Morgunblaðið - 23.11.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.11.1999, Blaðsíða 1
267. TBL. 87. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FBI-menn til Egyptalands Washington, Kaíró. Thc Daily Telegraph, AP. AÐSTOÐARFLUGMAÐUR egypsku Boeing-vélarinnar sem hrapaði við Massachusetts fór 14 sinnum af ákefð með bænarorðin „Eg treysti Guði“ er hann var einn við stýrið. Hópur liðsmanna bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, er farinn til Egyptalands til að aðstoða félaga sína hjá sam- gönguöryggisráðinu bandaríska, NTSB, og flugmálastofnuninni, FAA, við rannsóknina, að sögn bandarísks stjórnarerindreka. Amr Moussa, utanríkisráð- herra Egyptalands, sagði í gær á blaðamannafundi að rannsóknin beindist alis ekki að því að um glæpsamlegan ásetning hefði verið að ræða. „Hér er um að ræða sameiginlega leit að sann- leikanum ... Við eigum samstarf við bandarísku rannsóknaraðil- ana á öllum sviðum,“ sagði Moussa. Getum hefur verið leitt að því að aðstoðarflugmaðurinn hafi viljandi steypt vélinni í hafið og framið þannig sjálfsvíg. The DaHy Telegraph fullyrðir að egypskir sérfræðingar séu sam- þykkir þeirri skýringu en hátt- settir fulltrúar EgyptAir og hershöfðingi í nánum tengslum við Hosni Mubarak Egypta- landsforseta hafi nú verið sendir til Washington og þeir reyni að hindra að ábyrgð verði varpað á EgyptAir og starfsmenn þess. Harðir bardagar við borgarmörk Grosní Urus-Martan, Sleptsovskaya. AFP, AP. ÞUNGAMIÐJA átakanna um yfir- ráð yfir Tsjetsjníu milli stjómar- hers Rússa og aðskilnaðarsinnaðra skæruliða Tsjetsjena færðist í gær að bænum Urus-Martan, rétt utan við borgarmörk Grosní, höfuð- borgar sjálfstjórnarlýðveldisins. Segjast Rússar nú mjög nálægt því að umkringa Grosní. Býst her- stjórnin við því að hafa lokað hringnum í byrjun desember, að sögn Interfax-fréttastofunnar. Samgöngur suður úr Grosní liggja um Urus-Martan og vegna þessa hernaðarlega mikilvægis bæjarins hafa skæruliðar Tsjet- sjena búizt þar til vamar í skot- gröfum. Vörðust þeir árásum stór- skotaliðs og flughers Rússa með sprengjuvörpum og loftvaraaflug- skeytum. AFP hefur eftir rússneskum hermanni á vettvangi rétt utan við Uras-Martan að hann vænti þess að skipun um að taka bæinn verði gefin út í vikunni. Hvattir til að hörfa bardagalaust Straumur flóttamanna frá átakasvæðinu heldur áfram. Yfir 220.000 íbúar Tsjetsjníu hafa nú forðað sér undan hemaðinum, sem hófst fyrir tveimur mánuðum. Tsjetsjenar, sem ekki ráða yfir eins stórvirkum vopnum og Rúss- ar, hafa fram að þessu jafnan hörf- að undan ofureflinu. Segja Rússar 5-6000 skæruliða nú bíða þess í Grosní að láta sverfa til stáls við innrásarliðið. Trúir á Samkomulag Anatolí Kvashnín, yfirmaður rússneska heraflans í Tsjetsjníu, hefur lagt áherzlu á að lið hans muni ekki freista þess að uppræta alla andstöðu í héraðshöfuðborg- inni. Segist hann trúa því að í Grosní fari eins og í öðram tjetjsenskum bæjum sem Rússar hafa tekið, að íbúarnir vilji fyrir alla muni forða því að allt leggist í rúst í bardögum og þrýsti þvi á skæraliðana að hörfa, þannig að hersveitir Rússa geti tekið borgina mótstöðulítið. „Fólk mun komast að samkomu- lagi um þetta við óbótamennina, og við munum hjálpa þeim að gera það,“ sagði Kvashnín í sjónvarps- viðtali. En þar sem Grosní er mikilvæg- asta bækistöð hinna sjálfstæðis- sinnuðu