöðu nýbúa í menntakerfínu sem greint var frá hér í blaðinu fyrir skömmu; í þeim tilfellum hefur skort á að nægilega skipulega væri staðið að málum og þeim fylgt eft- ir. Hið sama virðist eiga við um ættleidd börn. Fram kom í umfjöllun blaðsins á föstudag að nokkuð skortir á að kjör- foreldrar fái skipulegan undirbúning undir hið nýja hlut- verk og aðstoð eftir að ættleiðing hefur gengið í gegn við að glíma við þau vandamál sem sannarlega koma upp. Hér á landi hafa heldur ekki verið unnar neinar rannsóknir á stöðu ættleiddra barna en rannsókn frá Danmörku sýnir til dæmis að skólaganga þeirra er oft erfíð. Islenskt þjóðfélag þarf að huga vel að þessum málum. Það er mikilvægt að tekið sé vel á móti fólki sem hingað flytur, hvort sem það eru nýbúar eða ættleidd börn. í hverjum einstaklingi býr auður sem má ekki kasta á glæ. Astæðan fyrir þeim vanda sem komið hefur upp virðist fyrst og fremst vera andvara- og þekkingarleysi að ekki sé staðið að málum með skipulegum hætti. Okkur ber að bæta úr því. MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER1999 39 Tengsl sjúkdóma og sílikons í brjóstum kvenna hvorki sönnuð né afsönnuð þrátt fyrir áratuga rannsóknir Milljarðar dollara Dómsúrskurðar er að vænta í málaferlum sem staðið hafa yfír í Bandaríkjunum vegna ætlaðra tengsla milli sílikonfyllinga framleið- andans Dow Corning í brjóstum kvenna og ýmissa sjúkdóma. Spurt er hvort framleið- andinn beri bótaábyrgð á heilsubresti tug- 7 þúsunda kvenna. I hópi þeirra eru allnokkr- •• ar íslenskar konur. Orlygur Steinn Sigur- jónsson þreifaði á málinu og leitaði til nokk- urra aðila sem tengjast því. Reutersl Við bijóstaaðgerðir eru meðal annars notaðir saltvatnspúðar eins og hér sést. Áhætta er fólgin í læknisfræðilegum inngripum af öllu tagi og þar eru aðgerðir á brjóstum ekki undanskildar, að sögn landlæknis. GJALDÞROTASJÓÐUR síli- konframleiðandans Dow Corning hefur verið til með- ferðar hjá gjaldþrotaskipta- rétti í Michigan-fylki um nokkurt skeið og mun alríkisdómari kveða upp úrskurð sinn í lok þessa mánaðar um hvort staðfesta beri samkomulag um greiðslu úr sjóðnum til á annað hund- rað þúsund kvenna í víðri veröld og ýmissa heilsgugæslustofnana. Þeir fjánuunir sem eru til skiptanna nema rúmum fjórum milljörðum dollara. Urskurði dómari að greiða beri úr sjóðnum getur hver kona með sílikon frá Dow Corning vænst þess að fá á miili 12 þúsund og 300 þúsund dollara úr sjóðnum, allt eftir því hversu alvar- lega hún þjáist af sjúkdómum sem deilt er um hvort stafi frá sílikoninu. Þar að auki getur hver kona vænst 25 þúsund dollara fyrir sprunginn eða íekandi sílikonpúða frá fyrirtækinu. Evrópskar konur sem krafist hafa bóta fá 60% af nefndum upphæðum þar sem litið er til kostnaðar við heilsugæslu í Evrópulöndum við ákvörðun bótafjárhæða. Verði úrskurðað að greiða beri úr sjóðnum verður komið til móts við konurriar, sem krefjast bóta fyrir heilsutjón sitt, en tengslin á milli síli- konsins og veikinda kvennanna hafa þó hvorki verið sönnuð né afsönnuð enn. Alríkisdómarinn Arthur Spector lít- ur þannig á málið að komi fram gögn sem sanni að framleiðsluvörur Dow Corning hafi reynst sjúkdómsvaldandi beri fyrirtækinu að gi'eiða bætur, en annars ekki. Þeim konum sem ekkert amar að en