Morgunblaðið - 23.11.1999, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 23.11.1999, Blaðsíða 22
MÓRGUNBLAÐÍÐ 22 ÞRIÐjubÁGUR 23. NÖVEMBER Í999 VIÐSKIPTI Flugleiðir lækka umboðslaun til ferðaskrifstofa úr 9% í 7% Samvinnuferðir íliuga að setja upp áætlunarflug FLUGLEIÐIR hafa tilkynnt um lækkun á umboðslaunum til ferða- þjónustuaðila, úr 9% í 7% sem jafn- gildir um 22% lækkun. Breytingin tekur gildi 1. febrúar á næsta ári. Helgi Jóhannsson, framkvæmda- stjóri Samvinnuferða-Landsýnar, segir þessar vinnuaðferðir með ólíkindum og að til greina komi að Samvinnuferðir-Landsýn setji upp eigið áætlunarflug. „Það er óhugsandi að vinna í þessu rekstrarumhverfí og geta jafnvel átt von á einhliða tilkynn- ingu um enn frekari lækkun um- boðslauna. Þannig gætu Flugleiðir á stuttum tíma rutt allri samkeppni burt. Þessar aðgerðir þeirra bitna ekki jafnt á öllum ferðaskrifstofum þar sem sumar eru í eigu Flugleiða. Lækkun á umboðslaunum færist á milli íyrirtækja og tekjur Flugleiða munu ekki minnka á heildina litið. I ljósi þessa munu Samvinnuferðir- Landsýn kanna ítarlega alla mögu- leika á að bregðast við þessum nýju aðstæðum og kemur þar m.a. til greina að stórauka framboð eigin flugsæta til og frá landinu og þann- ig skapa grundvöll fyrir auknu áætlunarflugi. Það er lífsnauðsyn- legt að samkeppni ríki í flugi og Samvinnuferðir-Landsýn munu ekki láta skáka sér út af markaðn- um með þessum hætti,“ segir Helgi. „Þessi einhliða ákvörðun Flug- leiða er m.a. réttlætt með því að þetta sé að gerast annars staðar í Evrópu," segir Helgi. „Þetta er bara ekki alls kostar rétt því aðeins örfá flugfélög hafa tilkynnt lækkun umboðslauna. Þar íyrir utan er sá reginmunur á að ferðaskrifstofur í Evrópu hafa fleiri valkosti í að selja farseðla fyrir hin ýmsu flugfélög. Benda má á þessu til stuðnings að þegar SAS tilkynnti lækkun um- boðslauna á Norðurlöndum, brugð- ust ferðaskrifstofur við með því að hætta að selja farseðla SAS. Ekki leið á löngu þar til SAS sá sig um hönd og hækkaði umboðslaunin aft- ur. Það er einmitt þessi valkostur sem ekki er fyrir hendi hér á Islandi því að Flugleiðir hafa í skjóli einokunar náð að byggja ein- ir upp áætlunarflug til og frá land- inu,“ segir Helgi Jóhannsson. í samræmi við þróun um allan heim Einar Sigurðsson, framkvæmda- stjóri stefnumótunar- og stjómun- arsviðs Flugleiða, segir lækkunina í samræmi við þróun um allan heim og hluta af stærri endurskipulagn- ingu hjá félaginu. „Flugleiðir eru að freista þess að lækka kostnað við sölu og dreifingu á þjónustu sinni, en hann er hátt í 20% af heildar- kostnaði. Almennt eru raungjöld flugfélaga á niðurleið með aukinni samkeppni. Við höfum verið seinni til í að lækka umboðslaun hér- en víða í kringum okkur og gengið skemur í lækkununum." Einar segir lækkun á raun- tekjum á framleidda einingu hjá flugfélögum síðasta áratuginn um 30%. „Flugleiðir hafa mætt slíkri lækkun með kostnaðarlækkunum, hingað til með því að taka í notkun nýjar flugvélar, innleiða nýja tækni og stækka félagið mjög ört. Með þeim hætti höfum við getað fylgt þessari þróun. Lækkun á umboðs- launum nú er hluti af kostnaðar- lækkunum hjá félaginu," segir Ein- ar. Aðspurður segir Einar það ekki ákveðið hvort söluskrifstofur Flug- leiða taki upp þjónustugjöld í kjölf- ar umboðslaunalækkunarinnar. Aftur á móti sé nú strangt aðhald í rekstri söluskrifstofa Flugleiða og tilraunir til að auka afköst og spamað á öllum sviðum standi yfir. Úrval-Útsýn eykur þjónustu og tekur upp þjónustugjöld Hörður Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Ferðaskrifstofu Is- lands sem rekur Urval-Utsýn og Plúsferðir, segir áhrifin af væntan- legri lækkun umboðslauna til ferðaþjónustuaðila ekki hafa verið metin hjá ferðaskrifstofunni enn sem komið er. „Það gefur þó auga- leið að þóknun okkar lækkar um- talsvert eða um rúm 20%.