Morgunblaðið - 23.11.1999, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1999 63
Fyrir hana
Fyrir hann
POSTSENDUM SAMDÆGURS
Toppskórinn
Veltusundi v/Ingólfstorg,
sími 552 1212.
Fáið sendan
myndalista
MYNDSAUMUR
Hellisgata 17, 220 Hafnarfjörður.
Sími 565 0122.
www.if.is/ myndsaumur
Topptilboð 3.995.-
Teg. 150/98
Stærðir 41-46
Litur: Svartur
verð áðuc
Dr. Sigurbjörn
Einarsson flytur
erindi í Laugar-
neskirkju
í KVÖLD kl. 20 mun Fullorðins-
fræðsla Laugarneskirkju bjóða upp
á opinn fyiirlestur í safnaðarheimil-
inu þar sem dr. Sigurbjörn Einars-
son fjallar um trúarlíf kristinna
manna. Ekki þarf að fjölyrða um
dr. Sigurbjörn en þess heldur vilj-
um við hvetja allt hugsandi fólk til
að fjölmenna í safnaðarheimilið og
njóta þess sem hann hefur fram að
færa. Má geta þess að Fullorðins-
fræðslan er í boði alla þriðjudaga
kl. 20 þar sem tugir fólks koma
saman vikulega til að læra betur á
lífið og bænina.
Kl. 21 er að venju „Þriðjudagur
með Þorvaldi“ lofgjörðar- og bæna-
stund í kirkjuskipi þar sem Þor-
valdur Halldórsson leiðir söng
ásamt Gunnari Gunnarssyni píanó-
leikara, en sr. Bjarni Karlsson flyt-
ur ritningarorð og bæn.
Áskirkja. Opið hús fyrir alla ald-
urshópa kl. 10-14. Léttur hádegis-
verður. Mömmu- og pabbastund í
safnaðarheimilinu kl. 14-16.
Bústaðakirkja. Æskulýðsfélagið
fyrir unglinga í 8. bekk í kvöld kl.
19.30 í félagsmiðstöðinni Bústöð-
um.
Dómkirkja. Barnastarf í safnaðar-
heimilinu kl. 14 fyrir 6-7 ára börn,
kl. 15.30 fyrir 8-9 ára börn og kl. 17
fyrir 10-12 ára börn. Æskulýðsfé-
lag Dómkirkju og Neskirkju. Sam-
eiginlegur fundur í safnaðarheimili
Neskirkju kl. 19.30.
Grensáskirkja. Kyrrðarstund kl.
12.10. Orgelleikur, ritningarlestur,
altarisganga, fyrirbænir. Léttur
málsverður í safnaðarheimilinu eft-
ir stundina.
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúk-
um.
Laugameskirkja. Morgunbænir kl.
6.45. Fullorðinsfræðsla kl. 20.
Markviss kennsla um trú. „Þriðju-
dagur með Þorvaldi" kl. 21. Lof-
gjörðarstund.
Neskirkja. Æskulýðsfélag Nes-
kirkju og Dómkirkju. Sameiginleg-
ur fundur í safnaðarheimili Nes-
kii-kju kl. 19.30. Litli kórinn, kór
eldri borgara kl. 16.30 í umsjón
Ingu J. Backmann og Reynis Jón-
assonar. Nýir félagai’ velkomnir.
Seltjarnarneskirkja. For-
eldramorgunn þriðjudag kl. 10-12.
Árbæjarkirkja. Foreldramorgnar í
safnaðarheimilinu kl. 10-12. Hitt-
umst, kynnumst, fræðumst.
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjón-
usta með altarisgöngu kl. 18.30.
Bænaefnum má koma til sóknar-
prests í viðtalstímum hans. Æsku-
lýðsstarf á vegum KFUM og K og
kirkjunnar kl. 20.
Digraneskirkja. Starf aldraðra kl.
11.15. Leikfimi ÍAK, léttur máls-
SÉRMERKTAR
HÚFUR OG HANDKLÆÐI
KIRKJUSTARF
Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson
Verðlaunahafarnir í þreniur efstu sætum Stórmóts Bridsfélagsins Munins og Samvinnuferða/Landsýnar.
Talið frá vinstri: Gísli Torfason, Jóhannes Sigurðsson, Gísli Þórarinsson, Þórður Sigurðsson, Gunulaugur
Sævarsson og Karl G. Karlsson.