bera sílikon í brjóstum sínum frá Dow Corning hefur einnig verið kleift að krefjast bóta úr sjóðnum, ef svo skyldi fara að þær færu að þjást af völdum fylgikvilla sílikonaðgerða síðar meir. Bandaríski lögfræðingurinn Melissa R. Ferrari krefst bóta úr sjóðnum, m.a. fyrir hönd tíu íslenskra umbjóð- enda, og segir hún að enn sé unnt að skrá sig hjá sjóðnum þótt líkurnar á afgi’eiðslu minnki eftir dómsúrskurð- inn hinn 30. nóvember. Áhætta af öllum læknisfræði- legum inngripum Sigurður Guðmundsson landlæknir segir fylgikvilla vegna sílikonaðgerða vera mjög sjaldgæfa. Yfír 97% allra kvenna sem fari í brjóstastækkun verði ekki varar við nokkra kvilla í kjölfarið en engu að síður sé áhætta fólgin í læknisfræðilegum inngripum af öllu tagi og þar eru sílikonaðgerðir ekki undanskildar. „Sílikonbrjóstið getur sýkst eins og allir aðrir aðskotahlutir sem settir eru í fólk, s.s. hjartalokur, gervihné og gervimjaðmir," segir Sigurður. „Það geta komið upp alvai’legar sýkingar og þá er ekki um annað að ræða en að fjarlægja gervibrjóstið.“ Sigurður segir að lengi hafí verið uppi sú tilgáta að sílikonið eða eitt- hvað annað í fyllingunni geti tengst tilurð tiltekins sjúkdóms í hópi svo- kallaðra sjálfsofnæmissjúkdóma. Á ís- lensku hafur hann verið kallaður herslissjúkdómur, en einkenni hans lýsa sér meðal annars í þynningu húð- ar, sérstaklega á fíngrum, tám og í andliti. Sigurður segir' að Dow Corning- málaferlin í Bandaríkjunum hafí einmitt snúist um ætluð tengsl herslis- sjúkdómsins við sílikonfyllingar í brjóstum en bendir á að í faralds- fræðilegri rannsókn, sem birtist í læknatímaritinu New England Jo- urnal of Medicine fyrir fáeinum árum, hafi ekki tekist að sýna fram á ætluð tengsl herslissjúkdómsins við sílikon- fyllingar. „Samkvæmt rannsókninni var jafnlíklegt að konur fengju herslissjúkdóminn hvort sem þær hefðu fengið sílikon í brjóst eða ekki,“ segir Sigurður. Sigurður nefnir eitt sjúkdómsein- kenni til viðbótar sem tengst hefur sílikoni í brjóstum og segir það lýsa sér í þreytu, sleni, hitavellu, skorti á einbeitingu eða því sem kalla mætti sí- þreytu. „Enn hefur málið þó ekki verið skýrt með fullnægjandi hætti þar sem tengsl milli síþreytu og sílikons í brjóstum hafa hvorki verið sönnuð né afsönnuð,“ segir hann. „Ef konur með sílikonbrjóst eru hins vegar með al- varleg einkenni af þessu tagi og ef í húfí ekki fínnast aðrar skýringar á síþreyt- unni þá er eðlilegt að ráðleggja þeim að láta fjarlægja gervibrjóstið." Að sögn dr. Rafns Ragnarssonar, yfirlæknis á lýtalækningadeild Land- spítalans, gangast konur undir sílikon- gerðir af ýmsum ástæðum. Aðalsjúk- lingahópurinn samanstendur af kon- um sem hafa mjög smá brjóst eða eru alveg flatbrjósta og vilja láta stækka brjóst sín. Þessum hópi tilheyra einnig konur sem vilja Iáta breyta ásýnd aflagaðra brjósta sinna t.d. vegna hrörnunar eða barneigna, sem miklar brjóstagjafir hafa fylgt. Sílikonað- gerðir eru einnig mikið notaðar til að byggja upp brjóst kvenna í kjölfar brottnáms vegna krabbameins og í einstaka tilvikum gangast konur undir slíkar aðgerðir vegna vansköpunar. Lifum í grimmum heimi Til lýtalækna leita einnig konur í nokkrum mæli sem hafa heilbrigð brjóst og ekki tiltakanlega smá, en vilja einfaldlega fá stærri