Morgunblaðið - 23.11.1999, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 23.11.1999, Blaðsíða 64
64 ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ Stefán Bergsson drengjameistari Islands SKAk Skáksamband íslands DRENGJA- OG TELPNAMEISTARAMÓT ÍSLANDS 13.-19. nóv. 1999 STEFÁN Bergsson er drengja- meistari Islands í skák 1999. Keppnin var æsispennandi og þurfti aukakeppni og að lokum bráðabana til að skera úr um hver hlyti titilinn. Þrír ungir og efnilegir skákmenn urðu jafnir og efstir á sjálfu meistaramótinu, þar sem röð efstu manna varð eftirfarandi: 1.-3. Stefán Bergsson 7 v. 1.-3. Dagur Arngrímsson 7 v. 1.-3. Birkir Örn Hreinsson 7 v. 4. Guðjón Heiðar Valgarðsson 6'A v. 5. Halldór Brynjar Halldórsson 6 v. 6. -9. Páll Óskar Kristjánsson, Emil Peter- sen, Víðir Petersen, Guðmundur Kjartans- son 5‘/2 v. o.s.frv. Þessi niðurstaða þýddi, að þeir Stefán, Dagur og Birkir Öm þurftu að tefla aukakeppni um meistaratit- ilinn. Aukakeppnin fór fram sl. föstudag og úrslit urðu þessi: Stefán Bergsson 1V4 v. Dagur Amgrímsson IV2 v. Birkir Öm Hreinsson 0 v. Þeir Stefán Bergsson og Dagur Arngrímsson þurftu því að tefla bráðabana um titilinn. Margir áttu von á sigri Dags í þeim keppni vegna frábærrar frammistöðu hans að undanfömu, sem hann kórónaði með því að fá flesta vinninga ís- lensku keppendanna á heimsmeist- aramóti ungmenna sem lauk fyrr í mánuðinum. Spennan var að sjálf- sögðu gífurleg þar sem titillinn valt á úrslitum einnar skákar. Stefán lét þó hvorki spennuna né fyrri afrek keppinautar síns trafla sig og sigr- aði í bráðabananum: Stefán Bergss. - Dagur Arngrímss. 1-0 Stefán Bergsson er því Drengja- meistari Islands í fyrsta sinn. Skák- stjóri í aukakeppninni var Helgi Ólafsson. Sigur Akureyringsins Stefáns Steingríms Bergssonar kann að koma mörgum á óvart þar sem hann atti kappi við marga skák- menn sem meira hafa verið í sviðs- ljósinu fram að þessu. Hann er þó enginn nýgræðingur á skáksviðinu og þetta var ekki fyrsta afrek hans við skákborðið. Þannig er hann t.d. núverandi meistari Skákskóla Is- lands, eftir sigur á meistaramóti skólans í lok maí sl. Meðal kepp- enda á mótinu vora þeir Stefán Kristjánsson og Einar Hjalti Jens- son. Unglingameistaramót íslands Skáksamband íslands hélt ung- lingameistaramót Islands 1999 dag- ana 19.-21. nóvember. Tefldar vora 7 umferðir eftir Monrad-kerfi og umhugsunartíminn var 1 klst. á keppanda. Bjöm Þorfinnsson og Jón Viktor Gunnarsson urðu efstir og jafnir á mótinu með 6 vinninga í 7 skákum. Stefán Bergsson varð þriðji með 5 vinninga og sýndi þar með að ár- angurinn á drengjameistaramótinu var engin tilviljun. Björn og Jón Viktor þurfa að tefla einvígi um tit- ilinn. Lokastaðan á unglingameist- aramótinu varð þessi: 1.-2. Bjöm Þorfinnsson 6 v. 1.-2. Jón Viktor Gunnarsson 6 v. 3. Stefán Bergsson 6 v. 4. Guðjón Heiðar Valgarðsson 4Vz v. 5. Guðmundur Kjartansson 4 v. 6. -7. Halldór Brynjar Halldórssson og Dag- ur Amgrímsson 3V2 v. 8.-9. Stefán Ingi Arnarson og Birkir Öm Hreinsson 3 v. o.s.frv. Skákstjórar vora Sigurbjörn J. Björnsson og Vigfús Ó. Vigfússon. VISA og VKS efst í Hellisdeildinni Hellisdeildin 1999 hófst 18. nóv- ember og lýkur 25. nóvember. VISA og VKS era efst eftir fyrri hlutann með 10 vinninga í 18 skák- um. Gistiheimilið Isafold er í 3. sæti með 8 Vá vinning. Puma er í 4. sæti með 7 V-i vinning. Hellisdeildinni lýkur 25. nóvember nk. Skákmót á næstunni 26.11. Heilir. Sveitak. grunnsk. í Breiðholti 26.11. TR. Klúbbakeppni 28.11. Hellir. Kvennaskákmót 28.11. SÍ/Siminn-Intemet. Mátnetamót Daði Örn Jónsson Málþing um eldri ökumenn í umferðinni MÁLÞING um akstur eldra fólks verður haldið í Ásgarði, félags- heimili Félags eldri borgara í Reykjavík í Glæsibæ, í dag þriðju- daginn 23. nóvember klukkan 13.15 til 17. Þórhallur Ólafsson, formað- ur Umferðarráðs, setur