Morgunblaðið - 23.11.1999, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 23.11.1999, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ ÞJONUSTA/FRETTIR ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1999 61 BORGARBÓKASAFNIÐ í GERÐUBERGI 3-6, mán. rim. kl. 9-21, föst. 11-19, laugard. og sunnud. kl. 13-16. S. 557-9122.____________________________________________ BÚSTAÐASAFN, Bústaðakirkju, mán-fim. 9-21, föst 12- 19, laugard. kl. 13-16. S. 553-6270._________________ SÓLHEIMASAFN, Sólheimum 27, s. 553-6814. Ofan- greind söfn og safnið í Gerðubergi eru opin mánud.-fid. kl, 9-21, föstud. kl. 11-19, laugard. kl. 13-16._ GRANDASAFN, Grandavegi 47, s. 552-7640. Opið mád. kl. 11-19, þrið.-fóst. kl. 15-19.________________________ SELJASAFN, Hólmaseli 4-6, s. 587-3320. Opið mád. kl. 11-19, þrið.-mið. kl. 11-17, fim. kl. 15-19, föstud. kl. 11- 17.___________________________________________ FOLDASAFN, Grafarvogskirlgu, s. 567-5320. Opið mád.- fid. kl. 10-20, föst. kl. 11-19, laugard. kl. 13-16._ BÓKABÍLAR, s. 553-6270. Viðkomustaðir víðsvegar um borgina._________________________________________ BÓKASAFN DAGSBRÚNAR: Skipholti 50D. Safnið verð- ur lokað fyrst um sinn vegna breytinga.____ BÓKASAFN KEFLAVÍKUR: Opií mán.-töst. 10-20. Opið laugd. 10-16 yfirvetrarmánuði._______________________ BÓKASAFN KÓPAVOGS, Fannborg 3-6: Mánud.-fimmtud. kl. 10-21, föstud. kl. 10-17, laugard. (1. okt.-30. april) kl. 13-17.___________________ BÓKASAFN SAMTAKANNA ‘78, Laugavegi 3: Opið mán.-fim. kl. 20-23. Laugard: kl. 14-16.___ BORGARSKJALASAFN REYKJAVÍKUR, Tryggvagötu 16: Opið mánudaga til föstudaga kl. 9-12 og kl. 13-16. Sími 563-1770.____________________________________________ LISTASAFN ÍSLANDS, Frfkirkjuvegi. Sýningarsalir, kaffistofa og safnbúð: Opið daglega kl. 11-17, lokað mánudaga. Skrifstofa safnsins og upplýsingar um leið- sögn: Opið alla virka daga kl. 8-16. Bókasafn: Opið þriöjud.-föstud. kl. 13-16. Aðgangur er ókeypis á mið- vikudögum. Uppl. um dagskrá á internetinu: http//www.natgall.is__________________________ LISTASAFN KÓPAVOGS - GERÐARSAFN: Opið daglega kl. 12-18 nema mánud._______________________ LÍSTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR: Safniö er opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Upplýsingar í síma 553-2906.__________________________________ LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR: Borgartúni 1. Opið alla daga frá kl. 13-16. Slmi 563-2530.____ LYFJAFRÆÐISAFNIÐ: Neströð, Seltjarnarnesi. Lokað yfir vetrarmánuðina. Hópar geta skoðað safnið eftir samkomulagi.__________________________________ MINJASAFN AUSTURLANDS, Safnahúsinu Laufskógum 1, Egilsstöðum er opið alla daga nema mánudaga kl. 11- 17 til 1. september. Alla sunnudaga frá kl. 14-17 má rcyna sig við gamalt handbragð í tóvinnu undir leiðsögn eldri borgara. Safnbúð með minjagripum og handverks- munum. Kaffi, kandís og kleinur. Sími 471-1412, net- fang minaust@eldhorn.is.______________________ MINJASAFN ORKUVEITU Reykjavíkur v/rafstöðina v/EUiðaár. Opið á sunnudögum kl. 15-17 og eftir sam- komulagi. S. 567-9009._______________________________ MINJASAFN SLYSAVARNAFÉLAGS ÍSLANDS Þor- steinsbúð við Gerðaveg, Garöi. Opið alla daga í sumar frá kl. 13-17. Hægt er að panta á öðrum tímum í síma 422-7253.