Morgunblaðið - 07.12.1999, Síða 39

Morgunblaðið - 07.12.1999, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1999 39 LISTIR www.tunga.is --------♦ ♦ ♦------- Nýjar bækur • SÓNHEND- UR er ljóðabók eftir Kristján Hreinsson. Þetta er sjöunda ljóða- bók höfundar, en auk ljóðabókanna hefur hann sent frá sér geislap- lötu, samið söng- texta, skrifað út- varpsleikrit og stjórnað útvarpsþáttum. Bókin hefur að geyma 29 sonnett- ur, ortar á síðustu tveimur árum. Sonnetturnar eru flestar hverjar á huglægum nótum, hvað innihald áhrærir, en að forminu til er ströng- um reglum sonnettunnar fylgt, segir í fréttatilkynningu. Útgefandi er Gutti. Bókin er 32 bls., unnin í Grafík. Verð: 1.400 kr. • SPEGILL, spegill er eftir Chloe Reyban í þýðingu Helgu Soffíu Ein- arsdóttur. Sagt er frá Justine Duval sem fer á sýndarveruleikasýningu með traustum og tryggum Chuck og fest- ist í víxlveruleika. Allt er þetta frek- ar annars heims en undarlegast af öllu er að Justine hefur breyst í „Ja- ke“. Þetta væri nóg til að rugla flesta í ríminu, en Justine er ekki mann- eskja sem lætur svona einstakt tækifæri fara til spillis. Hvað er skemmtilegra fyrir stelpu en að fá að hanga í karlaklefanum og fá beint í æð það sem drífur strákana áfram? Kvikmyndin Virtual Sexuality er byggð á sögunni. Utgefandi er PP-Forlag. Bókin er 188 bls., prentuð í Danmörku. Verð: 1.980 kr. Kristján Hreinsson Landnemar eftir stríð að höfundur hefur sjálfur stílfært og orðað frásagnirn- ar, þó að þær séu í fyrstu persónu. Það finnst mér sjálfsagt að gera. Hér ræðir um ein- staklinga, sem eiga ekki íslensku að móðurmáli og því getur varla þurft að varðveita blæbrigði máls eða persónulegan frá- sagnarstíl, sem maður kann að vilja halda til haga hjá sumum Islendingum. Þeir eru þó kannski að verða fáir. Ágætlega er frá bókinni gengið í alla staði og textanum fylgja margar Valgeir Sigurðsson fjölskyldumyndir, sem fróð- legt er að skoða. Auðvitað er það rétt, sem höfundur segir, að frásagnir fimm kvenna segja sáralítið um hvemig öllum þeim út- lendu konum, sem fluttust til íslands í stríðslok vegn- aði hér í heild sinni. Þessi bók er engan veginn neitt tölfræðilegt yfirlit og var ekki ætlað slíkt hlutverk. En hún getur þó leitt hugann að því, að æskilegt væri að gera könnun á slíku. Viljum við ekki vita hvemig þeim gest- um vegnar, sem við bjóðum hingað til dvalar? Og þurf- um við ekki að vita það, ef gestgjafa- hlutverk okkar á að vera í góðu lagi? Sigurjón Björnsson Fyrírtaks uinnustaður á fjðrum hjólum Við framleiðslu á Ford sendibílum sitja öryggi ökumanns, þægilegt vinnuumhverfi og hagkvæmni í fyrirrúmi. Jafnframt standast þeir fyllstu kröfur um flutningsrými og burðargetu, t.d. við flutning varnings á brettum. Allir kostir við fjármögnun eru fyrir hendi, þ.