Pantið
tímanlega
fyrir jól.
BRIDS
liinsjón Arnór fi.
Kagnarsson
FÉLAGSHEIMILIÐ AÐ
MÁNAGRUND STÓRMÓT
MUNINS OG SAMVINNU-
FERÐA/LANDSÝNAR
Þijátíu og sex pör - 20. nóvember.
GÍSLI Torfason og Jóhannes Sig-
urðsson sigruðu með nokkrum yfir-
burðum í stórmóti bridsfélagsins
Munins í Sandgerði og Samvinnu-
ferða/Landsýnar sem fram fór sl.
laugardag. Gísli og Jóhannes tóku
snemma forystu í mótinu og héldu
henni til loka með glæsibrag, skor-
uðu 181 stig yfir meðalskor. Spilaður
var Monrad og spiluðu þeir félagar á
íyrsta borði nær allt mótið.
Þátttakan í mótinu var þokkaleg,
eða 36 pör, sem er 6-8 pörum færra
en undanfarin ár og má segja að
mótið hafi staðist þá niðursveiflu
sem verið hefir í mótum sem þessum
að undanförnu. Að þessu sinni vant-
aði nokkur sterk pör sem verið hafa
með undanfarin ár og var það rakið
til stóraimæla tveggja valinkunnra
spilara sl. laugardag.
Lokastaða efstu para í mótinu
varð þessi:
Gísli Torfason - Jóhannes Sigurðss. 181
Þórður Sigurósson - Gísli Þórarinss. 94
Karl G. Karlss. - Gunnlaugur Sævarss. 91
Þröstur Ingimarss. - Sigurjón Tryggvason 90
Hjördís Sigmjónsd. - Kristján Blöndal 77
Símon Símonarson - Sverrir Kristinss. 69
GuðjónSvavar Jenssen - Birkir Jónsson 64
Guðlaugur Sveinsson - Erlendur Jónsson 62
Verðlaun fyrir fyrsta sætið voru
70 þúsund kr., fyrir annað sætið 50
þúsund, þá 20 þúsund, 10 þúsund kr.
og 6 þúsund kr. fyrir 5. sætið. Einnig
eru dregnir út ferðavinningar að
verðmæti 50 þúsund kr. og matar-
vinningar. Eru öll nöfn spilaranna
sett í pott og síðan dregið. Að þessu
sinni unnu Guðni Ingvarsson og
Guðmundur Baldursson ferðavinn-
ingana frá S/L en Björgvin Már
Kristinsson og Hjördís Sigurjóns-
dóttir matarvinningana frá veitinga-
Topptilboð 3.995.-
Teg.7275
Stærðir 36-41
Litur: Svartur
verð áðuL5r99!T,-
Gott úrval af
kuldaskóm
áalla
fjölskylduna
samdægurs
Tannlæknir
ICópavogsbúar og íbúar á stór—
Reykjavíkursvæðinu athugið
Hef opnað tannlæknastofii í Bæjarlind 6,
Kópavogi (í sama húsi og Míra)
Opið alla virka daga
og á milli kl. 9 og 14 á laugardögum.
Tímapantanir í síma 564 6550
Verið velkomin
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, tannlæknir.
verður, helgistund og samvera. Kl.
17 TTT 10-12 ára starf á vegum
KFUM og K og Digraneskirkju.
Fella- og Hólakirkja. Foreldra-
stund kl. 10-12. Starf fyrir 9-10 ára
stúlkur kl. 15-17. Starf fyrir 11-12
ára stúlkur kl. 16.30-17.30.
Grafarvogskirkja. Opið hús kl.
13.30-16 fyrir eldri borgara, kyrrð-
arstund, handavinna, spjall, spil og
kaffiveitingar. Kh-kjukrakkar í
Rimaskóla kl. 17-18 fyrir 7-9 ára
börn. KFUK fyrir stúlkur 9-12 ára
kl. 17.30-18.30. Kirkjukrakkar í
Engjaskóla kl. 18-19 fyrir 7-9 ára
börn. Æskulýðsstarf fyrir unglinga
kl. 20-22.
Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðar-
stund kl. 18.
Kópavogskirkja. Mæðramorgunn í
safnaðarheimilinu Borgum í dag kl.
