Morgunblaðið - 23.11.1999, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Borgarstjóraefni ílialdsmaiina í London dregur sig í hlé vegna hneykslismáls
Archer vikið úr þing-
flokki íhaldsmanna
A yfír höfði sér saksókn og allt að tveggja ára fangelsi
*
Breski Ihaldsflokkurmn
er nú í miklum vanda
vegna máls Archers lá-
varðar sem neyddist til
að draga sig í hlé sem
frambjóðandi flokksins í
borgarstjórakosningun-
um í London vegna
hneykslismáls sem gæti
orðið til þess að hann
yrði sóttur til saka fyrir
að leggja stein í götu
réttvísinnar.
London. The Daily Telegraph.
BRESKI rithöfundurinn og stjórn-
málamaðurinn Jeffrey Archer lá-
varður sætir nú lögreglurannsókn
eftir að hafa játað að hafa beðið vin
sinn að bera ljúgvitni í meiðyrða-
máli sem hann höfðaði gegn breska
dagblaðinu The Daily Star fyrir
þrettán árum. Hugsanlegt er einn-
ig að blaðið höfði mál gegn Archer
til að krefjast þess að hann endur-
greiði bætur sem blaðið var dæmt
til að greiða honum vegna ásakana
þess um að hann hefði haft mök við
vændiskonu.
Vísað úr flokknum?
Archer ákvað á laugardag að
draga sig í hlé sem frambjóðandi
Ihaldsflokksins í borgarstjóra-
kosningunum í London á næsta ári
og tilkynnt var í gær að honum
hefði verið vikið úr þingflokknum
vegna málsins. Siðanefnd íhalds-
manna var einnig falið að rannsaka
mál hans og hugsanlegt er að hún
víki honum úr Ihaldsflokknum.
Búist er við fleiri afhjúpunum í
málinu á næstu dögum.
Lögreglan í London staðfesti að
hún hefði hafíð rannsókn á því
hvort Archer hefði lagt stein í götu
réttvísinnar með því að biðja vin
sinn að bera ljúgvitni. Verði hann
ákærður kann hann að verða
dæmdur í allt að tveggja ára fang-
elsi.
The Daily Star hafði verið dæmt
til að greiða Archer hálfa milljón
punda vegna fréttar um að hann
hefði haft mök við vændiskonuna
Monicu Coghlan í september 1986.
Dagblaðið krafðist þess um helgina
að Archer endurgreiddi bæturnar
með vöxtum, tæpa milljón punda,
andvirði 116 milljóna króna. Blað-
inu var einnig gert að greiða allan
málskostnaðinn sem nam 700.000
pundum, andvirði rúmra 80 millj-
óna króna.
Blaðið íhugar nú að fylgja kröf-
unni eftir með því að höfða mál
gegn lávarðinum. Blaðið kann
einnig að áfrýja dómnum í meið-
yrðamálinu en breskir lögspeking-
ar telja ólíklegt að sá kostur verði
valinn.
Vildi vernda „nána vinkonu“
Archer játaði að hafa beðið
gamlan vin sinn, Ted Francis, að
Ijúga því að þeir hefðu snætt kvöld-
verð saman 9. september 1986,
daginn sem The Daily Star hélt því
fram í fyrstu að Archer hefði sofið
hjá vændiskonunnh Francis kvaðst
hafa orðið við beiðni Archers og
sent lögfræðingi hans bréf þess
efnis að þeir hefðu verið á veitinga-
húsi í London umrætt kvöld.
Jeffrey Archer lávarður og eiginkona hans, Mary, aka að heimili sínu í Cambridge á laugardag eftir að
hann ákvað að draga sig í hlé sem frambjóðandi Ihaldsflokksins í borgarstjórakosningunum á næsta ári.
Bréfíð var aldrei lagt fram sem
sönnunargagn í réttarhöldunum
þar sem The Daily Star breytti frá-
sögn sinni og sagði að Archer hefði
verið með vændiskonunni daginn
áður. Archer hafði þegar fengið
fjarvistarsönnun fyrir þann dag.
Archer kvaðst hafa óskað eftir
liðsinni vinar síns til að vernda
„nána vinkonu“ sína, sem hann
hafði snætt kvöldverð með 9. sept-
ember. Að sögn breskra fjölmiðla
var það Andrina Colquhoun, fyrr-
verandi aðstoðarkona Archers,
sem starfaði fyrir hann þar til hann
var skipaður varaformaður íhalds-
flokksins árið 1985.
Verður hugsanlega
saksóttur
Archer telur sig ekki hafa framið
lögbrot þar sem bréfið var aldrei
lagt fram sem sönnunargagn.
Breskir hæstaréttarlögmenn segja
hins vegar að Archer kunni að
verða sóttur til saka fyrir að leggja
stein í götu réttvísinnar þótt bréfið
hafi ekki verið notað sem fjarvist-
arsönnun í réttarhöldunum.
Breskir dómarar hafa tekið
mjög hart á slíkum málum, t.a.m.
var Jonathan Aitken, fyrrverandi
aðstoðairáðherra í stjórn íhalds-
flokksins, dæmdur í 18 mánaða
fangelsi íyrr á árinu fyrir meinsæri
og tilraun til að hindra framgang
réttvísinnar í meiðyrðamáli.