brjóst. „Við lifum í grimmum heimi sem markaðssetur kvenímyndina miskunn- arlaust og margar konur falla sem fórnarlömb með tilliti til þeirrar stað- reyndar,“ segir Rafn. Hann segir að- spurður hvort læknar reyni í einhverj- um tilvikum að fá konur til að hætta við fyrirhugaða brjóstastækkun, að í fyrsta lagi gangi langanir kvenna hér- lendis eftir stórum brjóstum ekki út í öfgar og í öðru lagi setjist lýtalæknar ekki dómarasæti í fagurfræðilegum skilningi. „Flestir okkar lýtalæknanna reyna að gefa mjög hlutlæga og læknisfræði- lega mynd af því hvernig óskir kvenna eftir stærri brjóstum horfa við okkur, þ.e. hvaða afleiðingar aðgerðin getur haft.“ Um þá áleitnu spurningu hvort ver- ið sé að setja sílikonbrjóst í ungar konur að lítt óathuguðu máli, segir landlæknir að ekki hafí borist nein kvörtun þess efnis til embættisins, en að hans sögn hefur embættið engu að síður mætt þeirri gagnrýni sem heyrst hefur í þjóðfélaginu um að lýtalæknar séu fullfljótir á sér að verða við óskum ungra kvenna um stærri brjóst. „Við ætlum í samvinnu við lýta- lækna að búa til upplýsingabækling handa konum sem lýtalæknar eru að vinna að til að gefa þeim innsýn inn í það hvers konar aðgerð er um að ræða. Þetta er ekki einföld aðgerð og ákvörðun um hana þarf að taka að vel athuguðu máli. Það vita lýtalæknar og framkvæma því ekki aðgerðina fyrr en sjúklingurinn hefur fengið að hugsa málið. Ef vilji sjúklingsins er hins veg- ar eindreginn og búið er að gera hon- um grein fyrir kostum og göllum við brjóstastækkunina, þá framkvæma læknar auðvitað þessar aðgerðir, því annars færu konurnar eitthvað annað í brjóstastækkun." Fram til þessa hafa konur ekki átt kost á kerfisbundinni fræðslu í formi bæklinga um sílikonaðgerðir, en að sögn Rafns Ragnarssonar eru sjúk- lingar upplýstir um fyrirhugaða að- gerð í viðtalsformi. Þar er rætt um hvað geti komið upp á við skurðað- gerðir almennt og sérstaklega hvað geti farið úrskeiðis við brjóstastækk- anir. „Við sjúklinga mína reyni ég einnig að ræða hugsanlegan endingartíma sílikonpúðanna, sem aldrei er þó hægt að segja ákveðið um fýrirfram, því í sumum tilvikum endast þeir ævilangt og í öðrum ekki. Það er mjög einstak- lingsbundið hvernig líkaminn bregst við þessu framandi efni, en betra efni hefur ekki fundist hingað til og enn- fremur hefur ekki sannast með lækn- isfræðilegum hætti að sílikonið sé skaðvaldur," segir Rafn. Rafn bendir á að þrátt fyrir rúm- lega tveggja áratuga rannsóknir er- lendis hafí ekki enn tekist að skera úr um hvort sílikonið, sem slíkt sé heilsu- spillandi. Rafn segir það ennfremur nokkurn misskilning að telja sílikon- íyllinguna vera eins og blöðru sem gæti sprungið inni í líkamanum og innihald hennar farið inn í hringrás líkamans með tilheyrandi eitiunará- hi’ifum. „Það þykja eðlileg viðbrögð líkam- ans að mynda bandvef utan um gervi- brjóstið eftir aðgerð, en þegar aðgerð er talin hafa misheppnast, hafa við- brögð líkamans orðið óvenjukröftug með þeim hætti að líkaminn hafnar að- skotahlutnum. Líkaminn grípur til ráðstafana til að einangra aðskota- hlutinn með því að mynda bandvefs- himnu utan um brjóstið sem getur gert það að verkum að brjóstið verður mjög hart ef um mikla bandvefsmynd- un er að ræða. Brjóstið getur aflagast og þessu getur fylgt sársauki. Þá má segja að aðgerðin hafí ekki náð sínum tilgangi, en í flestum tilvikum eru brjóstaaðgerðirnar vel heppnaðar og konur fá það sem þær sóttust eftir í upphafi.