málþingið, Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráð- herra og Benedikt Davíðsson, for- maður Landssambands eldri borg- ara, flytja ávörp. Sigrún Helgadóttir, deildarstjóri manntals- og mannfjöldadeildar , Hagstofu íslands, flytur erindi um aldursskiptingu þjóðarinnar og áætlaða fjölgun aldraðra til ársins 2010. Helga Hansdóttir, læknir á öldrunardeild Sjúkarhúss Reykja- víkur Landakoti, fjallar um heil- brigðiseftirlit með öldraðum og hvaða heilsufarsleg vandamál geta helst komið í veg fyrir að aldraðir geti ekið bifreið. Sigurður Helgason, upplýs- ingafulltrúi Umferðarráðs, og Guðbrandur Bogason, formaður Ökukennarafélags Islands, fjalla * um hvernig hægt er að auka ör- yggi bflstjóra á efri árum og lengja þann tíma sem fólk ekur bifreið með sæmd. Einar Guð- mundsson, forvarnarfulltrúi Sjó- vá-Almennra trygginga, heldur erindi um hvers konar tjónum eldri ökumenn lenda helst í. Guð- mundur Þorsteinsson ökukennari fjallar um hvað er erfiðast fyrir aldraða ökumenn að fást við í akstri. Undir liðnum sjónarmið eldri ökumanna tala Guðrún S. Jóns- dóttir húsmóðir sem enn ekur bíl, og Páll Gíslason læknir, sem er hættur akstri. Hjördís Jónsdóttir, yfírlæknir á Reykjalundi, flytur er- indi sem nefnist „Hver er besta leiðin til að fá aldraða ökumenn, sem ekki era lengur færir um að aka, til þess að láta af því?“ Ólafur Ólafsson, formaður Félags eldri borgara í Reykjavík, flytur erindið: Aldraðir ökumenn, takmarkanir og áhætta, sérstakur kostnaður þegar komið er yfír sjötugt.“ Loks tekur Óli H. Þórðarson, framkvæmda- stjóri Umferðarráðs, helstu atriði í erindum framsögumanna saman og slítur málþinginu. Á málþinginu verður myndband Umferðarráðs sýnt, en það nefnist „Gott er heilum vagni heim að aka“. Soffia Stefánsdóttir íþrótta- kennari sér til þess að fólk hreyfi sig með reglulegu millibili, Emst F. Backman íþróttakennari þenur dragspilið þegar vel stendur á. Fundarstjóri verður Salome Þor- kelsdóttir, íyrrverandi forseti Al- þingis. Að málþinginu standa Fé- lag eldri borgara í Reykjavík, Landssamband eldri borgara og Umferðarráð. Kaffíveitingar verða í boði Sjóvá-Almennra trygginga hf. I' DAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Unga fólkið í Lágafellskirkju SUNNUDAGSKVÖLDIÐ 14. nóv. fór ég til fjöl- skylduguðsþjónustu í Lágafellskirkju og átti þar yndislega stund með gefandi orðum, fallegri tónlist og síðast og ekki síst fallegum og prúðum unglingum sem tóku virk- an þátt í athöfninni. Af það sem áður var (þ.e. síð- astliðinn vetur) í Lága- fellskirkju þegar prstur- inn þurfti að biðja söfnuð- inn afsökunar vegna skrílsláta væntanlegra fermingarbarna við messu. Þá hugsaði ég: Heimur versnandi fer (og margt fleira miður fallegt) og hætti að fara í kirkju. Ástandið hafði svo sannarlega breyst. Fyrir aftan mig var fullur bekk- ur af fermingarpollum sem hvísluðust ekki einu sinni á, hvað þá börðu í bekki né „misstu“ eitt- hvað á gólfið. Fyrir fram- an mig sátu fermingar- stelpur, flott klæddar og fallegar, ein þeirra klifraði að vísu eldsnöggt yfir bekk og önnur missti eitthvað „óvart“ í gólfið en það var líka allt og sumt. Þessir prúðu ung- lingar tóku þátt í helgi- haldinu með miklum sóma. Bærinn okkar batnandi fer. Þökk. Sesselja Guðmundsd., Urðarholti 5, Mosf. Morgonleikfimi KONA hafði samband við Velvakanda og langaði að koma á framfæri við Rík- issjónvarpið, að það hefði morgunleikfími fyrir eldri borgara. Það væru margir sem ekki ættu heiman- gengt í leikfimi, en vildu gjarnan hreyfa sig. Einnig vildi hún koma á framfæri þakklæti til Sigurlaugar Jónasdóttur, sem er með þætti í útvarpinu alla virka daga frá kl.11-12, og Þorfinns Ómarssonar sem er með þátt á laugardög- um milli kl. 11-12. Henni finnst óþarfi að Gerður Bjarklind kynni lögin bæði fyrir og eftir spilun í þættinum sínum. Hún segist