________________________________________ IÐNAÐARSAFNIÐ Á AKUREYRI, Dalsbraut 1 er opið frá 1. júní til 31. ágúst kl. 14-18, en lokað á mánudög- um. Sími 462-3550 og 897-0206._______________________ MYNTSAFN SEÐLABANKA/ÞJÓÐMINJASAFNS, Ein- holti 4, sími 569-9964. Opið virka daga kl. 9-17 og á öðr- um tíma eftir samkomulagi.___________________________ NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA KÓPAVOGS, Digranesvegi 12. Opið miðvikud. og laugd. 13-18. S. 554-0630._____ NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ, sýningarsalir Hverfisgötu 116 eru opnir sunnud. þriðjud. fimmtud. og Iaugard. kl. 13.30-16.__________________________________ NESSTOFUSAFN. Yfir vetrartímann er safnið opið sam- kvæmt samkomulagi.___________________________________ NORRÆNA HÚSIÐ. Bókasafnið. 13-18, sunnud. 14-17. Kafíistofan 9-18, mánud. - laugard. 12-18 sunnud. Sýn- ingarsalir: 14—18 þriðjud.-sunnud. Lokað mánud. PÓST- OG SÍMAMINJASAFNIÐ: Austurgötu 11, Hafnar- firði. Opið þriðjudaga og sunnudaga 15-18. Sími 555- _ 4321.______________________________________ RJÓMABÚIÐ á Baugsstöðum. Safnið er opið laugardaga og sunnudaga til ágústsloa frá 1.13-18. S. 486-3369. SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR, Bergstaöastræti 74, s. 551-3644. Sýning á uppstillingum og landslagsmyndum. Stendur til marsloka. Opin laugardaga og sunnudaga kl. 13.30- 16.________________________ SJÓMINJASAFN ÍSLANDS, Vesturgötu 8, Hafnarfirði, er opið laugard. og sunnud. frá kl. 13-17 og eftir samkomu- lagi. S: 565-4442, bréfs. 565-4251, netfang: aog@natm- us.is.___________________________________________ SJÓMINJA- OG SMIÐJUSAFN JÓSAFATS HINRIKSSONAR, Súðarvogi 4. Opið þriðjud. - laugard. _ frá kl, 13-17. S. 581-4677.____________ SJÓMINJASAFNIÐ Á EYRARBAKKA: Hópar skv. samkl. _ Uppl.is: 483-1165, 483-1443._______________ SNORRASTOFA, Reykholti: Sýningar alla daga kl. 10-18. Slmi 435 1490.______________________ STOFNUN ÁRNA MAGNÚSSONAR, Árnagarði v/Suður- götu. Handritasýning er opin þriðjudaga til föstudaga kl. 14-16 til 15. mai.____________ STEINARÍKIÍSLANDS Á AKRANESI: Opið alla daga kl. 13- 18 nema mánudaga. Slmi 431-5566._______ ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS: Opið alla daga nema mánudagakl. 11-17. ______________ AMTSBÓKASAFNIÐ Á AKUREYRI: Mánudaga til fóstu- daga kl. 10-19. Laugard. 10-15._______________ USTASAFNIÐ Á AKUREYRI: Opið alla daga frá kl. 14- 18. Lokað mánudaga._______________ NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ á Akureyri, Hafnarstræti 81. Opið skv. samkomulagi yfir vetrartímann. Hafið sam- band við Náttúrufræðistofnun, Akureyri, í síma 462- 2983.____________________________________ NONNAHÚS, Aöalstræti 54. Opið a.d. kl. 10-17 frá 1. júní -1. sept. Uppl. i slma 462 3555.___________ NORSKA HÚSIÐ í STYKKISHÓLMI: Opið daglega í sum- arfrákl. 11-17.__________________________________ ORÐ PAGSINS__________________________________ Heykjavík simi 551-0000. Akureyri s. 462-1840.