Morgunblaðið - 23.11.1999, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 23.11.1999, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1999 35 _________LISTIR_______ Erindi sem erfiði TOJVLIST Langholtskirkja KÓRTÓNLEIKAR Barnakór Grensáskírkju, Kammer- kór I/II, Vox Feminae; Björk Jóns- dóttir sópran; Svana Víkingsdóttir, píanó. Stjórnandi: Margrét J. Pálmadóttir. Föstudaginn 19. nó- vember kl. 20:30. NÁKVÆMLEGA hálfri klukkustund eftir auglýstan tíma upphófst „forleikur" í formi Tríó- sónötu G.IL Telemanns í F-dúr, fluttri af Ágústu Jónsdóttur og Svanhvíti Yrsu Árnadóttur á fiðl- ur með Svönu Víkingsdóttur og Önnu Völu Ólafsdóttur í fylgi- bassa á píanó og selló. Voru síðan sungnir tveir „taize“-söngvar (hvað sem það nú er; skýring fylgdi ekki), en sá síðari þeirra, Gloría, heyrðist manni alltjent vera 3ja radda kanon. Ur latn- eskri messu eftir Gounod söng kórinn Kyrie, Gloria og Agnus Dei; ofurlítið dauft að manni fannst, nema ef væri fremur af- leiðing af heldur hæggengu tempóvali sem undirrituðum fannst einkenna tónleikana, með fáeinum undantekningum þó. Sjálfur kórhljómurinn var þó heil- steyptur og hreinn, og hélzt það til loka. I Ave Maria, sönglagsetn- ingu Gounods á 1. prelúdíu Vel- tempraða hljómborðs Bachs (hvort Gounod væri einnig ábyrg- ur fyrir raddsetningu lagsins kom hins vegar ekki fram) birtist Vox Feminae syngjandi upp kirkjug- anginn með aukna dýpt „alvöru“- altradda í farteskinu; skemmtileg sviðsetning og e.t.v. smá bragar- bót á „uppívöðslu" Gounods sem allir tónkerar eru enn ekki sáttir við. Guð sem skapar líf og ljós eft- ir Hjálmar H. Ragnarsson var þvínæst sungið í snotru unisono. Að því loknu sungu kórarnir þrjá negrasálma í raddsetningum Reeds, Egils R. Friðleifssonar og Johns Höjby; Go tell it on the mountain, My Lord, what a morn- ing og hápunkt tónleikanna „I pharadisi“ [sic?], sem í mínum eyrum hljómaði líkt og sungið væri á zúlúmáli, swahili eða ann- arri afrísku, alls óskyldri þeirri ensku sem „afrískir Bandaríkja- menn“ eins og þeim ber víst nú að heita í heimalandinu vestan ála iðka í negrasálmum sínum. Hvað um það; söngur kóranna var hér sérstaklega innlifaður og seiðandi, og styður það skynditilgátu undir- ritaðs, að næst eftir að fá að syngja á ensku sé fátt sem kveikir meir í hérlendum ungmennum en hrynræn tilþrif. Ber að harma hvað tónskáld okkar eru yfirleitt deig við þau, þegar kórsmíðar eru annars vegar. Sem aukakrydd lagði kórstjórinn til dável heppnuð biksvört snarstefjuð „scat“-inn- slög úr eigin barka, lygilega lík þeim er tíðkast í þeldökkri bapt- istakirkjutónlist vestanhafs. Vakti það töluverða kátínu úti í sal, og vantaði bara að ásjóna stúlknanna lifnaði við líka. En það var öðru nær. Því miður var ekki, frekar en fyrri daginn, brugðið út frá þeirri sýnilegu meginreglu yngra kór- fólks hér á landi að syngja ávallt með jarðarfararsvip, án tillits til viðfangsefnis hverju sinni. Maria Mater Gratiae hét geysi- fallegt lag eftir Fauré sem „Kam- merkór 11“ söng þar á eftir, og úr Piae Cantiones var síðan sungið Ave Maris Stella í raddsetningu Klemetti; hvort tveggja hreint og tært í flutningi. Hið vinsæla kosm- íska trúarlag Þorkels Sigur- björnssonar í fimmskiptum takti, Til þín Drottinn hnatta og heima, naut sömuleiðis fallegs sam- hljóms, en hefði líkt og sumt ann- að vel mátt vera í aðeins líflegra tempói. Sól eftir Áskel Másson féll niður vegna ónægrar æfingar, að manni skildist á kórstjóra, sem leiðir hugann að því hvað hægt væri að gera hér, ef nótnalæsi þætti jafnsjálfsagt í grunnskóla og bókstafalæsi. Kammerkórarnir og VF sungu þessu næst afar hreint og fallega hið þegar sígilda Maríukvæði Atla Heimis við æskudikt nóbelskálds- ins, þótt ívið hægt væri, og Björk Jónsdóttir söng ágætan