“ Var komin með sílikon í bæði brjóstin á tveim árum Sigiún Sigurðardóttir, 48 ára fyrr- verandi skrifstofustúlka, fékk sílikon í annað brjóstið árið 1988 eftir brott- nám brjósts vegna krabbameins. Tveimur árum síðar var hitt brjóstið fjarlægt og sett sílikon í það. I kjölfar seinni aðgerðarinnar varð Sigrún 75% öryrki samkvæmt mati Trygginga- stofnunar. Árið 1998 dró enn til tíð- inda þegar æxli í nýrnahettu greindist og það var fjarlægt. „Þótt ekki hafí fengist staðfest að æxlismyndunin hafí orðið vegna lek- andi sílikons, þá segja erlendir vis- indamenn að nýru, lifur og lungu séu líkleg til að skaðast vegna lekandi síli- kons og einnig er talið að ónæmiskerf- ið geti skaddast. Hins vegar er erfitt að sýna fram á tengslin þar sem ekk- ert hefur verið sannað í þessum efnum með óyggjandi hætti,“ segir Sigrún. „Þegar ég fór í sílikonaðgerðirnar fékk ég engar upplýsingar um ending- artíma sílikonpúðanna aðrar en þær að þeir myndu endast ævilangt. Enn- fremur var ekkert rætt um áhættu við aðgerðirnar og hugsanlega fylgi- kvilla." I vor var tekin ákvörðun um að fjar- lægja sílikonpúða úr báðum brjóstum Sigrúnar þar sem heilsu hennar hafði hrakað. Læknar hennar sögðu henni að ekki væri útilokað að heilsubrestur hennar stafaði af völdum sílikonsins. „Ég gerði mér grein fyrir því að sá tími sem framundan var að loknum þessum aðgerðum yrði erfiður og komst þá að raun um að engin aðstaða var fyrir hendi til að hlúa áð andlegi’i líðan minni í kjölfar þessara aðgerða," segir Sigrún. I október árið 1998 fékk Sigrún gef- ins tölvu með nettengingu og leið ekki á löngu uns hún fann óvart upplýsing- ar um Dow Corning-málið í gegnum alþjóðlegan hóp kvenna, sem hafa fengið sílikon í brjóstin. „I ljós kom að íslenskar konur áttu kröfu í sjóð Dow Corning og þegar ég fékk þetta staðfest talaði ég við ís- lenska lögfræðinga. Enginn treysti sér þó til að ganga í málið þar sem það var þeim framandi. Ég leitaði því eftir lögfí-æðingi erlendis og fékk lögfræð- ing í Þýskalandi, sem er fulltrúi kvenna í Austurríki, Sviss, Þýskalandi og Bretlandi. Fjörutíu umsóknir frá íslenskum konum hafa verið afgreidd- ar, en ég er viss um að mun fleiri ís- lenskar konur eiga rétt á bóturn." Sílikonkonur í hópnum Von I maí síðastliðnum stofnaði Sigrún.. hóp sem nefnist Von. I Von eru konur sem eiga það sameiginlagt að hafa gengist undir sílikonaðgerð og sumar þeirra þjást af völdum fylgikvilla eftir aðgerðirnar. Eitt helsta baráttumál þeirra er að konur fái greiðan aðgang að upplýsingum um sílikonaðgerðir. „Við höfum mætt miklum skilningi landlæknis, heilbrigðisráðherra, lyfja- eftirlits ríkisins og lýtalækna en þessir aðilar skilja að upplýsingagjöf til kvenna, sem ætla í sílikonaðgerð hefur verið bágborin fram til þessa. Við í Von reynum að hittast reglulega og höfum tekið saman greinagerð þar sem fram koma ábendingar til lýta- lækna um það sem betur má fara varðandi upplýsingagjöf til kvenna fyrir aðgerð. Við höfum einnig hvatt til þess að gefinn verði út góður upp- lýsingabæklingur varðandi þessar að- gerðir. Ég hef