Morgunblaðið - 23.11.1999, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 23.11.1999, Blaðsíða 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Tölvuþjónusta Bændasamtak- anna er í þágu allra bænda AÐ GEFNU tilefni vegna fréttar í Mbl. 19. nóv. sl. Bændasamtök Is- lands eiga lögum sam- kvæmt (búnaðarlög) að vinna að leiðbein- ingaþjónustu fyrir bændur með því m.a. að útvega þeim forrit ^ sem hjálpartæki í bú- rekstri og ræktunar- starfi. Undanfarin ár hafa Búnaðarfélag Islands og síðar Bændasam- tökin lagt áherslu á að efla þjónustu í tölvu- málum m.a. með því að útvega bændum tölvuforrit og hvetja bændur til tölvunotkunar. Internetið á eftir að gjörbreyta ráðunautaþjónustunni með því að færa hana „heim í hlað“ til bænda með persónulegri ráðgjöf með gagnvirkum hætti. Núna stendur bændum til boða úrval forrita sem eru hjálpartæki við búreksturinn. '•Bændasamtökin hafa litið á það sem skyldu sína að standa faglega að tölvumálum þannig að bændur eigi þess kost að nýta sér tölvu- tæknina í öllum búgreinum. Það hefur verið stefna þeirra að láta tekjur af forritum standa undir kostnaði við hugbúnaðargerð og þjónustu við þau til lengri tíma lit- ið. Styrkir úr Framleiðnisjóði land- búnaðarins hafa fengist til að standa straum af hluta stofnkostn- aðar sumra forrita, þó ekki allra, . og er það í samræmi við markmið sjóðsins. Þessir styrk- ir hafa auðveldað bændum að eignast forrit á viðráðanlegu verði. Bændur hafa val um það hvort þeir nýta sér þessa þjón- ustu og greiða þá fyrir hana. Bændasamtökin eru í víðtæku sam- starfi við fjölda aðila hérlendis og erlendis til að geta boðið bændum úrvalshug- búnað og þjónustu. Bændasamtökin hafa t.a.m. verið í samstarfi við jjændurna Hjálm- ar Ólafsson í Kárdals- tungu í Vatnsdal um forritun á for- ritinu Fjárvísi í mörg ár, og Pál Eggertsson, kerfisfræðing, á Kirkjulæk 2 í Fljótshlíð, sem vinn- ur að aðlögun á norska forritinu InfoKu fyrir kúabændur. Þá má nefna samstarf við Jónas Kristjánsson, ritstjóra DV og hestamann, um rekstur á Hestan- etbönkunum Veraldarfeng og Hestur.is. Ennfremur hafa Bændasamtökin gert samstarfs- samninga við danska uppboðshúsið DPA, danska tölvufyrirtækið Agr- oSoft, dönsku leiðbeiningamiðstöð- ina í Skejby og norska tölvufyrir- tækið Bratlies Data As. Góð viðbrögð bænda og annarra sýna að mikil þörf er á þessari tölvuþjónustu. Yfir 1.200 bændur nýta sér bókhaldsforritið Búbót, um 400 sauðfjárbændur nota for- ritið Fjárvísi, á fjórða hundrað Tölvuvæðing Ég vona að bændur haldi áfram að vera framsæknir í verkum sínum, segir Jón Baldur Lorange, og tileinki sér tölvutæknina af enn meira kappi en áður. hrossaræktendur í um 12 þjóðlönd- um hafa keypt íslandsfeng, yfir 60% af framleiðslu svínabænda er færð með AgroSoft svínaforritmu, danska DanMink/Fox forritið er notað af loðdýrabændum og bráð- lega bætist við þessa forritaflóru, þegar forrit fyrir kúabændur kem- ur á markað. Að síðustu má nefna jarðræktarforritið NPK sem kom á markað á síðasta ári og bændur og ráðunautar nota við gerð áburð- aráætlana og til skráningar á túna- bók. Eg hefi talið að góð samvinna og sátt sé við öll búnaðarsambönd og búgi-einasamtök um þessa tölvuþjónustu. Um frétt Morgnnblaðsins í frétt í Morgunblaðinu sl. föstu- dag gagnrýnir Hjörtur Hjartar- son, bóndi í Stíflu, stjórnarmaður í Landssambandi kúabænda, full- trúi í fagráði Bændasamtaka ís- lands í nautgi'iparækt og eigandi tölvufyrirtækisins HH hugbúnað- ur ehf. Bændasamtökin harðlega. Gagnrýni hans lýsir vel skoðun hans á samtökum bænda og það verður hann að eiga við sjálfan sig. En gagnrýni hans á Bændasam- tökin fyrir að setja á markað jarð- ræktarforritið NPK er ég fús til að svara. Það er rétt að rifja upp að Búnaðarfélag Islands hafði lagt drög að áburðarfoiTÍti árið 1993, en með tilkomu forrits Hjartar, Brúsks, ákvað félagið að stöðva það verk og bauð Hirti upp á sam- starf um áframhaldandi þróun