________________________ SUNPSTAÐIR __________________________________ SUNDSTAÐIR í REYKJAVÍK: Sundhöllin er opin v.d. kl. 6.30- 21.30, helgar kl. 8-19. Opið í bað og heita potta alla daga. Vesturbæjarlaug er opin v.d. 6.30-21.30, helgar 8- 19. Laugardalslaug er opin v.d. 6.60-21.30, helgar 8-19. Breiðholtslaug er opin v.d. kl. 6.50-22, helgar kl. 8-20. Grafarvogslaug er opin v.d. kl. 6.60-22.30, helgar kl. 8- 20.30. Árbæjarlaug er opin v.d. kl. 6.60-22.30, helgar kl. 8-20.30. Kjalarneslaug opin mán. og fimmt. kl. 11-16. þri., mið. og föstud. kl. 17-21._____________ SUNDLAUG KÓPAVOGS: Opin virka daga 7-22. Laugd. og sud. 8-19. Sölu hætt hálftima fyrir Iokun._ GARÐABÆR: Sundlaugin opin mád.-föst. 7-20.30. Laugd. og sud. 8-17. Sölu hætt hálftíma fyrir lokun._ HAFNARFJÖRÐUR. Suðurbæjarlaug: Mád.-föst. 7-21. Laugd. 8-18. Sud. 8-17. Sundhöll HafnarQarðar: Mád.- föst. 6.30-21. Laugd. og sunnud. 8-12.________ VARMÁRLAUG í MOSFELLSBÆ: Opið virka daga kl. 6.30- 7.45 og kl. 16-21. Um helgar kl. 9-18._ SUNDLAUGIN í GRINDAVÍK:Opið alla virka daga kl. 7- 21 og kl. 11-15 um helgar. Slmi 426-7565._____ SUNDIjAUG KJALANESS: Opin v.d. 6.45-8.30 og 14-22, helgar 11-18._________________________________ SUNDMIÐSTÖÐ KEFLAVÍKUR: Opin mánud.-föstud. kl. 7-21. Laugard. kl.8-17. Sunnud. kl. 9-16._____ SUNDIAUGIN í GARÐI: Opin mán.-föst. kl. 7-9 og 15.30- 21. Laugardaga og sunnudaga. kl. 10-17. S: 422-7300. SUNDLAUG AKUREYRAR er opin v.d. kl. 7-21. Laugard. og sunnud. kl. 8-18. Simi 461-2532.__________ SUNDLAUG SELTJARNARNESS: Opin mád.-föst. 7- 20.30. Laugard. og sunnud. kl. 8-17.30._______ JADARSBAKKALAUG, AKRANESI: Opin mád.-föst. 7- 21, laugd. og sud. 9-18. S: 431-2643._________ BLÁA LÓNIÐ: Opið v.d. kl. 11-20, helgar kl. 10-21. ÚTIVISTARSVÆÐI_______________________________ HÚSDÝRAGARÐURINN er opinn alla daga kl. 10-17. Lokað á miðvikudögum. Kaffihúsið opið á sama tíma. Fjölskyldugarðurinn er opinn sem útivistarsvæði á vet- urna. Sími 5757-800. Tískusýning á Broadway TÍSKUSÝNING verður mið- vikudaginn 24. nóvember á veit- ingahúsinu Broadway. Það er María Lovísa, fatahönnuður, sem sýnir það nýjasta af hönnun sinni fyrir veturinn 1999-2000. Snyrtistofan Guerlain kynnir haust- og vetrai'línuna í förðun og einnig Samsara-ilminn í nýj- um aldamótabúningi. Hár- greiðslustofan Cleo sér um hár- greiðsluna. Húsið opnað kl. 20 og sýningin hefst kl. 20.30. Allir velkomnir. . Fyrirlestur um ofbeldi í samfélaginu og fjölskyldunni Fjöldi kennslu- daga í fram- haldsskólum breytilegur SAMKVÆMT könnun sem Hag- stofa íslands hefur gert var fjöldi reglulegra kennsludaga á síðasta skólaári á bilinu 136 til 152. Könn- unin er byggð á svörum frá 32 framhaldsskólum. I lögum um framhaldsskóla er kveðið á um að kennsludagar skuli ekki vera færri en 145. Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar eru reglulegir kennsludagar fæstir í stúdents- prófsbekkjum tveggja bekkjakerf- isskóla, eða 133. Meðalfjöldi kennsludaga var 142. Auk þeirra voru skertir kennsludagar á bilinu 0-8, eða að jafnaði 3,5. Kennsla féll niður í 0 til 3 daga í skólunum 32, eða að meðaltali í hálfan dag. Akvæði gildandi kjarasamninga framhaldsskólakennara og fjár- málaráðuneytis miða lengd próf- tíma við sex vikur á skólaári. Sam- kvæmt upplýsingum skóla var fjöldi daga sem einungis var varið til prófa og námsmats frá engum (þ.e. próf og námsmat fóru fram á kennsludögum) til 37. Ef litið er á einstaka bekki var fjöldi prófdaga mestur í stúdentsprófsbekkjum tveggja skóla, eða 42. Að jafnaði vörðu skólarnir 27 dögum til prófa- og námsmats. Fyrrgreindir kjarasamningar kennara gera ráð fyrir 175 kennslu- og prófdögum á níu mán- aða starfstíma skóla og auk þess fjórum vinnudögum utan árlegs starfstíma. Vinnudagar kennara alls reyndust á bilinu 174 til 191; þar af 155 til 183 á árlegum starfs- tíma skóla. Meðalfjöldi allra vinnu- daga kennara var 179, en 174 þeirra voru á árlegum starfstíma skóla. --------------- Kvöldganga á fullu tungli í Búrfellsgjá FERÐAFÉLAG íslands efnir í kvöld, þriðjudagskvöldið 23. nóv- ember, til kvöldgöngu á fullu tungli. Brottför er kl. 20 frá BSÍ, aust- anmegin, og Mörkinni 6 og ekið að enda Vífilsstaðahlíðar þaðan sem gengið verður í Búrfellsgjá, falleg- ustu hrauntröð suðvestanlands, m.a. er komið við í Gjárétt. Ef að- stæður leyfa verður hugað að stjörnumerkjum. Þátttakendur eru hvattir til að mæta vel búnir og ágætt er að hafa ljós með. Allir eru velkomnir að vera með, jafnt ungir sem aldn- ir, og er áætluð heimkoma fyrir kl. 23. FYRIRLESTUR um ofbeldi í sam- félaginu og fjölskyldunni undir heit- inu: Hvað liggur að baki? verður haldinn í stofu 101 í Odda fimmtu- daginn 25. nóvember. Fyrirlesari er Marjorie E. White, fyrrverandi pró- fessor við Flórídaháskóla í Banda- ríkjunum. Fyrirlesturinn er á veg- um Rannsóknarstofnunar í Hjúkr- unarfræði, Háskóla Islands. Marjorie A. White er fyrrverandi prófessor við Floridaháskóla og er nú á haustmisseri 1999 Fulbright- kennari við námsbraut í hjúkrunar- fræði, HI. Hún er bæði félagsfræð- ingur og hjúkrunarfræðingur að mennt og hefur stundað rannsóknir við marga háskóla í Bandaríkjun- um. Hún hefur rannsakað og birt efni um fjölskyldufræði í meira en 20 ár og fengið til þess styrki, bæði bandaríska og frá öðrum löndum. Hún er aðalrannsakandi í sam- vinnuverkefni milli Bandaríkjanna og Norðurlanda, „Family Dynamics Nursing Project" sem snýst um rannsóknir á bamafjölskyldum. Síðan 1984 hafa rannsóknarhópar í þessu verkefni athugað fjölskyldur á íslandi, Danmörku, Svíþjóð, Finn- landi, Noregi og Bandaríkjunum til þess að komast að því hvað er líkt og ólíkt með fjölskyldum í þessum löndum og til að geta leiðbeint heil- brigðisstarfsfólki sem stundar fjöl- skyldumeðferð, segir í fréttatO- kynningu. Árið 1995 var dr. White Ful- bright-rannsakandi við háskólann í Tampere þar sem hún ásamt finnskum hjúkrunarrannsekendum bar saman samskipti í þeim fjöl- skyldum þar sem illa var farið með böm og í fjölskyldum þar sem það var ekki gert, í 4 borgum í Finn- landi. Niðurstöður þeirrar rann- sóknar verða m.a. kynntar í fyrir- lestrinum. Fundur um vísindi og guðstrú í Vís- indafélagi Is- lendinga ANNAR fundur Vísindafélags ís- lendinga veturinn 1999-2000 verður haldinn í Norræna húsinu miðviku- daginn 24. nóvember kl. 20.30. Þar