Morgunblaðið - 07.12.1999, Blaðsíða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1999
MORGUNBLADIÐ
ERLENT
Clinton kennt um
að fundur WTO
fór út um þúfur
Sagður hafa grafíð undan eigin viðskiptastefnu
Fundur Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar í Seattle er sagður mikið áfall
fyrir Clinton Bandarikjaforseta.
Berlfn, Washington, London. AP, AFP,
The Daily Telegjaph.
EVRÓPSKIR stjórnmálamenn,
frammámenn í viðskiptalífínu og
fjölmiðlar létu í Ijósi óánægju með
framgöngu Bandaríkjastjórnar á
ráðherrafundinum í Seattle sem lauk
á laugardag án þess að samkomulag
næðist. Margir þeirra töldu að fund-
urinn hefði farið út um þúfur vegna
slæmrar skipulagningar fundarins af
hálfu gestgjafanna og bandarískir
fjölmiðlar sökuðu Bill Clinton
Bandaríkjaforseta um að hafa klúðr-
að fundinum og grafíð undan eigin
viðskiptastefnu.
Ráðherrafundinum í Seattle lauk á
laugardag án þess að samkomulag
næðist um verkaskrá næstu lotu
samningaviðræðna um aukið frelsi í
heimsviðskiptum. Samninganefnd-
imar náðu ekki einu sinni samkomu-
lagi um orðalag lokayfírlýsingar
fundarins.
Clinton lýsti því yfir í viðtali við
bandarískt dagblað skömmu áður en
fundinum lauk að hann væri hlynnt-
ur því að refsiaðgerðum yrði beitt
gegn ríkjum, sem virtu ekki reglur
um lágmarksréttindi launþega, og
nokkrir fréttaskýrendur sögðu að sú
yfírlýsing hefði átt stóran þátt í því
að fundurinn fór út um þúfur.
Nokkrir fréttaskýrendanna sögðu
að Clinton hefði lýst þessu yfir til að
tryggja demókrötum stuðning
bandarískra verkalýðsfélaga í for-
seta- og þingkosningunum í nóvem-
ber á næsta ári. Yfirlýsingin mæltist
hins vegar mjög illa fyrir meðal full-
trúa þróunarlanda á fundinum sem
sögðu að reglur um lágmarksréttindi
verkafólks væru ekkert annað en
dulbúin vemdarstefna af hálfu auð-
ugra ríkja sem vildu hindra innflutn-
ing frá láglaunalöndunum.
Fulltráar Ewópusambandsins
vora einnig sagðir hafa lagst gegn til-
lögum Bandaríkjamanna og fleirí
þjóða um að dregið yrði úr styrkjum í
landbúnaði.
„Engin niðurstaða betri en
slæm niðurstaða“
Leiðtogar Evrópuríkjanna létu í
ljósi vonbrigði með afrakstur fundai'-
ins en viðkvæði þeirra var: „ekkert
samkomlag er betra en slæmt sam-
komulag“.
Samtök þýskra iðnrekenda skelltu
skuldinni á Bandaríkjastjórn og
sögðu að fundurinn væri mikið áfall
fyrir Heimsviðskiptastofnunina og
ríki eins og Þýskaland sem hefðu
mikinn hag af auknu frjálsræði í
heimsviðskiptum.
„Engin niðurstaða nú er betri en
slæm niðurstaða þegar til lengri tíma
er litið,“ sagði Werner Múller, efna-
hagsmálaráðherra Þýskalands, en
bætti við að þróunarlöndin yrðu fyrir
mestum skaða vegna þessa mis-
heppnaða fundar.
Lionel Jospin, forsætisráðheira
Frakklands, tók í sama streng og
sagði að „misheppnaður fundur"
væri betri en „klénn samningur sem
leysir ekki vandamál heimsviðskipt-
anna“.
Bandaríkj astj órn sögð hafa
klúðrað fundinum
Bresku fjölmiðlamir gagnrýndu
ráðherrafundinn harðlega. The Obs-
erver lýsti skipulagningu fundarins
sem „klúðri“ og gagnrýndi Banda-
ríkjastjóm fyrir að krefjast „tilslak-
ana á öllum sviðum sem vörðuðu
hana og bjóða ekkert í staðinn".
The Independent sagði að fundur-
inn hefði farið út um þúfur vegna
ágreinings meðal aðildarríkja
Heimsviðskiptastofnunarinnar og
deilna innan bandarísku stjómarinn-
ar. „Ef einhveijir greiddu honum
náðarhögg vora það fulltráar samn-
inganefnda frá Afríku, Asíu og Róm-
önsku-Ameríku sem héldu virðingu
sinni með því að rísa upp gegn
Bandaríkjamönnum,“ sagði blaðið.