á.m. rekstrarleiga. Nýttu þér þjónustu sölumanna okkar við að finna rétta bílinn og útbúa hann eftir þínu höfði. Brimborg Akurcyri I Bílcy I Betri bllasalan j Bllasalan Bllavík | Tvisturinn Tryggvabraut 5, Akureyri Búðarcyri 33, Rcyðarfirði Hrísmýri 2a, Sclfossi Holtsgötu 54, Rcykjancsbæ Faxastíg 36, Vestmannacyjum sími 462 2700 | simi 474 1453 | sími 482 3100 | simi 421 7800 | slmi 481 3141 Brimborg • Bíldshöfða 6 • Sími 515 7000 • www.brimborg.is Ford Transit grindarbíll 3-6 manna Ford Transit pallbíll 3-6 manna Or brimborg BÆKUR /E v i þ æ tti r NÝ FRAMTÍÐ í NÝJU LANDI Frásagnir fimm þýskra kvenna sem fluttust til fslands eftir hörmungar heimsstyrjaldarinnar síðari. Valgeir Sigurðsson. Bókaútgáfan Skjaldborg, Reykjavík 1999, 193 bls. EINS og flestir vita fluttist all- nokkur hópur þýsks verkafólks hing- að til lands skömmu eftir lok styrja- ldarinnai- miklu. Flestir komu til landbúnaðarstarfa á vegum Búnað- arfélagsins, því að þá var mikill skortur á vinnuafli í sveitum lands- ins. Langflestar voru ungar stúlkur, sem dreifðust um sveitirnar. Vita- skuld fóru margar til baka eftir fá ár, þegar um hægðist í heimalandinu. Töluverður hópur varð þó kyrr, sett- ist hér að, giftist og varð íslenskir rík- isborgarar. Hvað er nú að frétta af þessum nýju landnemum, sem hér hafa búið í hálfa öld? Hvers konar fólk var það? Hver var saga þess, áð- ur en það kom hingað? Hvernig hefur því vegnað? Þessum spurningum og mörgum öðrum er eðlilegt að velta íyrir sér. Þeim velti og hinn kunni og vandvirki rithöfundur Valgeir Sig- urðsson fyrir sér. Það varð hvatinn að því, að hann tók sér fyrir hendur að kanna æviferil og viðhorf nokk- urra þýskra kvenna með mörgum og ítarlegum viðtölum. Hann valdi þá leið að hafa viðmælendur sína fáa, að- eins fimm, en umfjöllunina í þess stað þeim mun gagngerari. Það tel ég víst að hafi verið afar vel ráðið. Fjórar stúlknanna komu hingað árið 1949 og ein ári síðar. Sú yngsta þeirra var aðeins 17 ára, tvær 18 ára, ein 23 ára og ein 24 ára. Allar settust þær að utan Reykjavíkur, ein í Vest- mannaeyjum og síðar í Garðabæ, hin- ar fjórar urðu húsfreyjur í sveit, í Kjós, Austur-Landeyjum, Snæfells- nesi og Eyjafirði. Ein þeirra var tónl- istarkennari auk bústarfa. Ekki er annað að sjá en þessar konur hafi un- að hag sínum vel, fallið vel að nýju umhverfi sínu bæði landi og fólki og verið farsællega giftar góðum mönn- um. Samtals eignuðust þær 36 börn og mun því mikill ættbogi íslendinga af þeim spretta, þegar fram líða stundir. Margt máttu þessar stúlkur þola áður en hingað kom og er það á stundum hrikaleg og átakanleg saga. Vissulega hefur það sett mark sitt á þær, en jafnframt bera frásagnirnar með sér hversu sterkar þær hafa ver- ið og búnar miklu þreki og seiglu. Líf þeirra var ekki heldur samfelldur dans á rósum eftir að hingað kom. Höfundur hefur auðsjáanlega vandað verk sitt afar vel. Mörg viðtöl við hveija konu fyrir sig eru unnin í eina skipulega og ljósa frásagnar- heOd og þarf til þess að minni hyggju mikla æfingu og nákvæmni. Ljóst er Bókin MIKILVÆGUSTU TUNGUMÁL JARÐAR svarar: Munu tölvur gera tungumálanám óþarft?
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.