einsöng með kórnum í hinu að mínu viti nokkru ofkeyrða Ave María Kaldalóns. Síðar sá hún einnig um einsöng í Laudate Dominum eftir Mozart, og beitti þá gegnheilum og klingjandi sópran sínum jafn- vel enn betur. Ave Maria eftir Kodály var eilítið dauft hjá kórn- um, en Adoramus te Christe eftir Lassus kom sýnu betur út, þótt enn sem oftar væri full hægferð- ugt í hraðavali að smekk undirrit- aðs. Flutningur söngnema úr Kammerkór II á Agnus Dei Glucks var sérlega þýður, og hæð- in var bæði glæsileg og fögur í Veni Domine e. Mendelssohn, er einnig átti Laudate Pueri, þykk- asta kórsatz kvöldsins, sem hljóm- aði mjög glæsilega með sameinuð- um kröftum allra kórdeilda. Hefði hinn annars dagfarsdyggi píanó- leikur Svönu Víkingsdóttur þar mátt hnykkja betur á með kraft- meira víravirki í hægri hönd en gert var. Síðasta atriði þessara velheppn- uðu 10 ára afmælistónleika Barna- kórs Grensáskirkju var Jubilate Deo eftir ónefndan höfund sem undirritaður kannaðist ekki við þá stundina, en sem í fljótu bragði líktist dulítið Britten á alþýðlegu augnabliki. Hér var sungið af tölu- verðu fjöri, og kórarnir sameinuðu uppskáru mikinn fögnuð áheyr- enda, er endaði með að afturkalla aðalsmell kvöldsins, „I pharadisi11, svo allt ætlaði nánast um koll að keyra. Margrét Pálmadóttir og skjólstæðingar höfðu eina ferðina enn haft erindi sem erfiði. Ríkarður Ö. Pálsson Morgunblaðið/Asdis Frá æfíngu Nemendadansflokksins s Listdansskóli Islands S sýnir í Islensku óperunni NEMENDADANS- FLOKKUR Listdans- skóla íslands og 6. og 7. flokkur skólans verða með dagskrá nútímabal- letts og klassísks bal- letts í Islensku óperunni í kvöld, þriðjudag- skvöld. Sýnd verða frumsamin verk eftir Ástrósu Gunnarsdóttur, Helenu Jónsdóttur, Mar- gréti Gísladóttur og Stephen Sheriff. Þá hefur María Gísladóttir æft atriði úr þremur klassískum ballettum með nem- endunum og verða þau jafn- framt sýnd. Orn Guðmundsson, skólastjóri Listdansskóla íslands segir að nemendur hafi lagt sig alla fram við æfingar fyrir sýninguna, en margir nemendur eru nú þegar orðnir mjög vanir að koma fram á sýningum. Hann vonast til þess að farið verði með sýninguna til Akureyrar eftir áramótin. íslenskur dansari verðlaunaður í Danmörku Á nýju ári verður mikið um að vera hjá nemendum skólans. Strax upp úr áramótum verður haldin undankeppni í klassiskum ballett hérlendis og munu þeir sem hreppa tvö til þrjú efstu sætin taka þátt í norrænni danskeppni sem haldin er árlega í Norður-Svíþjóð. Þar keppa nemendur frá öllum helstu bal- lettskólum á Norðurlöndum. Einn af dönsurum Nemenda- dansflokksins hefur þeg- ar átt velgengni að fagna á erlendri grund. Guð- björg Halla Arnalds var valin einn af efnilegustu nemendum hins virta sumarskóla Bartholene í Kaupmannahöfn síðastlið- ið sumar og fékk styrk til áframhaldandi náms við skólann á næsta ári. Guðbjörg Halla segir að það hafi verið sér mik- ill heiður að fá styrkinn. Um 75 nemendur voru í skólanum og aðeins sex nemendur fengu styrk. „Þetta hvetur mig að sjálfsögðu til að halda áfram og gefur mér tækifæri til að fara út aftur en það er bæði dýrt og mikið fyrirtæki. Nú fæ ég hins vegar öll skólagjöldin borguð og það er mikill léttir," segir Guð- björg Halla. Nemendur skólans komu alls staðar að úr heiminum, frá Norðurlöndunum, Japan, Banda- ríkjunum, Þýskalandi og Spáni, svo eitthvað sé nefnt. Guðbjörg Halla er 17 ára, stundar nám við listdansbraut Menntaskólans við Hamrahlfð og stefnir að því að klára skólann á þremur árum. Að því loknu stefnir hún á að fara utan og reyna fyrir sér í dansinum, hvort sem hún fer áfram í skóla eða strax í at- vinnumennsku. Næsta skref hjá henni er hins vegar undirbún- ingur fyrir klassfsku listdans- keppnina hérlendis sem haldin verður eftir