flytur Páll Valsson bókmenntafræð- ingur erindi sem hann nefnir Hulduljóð Jónasar, að sætta vísindi og guðstrú. Páll hefur nýverið gefið út ævi- sögu Jónasar Hallgrímssonar, skálds og náttúrufræðings. í fyrir- lestrinum tekur hann á þeim vanda sem upplýstir menn, og ekki síst náttúrufræðingar, stóðu frammi fyrir í trúarlegum efnum á fyrri hluta 19. aldar og kristallaðist loks í þróunarkenningu Darwins 12 árum eftir að Jónas Hallgrímsson var all- ur. Ollum er heimill ókeypis aðgang- ur að fyrirlestrinum. ------♦-♦-♦------ SUS fagnar sölu á FBA SAMBAND ungra sjálfstæðis- manna hefur sent frá sér ályktun þar sem fagnað er því að hlutur rík- isins í Fjárfestingarbanka atvinnu- lífsins hafi verið seldur. í fréttatil- kynningu frá SUS segir að þar með hafi verið gengið frá umfangsmestu einkavæðingarframkvæmd Islands- sögunnar. Jafnframt skorar Sam- band ungra sjálfstæðismanna á rík- isstjórn Davíðs Oddssonar að hefj- ast strax handa við að selja einkaað- ilum þá hluti sem ríkið á enn í við- skiptabönkunum. ------♦-♦-♦------ LEIÐRÉTT Árétting vegna íþróttaleiks TEKIÐ skal fram vegna fréttar af leik Stjörnunar og Víkings í hand- knattleik í 1. deild kai'la að þegar í Ijós kom að mistök höfðu átt sér stað við tímatöku við brottrekstur leikmanns af leikvelli, voru 10 sek- úndum bætt við leiktímann. Dóm- arar leiksins tóku ákvörðun um þetta og gerðu liðin enga athuga- semd við þessa niðurstöðu. Villa í tilvitnun í MORGUNBLAÐINU 4. nóvem- ber var villa í tilvitnun í grein Her- manns Þorsteinssonar. Tilvitnun, sem féll niður, átti að vera svohljóð- andi í upphafi greinai'innar: „... og eins hafa karlmenn hætt eðlilegum mökum við konur og brunnið í losta hver til annars, karlmenn fröndu skömm með karlmönnum og tóku út á sjálfum sér makleg málagjöld villu sinnar". (RÓM 1:26-27). Hlutaðgeigendur eru beðnir vel- virðingar á mistökunum. Rangur söngvari í GREIN um söngdagskrána „Best að borða ljóð“ var sagt að Bergþór Pálsson væri einn af flytjendunum, en það er rangt. Það er Örn Árna- son leikari og söngvari sem flytur lög Jóhanns G. Jóhannssonar við ljóð Þórarins Eldjárns ásamt Sig- rúnu Hjálmýsdóttur og Stefáni Karli Stefánssyni. Seðlabankinn átti frumkvæði að myntsláttu ÓNÁKVÆMNI gætti í frétt á bak- síðu sunnudagsblaðsins þar sem greint er frá myntsláttu til minn- ingar um Leif Eiríksson. Öldung- ardeildarþingmaðurinn Tom Harkin var ekki aðalhvatarmaður að myntsláttunni. Seðlabanki Is- lands átti frumkvæði að málinu og fylgdi Steingrímur Hermannsson bankastjóri því eftir fyrir hönd bankans. Málið strandaði hins veg- ar í öldungardeild Bandaríkja- þings og var Tom Harkin þá beðin um að beita sér fyrir því að þoka málinu áleiðis. Ný blóma- og gjafa- vöruverslun í Grafarvogi NÝ blóma- og gjafavöruverslun, Blómasmiðja Hildu, hefur verið opnuð við Langarima 21 í Grafar- vogi. Eigendur eru Sigurlaug Ás- geirsdóttir, Díana Allansdóttir og Hilda Allansdóttir. Verslunin er opin mánudaga til fimmtudaga kl. 10-21 og föstu- daga, laugardaga og sunnudaga kl. 10-22. Tveir eigenda Blómasmiðju Hildu, þær Díana Allansdóttir og Hilda Allansdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.