Morgunblaðið - 07.12.1999, Side 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
L
LANDIÐ
Morgunblaðiðð/Sigurgeir Jónasson
Stjórn og varastjórn Eyverja. Sitjandi frá vinstri: Ester Helga Sæ-
mundsdóttir, Fríða Hrönn Halldórsdóttir, Gunnar Friðfinnsson, for-
maður, Betsý Agústsdóttir og Lilja Arngrímsdóttir. Standandi frá
vinstri: Leó Snær Sveinsson, Gunnar Þór Guðbrandsson, Daði Þorkels-
son, Rúnar Karlsson, Skapti Orn Olafsson og Héðinn Karl Magnússon.
Eyverjar 70 ára
Gunnar Friðfinsson afhendir Helga Braga-
syni gullmerki Eyverja.
Vestmannaeyjar - Ey-
verjar, félag ungra
sjáífstæðismanna í
Vestmannaeyjum, hélt
afmælisfagnað fyrir
skömmu í tilefni þess að
félagið verður 70 ára 20.
desember nk. Afmælis-
dagskráin var haldin í
Ásgarði, félagsheimili
sj álfstæðisfélaganna
Eyjum.
Afmælisdagskráin
byrjaði með fundi þar
sem þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins á Suð-
urlandi, Árni Johnsen
og Drífa Hjartardóttir,
höfðu framsögu og sátu
fyrir svörum. Að fundi
loknum tók við afmælis-
hóf í félagsaðstöðu Ey-
verja í Ásgarði en þar hafa Eyverjar
komið sér upp glæsilegri aðstöðu.
Talsverður fjöldi gesta var mætt-
ur í áfmælishófið og bauð Gunnar
Friðfinnsson, formaður félagsins,
gesti velkomna. Fór Gunnar nokkr-
um orðum um starf félagsins og
sagði að markmið þess væru enn þau
sömu og þegar það var stofnað fyrir
70 árum. Að vera vettvangur í'yi'ir
ungt fólk sem aðhyllist skoðanir
Sjálfstæðisflokksins og berst fyrir
víðsýnni framfarastefnu í þjóðfélag-
inu með hagsmuni allra stétta að
leiðarljósi.
Að loknu ávarpi Gunnars tóku
margir til máls og rifjuðu upp
skemmtileg atvik úr starfi Eyverja
gegnum tíðina og fluttu félaginu ám-
aðaróskir á afmælinu.
Gunnar afhenti síðan gullmerki fé-
lagsins til þeirra er verið hafa for-
menn Eyverja síðasta áratuginn en
hefð er fyrir því að formenn félags-
ins hljóti gullmerki þegar félagið
fagnar merkisafmælum.
Eyverjar efndu til sýningar á
myndum úr starfinu gegnum árin í
afmælishófinu og einnig voru til sýn-
is fundargerðarbækur félagsins og
blöð sem það hefur staðið að útgáfu á
og glugguðu gestir í þetta meðan
þeir gæddu sér á kaffí og meðlæti
sem boðið var uppá.
Bók væntanleg
Eyverjar ætla síðan að fagna af-
mæli félagsins enn frekar á næst-
unni því 18. desember verður dans-
leikur á þeirra vegum þar sem
Radíusbræður og hljómsveitin Sól-
dögg halda uppi fjörinu og á afmæl-
isdaginn verður gefin út vegleg bók
þar sem stiklað verður á stóru í sögu
félagsins og rifjaðir upp skemmtileg-
ir atburðir og sögur sem tengjast
starfinu.
Ungar
björgunar-
sveitar-
stúlkur
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Þórshöfn-Björgunarsveitin Hafliði
á Þórshöfn á sér dygga stuðnings-
menn og velunnara en það er nokk-
uð sérstakt hve ungir sumir þeirra
eru. Þær Sandra Ösp Konráðsdóttir
og Petra Bergrún Axelsdóttir, báð-
ar 11 ára, hafa borið hag björgun-
arsveitarinnar fyrir brjósti síðan
þær voru litlar stelpur og hafa stað-
ið fyrir ýmiss konar fjái'öflun t.ii
styrktar sveitinni. Kvennadeildin
hefur einnig notið góðs af dugnaði
þeirra en ýmis gagnleg eldhús-
áhöld eru afrakstur af tombólu-
amstri stúlknanna.
Þegar björgunarsveitin keypti
öfluga Hummer-bifreið fyrir
nokkrum árum sáu stúlkurnar fram
á að nú þyrftu allir að leggjast á eitt
til að fjármagna kaupin og þær
helltu sér út í verkefnið. Tombólur
voru helsta fjáröflun þeirra og eitt
sinn prentuðu þær lítið Hummer-
blað sem þær seldu. I gegnum tíð-
ina hafa þær safnað tæplega 50
þúsund krónum og björgunarsveit-
in ásamt kvennadeild hefur tekið
með þökkum við framlaginu.