íhaldsmenn kjósa nýtt
borgarstjóraefni
William Hague, leiðtogi íhalds-
flokksins, vonast til þess að geta
dregið úr skaða fiokksins vegna
málsins með því að boða til nýrrar
atkvæðagreiðslu meðal allra félaga
hans í London til að velja nýtt
borgarstjóraefni. Sú ákvörðun er
áfall fyrir Steve Norris, fyrrver-
andi samgönguráðherra, sem varð
í öðru sæti í atkvæðagreiðslu
íhaldsmanna í síðasta mánuði þeg-
ar Archer var valinn borgarstjóra-
efni flokksins.
Norris hafði sagt að hann væri
tilbúinn að taka við af Archer en
sett það skilyrði að ekki yrði efnt
til nýrrar atkvæðagreiðslu. For-
ystumenn íhaldsflokksins voru í
fyrstu hlynntir því að óvissunni
yrði eytt sem fyrst með því að
Norris yrði tilnefndur frambjóð-
andi flokksins. Hague komst hins
vegar að þeirri niðurstöðu að staða
Norris sem frambjóðanda yrði veik
þar sem Verkamannaflokkurinn
gæti lýst honum sem „varaskeif-
unni“ eða „borgarstjóraefninu sem
íhaldsmenn höfnuðu".
Norris er sagður hafa reiðst
Hague vegna ákvörðunarinnar.
Hann gaf þó út varfæmislega orð-
aða yfirlýsingu á sunnudag um að
hann vildi „íhuga“ þátttöku í kjöri
íhaldsflokksins.
Michael Ancram, formaður
flokksins, kvaðst vona að Norris
gæfi kost á sér í kjörið. Hann sagði
að kjömefnd flokksins hefði sam-
þykkt einróma að valið á fram-
bjóðandanum yrði eins „opið og
lýðræðislegt" og mögulegt væri.
Fresturinn til að tilnefna fram-
bjóðendur í kjörinu rennur út 6.
desember og kjömefndin á síðan
að velja tvo menn sem verða í
framboði. Stefnt er að því að nið-
urstaða kjörsins liggi fyrir ekki
síðar en 17. janúar, mánuði áður en
kjörmannaráð Verkamannaflokks-
ins velur borgarstjóraefni stjóm-
arflokksins.
Norris sigurstranglegastur
Norris er talinn líklegastur til að
fara með sigur af hólmi í kjörinu
gefi hann kost á sér. Hann hefur
mikla reynslu af stjórnmálum og
þykir dugmikill baráttumaður í
kosningum og eiga auðvelt með að
höfða til kjósenda.
Talið er að Norris hyggist halda
að sér höndum og ákveða hvort
hann gefi kost á sér í kjörinu eftir
að það skýrist hvaða íhaldsmenn
hyggjast bjóða sig fram. Margir
telja að hann sé það borgarstjóra-
efni sem Verkamannaflokkurinn
óttist mest.
Fortíð hans þykir hins vegar
nokkuð litskrúðug og hugsanlegt
er að íhaldsmenn velji einhvern
traustan frambjóðanda, sem þyki
líklegri til að hafa hreinan skjöld.
Siðanefndin ræddi
ekki fortíð Archers
Þegar Hague var sagt frá nýj-
asta hneykslismálinu á föstudags-
kvöld ákvað hann strax að Archer
yrði að draga sig í hlé og sagði að
hann hefði brugðist flokknum. Lá-
varðurinn hafði þá reynt að fá nán-
ustu bandamenn sína í flokknum til
að reyna að bjarga sér úr vandræð-
unum.
Margir íhaldsmenn óska þess þó
nú að Hague hefði sýnt jafnmikla
röggsemi fyrir tæpum tveim árum
þegar Archer hóf baráttu sína fyrir
því að verða valinn borgarstjóra-
efni flokksins.
Staðfest var um helgina að siða-
nefnd Ihaldsflokksins, sem Hague
kom á fót eftir að hann var kjörinn
leiðtogi flokksins 1997, hefði aldrei
komið saman til að ræða hvort
Archer væri hæfur til að gegna
áhrifamesta embættinu í landinu
utan ríkisstjórnarinnar.
Þetta er ekki í fyrsta sinn á
stjórnmálaferli Archers sem hann
lendir í vandræðum. Hann sagði til
að mynda af sér þingmennsku árið
1974 eftir að hafa tapað andvirði
tæpra 50 milljóna króna á fjárfest-
ingum í Kanada sem gerðu hann
næstum gjaldþrota. Hann sagði
einnig af sér sem varaformaður
íhaldsflokksins árið 1986 eftir að
aðstoðarmaður hans sást afhenda
vændiskonu, sem Archer kveðst
aldrei hafa hitt, andvirði 220.000
króna.