10-12.
Seljakirkja. Mömmumorgnar kl.
10-12. Opið hús.
Víðistaðakirkja. Aftansöngur og
fyi’h’bænir kl. 18.30. Opið hús fyrir
8-9 ára börn kl. 17-18.30.
Ilafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyr-
ir 10-12 ára börn í Vonarhöfn,
Strandbergi, kl. 17-18.30.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús
kl. 17-18.30 fyrir 7-9 ára börn.
Lágafellskirkja. Foreldramorgun
kl. 9.30-11.30. Umsjón Þórdís og
Þuríður.
Kristniboðssalurinn. Almenn sam-
koma verður í Kristniboðssalnum,
Háaleitisbraut 58, á morgun mið-
vikudag og hefst kl. 20.30. Sigur-
björn Einarsson biskup talar og
Laufey Geirlaugsdóttir syngur ein-
söng. Kaffiveitingar verða í lok
samkomunnar. Öllum heimill að-
gangur.
Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl.
16.30 kirkjuprakkarar (7-9 ára
börn). Æfingar að hefjast fyrir leik-
þátt.
Keflavíkurkirkja. Fjölskyldustund
í Kirkjulundi kl. 10.30-11.30. Helgi-
stund, fræðsla og samfélag fyrir að-
standendur bai'na undir grunn-
skólaaldri. Umsjón Lilja G. Hall-
grímsdóttir djákni og Laufey Gísla-
dóttir kennari.
Grindavíkurkirkja. Foreldramorg-
unn kl. 10-12.
Borgarneskirkja. TTT tíu-tólf ára
starf alla þriðjudaga kl. 17- 18.
Helgistund í kirkjunni sömu daga
kl. 18.15-19.
Krossinn. Almenn samkoma kl.
20.30 í Hlíðasmára 5. Allir vel-
komnir.
Hvammstangakirkja. Æskulýðs-
fundur í kvöld kl. 20.30 á prests-
setrinu.
Hólaneskirkja Skagaströnd. Kl. 10
mömmumorgunn í félagsheimilinu
Fellaborg. Kl. 16 KFUM og KFUK
fyrir börn 9-12 ára.
Kirkjubæjarklaustur. Fyrirbæna-
stund verður í Minningarkapellu sr.
Jóns Steingrímssonar á Kirkjubæj-
arklaustri miðvikudaginn 24. nóv.
kl. 17. Allir hjartanlega velkomnir
til kyrrðar, fyrirbænar og íhugun-
ar.
Laugavegi 56, sími 552 2201.
Safnaðarstarf
húsunum Glóðinni og Við Tjörnina.
Keppnisstjóri og reiknimeistari
var Sveinn Rúnar Eiríksson en um
verðlaunaafhendingu sáu Garðar
Garðarsson og Svala Pálsdóttir. For-
maður Bridsfélagsins Munins er Víð-
ir Jónsson.
Félag eldri borgara í Kópavogi
Þriðjudaginn 16. nóvember var spil-
aður eins kvölds Mitchell-tvímenn-
ingur með þátttöku 24 para og urðu
úrslit þessi í N/S:
Jón Stefánsson - Sæmundur Bjömsson 264
Guðm. Magnúss. - Kristinn Guðmundss. 262
Einar Markússon - Sverrir Gunnarss. 242
Hæsta skor í A/V:
Hannes Ingibergss. - Þórður Jörundss. 264
Asthildur Sigurgíslad. - Lárus Arnórss. 248
Magnús Ingólfss. - Siguróli Jóhannss. 245
Föstudaginn 19. nóv. spiluðu 20 pör
og þá urðu úrslit þessi í N/S:
Lárus Hermannss. - Guðjón Kristjánss. 283
Albert Þorsteinss. - Sæmundur Bjömss. 270
Rafn Kristjánss. - Oliver Kristóferss. 262
Hæsta skor í A/V:
Anton Sigurðss. - Hannes Ingibergss. 245
Sigurleifur Guðjónss. - Þorsteinn Erhngss. 24þ
Ingveldur Viggósd. - Halla Olafsdóttir 240
Meðalskor var 216 báða dagana.
NYK0MIÐ
SKÓUERSLUN
KÓPAV0GS
KAMRAB0RG 3 • SÍMI 5 54 1754