Sandra og Petra sinna fleiri
verkefnum í þágu björgunarsveitar
og kvennadeildar á Þórshöfn. Þær
hafa tekið að sér nokkurs konar
húsvörslu í húsi deildanna, Haf-
liðabúð, sem einkum felst í því að
halda húsinu hreinu. Að sögn
þeirra er það stundum nokkurt
verk, því innangengt er úr bfla-
geymslunni, þar sem bflar, vélsleð-
ar og annar tækjabúnaður er
geymdur, í húsið sjálft. „Karlarnir
mættu alveg ganga betur um, ekki
fara á stígvélunum beint inn á hvítu
flísarnar á forstofunni og snyrting-
unni,“ sögðu Sandra og Petra sem
finnst tími til kominn að kenna
karlpeningnum betri umgengnis-
reglur.
Formenn deildanna tveggja eru
að vonum ánægðir með dugnað og
fjáröflun stúlknanna en þó fyrst. og
fremst með það að svo ung börn
hafi brennandi áhuga á málefnum
sem snúast um slysavarnir og
björgunarmál í byggðarlaginu. Ef
því er eins háttað víðar um landið
er þessi málaflokkur í góðum hönd- I
um hjá næstu kynslóð.
Morgunblaðið/Aldís
Dugmiklir unglingar í Hveragerði
Hveragerði-Glæsilegir unglingar
helguðu eitt kvöld nú nýverið tísku í
Grunnskólanum
í Hveragerði en þar var keppt í
hárgreiðslu og förðun og einnig vald-
ar bestu fyrirsætumar. Unglingarn-
ir lögðu mikið á sig til að gera kvöldið
sem glæsilegast og stóðu æfingar yf-
ir í marga daga. Rúmlega 30 ungl-
ingar tóku þátt í keppnunum en enn-
fremur komu fjölmargir fram í
skemmtiatriðum sem og í tískusýn-
ingu frá Heilsuhæðinni í Hveragerði.
Sigurvegari í hárgreiðslukeppn-
inni var Hildur Magnúsdóttir sem
greiddi Regínu Magnúsdóttui'. í
förðunarkeppninni sigraði Erla Kri-
stín Hansen, hennar módel var Ás-
gerður Halldórsdóttir. Besta fyrir-
sætan var valin Hrefna Tómasdóttir.
Sérstaklega gaman var að sjá hversu
margir áhorfendur mættu á sýningu
unglinganna og greinilegt var að fólk
skemmti sér hið besta.
Morghunblaðið/Kristbjörg
Heyrúllur umflotnar vatm
Skjaldfónn - I hríðarveðri fyrir
stuttu gerði mikinn krapaburð í
vatnsmestu á Vestfjarða, Selá, svo
hún stíflaðist og varð að finna sér
nýjan farveg.
Um Skjaldfannardai rennur um-
rædd á sem gerði grönnum sínum
ljótan grikk er hún flæddi yfir
bakka sína og rann þar sem hún er
ekki vön. Indriði bóndi á Skjald-
fönn var með vel yfir hundrað rúll-
ur á öruggum stað að því er hann
taldi en svo reyndist ekki vera.
Það var því ekki um annað að
ræða en drífa í að keyra rúllurnar
á þurrt áður en þær frysu fastar og
fylltust af vatni. Þó ekki væri út-
litið gott tókst að koma þeim upp
úr straumnum og þrátt fyrir bleyt-
una virðast rúllurnar í ágætu
standi að sögn Indriða, að vísu
töluvert blautar en vel gefanlegar.
Indriði sagðist aldrei hafa séð
þvílíkan krapa í ánni um þetta leyti
árs og því síður að hún fyndi sér
farveg á þessum stað. Áin var sem
stórfljót á að líta og huldi algjör-
lega um 4 ha lands þar á meðal 3
ha sem nýbúið var að herfa fyrir
nýrækt.
Ekki er hægt að segja til um
hvort þetta framhlaup hafi einhver
eftirköst í för með sér að vori.
Vesturlandsmeistarar í
hinni fornu íþrótt glímu
Grundarfirði - Fjórir ungir drengir
frá Grundarfirði urðu Vestur-
landsmeistarar í glímu nýverið.
Þessi foma íþrótt Islendinga hefur
notið vaxandi vinsælda hér um slóð-
ir og æfingar hafa verið fjölsóttar.
Vesturlandamótinu er nýlokið og
var mikið tekist á. Sigur fjórmenn-
inganna var harðsóttur mjög og fór
einn kappanna úr olnbogaliðnum við
átökin. Slíkar fómir eru þó taldar
léttvægar þegar sigurinn er í höfn.
Drengimir heita (frá vinstri)
Sveinn Bárðarson, Bjöm Þór Þor-
steinsson, Amór Hermundarson og
Þorkell Guðnason.