Viðvaranir hunsaðar
Margir höfðu varað við því að
framboð Archer myndi fyrr eða
síðar enda með ósköpum fyrir
íhaldsflokkinn. Michael Crick, sem
skrifaði ævisögu lávarðarins,
skýrði frá því um helgina að hann
hefði skrifað Hague bréf fyrir
hálfu öðru ári til að vara hann við
því að ýmislegt misjafnt ætti enn
eftir að koma fram um fortíð
Archers.
Crick kvaðst hafa vitað um að
minnsta kosti sex fleiri hneykslis-
mál sem gætu komið Archer í koll
og boðist til að skýra Hague frá
öllu sem hann vissi um hann. Hag-
ue hefði ekki einu sinni svarað
bréfinu sjálfur en látið aðstoðar-
mann sinn, Sebastian Coe, skrifa
stutt svarbréf, aðeins þrjár línur,
þess efnis að hann hefði lesið bréf-
ið.
Sir Timothy Kitson, fyrrverandi
þingmaður í kjördæmi Hagues,
lagði einnig fram formlega beiðni
um að siðanefndin rannsakaði feril
Ai-chers en henni var hafnað. For-
ystumenn flokksins sögðu að engin
ástæða hefði þótt til að rannsaka
málið þar sem Sir Timothy hefði
ekki lagt fram neinar nýjar ásak-
anir á hendur Archer og ekki væri
hægt að ætlast til þess að siða-
nefndin færi að grennslast fyrir
um óljósar sögusagnir um mál sem
væru allt að þrjátíu ára gömul.
Þess í stað var ákveðið að for-
maður flokksins færi á fund
Archers til að inna hann eftir því
hvort hann hefði gert eitthvað af
sér sem gæti komið honum í koll í
kosningabaráttunni. „Archer full-
vissaði hann um að svo væri ekki,"
sagði heimildarmaður í starfsliði
flokksins.
Maður „heiðarleika
og ráðvendni“
Margir starfsmenn og þingmenn
Ihaldsflokksins höfðu þó enn efa-
semdir um Archer. Þeir óttuðust
að hann hefði ekki enn gert hreint
fyrir sínum dyram og að of hættu-
legt væri fyrir flokkinn að velja
hann sem borgarstjóraefni. Hague
tók hins vegar áhættuna í von um
að Archer gæti sýnt fram á að
hann hefði hreinan skjöld með því
að ganga í gegnum lýðræðislegar
kosningar meðal félaga flokksins í
London.
Forystumenn íhaldsflokksins
vonuðust einnig til þess að með því
að leýfa Ai-cher að bjóða sig fram
myndu þeir beina athyglinni enn
frekar að „ráðríki“ Tonys Blairs
forsætisráðherra og tilraunum
hans til að koma í veg fyrir að Ken
Livingstone yrði frambjóðandi
Verkamannaflokksins.
Efasemdirnar um Archer innan
Ihaldsflokksins voru augljósar
þegar niðurstaða atkvæðagreiðsl-
unnar var tilkynnt á blaðamanna-
fundi á aðalskrifstofu flokksins í
síðasta mánuði. Hvorki Hague né
Ancram voru á fundinum sem þótti
breytast í skrípaleik þegar Archer
neitaði að svara spurningum um
fortíð sína.
Hague lýsti þó yfir fullum stuðn-
ingi við Archer á flokksþingi
íhaldsmanna í október og lýsti hon-
um sem manni „heiðarleika og ráð-
vendni“. Viðbúið er að breskir
fjölmiðlar minni oft á þau ummæli í
umfjöllun sinni um borgarstjóra-
kosningarnar.
Blair snýr vörn í sókn
Tony Blair gagnrýndi Hague
harkalega vegna málsins í gær og
sagði að hann hefði gerst sekur um
dómgreindarbrest með því að virða
viðvaranirnar um fortíð Archers að
vettugi. Breska dagblaðið The
Daily Telegraph tekur í sama
streng og segir að spurningar
hljóti að vakna um dómgreind
Hagues vegna málsins. „Blair hef-
ur sýnt að hann er heppnasti
stjórnmálamaður kynslóðar sinnar
á meðan íhaldsmenn virðast hvað
eftir annað taka eitt skref framávið
og síðan tvö til baka,“ segir blaðið.
Skýrt var frá því á fimmtudag að
eiginkona Blairs væri barnshaf-
andi og sú frétt beindi athyglinni
frá erfiðleikum stjórnarinnar
vegna Kens Livingstones og vals-
ins á borgarstjóraefni Verka-
mannaflokksins. Búist er við að
fæðing barnsins í maí styrki ímynd
Blairs sem fjölskyldumanns og
verði honum til framdráttar í
næstu kosningum. Meðan Blair-
hjónin böðuðu sig í sviðsljósi fjöl-
miðla út um allan heim með Bill
Clinton Bandaríkjaforseta á ftalíu
um helgina var Hague í herkví
breskra fjölmiðla vegna máls
Archers.
Fjölmiðlar og almenningur virt-
ust hafa misst áhugann á fram-
boðsraunum Livingstones og vand-
ræðagangi Verkamannaflokksins.
Það sannaðist enn einu sinni að
spakmæli Harolds Wilsons, fyrr-
verandi forsætisráðherra, eru enn í
fullu gildi: vika er langur tími í
stjórnmálunum.