for- ritsins. Þá mælti Búnaðarfélagið með að Hjörtur fengi umsóttan styrk úr Framleiðnisjóði, sem og hann fékk. Fljótlega varð þó ljóst að ekki var grundvöllur á samstarfi milli Búnaðarfélagsins og Hjartar. í fyrsta lagi töldu fagráðunautar, sem leita var til, forrit Hjartar ekki uppfylla þær faglegu kröfur sem þeir settu, eins og kom fram hjá Ara Teitssyni, formanni Bænda- samtakanna, í umræddri frétt í Mbl. í öðru lagi gátum við ekki samþykkt óraunhæfa_ verðkröfu Hjartar fyrir forritið. I þriðja lagi var Hjörtur ófáanlegur til að gera þær nauðsynlegu forritunarlegu lagfæringar á forritinu sem við fór- um fram á. Það var því ákveðið á árinu 1995 að ráðast í gerð alhliða jarðræktarforrits sem bæði yrði túnabók og aðstoðaði við gerð áburðaráætlunar. Þetta var hins vegar ekki eitt af forgangsmálum í tölvumálum enda vildi Búnaðarfé- lagið gefa Hh1;i tækifæri til að markaðssetja Brúsk, og til þess hefur hann haft heil 5 ár. Ennfrem- Jón Baldur Lorange ur var Hjörtur búinn að láta í veðri vaka, í samtölum okkar á milli, að hann hugsanlega kærði Búnaðar- félagið til Samkeppnisstofnunar ef það markaðssetti forrit í sam- keppni við hann. Er það skoðun Hjartar að Bændasamtök íslands megi ekki þjónusta eða bjóða bændum þjónustu þar sem sam- bærileg þjónusta eða vara er boðin til sölu af honum? I frétt Morgun- blaðsins kemur fram að Bænda- samtökin dreifi forritinu NPK frítt til bænda. Staðreynd málsins er sú að bændur fá jarðræktarforritð NPK frítt í boðí Aburðarverksmið- junnar hf. Aburðarverksmiðjan hf. greiðir hinsvegar Bændasamtök- unum fyrir öll forrit sem hún dreif- ir með þessum hætti. Það er því rangt að halda því fram að þetta sé kostað af búnaðargjaldi eða ríkis- framlagi heldur þvert á móti er einkaaðili sem kaupir forrit af sam- tökum bænda fyrir bændur lands- ins. Bændasamtökin gerðu samn- ing við Aburðarverksmiðjuna hf. um þróun og dreifingu á sérstakri útgáfu af NPK-jarðræktarforrit- inu, þar sem aðeins er hægt að velja áburðartegundir frá Aburð- ai'verksmiðjunni, eins og komið hefur fram. Eftir sem áður er jarð- ræktarforritið NPK til almennrar sölu hjá Bændasamtökunum, þar sem opið er fyrir allar áburðarteg- undir. Að síðustu vona ég að bændur haldi áfram að vera framsæknir í verkum sínum og tileinki sér tölvu- tæknina af enn meira kappi en áð- ur. Það eru svo notendur forrit- anna sem á endanum svara því hvaða forrit lifa eða deyja í hinni hörðu samkeppni á markaðnum. Undir þann dóm hef ég verið óhræddur að leggja hin fjölmörgu forrit Bændasamtakanna. Höfundur er forstöðumaður tölvu- deildar Bændasamtaka íslands. Mat á umhverfisáhrifum - hvað er nú það? MAT Á umhverfis- áhrifum hefur mikið verið í umræðunni að undanförnu. Nýleg skoðanakönnun á vegum Félagsvísind- astofnunar Háskóla Islands um viðhorf landsmanna til stór- iðju og þess sem tengist henni gaf til kynna að nærri 80% landsmanna þekkja lítið eða ekkert til þess hvað felst í mati á umhverfisáhrifum. En hvað er eiginlega mat á umhverfis- áhrifum? Rúnar Dýrmun- dur Bjarnason Axel Valur Birgisson Ferli mats á umhverfisáhrifum, þátttakendur og æskilegt upplýsingastreymi Mat á umhverfisáhrifum: Grýla eða hvað? Mikilvægt er að átta sig á því að lög um mat á umhverfisáhrif- um voru ekki sett til þess að hindra þær framkvæmdir sem -einhver neikvæð áhrif hefðu á umhverfið. I því sambandi má geta að í nær 100 úrskurðum frá Skipulagsstofnun hefur engri framkvæmd verið hafnað frá því að lögin tóku gildi árið 1994. Að líta á mat á umhverfisáhrifum sem tæki framkvæmdaaðila til að knýja framkvæmd í gegn eða tæki umhverfissinna til að hafna framkvæmd er alrangt. Með mati á umhverfisáhrifum er einfald- lega reynt að finna lausnir sem lágmaj'ka og/eða bæta fyrir hugs- anleg umhverfisáhrif sem kunna ~Yað fylgja í kjölfar framkvæmda. Til hvers? Tilgangur með mati á umhverf- isáhrifum er að gera umhverfis- og samfélagsþætti sýnilega í allri umfjöllun um framkvæmdir og leita