The Daily Telegraph hafði eftir
heimildai-mönnum sínum að Clinton
hefði gefið samningamönnum sínum
í Seattle fyrirmæli um að reyna ekki
að afstýra því á síðustu stundu að
fundurinn færi út um þúfur. Forset-
inn hefði dregið þá ályktun að líkleg
niðurstaða fundarins yrði Bandaríkj-
astjórn ekki í hag og myndi ekki
njóta stuðnings bandarískra verka-
lýðsfélaga sem styðja forsetafram-
boð Als Gores varaforseta.
Blaðið sagði að tilraun Clintons til
að nota fundinn til að styrkja stöðu
demókrata fyrir kosningamar í
Bandaríkjunum á næsta ári hefði
valdið mikilli reiði meðal fulltráa
Evrópusambandsins og þróunar-
landa á fundinum.
Clinton „skjátlaðist“
Bandarískir fjölmiðlar voru einnig
gagnrýnir á framgöngu Clintons á
fundinum og sögðu hana klaufalega.
„Sannleikurinn er sá að það var í
grandvallaratriðum rétt af Clinton
að beita sér fyrir reglum um réttindi
launþega ogumhverfisvemd en hann
beitti sennilega röngum aðferðum,“
sagði í forystugrein The Washington
Post. „Hann taldi sig geta sent mis-
munandi skilaboð til mismunandi
áheyrenda án þess að það kæmi nið-
ur á viðræðunum um heimsviðskipt-
in. Sú staðreynd að fundurinn í
Seattle misheppnaðist sýnir að hon-
um skjátlaðist."
The New York Times sagði að
fundurinn í Seattle væri „mikið áfall“
fyrir Clinton og kynni að kollvarpa
áformum hans um að beita sér fyrir
nýrri lotu samningaviðræðna um
aukin heimsviðskipti á síðasta ári
sínu í forsetaembættinu.
„Stjóm Clintons notaði réttindi
launþega í heiminum í pólitískri
fléttu sem varð að lokum til þess að
samningamenn Bandaríkjanna töp-
uðu á báðum vígstöðvum, ollu stuðn-
ingsmönnum verkalýðsfélaganna
vonbrigðum og reittu þróunarlöndin
til reiði,“ sagði The Seattle Times.
„Askorun Clintons um refsiaðgerðir
gegn ríkjum sem brytu reglur um
Iágmarksréttindi launþega gerðu að
engu vonir Bandaríkjamanna um að
stofnuð yrði nefnd til að semja um
verkalýðsmálin."
Varað við viðskiptastríði
The Daily Telegraph sagði að
fundurinn í Seattle yki líkumar á
nýju viðskiptastríði milli Bandaríkj-
anna og Evrópusambandsins á
næstu mánuðum vegna fjölmargra
deilumála þeirra, meðal annai-s um
hormóna í nautakjöti og erfðabreytt
matvæli.
Nokkrir fréttaskýrendur í Banda-
ríkjunum vöraðu einnig við því að
fyrirtæki og bændur stæðu nú
frammi fyrir hættu á nýjum við-
sldptahömlum og margra ára bið eft-
ir þvi að nýir markaðir opnuðust.
Áfall fyrir bændur og
verkafólk í þróunarlöndunum
The Washington Post taldi að
fundurinn í Seattle væri ekki aðeins
ósigur fyrir viðskiptastefnu Clintons
heldur einnig mikið áfall fyrir öll að-
ildarríki Heimsviðskiptastofnunar-
innar, sem hafði spáð því að hagvöxt-
urinn í heiminum myndi aukast um
3% ef viðskiptafrelsið yrði aukið.
„Verkalýðsfélögin og græningjamir
sem skipulögðu mótmælin í Seattle
lýsa nú yfir sigri. En þessi sigur þýð-
ir að fátækustu bændur heims geta
ekki flutt út afurðir sínar; þetta þýðir
færri störf fyrir verkamenn í vefnað-
ariðnaðinum í fátækrahverfum Rio
og Jakarta. Aukin heimsviðskipti era
mikilsverður málstaður. Clinton for-
seti og þeir sem vilja taka við af hon-
um mega ekki snúa baki við þeim,“
sagði The Washington Post.