“ Ferðaskrifstofa Islands á mikil HADEGISVERÐARFUNDUR á Hótel Sögu, Arsal Fimmtudaginn 25. nóvember kl. 12:00-13:30 Nýr heimur endurmenntunar: Menntim á Netinu, þjálfunar- og þekkingarstjórnun (A new World for Corporate Learning: On Line for Education, Training and Knowledge Management) Ræðumaður: Janne A. Lundbladh frá Comvision í Svíþjóð. Jan A. Lundhladh hefur starfað að almannatengslamálum frá 1981. Hann var í tíu ár framkvæmdastjóri hjá Burson-Marstellcr, einu stærsta almannatengslafyrirtæki heims. Þar sérhæfði hann sig í samskipta- kerfum, allt frá fjölmiðlaþjálfun til samskipta vegna áhættustjórnunar. Lundbladh starfaði einnig við almannatcngsl hjá Flugleiðum á árunum 1985-1995. Iíann var einn stofnenda Knowledge Navigators Europe órið 1998. Þá stofnaði Lundbladh einnig samskiptafyrirtœkið Comvision sem cr leiðandi fyrirta:ki á sviði markaðssetningar og almannatengsla í Svíþjóð. Jan A. Lundhladh er BA frá háskólunum í Lundi og Gautaborg. Fundarstjóri: Skúli Mogensen, forstjóri OZ Fundargjald (hádegisverður innifalinn) kr. 2.000,- Fundurinn er opinn en œskilegt er að tilkynna þátttöku fyrirfram í súna 510 7100, með tölvupósti á mottaka@chamber.is eða bréfsíma í 568 6564. ISLENSK-SÆNSKA VERSLUNARRÁÐIÐ — viðskipti við flugfélögin SAS, KLM og British Airways. Sum þessi félög hafa í hyggju að breyta umboðs- launum eða hafa nú þegar breytt þeim. Hörður segir þróunina í þessa átt víða um heim og banda- rísk flugfélög hafa gengið einna lengst. „I stað umboðslauna hafa ferðaþjónustuaðilar tekið upp önn- ur gjöld. Ég geri ráð íyrir að við munum mæta væntanlegum tekju- missi með því að taka upp þjónustu- gjöld. Við munum ekki minnka þjón- ustu til viðskiptavina, heldur auka hana, sérstaklega í sambandi við viðskiptaferðir og þjónustu við stjórnsýsluna," segir Hörður. Fjármálafyrirtæki og 2000-vandinn Ekki búist við teljandi HAGSMUNASAMTÖK á íslensk- um fjármagnsmarkaði og einstök íyrirtæki og stoínanir hafa ákveðið að hafa sama háttinn á hér á landi og í fjölmörgum nágrannaríkjum Islands þar sem ákveðið hefur verið að veita takmarkaða banka- og kauphallarþjónustu um næstkom- andi áramót. Þetta er gert í varúð- arskyni en ekki vegna þess að talin sé hætta á ferðum vegna áhrifa ár- talsins 2000 á tölvukerfi. Afgreiðslustaðir banka, sparis- jóða og annarra lánastofnana (þar með talinna eignarleigufyrirtækja), verðbréfafyrirtækja og Seðlabanka Islands verða lokaðir 31. desember 1999 og 3. janúar 2000. Þá verður viðskiptakerfi Verðbréfaþings Is- lands lokað báða þessa daga. í tilkynningu frá hagsmunasam- tökum á fjármagnsmarkaði kemur fram að með lokuninni 31. desember 1999 gefist kostur á að ljúka upp- gjöri viðskipta fyrir áramót, taka nauðsynleg afrit og grípa til að- gerða ef eitthvað óvænt kemur upp í löndum á austurhveli jarðar þar sem áramótin ganga í garð nokkru fyrr en hér á landi. Afgreiðslustaðir banka og sparisjóða hafa um árabil verið lokaðir fyrsta virkan dag í nýju ári og sú hefð skapar aukið svigrúm tO aðgerða um næstu ára- mót áður en afgreiðslustaðir verða opnaðir á ný ef eitthvað óvænt kem- ur upp í tölvukerfum sem bregðast þarfvið. Þrátt fyrir lokun afgreiðslustaða mun rafræna greiðslumiðlunarkerf- ið starfa eins og vanalega, en ítar- legar prófanir hafa verið gerðar á áföllum kerfinu og í tilkynningu hagsmuna- samtakanna segir að ekkert bendi til annars en að greiðslumiðlunin muni ganga snurðulaust fyrir sig um áramótin. Þannig munu almenn- ingur og fyrirtæki hafa aðgang að hraðbönkum, heimabönkum, fyrir- tækjalínum og öðrum tölvutengdum sjálfsafgreiðslukerfum, auk þess sem unnt verður að nota debetkort og kreditkort með óbreyttum hætti. Fjármálaeftirlitið telur undirbún- ing vel á veg kominn Eitt af verkefnum Fjármálaeftir- litsins er að fylgjast með aðgerðum og viðbúnaði fjármálafyrirtækja vegna 2000-vandans og hefur