ekki vera búin að finna ár aldraðra ennþá, en vonar að það fari að koma í ljós fljótlega. Eldri borgari. Tapað/fundið Fjallahjól í óskilum SILFURGRÁTT fjalla- hjól fannst við hornið á Stóragerði í Reykjavík. Upplýsingar gefur Hanna í síma 553-8968. Dýrahald Kettlingur fæst gefíns SEX mánaða hreinrækt- aður íslenskur högni fæst gefins á gott heimili. Hann er kassavanur og mjög blíður. Hann er hvít- ur og bröndóttur. Upplýs- ingar gefur Snorri í síma 551-8290 eða 868-0825. að með 18. - Bf6 og svartur vinnur manninn til baka) 18. Kfl - Bf6 19. e4? - Bh5 og hvítur gafst upp. SKAK limsjón Margeír Pétursson STAÐAN kom upp á minningarmóti um Tsjígórín sem haldið var í Sankti Péturs- borg í haust. R. Kashtanov (2340) var með hvítt, en A. Iljiíshin (2525) var með svart og átti leik. 17. - Rxd4! Nú hrynur hvíta staðan, því 18. Dxd4 er svar- SVARTUR leikur og vinnur COSPER Þarna er bílasalinn. Morgunblaðið/RAX Víkverji skrifar... * ATAKIÐ „Islensk verslun - allra hagur“ hefur verið með öðra sniði í haust heldur en áður. I fréttapósti Landssamtaka verslun- ar- og þjónustu, SVÞ, kemur fram að ákveðið hafi verið að slá á létta strengi um leið og vakin var athygli á því að þegar skipt væri við ís- lenskar verslanir væri hægur vandi að leiðrétta mistök í innkaupum sem ekki væri svo auðvelt þegar skipt væri við útlend verslunarfyrir- tæki. í fréttapóstinum kemur fram að það sé mál kaupmanna, að átakið hafi vakið athygli og skilaboðin náð til neytenda. Þannig megi heyra sí- fellt fleiri mæla með innlendri versl- un sem vel samkeppnishæfri við út- lenda í vöraúrvali, verði og þjón- ustu. Víkverji telur að þetta sé alveg rétt hjá kaupmönnum. Enda menn leiðir á því að lesa um kaupmenn sem barma sér yfir utanlandsferð- um íslendinga á haustin. Yfirleitt er um skemmtiferðir að ræða en ekki skipulagðar verslunarferðir. Oft taki vinahópar eða starfsmannafé- lög sig saman um að skreppa í helg- arferð til einhverrar borgar án þess að innkaup séu meginþema ferðar- innar. Að sjálfsögðu bætist oft eitt- hvað í töskurnar án þess að það hafi verið ætlunin í upphafi ferðar. En það er ekkert öðruvísi heldur en ef fólk skreppur í Kringluna og mið- bæinn. Víkveiji þekkir það af eigin raun að skreppa í búðarrölt án þess að hafa ætlað að kaupa neitt en koma heim með fatapoka, bók eða geisladisk. Það hlýtur alveg eins að vera hagur íslenskra kaupmanna, líkt og erlendra, hvað Islendingar era kaupglöð þjóð. XXX VÍKVERJI er einn þeirra sem verða gjörsamlega ráðþrota ef eitthvað aukahljóð heyrist í bflnum. Fyrir nokkra fór bíllinn að hegða sér undarlega án þess að Víkverji gæti skilgreint það nákvæmlega. Var því haft samband við umboðið hvort hægt væri að koma bflnum á verk- stæði þar sem sennilega væri eitt- hvað að dempurum bflsins og eins væri eitthvað leiðindahljóð í pústinu. Það var ekkert sjálfsagðara en að koma með bílinn í viðgerð en því miður kæmist bíllinn ekki að fyrr en eftir rúman mánuð. Bíleig- andinn spurði í sakleysi sínu hvort það væri í lagi að keyra bílinn ef eitthvað væri að dempurunum og var tjáð að það væri í lagi en hann yrði að keyra hægt og nota hann sem minnst. Þar sem Víkverji á mjög erfitt með að vera bfllaus og hættir til að keyra frekar hratt ákvað hann að leita annarra ráða og kom bflnum eins og skot að á öðru verkstæði þar sem viðgerð tók hálfan dag. Ög þrátt fyrir að skipta þyrfti um hluta pústkerfis var viðgerðarkostnaðurinn einung- is þriðjungur af þeirri upphæð sem greidd var fyrir 40 þúsund kíló- metra skoðun, en umboðin mæla mjög með því að bifreiðar séu yfir- farnar á tíu þúsund kílómetra fresti, og skipti á loftnetsstöng í umboðinu fyrir ári. Það er því eng- in spurning um að ekki verður skipt við umboðið á næstunni. Sér í lagi ef biðtími eftir viðgerð styttist ekki.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.