skæraliða er að mati sumra stjórnmálaskýrenda senni- legt að þeir muni freista þess að verjast fram í rauðan dauðann. Clinton hylltur í Búlgaríu Sofia. AP. CLINTON Bandarikjaforseta var vel fagnað af mannfjölda í mið- borg Sofíu, höfuðborgar Búlgaríu, þegar hann kom þangað í opin- bera heimsókn í gær. Hann er fyrsti forseti Bandaríkjanna sem kemur til landsins og sagðist hann við komuna þangað vera stoltur af því. Clinton ávarpaði mannfjölda sem safnast hafði saman við Al- exander Nevski dómkirkjuna í gærkvöldi og bað þá meðal annars fólk um að sýna þolinmæði og búast ekki við því að árangur breyttra stjómarhátta skilaði sér í bættum lífskjörum fyrr en ef til vill eftir nokkra hríð. Fyrr um daginn þakkaði Clin- ton valdhöfum í landinu fyrir stuðning þeirra við stríðsrekstur NATO í Kosovo. Kirkjur lokaðar í landinu helga Nasarct. AP. PRESTUR, til vinstri, útskýrir fyrir einu sóknarbarni sinu að það verði frá að hverfa því kirkja hans, Kirkja hinnar helgu grafar í Jerúsalem, sé lokuð. Kirkjur voru lokaðar um allt fsraelsríki í gær og verða lokaðar í dag til að mótmæla áformum um byggingu mosku nálægt boðunar- kirkjunni í Nasaret, borginni þar sem Jesús ólst upp samkvæmt frá- sögn guðspjallanna. Rannsókn mannréttindabrota á A-Tímor Yfirmenn hersins dregnir til ábyrgðar Jakarta, Dili. AP, AFP. YFIRMAÐUR nefndar á vegum Indónesíustjómar sem ætlað er að rannsaka meinta glæpi indónes- ískra hermanna á Austur-Tímor, sagði í gær að lýrrverandi yfirmenn hersins á eyjunni yrðu leiddir fyrir rétt og látnir svara til saka. Nefndin var sérstaklega skipuð af stjómvöldum í Indónesíu vegna átakanna á A-Tímor sem hófust eft- ir að meirhluti íbúa þar greiddi at- kvæði með sjálfstæði í þjóðar- atkvæðagreiðslu 20. ágúst. Starfshópur á vegum Sameinuðu þjóðanna vinnur einnig að því að rannsaka morð, nauðganir og mannréttindabrot sem íbúar hlið- hollir Indónesíustjóm frömdu á að- skilnaðarsinnum og talið er að her- menn Indónesíu hafi tekið þátt í. Yfirmaður rannsóknamefndar Ind- ónesíustjómar sagði að vinna starfshóps SÞ hefði ekki áhrif á störf nefndarinnar. Samkomulag náðist í gær milli herforingja úr her Indónesíu og yf- irmanna alþjóðlega friðargæsluliðs- ins á A-Tímor um flutning flótta- manna aftur til síns heima sem flúðu yfir til V-Tímor þegar óöldin geisaði. Meira en 250.000 manns frá A-Tímor flúðu yfir til V-Tímor þeg- ar ofsóknimar hófust. Richard Hol- brooke, sendiherra Bandaríkjanna hjá SÞ, var viðstaddur undirritun samkomulagsins og sagðist við það tækifæri vona að það yrði upphafið að sáttum milli deiluaðila. Ólga í Aceh-héraði í gær fundust lík indónesískra lögreglumanna sem byssumenn rændu í Aceh-héraði, sem er vest- asti hluti Indónesíu, lyrr í þessum mánuði. Byssumenn brenndu einn- ig til granna nokkrar byggingar í héraðinu um síðustu helgi, þar á meðal skóla og aðrar opinberar byggingar. Talið er að ódæðisverkin séu lið- ur í baráttu skæraliða aðskilnaðar- sinna í héraðinu og stjómvalda í Jakarta. Abdurrahman Wahid, forseti Indónesíu, hefur lýst sig reiðubúinn til að fallast á allsherjaratkvæða- greiðslu í Aceh-héraði en vitað er að margir aðrir áhrifamenn í ríkinu era því andvígir. I gær útilokaði þannig varnarmálaráðherra lands- ins, Yuwono Sudarsono, að íbúar héraðsins fengju að kjósa um fullt sjálfstæði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.