Morgunblaðið - 07.12.1999, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 07.12.1999, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 279. TBL. 87. ARG. ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Castro krefst framsals drengs sem bjargað var í land í Flórída Gefa Banda- ríkjastjórn lokafrest Havana. AP, AFP. FIDEL Castro Kúbuleiðtogi hefur krafizt þess að drengur, sem fyrir skemmstu var bjargað í land í Flór- ída ásamt fleiri flóttamönnum frá Kúbu, verði sendur til baka til heima- landsins, þar sem faðir hans er. Ung- liðar kommúnistaflokksins stóðu fyr- ir mótmælaaðgerðum vegna málsins við sendiskrifstofu Bandarikja- manna í Havana í gær og í fyrradag. Breskir spítalar • • Oldruðum mismunað? London. The Daily Telegraph, Reuters. REYNT er að draga úr álagi á bresku heilbrigðisþjónustuna með því að flýta fyrir dauða aldraðra sjúklinga, að sögn dr. Adrians Treloars, ráðgjafa og fyrirlesara í öldrunarlækning- um við nokkra breska háskóla. Segir hann að um sé að ræða „líknardráp án samþykkis" hinna öldruðu. Lögreglan rannsakar nú mál 60 aldraðra sjúklinga sem sagt er að hafi dáið vegna þess að starfsfólk lét fólkið ekki fá mat eða vatn. Var rannsóknin hafin eftir að kvartanir höfðu borist frá aðstandendum, hjúkrunar- starfsfólki og þrýstihópum. I nýjum vinnureglum breskra lækna segir að þeim ætti að vera heimilt að draga úr fæðu- og vökvagjöf í æð ef sjúkl- ingurinn sé haldinn alvarlegum elliglöpum eða hafi fengið slag. í yfirlýsingu frá Castro, sem var sjónvarpað og útvarpað á sunnudag, segir að Kúbverjar séu að missa þol- inmæðina og að búast megi við frek- ari fjöldamótmælum vegna málsins. Castro sagði að Bandaríkjamenn fengju þriggja sólarhringa frest til að skila drengnum, Elian Gonzalez. Hann varð sex ára í gær. „Milljónir manna munu fara út á göturnar til að krefjast frelsis fyrir drenginn," sagði Castro. Erfitt yrði að „halda aftur af fólki í því æsingar- ástandi" sem málið héfði skapað. Sakaði Castro Bandaríkjamenn um mannrán, en bandaríska strand- gæzlan fann Elian á floti á uppblás- inni hjólbarðaslöngu utan við vest- urströnd Flórída hinn 25. nóvember sl. Talsmaður bandaríska utanríkis- ráðuneytisins, James Foley, vísaði í gær kröfum Castros á bug og sagði þær ekki stuðla að lausn málsins. „Við erum staðráðnir í að vinna með fjölskyldu drengsins, þar á meðal fóðumum og öllum embættismönn- um sem að málinu koma til að finna viðeigandi lausn,“ sagði Foley. I fréttaskeytum í gær sagði að Banda- ríkjastjóm óttaðist um öryggi sendi- manna sinni í Havana. Faðir Elians, Juan Miguel Gonza- lez, segir fyrrverandi eiginkonu sína hafa tekið son þeirra með sér að sér forspurðum. Castro sagði stjúpföður drengsins, sem einnig lét lífið er bát- urinn sökk, hafa skipulagt flóttatil- raunina. Hefur faðir Elians og afar hans og ömmur farið íram á að hann verði sendur aftur til Kúbu. Banda- rísk yflrvöld hafa að sinni falið hann í umsjá frændfólks sem býr í Miami. Palestínumenn slíta viðræðum Elian Gonzalez Jerúsalem. Reuters. PALESTÍNUMENN slitu í gær viðræðum sínum við Israela vegna deilna um landnám gyðinga á Vest- urbakka Jórdanar. Ekki er vitað hvaða áhrif viðræðuslitin muni hafa á áætlun Palestínumanna og Israela um að ljúka gerð friðar- samkomulags milli þjóðanna snemma á næsta ári. ísraelar lýstu því þó yfir í gær að deilan mætti ekki verða til að koma í veg fyrir að friðaráætlunin næði fram að ganga. Tilkynning um slit viðræðnanna er gefin út um svipað leyti og von er á Madeleine Albright, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, í fjögurra daga heimsókn til Mið-Austur- landa. Markmið heimsóknar utan- ríkisráðherrans er að örva friðar- viðræður ísraela við Palestínu- menn