skoðað efni sem komið var á framfæri í gegnum netdoktor.is, hinn nýstofnaða heilsuvef en fannst þó ekki koma fram réttar upplýsingar um málið. Ég skrifaði því landlækni og kvartaði við hann og var hann mér sammála um að sá texti sem þar var skrifaður var ekki aðeins óheppilegur heldur vondur. Eftir því sem land- læknir tjáði mér, hafa ábyrgðarmenn textans lofað að leiðrétta hann og færa hann til raunveruleikans. Við fognum hins vegar heilsuvefnum í heild sinni og því að það skuli vera komið fram efni á íslensku, en betur má ef duga skal,“ segir Sigrún Sigurðardóttir í Von. Uppboð sem hagsfíórnartæki Erlend ríki hafa í auknum mæli farið að nýta sér kosti uppboða við út- hlutun verðmætra réttinda. Segja má að orðið hafí sprenging í notkun uppboða sem hagstjórnartækis á síðustu tíu árum, segir Jón Steinsson. I Astralíu, Nýja-Sjálandi, Bandaríkjunum og víðar hafa uppboð til dæmis verið notuð við úthlutun útvarps-, sjónvarps- og farsímarása; og í Noregi, Bretlandi, Kanada, Bandaríkjunum og víðar hafa uppboð verið notuð við sölu á réttinum til þess að flytja orku um raforkudreifikerfL UMRÆÐAN sem átt hefur sér stað síðasta áratuginn um núverandi físk- veiðistjórnunarkerfí hefur varpað ljósi á þá staðreynd að ríkið getur með lög- gjöf sinni skapað réttindi sem eru mikils virði. Upp á síðkastið höfum við Islendingar reyndar orðið varir við þetta á fleiri sviðum en í sjávarútvegi. Engum dylst að rétturinn til þess að byggja gagnagrunn á heilbrigðissviði sem ríkið hefur nú til úthlutunar er gríðarlega verðmætur. Á undanförnum árum hefur einnig komið í ljós að rétt- urinn til þess að nota örbylgjur til fjar- skipta svo sem sjónvarps- og útvarps- útsendinga eða til þess að flytja símtöl er einnig afskaplega verðmætur. Umræðan um fískveiðistjórnunar- kerfið hefur að miklu leyti snúist um það hvort upphafleg úthlutun veiði- heimilda hafí verið réttlát og sýnist sitt hverjum. Mun minni umræða hef- ur hins vegar farið fram um úthlutun annarra verðmætra réttinda sem ríkið skapar svo sem þeirra sem taldir eru upp hér að ofan. Éf litið er til baka má segja að sú meginregla hafí verið við lýði hér á Is- landi að verðmætum réttindum væri annaðhvort úthlutað af ráðherra eða af nefnd sem skipuð var af ráðherra. Þannig var til dæmis leyfum til þess að reka lyfjaverslun úthlutað af ráðherra þar til slíkur verslunarrekstur var gef- inn frjáls. Innflutningsleyfum var út- hlutað af nefnd þar til innflutningur var gefinn frjáls. Leyfum til þess að reka leigubíla er enn úthlutað af nefnd. Veiðiheimildum er úthlutað af ráð- herra. Utvarpsrásum er úthlutað af ráðherra, o.s.frv. Þessi sama meginregla hefur lengst af einnig verið notuð víðast hvar er- lendis. Á undanförnum árum hefur hins vegar orðið talsverð breyting þar á. Erlend ríki hafa í auknum mæli far- ið að nýta sér kosti uppboða við út- hlutun verðmætra réttinda. Segja má að orðið hafi sprenging í notkun upp- boða sem hagstjórnartækis á síðustu tíu árum. I Ástralíu, Nýja-Sjálandi, Bandaríkjunum og víðar hafa uppboð til dæmis verið notuð við úthlutun út- varps-, sjónvarps- og farsímarása; og í Noregi, Bretlandi, Kanada, Banda- ríkjunum og víðar hafa uppboð verið notuð við sölu á réttinum til þess að flytja orku um raforkudreifikerfi. Uthlutun