Blaðið gagnrýndi einnig Clinton
fyrir að hafa ekki lagt meiri áherslu á
ávinning Bandaríkjamanna af aukn-
um heimsviðskiptum á blaðamanna-
fundum sínum. „Hann reyndi að
auka stuðninginn við fijáls viðskipti
heima íyrir með því að gera rök-
semdir andstæðinga þeirra að sínum,
fremur en að kljást við þá af áræðni.“
Annar ósigur Clintons
í utanrfkismálum
Fundurinn í Seattle fór út um þúf-
ur þrátt fyrir þriggja ára undirbún-
ing og ákafar samningaviðræður sem
stóðu í viku. Margir fulltráa aðildar-
ríkja WTO fóru af fundinum án þess
að vera vissir um hvort þeir myndu
sitja fleiri fundi á vegum stofnunar-
innar í náinni framtíð. Aðrir voru
reiðir yfirvöldum í Seattle og Banda-
ríkjastjórn fyrir að hafa ekki komið í
veg fyrir óeirðimar við fundarstað-
inn í Seattle sem urðu til þess að
fresta varð viðræðum ráðherranna.
Umhverfisverndarsinnar og leið-
togai- bandarískra verkalýðsfélaga
sögðust hafa átt stærstan þátt í því
að fundurinn fór út um þúfur. Ýmsir
fréttaskýrendur sögðu hins vegar að
ráðhen-afundurinn hefði einkum
misheppnast vegna andstöðu þróun-
arlandanna við að Heimsviðskipta-
stofnunin setti reglur um réttindi
verkalýðs og umhverfisvernd.
The New York Times sagði þó að
helstu bandamenn Bandaríkja-
stjórnar ættu einnig sök á klúðrinu í
Seattle. „Þrátefli meðal stærstu við-
skiptabandamanna Bandaríkjanna
neyddi stjórn Clintons til að falla
nánast algjörlega frá helsta mark-
miði sínu í utanríkismálum á siðasta
ári hans sem forseta.“
Blaðið benti á að þetta er í annað
sinn á stuttum tíma sem Clinton bíð-
ur mikinn ósigur í utanríkismálum,
en fyrr á árinu hafnaði öldungadeild
Bandaríkjaþings alþjóðlegum samn-
ingi um allsherjarbann við kjarn-
orkutilraunum sem var eitt af for-
gangsmálunum í utanríkisstefnu for-
setans.
IRA á fundi
með afvopnun-
arnefndinni
Belfast. Ap, AFP.
FULLTRÚI IRA, írska lýðveldis-
hersins, hefur átt sinn fyrsta fund
með nefndinni, sem á að sjá um af-
vopnun skæruliða, jafnt kaþólskra
sem mótmælendatráar. I tilkynn-
ingu frá IRA sagði ekki hvenær
fundurinn fór fram né hve fulltrúinn
hefði verið.
IRA tilkynnti sl. fimmtudag þeg-
ar samsteypustjóm kaþólskra
manna og mótmælenda kom saman
til síns fyrsta fundar, að fulltrái
samtakanna yrði sendur á fund af-
vopnunamefndarinnar eins og sam-
ið hefði verið um.
Almennt hefur verið búist við, að
fulltrái IRAyrði Brian Keenan, sem
er sagður æðstur IRA-foringjanna,
eða Joe Cahill, yfirmaður hemáðs
IRA, en Lundúnablaðið The Sunday
Mirror hélt því fram, að á fundinn
hefði mætt Padraig Wilson, IRA-
liði, sem enn er að afplána 24 ára
langan fangelsisdóm. Var hann tek-
inn með bílsprengju í Belfast. Sagði
blaðið, að fundurinn hefði verið í
bænum Dundalk, rétt við írsku
landamærin. BBC, breska ríkisút-
varpið, hafði hins vegar eftir heim-
ildum í Maze-fangelsinu í Belfast, að
Wilson væri þar enn og hefði ekkert
farið.
John de Chastelain, formaður af-
vopnunarnefndarinnar, hefur ekk-
ert sagt um fundinn með fulltráa
IRA en búist er við, að hann hafi
snúist um það hve mikið sé af vopn-
um í fórum samtakanna, hvernig
þeim skuli fargað og hvernig eftir-
litinu skuli háttað.
AÐ minnsta kosti 105 manns hafa
farist í miklum flóðum í Víetnam og
22 er saknað. Hefur meira en millj-
ón manna misst eða orðið að flýja
heimil sín vegna vatnavaxtanna.
Úrhellisrigning var í Víetnam í
gær, sjötta daginn í röð, og mest í
strandhéruðunum um mitt landið.
Mikil flóð
í Víetnam
Má heita, að nokkur héruð séu und-
ir vatni enda er úrkoman næstum
Reuters.
tveir metrar frá mánaðamótum.
Mikil flóð voru einnig í þessum
sömu héruðum f siðasta mánuði og
þá fórust um 600 manns og var
tjónið metið á 17,5 milljarða fsl. kr.
Myndin er frá flóðunum í Quang
Dien-héraði skammt frá borginni
Hue.