jafnframt leiða til þess að 'jfbæta og/eða lágmarka hugsanleg áhrif þeirra á umhverfið. Með mati á umhverfisáhrifum er reynt að draga fram allar hliðar fram- kvæmdarinnar, bæði jákvæðar og neikvæðar. Ef um umhverfisrösk- un er að ræða er reynt að leita eftir mótvægisaðgerðum til að lágmarka neikvæð áhrif eins og kostur er. Mótvægisaðgerðir geta til dæmis snúið að því að koma á hreinsunarbúnaði á mengandi starfsemi eða að endurheimta votlendi í stað þess sem skerðist t.d. vegna vegagerðar. Umhverfismat - lögformlegt umhverfismat? Hugtakið mat á umhverfis- áhrifum, sem er réttnefni, er not- að í þessari grein en í þjóðfélags- umræðunni hefur verið notað hugtakið umhverfismat, sem er þó ekki það sama. I mati á um- hverfisáhrifum er umhverfismat aðeins einn þáttur af ferlinu, sem felur í sér mat á umhverfinu, og lýsir grunnástandi á fyrirhuguðu framkvæmdasvæði sem er grund- völlur þess að hægt sé að meta áhrif framkvæmda á umhverfið (sjá mynd). I mati á umhverfisáhrifum er byggt á umhverfismati og sagt fyrir um væntanleg áhrif sem til- tekin framkvæmd kemur til með að hafa á umhverfið og þau áhrif metin. Þessi áhrif geta bæði verið jákvæð og neikvæð þar sem bæði maðurinn og náttúran eru í brennidepli. Einnig hefur hugtakið lögform- legt umhverfismat orðið til í sam- bandi við fyrirhugaða Fljótsdals- virkjun þar sem Landsvirkjun lét gera skýrslu um mat á umhverfis- áhrifum. Munurinn á mati á um- hverfisáhrifum og lögformlegu umhverfismati felst ekki í matinu sjálfu heldur hvort matsskýrslan sem slík fari í gegnum lögbundið ferli hjá Skipulagsstjóra eður ei. Hlutverk almennings Hlutverk almennings í mati á umhverfisáhrifum er mikilvægt og er fyrst og fremst fólgið í að veita framkvæmdaraðilum og Umhverfisáhrif Með mati á umhverfis- áhrifum, segja Rúnar Dýrmundur Bjarnason og Axel Vaiur Birgis- son, er reynt að draga fram allar hliðar fram- kvæmdarinnar, bæði já- kvæðar og neikvæðar. stjórnvöldum aðhald. Þegar til- tekin framkvæmd er auglýst get- ur almenningur kynnt sér mats- skýrslu (frummatsskýrsla) hjá Skipulagsstofnun og fleiri stöð- um, gert athugasemdir og komið þeim á framfæri áður en úrskurð- ur er kveðinn upp. Þátttaka al- mennings hefur hingað til ekki verið áberandi í matsferlinu og orsakast það að hluta til af mis- vísandi umfjöllun í fjölmiðlum, ófullnægjandi kynningu og sinnu- leysi almennings. Samkvæmt lög- unum getur hver sem lætur sig viðkomandi framkvæmd varða gert athugasemdir og sent Skipu- lagsstofnun innan þess frests sem gefinn er. Fólk þarf ekki að vera sérfræðingar í einu eða neinu til að koma með rökstuddar athuga- semdir við fyrirhugaða fram- kvæmd sem er þeim hugleikin á einhvern hátt. Komi í ljós að með framkvæmdinni sé umhverfis- röskun mjög mikil eða að ein- hverjum upplýsingum er ábóta- vant getur Skipulagsstjóri farið fram á frekara mat á fram- kvæmdinni. Á meðfylgjandi mynd er reynt að gera grein fyrir mats- ferlinu á einfaldan hátt og þátt- töku almennings í því ferli. Hlutleysi í mati á umhverfisáhrifum ber framkvæmdaraðili ábyrgð á að gert sé mat sem hann ýmist gerir sjálfur eða fær til þess sérfræðir- áðgjafa. Þannig er tryggt að framkvæmdaraðili hafi yfirsýn yf- ir þá umhverfisþætti sem fylgja framkvæmdinni og með þátttöku Skipulagsstofnunar er tryggt að hlutlaus og fagleg umfjöllun eigi sér stað. Það er því í raun hagur framkvæmdaraðila að fram fari vandað og faglega unnið mat því ófullnægjandi umfjöllun getur leitt til frekari tafa og aukins kostnaðar. I lokin viljum við minna fólk á að kynna sér mat á umhverfis- áhrifum, til dæmis hjá Skipulags- stofnun, Laugavegi 166, þar sem fáanleg eru gögn sem skýra ferlið og/eða á heimasíðu stofnunarinn- ar. Ennfremur liggja skýrslur um auglýstar framkvæmdir frammi í Þjóðarbókhlöðunni. Kynnið ykkur málið! Höfundar starfa sem sérfræðingar í umhverfismdlum hjd Hönnun hf. verkfræðistofu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.