verðmætra réttinda með uppboði hefur fjóra veigamikla kosti fram yfír hefðbundar leiðir til úthlut- unar: Uppboð tryggir að ríkið mis- muni ekki þegnum sínum við úthlutun réttinda; uppboð tryggir hagkvæma úthlutun réttinda; uppboð á verðmæt- um réttindum er hagkvæm tekjulind fyrir ríkið; og uppboð eru sveigjanleg. Það er, hægt er að hanna uppboð til þess að ná ýmsum öðrum markmiðum en hagkvæmni svo sem dreifðri eign- ai’aðild eða hraðri uppbyggingu ákveðinnar þjónustu. Uppboð tryggir að ríkið mismuni ekki þegnum sínum við úthlutun réttinda Grundvallarmunurinn á úthlutun með uppboði og úthlutun af nefnd er að í uppboði eru reglurnar sem ákvarða úthlutunina, skilyrðin sem bjóðendur þurfa að uppfylla og upp- lýsingarnar sem notaðar eru við út- hlutunina ákveðnar fyrirfram. Þetta gerir það að verkum að þegar búið er að ákvarða reglur uppboðsins hefur ríkið engin tök á því að mismuna bjóð- endum. Ef réttindum er úthlutað af nefnd hefur nefndin alltaf ákveðið svigrúm til þess að meta umsækjendur á hug- lægan hátt (annars væri nefndin ekk- ert annað en uppboðshaldari). Rökin fyi’ir þessu ei’u að nefndin geti notað sveigjaleikann til þess að taka þætti með í reikninginn sem ekki er unnt að byggja inn í reglur uppboðs. Þetta á að leiða til betri úthlutunar, sérstak- lega þegar um flókin vandamál er að ræða. Á móti kemur hins vegar að nefndin getur einnig notað sveigjanleik- ann til þess að mismuna umsækjendum. Og þó svo að okkur þyki oft erfitt að horfast í augu við slíka spillingu þá er nokkuð ljóst þegar horft er til baka að sveiganleiki af þessu tagi hefur oftar en ekki verið notaður í ann- arlegum tilgangi og leitt til mismununar. Það er raunar mikil- vægt að taka fram að samkvæmt þessu eru nánast engin af þeim uppboðum sem ríkið eða fyrirtæki þess halda alvöru uppboð. Lítum til dæmis á Landsvirkjun. Þeg- ar Landsvirkjun heldur uppboð áskil- ur hún sér rétt til þess að taka hvaða boði sem er eða jafnvel hafna þeim öll- um. Reglurnar sem Landsvirkjun notar við að taka boðum eru því ekki að öllu leyti fyrirfram ákveðnar heldur kemur huglægt mat þar einnig að verki. Til þess að tryggt sé að uppboð mismuni ekki bjóðendum er nauðsynlegt að út- hlutunarreglurnar sem ríkið notar við uppboð séu algerlega fyrirfram ákveðnar og byggist á engan hátt á huglægu mati. Uppboð tryggir hagkvæma úthlutun réttinda Á undanförnum árum hefur orðið æ algengara að markmið stjórnvalda við úthlutun verðmætra réttinda sé að tryggja hagkvæma nýtingu þeirra. Uthlutun réttinda er hagkvæm ef sá hlýtur réttindin sem skapað getur mest verðmæti með þeim. Uppboð eru sérstaklega vel í stakk búin til þess að ná þessu markmiði. í uppboði hlýtur sá bjóðandi réttindin sem býður best. Bjóðendur hafa því hvata til þess að bjóða hátt verð til þess að auka líkurnar á því að þeir hljóti réttindin. Á móti kemur að geta hvers bjóðanda til þess að bjóða takmarkast af þeim verðmætum sem bjóðandinn getur skapað með réttindunum. Þetta helgast af því að bjóð- endur eru vitaskuld ekki tilbúnir til þess að bjóða hærra verð en í mesta lagi því sem nemur verð- mætunum sem þeir geta skapað með réttindunum (annars tapa þeir á því að hljóta réttindin). Bjóð- andi sem skapað getur mikil verðmæti er því í aðstöðu til að bjóða hærra