eftir- litið því hvatt fjármálafyrirtæki til að grípa til viðeigandi ráðstafana. I tilkynningu frá Fjármálaeftirlitinu segir að undirbúningur íslenskra fjármálafyrirtækja vegna 2000- vandans sé vel á veg kominn að mati eftirlitsins, og það telji að ekki sé ástæða tU að ætla að teljandi áföll verði í þjónustu fjármálafyrirtækja um næstu áramót. Þó sé ekld úti- lokað að tímabundnir hnökrar verði á starfsemi einstakra aðUa. Tæplega 180 aðilar heyra undir eftirlit Fjármálaeftirlitsins. Þeirra á meðal eru lánastofnanir, verðbréfa- fyrirtæki, vátryggingafélög og líf- eyrissjóðir. Athuganir Fjármálaeft- irlitsins benda tU þess að breytingar og prófanir á búnaði séu á lokastigi og að þeim verði lokið tímanlega fyrir áramót. Flest mikUvæg kerfi séu þegar tUbúin og margh- séu enn að móta eða ganga frá viðlagaáætl- unum. Ulstein biónusta HÖNNUN / SMÍÐI / VIÐGERÐIR / ÞJÓNUSTA = HÉÐINN E Stórás 6 »210 Garöabæ sími 569 2100 • fax 569 2101 # 50 ára af- mælisráð- stefna Rík- iskaupa RÍKISKAUP standa fyrir hátíðar- ráðstefnu á Grand hóteli í Reykja- vík í dag í tilefni af 50 ára aftnæli stofnunarinnar. „Lykilþættir sem þessi ráðstefna snýst um öðru frem- ur eru spamaður - öryggi - árang- ur,“ segir Óskar Borg, markað- sstjóri Ríkiskaupa, í samtali við Morgunblaðið. Ráðstefnuna setur Geir H. Haarde fjármálaráðherra. A ráð- stefnunni munu ýmsir fyrirlesarar tala, og verðui' m.a. fjallað um út- boðsþjónustu í þróun. „Það er fyrir- liggjandi að útboðsþjónusta í opin- berum rekstri er í mikilli þróun. Þar er byrjað að fylgja stefnumarkandi reglum sem bæði hafa verið settar af ríkisstjórninni og EES-samning- num. Þar er því að komast á mun meiri agi í opinberum innkaupum," segir Oskar. Hann segir að á ráð- stefnunni verði skoðuð staðan bæði hjá ríkinu og sveitarfélögum. Einnig verður á ráðstefnunni fjallað um ýmsar nýjungar í opin- berum innkaupum, þ.á m. umhverf- isvæn ipnkaup og innkaupakort rík- isins. Úttekt ríkisendurskoðunar á rammasamningum og útboðsþjón- ustu Ríkiskaupa, rammasamningar - staða og framtíð, og rafræn við- skipti í opinberum innkaupum - markmið og horfur eru einnig til umfjöllunar á ráðstefnunni. „Hvað rafræn viðskipti varðar er jafnvel að fara í gang verkefni til pnifu á næsta ári, sem mun ganga út á raunveruleg rafræn viðskipti. Þá er ekki aðeins útbúinn tölvu- póstur til að senda pöntun, heldur eni allar fjárhags- og bókunar- færslur pöntunar afgreiddar raf- rænt, allt nema að prenta út reikn- inginn," segii- Óskar. Ráðstefnan er einkum ætluð for- stöðumönnum ríkisstofnana og sveitarfélagá, og fólki sem annast innkaup fyrir þessa aðila. ---♦ ♦♦------- Skýrr selur ÍE 15% í Gagnalind SKÝRR hf. hefur selt öll hlutabréf sín, eða 15,09% hlut, í hugbúnaðar- fyrirtækinu Gagnalind, að því er fram kemur í tilkynningu til Verð- bréfaþings íslands. Kaupandi er Islensk erfðagreining. Hreinn Jakobsson, fram- kvæmdastjóri Skýrr hf., segir verð trúnaðarmál en viðskiptin hafi átt sér nokkurn aðdraganda. „Við töld- um þetta rétta tímann til að selja,“ sagði Hreinn. ------♦-♦-♦----- Milljarðatap Nissan NISSAN bílafyrirtækið hefur skýrt frá 4,95 milljarða dollara tapi á fyrri hluta reikningsársins og spáir 5 milljarða dollara tapi á reikningsárinu í heild. Hins vegar sagði aðalrekstrar- stjóri Nissan, Carlos Ghosn, sem fyrirtækið fékk frá Renault, að reikningsárinu mundi ljúka með góðum árangri í marz, þar sem end- urskipulagningu yrði flýtt. Renault greiddi 5,4 milljarða dollara fyrir 38,6% hlut í Nissan í marz og hefur hafizt handa um rót- tæka endurskipulagningu, sem hef- ur leitt til þess að fimm verksmiðj- um hefur verið lokað og 21.000 starfsmönnum sagt upp. Nissan sagði að tap fyrirtækisins stafaði aðallega af kostnaði við end- urskipulagninguna. Fyrirtækið hyggst koma slétt út í marz 2001.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.