og Sýrlendinga. „Við getum ekki haldið fund um landnámið í dag eins og að var stefnt," sagði aðalsamningamaður Palestínumanna, Yasser Abed Rabbo, við fréttamenn í gær eftir að hann gekk af fundi með samn- inganefnd Israela. Samningaviðræðurnar eru sagð- ar hafa farið út um þúfur eftir að Israelar neituðu að afhenda Palest- ínumönnum landsvæði á Vestur- bakkanum eins og samkomulag þjóðanna gerði ráð fyrir. Hinir fyrrnefndu höfðu skuldbundið sig til að afhenda um miðjan nóvember fimm prósent af því landsvæði sem þeir ráða á Vestúrbakkanum. Aðalsamningamaður Palestínu- manna neitaði því í gær að hann væri markvisst að koma af stað deilum við ísraela í von um að Al- bright myndi þrýsta á þá að láta undan. C in ATD/O ti^Wi li on ■ ^on#unai polLiCf^^i^n mihw ’>| <***•**$ 3C ÍC€: 'WE Dtj -W , ***£■< íp 01 írc MeCsE^°H ^Ö/CaiATmsa Rússar hdta íbúum Grosní öllu illu ef þeir gefíst ekki upp Stríðsreksturinn sætir vaxandi araarnrvni uters. ®/ Moskvu, Brussel, AP, AFP, Reuters. SENDINEFND frá íslömskum ríkjum ræddi í gær við fulltrúa rússneskra stjómvalda í Moskvu og hvatti formaður hennar, Khamal Kharazzi, sem er utanríkisráðherra írans, til þess að fundin yrði samningalausn í Tsjetsjníu. „Við teljum brýnt að stöðva hernaðinn og ná sem fyrst friðsamlegri lausn á Tsjetsjníu-deilunni," sagði Kharazzi í sam- tali við ítar-Tass-fréttastofuna. Flugvélar og þyrlur Rússa gerðu sem fyrr harð- ar árásir á Grosní og nálægar byggðir í gær, og barist var við borgirnar Urus-Martan og Argun. Utanríkisráðherrar Evrópusambandsins sögðu í gær að til greina kæmi að undirrita ekki ýmsa samstarfssamninga sem gerðir hafa verið við Rússland og mótmæla þannig hótunum Rússa gegn Tsjetsjenum en rússneski herinn setti í gær íbúum Grosní, höfuðborgar Tsjetsjníu, úrslita- kosti. I dreifimiðum sem varpað var yfir borgina sagði að borgarbúar ættu að hafa sig á brott innan fimm sólarhringa áður en herinn gerði lokatilraun til að knýja hana til uppgjafar með umfangsmikl- um hernaðaraðgerðum. Borgin væri umkringd en leyft yrði að fara frá henni um einn veg sem lægi um þorpið Pervomaískoje. „Ekld verður íramar reynt að semja. Gert verð- ur út af við hvern þann sem ekki fer frá borginni," sagði í dreifimiðanum. Litið yrði á alla þá sem verða þar áfram sem hryðjuverkamenn og óþokka. Að sögn rússneskra yfirvalda eru á bilinu 15.000-40.000 óbreyttir borgarar eftir í Grosní, aðallega aldraðir og særðir. Straumur flóttafólks frá borginni jókst enn gær í kjölfar hótana hers- ins. Haft var eftir talsmönnum rússneska hersins að Aslan Maskhadov, forseti Tsjetsjníu, væri enn í Grosní. Þingkosningar verða í Rússlandi 19. desember. Nýjar skoðanakannanir í Rússlandi sýna stórauk- ið fylgi við Jedíntsvo, flokk undir stjóm Sergejs Shoigus, ráðherra neyðarráðstafana. Fær hann nú allt að 25% fylgi. Vladímir Pútín forsætisráðherra hefur lýst stuðningi við flokkinn og fær Pútín mest fylgi þegar spurt er hver eigi að taka við forseta- embættinu á næsta ári eða 43-45%. Hafa vinsæld- ir hans aukist enn frá síðustu könnunum. Mótmæla misnotkun á börnum LÖGREGLAN í Pakistan hafði í gær tvo menn í haldi en þeir hafa játað að hafa haft kynmök við 25 af þcim 100 börnum, sem talið er, að hafí orðið fómarlömb fjöldainorð- ingja, Javeds Iqbals að nafni. Er hans enn lcitað. Mennirnir tveir neita að eiga nokkurn þátt í morð- unum en Iqbal skýrði sjálfur frá þeim í bréfi til lögreglunnar. Kom hann líkunum fyrir í tunnum með sýru en ekki hefur þó tekist að finna nema leifar tveggja. Á mynd- inni sjást böm í Lahore mótmæla meintu sinnuleysi lögreglunnar um glæpi gegn börnum. MORGUNBLAÐIÐ 7. OESEMBER1999 690900 090000
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.