Morgunblaðið - 23.11.1999, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 23.11.1999, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ Verðkönnun Neytendasamtakanna AKUREYRI Jólabærinn Akureyri formlega opnaður Allt að 88%^ verðmunur á framköllun ALLT að 88% munur er á hæsta og lægsta verði við framköllun á 36 mynda filmu samkvæmt verðkönn- un sem Neytendasamtökin gerðu á Akureyri og nokkrum nágranna- byggðum fyrr í þessum mánuði. Verðkönnun var gerð hjá fimm fyrirtækjum á Akureyri, Nýja fUmuhúsinu, Ljósmyndavörum, Pedromyndum, Ljósmyndabúðinni Sunnuhlíð og KEA-Nettó, hjá Ljósmyndastofu Péturs á Húsavík, versluninni Ues á Dalvík og Sigló- Myndum á Siglufirði. Könnunin var gerð 9. nóvember síðastliðinn. Ekki var lagt mat á gæði framköll- unar, en fyrirtækin eru með mis- munandi tæki til framköllunar og framköllunarpappír. Hvað framköUun á 36 mynda filmu varðar kom í ljós að lægsta verðið er í KEA-Nettó, 1.035 krón- ur en hæsta verðið var í Ljós- myndabúðinni Sunnuhlíð, 1.946 krónur. Einnig var ódýrast að framkalla 24 mynda filmu hjá Húsnæði í eign Kaup- félags Þingeyinga auglýst til sölu Aðeins bárust tilboð í Garðars- braut 5 FJÓRAR fasteignir Kaupfélags Þingeyinga, þrjár á Húsavík og ein í Reykjahlíð, voru auglýstar til sölu fyrir skömmu og rann tilboðsfrest- ur út í síðustu viku. Aðeins bárust tilboð í húsnæðið á Garðarsbraut 5, bæði í húsnæðið allt og einstaka hluta þess. Höfuðstöðvar KÞ eru að Garð- arsbraut 5 en um er að ræða tæp- lega 2.700 fermetra skrifstofú- og verslunarhúsnæði. Gamla slátur- húsið, rúmlega 1.500 fermetra hús- næði félagsins á hafnarsvæðinu á Húsavík var einnig auglýst til sölu, svo og þriggja herbergja íbúð á Garðarsbraut 15. Þá var rúmlega 200 fermetra verslunarhúsnæði KÞ í Reykjahlíð auglýst til sölu en þar rekur KEA matvöruverslun í dag. Nettó, 850 krónur, en dýrast í Pedromyndum, 1.450 krónur og er munurinn rúm 70%. Munur á hæsta og lægsta verði þegar um er að ræða framköllun á APS-filmum var frá 25-33% og þá var 25% verðmunur á eftirtökum. KEA-Nettó er með mótttöku á filmum tfl framköllunar, um sjálfs- afgreiðslu er að ræða, viðskiptavin- urinn setur fflmu í poka og merkir sér og setur síðan í kassa. Mynd- imar má svo sækja næsta dag, en hjá öllum öðrum var hægt að fá framköllun samdægurs. Mismunandi ívilnanir Þá er tekið fram að ívilnanir vegna framköllunar eru nokkuð mismunandi hjá fyrirtækjunum. Þannig eru Pedromyndir með kort sem veitir 25% afslátt við þriðju komu með filmu til framköllunar, aukasett við fjórðu komu og svo framvegis og þá geta tryggir við- skiptavinir fengið gullkort eftir eins árs viðskipti sem veitir enn meiri afslátt. Ónnur fyrirtæki í könnuninni láta filmu fylgja við framköllun og að auki fylgir yfir- litsmynd hjá Ljósmyndabúðinni Sunnuhlíð. Sigló-Myndir er eina fyrirtækið sem hvorki eru með af- sláttarkort né ókeypis filmu við framköllun. Galleríið í sveitinni opnað EyjaQarðarsveit. Morgunblaðið. AÐ TEIGI í í Eyjafjarðarsveit var opnað um liðna helgi hand- verkshús sem kallað er Galleríið í sveitinni. Þar eru á boðstólum margskonar handunnir listmun- ir úr postulíni, málmi og tré, einnig ýmiss konar skreytingar, prjónavörur og allra handa handverk. Ragnheiður Ólafsdóttir frá fyrirtækinu Steinum og málmum á Þingeyri sýnir í Galleríinu í sveitinni nú fyrst um sinn, en það er opið daglega frá kl. 13 til 18 fram til jóla. Morgunblaðið/Benjamín Ragnheiður Ólafsdóttir frá Þingeyri og Þorgerður Jónsdóttir Teigi í Eyjafjarðarsveit í nýja handverkshúsinu. Morgunblaðið/Kristján Sannkölluð jólastemmning ríkti í miðbænum er jólabærinn Akureyri var formlega opnaður sl. laugardag. Jólasveinar komnir til byggða JÓLABÆRINN Akureyri var formlega opnaður með viðhöfti sl. laugardag, að viðstöddu miklu Ijölmenni á öllum aldri. Opnun- arhátiðin fór fram í kirkjutröpp- unum við Akureyrarkirkju og á Ráðhústorgi. Eftirvæntingin skein úr augum yngsta fólksins og þá ekki síst eftir að það fréttist að þrír af jólasveinunum, þeir Kjötkrókur, Hurðaskellir og Kertasníkir höfðu fengið leyfi foreldra sinna, Grýlu og Leppalúða, til þess að bregða sér heldur fyrr til byggða en venja er. Þessir þrír heiðurs- menn mættu í miðbænum, tóku lagið fyrir börnin og með börn- unum og gengu svo fylktu liði frá kirkjutröppunum og norður á Ráðhústorg. Börn úr grunnskólum Akur- eyrar söfnuðust saman í kirkju- tröppurnar og sungu þar jólalög undir stjóm Snorra Guðvarðs- sonar kennara og tónlistarmanns og Ingibjargar Stefánsdóttur leikkonu. Sr. Svavar A. Jónsson sóknarprestur flutti hugvekju og að því loknu var kveikt á .jólatré allra barna“ við Akureyrarkirlgu og á jólaljósum í kirkjutröppun- um. Jólatréð og ljósin era gjöf KEA til bæjarbúa. Jólasveinarnir leiddu blysför út á Ráðhústorg, þar sem einnig var dagskrá. Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri flutti ávarp og Kór Menntaskólans á Akureyri söng. Næstu helgar, alveg fram til jóla, verður boðið upp á skemmtilega og fjöl- breytta dagskrá í Jólabænum í miðbæ Akureyrar. En það eru ekki bara rekstraraðilar í mið- bænum sem komnir eru í jóla- skap, því bæjarbúar hafa fjöl- margir einnig sett upp jólaljós í gluggum sínum og görðum og fjölgar skreytingum dag frá degi. Aflaverð- mætið 110 milljónir BALDVIN Þorsteinsson EA, frysti- togari Samherja, kom til Akureyrar á sunnudag eftir 30 daga veiðiferð á íslandsmiðum. Aflinn var rúm 600 tonn upp úr sjó og aflaverðmætið 110 milljónir króna. Uppistaða afl- ans er þorskur, eða um 400 tonn en einnig er karfi og grálúða í afla skipsins. Baldvin Þorsteinsson EA kom víða við í þessari veiðiferð en var þó aðallega á Strandagrunni, sam- kvæmt upplýsingum Morgunblaðs- ins. Einnig var togarinn við veiðar á Halamiðum, Skerjadýpi og á Torg- inu, þar sem vel gekk að veiða karfa og grálúðu. Togarinn heldur til veiða á morgun, miðvikudag. Héraðsdómur Norðurlands eystra Verslunarrekstri KEA breytt í hlutafélag um áramðt Sekur um víta- verðan akstur TVITUGUR karlmaður hefur í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmdur í tveggja mánaða fangelsi, en fullnustu refsingar frestað og hún felld niður haldi hann alménnt skilorð í tvö ár sem og að sæta sviptingu ökuréttar í 6 mánuði. Hann var ákærður fyrir umferðar- og hegningalagabrot fyrr á árinu fyrir að hafa ekið frá Húsa- vík og að bænum Laxamýri síðdegis á jóladag í fyrra á sumardekkjum að aftan, án nægflegrar aðgæslu og of hratt miðað við aðstæður og við það misst stjóm á bifreiðinni í krapi sem var á veginum þannig að hún fór afturábak yfir á rangan vegar- helming í veg fyrir jeppa sem ekið var úr gagnstæðri átt. Við árekstur sem þá varð slasaðist ung stúlka, farþegi í bíl mannsins. Samkvæmt framburði vitna voru aðstæður til aksturs á þessum slóð- um erfiðar, akbrautin hál og á henni krapalag. Sannað þótti með vísan tfl ástands vegar og ökutækis manns- ins að hann hafi ekið bifreiðinni með það miklum hraða að hann hafi ekki haft á henni fullt vald. Gerðist hann þannig sekur um vítaverðan akstur að því er fram kemur í dómi Hér- aðsdóms Norðurlands eystra. Matvöruverslanir KEA í 10 sveitarfélögum STEFNT er að því að breyta versl- unarrekstri Kaupfélags Eyfirðinga í hlutafélag um næstu áramót. Félag- ið rekrn- nú matvöruverslanir í 10 sveitarfélögum, Siglufirði, Olafs- firði, Dalvík, Hrísey, Grímsey, Akureyri, Húsavík, Mývatnssveit, Kópavogi og Reykjavík og í næsta mánuði verður opnuð önnur mat- vöruverslun KEA í Kópavogi, svokölluð Strax-verslun í leiguhús- næði í Hæðarsmára 6. Sigmundur Ófeigsson fram- kvæmdastjóri verslunarsviðs KEA sagði að félagið muni reka þrjár teg- undir verslana í framtíðinni. Nettó- verslanir eru bæði á Akureyri og í Reykjavík, rekstur Hrísalunds á Akureyri og Þingeyjar á Húsavík verður með sama sniði og þá mun félagið reka Strax-verslanir í Kópa- vogi, í Sunnuhlíð og á Byggðavegi á Akureyri, í Matbæ á Húsavík, á Siglufirði, Ólafsfirði og Dalvík. Sig- mundur sagði að reksturinn í Gríms- ey, Hrísey og Reykjahlíð yrði svip- aður og í Strax-verslununum en hins vegar væri markaðurinn á þessum stöðum mun minni en annars staðar og þyrfti að taka mið af því. Nettó-verslanir KEA eru lág- vöruverðsverslanir með þokkalegt vöruúrval, eins og Sigmundur orð- aði það, Strax-verslanirnar eru með langan afgreiðslutíma, takmarkað vöruval en stórt hlutfall ferskvöru. Verslun eins og Hrísalundur býður upp á fjölbreyttara vöruval og þá er meira lagt upp úr kjötborði. Einnig rekur KEA kostverslun fyrir skip innan verslunarsviðsins. „Við erum ekki komnir með nafn á hlutafélagið og ekki heldur á þess- ar verslanir eins og Hrísalund og Þingey. En við horfum einnig tfl þess að Samland, birgðastöð versl- unarsviðs KEA, taki einhverjum breytingum," sagði Sigmundur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.