áramótin. Guðbjörg Halla Arn- alds Að eiga erindi í Fríkirkjuna TÖNLIST F r í k i r k j a n Kórtónleikar Kór Fríkirkjunnar í Reykjavík. Sigrún Hjálmtýsdóttir, Soffía Stef- ánsdóttir, Þorbjöm Rúnarsson, Eir- íkur Hreinn Helgason, Kammer- sveit Fríkirkjunnar, konsertmeistari María Weiss, undir stjórn Kára Þormars, flutti Messu heilagrar Sessehu, eftir Franz Jos- eph Haydn. Sunnudagurinn 21. nó- vember, 1999. FRÍKIRKJAN heldur upp á eitt hundrað ára afmæli og sl. sunnudag hélt kór kirkjunnar stóra tónleika, með flutningi Messu heilagrar Sesselíu, sem í upprunalegu formi er fá 1766, er Haydn var 34 ára og nýlega kom- inn til starfa hjá Esterházy-ætt- inni er bjó í mikilli höll í Eisenst- adt, sem hvað stærð og glæsileika má líkja við Versali. Þarna starf- aði Haydn í 30 ár og fá tónskáld hafa samið eins mikið og haft eins mikil áhrif á þróun tónlistar, eins og þessi lítilláti og iðni maður. Barokkin hafði ekki verið yfir- Bergljót Jónsdóttir fær franska orðu BERGLJÓT Jónsdóttir, stjórn- andi listahátíðarinnar í Bergen í Noregi,var nýverið sæmd frönsku menningarorðunni Arts et Lett- res. Franski sendiherrann í Ósló, Patrick Henault, sagði þegar hann afhenti Bergljótu orðuna, að lista- hátíðin í Bergen væri mikilvæg- asta alþjóðlega listahátíðin í Nor- egi og að Bergljót hefði átt sinn þátt í því að styrkja stöðu hátíðar- innar. Með því að veita Bergljótu orðuna sé verið að veita henni við- urkenningu fyrir eflingu menning- ar almennt en ekki sérstaklega franskrar menningar, að þvi er segir í frétt dagblaðsins Bergens Tidende 9. nóvember sl. gefin í gerð trúarlegra verka, eins bæði má heyra hjá Mozart og Haydn og reyndar síðar hjá Mendelssohn, og er messa heilag- rar Sesselíu barokktónsmíð og nærri að formi til kantötunni og jafnvel með svolítið rókokkobragð á köflum en að öðru leyti í hefð- bundnu katólsku messuformi. Þrátt fyrir að upphafstónar verksins væru hikandi, náði kór- inn sér fljótlega á strik og stóð sig mjög vel og flutningur hans ótrúlega góður, sérstaklega hjá sópraninum, sem blátt áfram blómstraði þegar á reyndi. Þrátt fyrir smá hnökra söng kórinn af öryggi og ekki síst erfiðu kaflana, þar sem Haydn lék sér með kontrapúntísk vinnubrögð, sem þó var nokkuð á svig við þann persónulega hljómræna stíl, er einkenndi hljóðfæraverk hans. Hljómsveitin var í heild einnig ótrúlega góð, samspilið gott og á köflum tilþrifamikið. Einsöngvararnir voru góðir en það var ungur tenór, Þorbjörn Rúnarsson, sem var fyrstur af einsöngvurunum til að hefja upp raust sína. Þorbjörn hefur sér- lega fallega tenórrödd og syngur auk þess músíkalst og fallega. Þarna er á ferðinni stórefnilegur tenór og var söngur hans í Chri- ste eleison, en þó sérstaklega í Et resurexit, blátt áfram hrífandi. Sigrún Hjálmtýsdóttir söng af glæsibrag, sérstaklega í Laudam- us te og Qoniam tu solus. Ung og efnileg söngkona, Soffia Stefáns- dóttir, sem einnig tók sér stöðu með kórnum, söng alt-hlutverkið í samsöng með tenór og bassa, en ein með kórnum í Qui tillis og gerði það mjög fallega. Eríkur Hreinn Helgason tók þátt í sam- söngsatriðunum en einn í niður- lagi verksins, Agnus Dei, og söng allt sitt mjög fallega og af öryggi. Það sem sérstaklega er eftir- tektarvert, er að oganistinn, Kári Þormar, er hér að hasla sér völl sem stjórnandi og fer því mjög vel af stað, því flutningurinn í heild var ótrúlega góður og óhætt að spá Kára góðu gengi, ef svo fer fram, sem nú horfir og ef hon- um tekst að kalla tónlistarfólk til samstarfs, til flutnings góðra tón- verka, mun áhugafólk um góða tónlist telja sig eiga erindi í Frík- irkjuna í Reykjavík, auk þess að eiga þar stundir með Guði sínum. Jón Ásgeirsson IM SPORT ' TOPPMERKI Á LÁGMARKSVERÐI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.