verð en bjóðandi sem aðeins getur skapað lítil verðmæti. Af þessu leiðir að út- koma uppboðsins verður sú að bjóð- endur bjóða hærra þeim mun meiri verðmæti sem þeir geta skapað. Bjóð- andinn sem skapað getur mest verð- mæti býður því hæst og hlýtur rétt- indin, sem aftur þýðir að útkoma út- boðsins er hagkvæm. Það sem gerir uppboð sérstakt í þessu sambandi er að engin önnur út- hlutunaraðferð veitir umsækjendum jafn sterkan hvata til þess að ljóstra upp hversu mikils virði verðmætin eru að þeirra mati. Þetta er oft lykill að hagkvæmri úthlutun réttinda. I öðrum úthlutunaraðferðum verður að nota aðrar leiðfr til þess að átta sig á því hver umsækjendanna getur skapað mest verðmæti með réttindunum. í mörgum tilfellum hafa umsækjend- urnir mikilvægar upplýsingar um getu sína til þess að skapa verðmæti sem er mjög erfítt að nálgast á annan hátt en Jón Steinsson að láta þá bjóða í réttindin. í þessum tilfellum er uppboð betur til þess fallið en aðrar aðferðir að ná fram hag- kvæmni. Uppboð eru nægilega sveigjan- leg til þess að ná fjölbreyttum markmiðum ríkisins Oft á tíðum er hagkvæmni ekki eina markmið stjórnvalda við úthlutun réttinda. Vel getur verið að aðrir þættir eins og til dæmis dreifð eignar- aðild, hröð uppbygging þjónustu eða jöfn gæði þjónustu til allra lands- manna séu á meðal þeirra markmiða sem stjórnvöld vilja tryggja við út- hlutun réttinda. Uppboð hafa verið gagnrýnd á þann veg að þau séu aðeins nothæf þegar markmið ríkisins er hagkvæmni, þ.e. að þau eigi erfitt með að tryggja önn- ur markmið en hagkvæmni. Þetta er ekki rétt. Einfalt er að byggja alls kyns skilyrði inn í uppboð sem tryggja ýmiss konar önnur mark- mið en hagkvæmni. Þannig má til dæmis byggja reglur um dreifða eign- ai-aðild inn í uppboð eða setja skilyrði um jafna þjónustu til allra landsmanna. Þá má einnig láta uppboðið snúast um eitthvað allt annað en hver sé tilbúinn að greiða hæst verð fyrir réttindin. Eitt frægasta dæmið um þetta er uppboð sem stjórnvöld í Argentínu héldu árið 1993 á réttinum til að setja upp og reka farsímakerfi þar í landi. Samkeppnin var ekki um verð heldur um það hver bjóðendanna væri tilbúinn að setja slíkt kerfí upp og koma því í gang um allt landið á skemmstum tíma. Hópur er- lendra stórfyrfrtækja varð hlut- skarpastur með því að bjóðast til þess að setja slíkt kerii upp á innan við ein- um mánuði. Helstu rökin fyi’ir því að úthluta verðmætum réttindum með nefnd frekar en uppboði er að það sé eina leiðin til þess að tryggja upplýsta ákvörðun. Nefnd getur beðið umsækj- endur um alls kyns gögn sem hún get- ur notað til þess að meta hver um- sækjandanna sé hæfastur. Staðreynd- in er hins vegar sú að reglur uppboðs getur krafist þess að umsækjendur uppfylli alls kyns skilyrði sem gera það að verkum að þeir þurfí að láta af hendi jafn mikið af gögnum og ef nefnd færi yfir umsókn þeirra. Eini raunverulegi munurinn á uppboði og úthlutun af nefnd er að í uppboði verða reglurnar sem farið verður eftir við úthlut réttindanna að liggja fyrir fyrirfram. Úthlutun réttinda með uppboði skapar hagkvæma tekjulind fyrir ríkið Enn einn kosturinn við uppboð sem leið til þess að úthluta verðmætum réttindum er að hún er hagkvæm leið til þess að afla tekna fyrir ríkið. Ríkið aflar stærsta hluta tekna sinna með sköttum. Flestir skattar valda ein- hvers konar óhagkvæmni. Skattar auka kostnað þeirra sem þá borga og letja fólk því til viðskipta. Flestir myndu til dæmis vinna annaðhvort meira eða minna ef þeir þyrftu ekki að borga tekjuskatta og sala á bílum myndi áreiðanlega dragast saman ef tollar væru hækkaðir svo einhver dæmi séu nefnd. Sala á réttindum eins og sala á ríkiseignum hefur aftur á móti engin slík áhrif og er því hag- kvæmari en tekjuöflun með skatt- heimtu. Tekjur sem ríkið fær við upp- boð á réttindum geta því komið í stað annarra tekna sem ríkið aflai- á óhag- kvæman hátt. Reyndar má líta svo á að réttindi sem ríkið skapar með löggjöf sinni séu sameign þjóðarinnar og að það sé því ekki aðeins skylda ríkisins að hámarka arð þjóðarinnar af réttindunum heldur einnig að dreifa arðinum jafnt til allra landsmanna. Þetta er best gert með því að ríkið selji réttindin á uppboði, nái þannig til sín eins stórum hluta að arðinum sem verður til með tilkomu réttindanna og mögulegt er og dreifi síðan tekjunum af uppboðinu til lands- manna, annaðhvort beint, þ.e. með því að senda ávísun til allra landsmanna, eða óbeint, t.d. með skattalækkunum. Hvar ætti ríkið að nota uppboð? Af þessu sést að sterk rök hníga að því að ríkið noti uppboð við úthlutun nánast allra verðmætra réttinda sem það skapar. Mikilvægasta dæmið um slík réttindi hér á landi er án efa veiðiheimildir. Þær ætti ríkið að leigja með uppboði. Önnur mikilvæg dæmi eru útvarps- og sjónvarpsút- sendingarrásir, rétturinn til þess að flytja gögn um símakerfið, rétturinn til þess að ílytja orku um raforku- dreifikerfið (þegar raforkugeirinn hefur verið markaðsvæddur); réttur- inn til að byggja gagnagrunn á heil- brigðissviði. En réttindi af þessu tagi eru ekki það eina sem ríkið ætti að hugleiða að bjóða út. Einnig væri skynsamlegt að bjóða út alls konar rekstur sem nú er á vegum hins opinbera. Þar mætti nefna rekstur flugstöðva, rekstur hafna og jafnvel rekstur skóla og heilsugæslustöðva. Reyndar er reglan sú að ef unnt er að skilgreina á viðun- andi hátt það sem ætlast er til af rekstraraðila eru sterk rök sem hníga að því að ríkið eigi ekki að standa sjálft í rekstrinum heldur bjóða hann út. Slíkt er nokkuð einfalt þegar um flugstöðvar og hafnir er að ræða. Erf- iðara þegar um skóla og heilsugæslu- stöðvar er að ræða. Og því miður verulega flókið þegar um hátækni- sjúkrahús er að ræða. Síðast en ekki síst hníga sterk rök að þvi að ríkið noti uppboð við sölu á eignum og þegar það ræðst í verkleg- ar framkvæmdir. Þetta þarf nánast ekki að taka fram lengur þar sem nú þegar hefur skapast víðtækur skiln- ingur á þessu. Nú er svo komið að all- ar einkavæðingar ríkisins eru fram- kvæmdar með uppboðum. Notkun uppboða sem hagstjórnar- tækis hefur farið vaxandi á síðustu ár- um. Ekki er ýkja langt síðan það tíðk- aðist að stjórnmálamenn sæju um val á verktökum og kaupendum ríkis- eigna. Þetta er sem betur fer liðin tíð. Þessi gi-ein ætti hins vegar að auka skilning lesenda á því að enn er hægt að bæta hagstjórn hér á landi talsvert með því að auka notkun uppboða. Höfundur er hagfræðinenii, sem stundar nám við Princeton-háskóla K. í Bandaríkjunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.