Morgunblaðið - 07.12.1999, Síða 16

Morgunblaðið - 07.12.1999, Síða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Menntamálaráðherra um að Þyrping hf. eigi og reki rannsóknahús við Háskólann á Akureyri Samvinna háskóla og einkafyrirtækis merkilegt skref BJÖRN Bjai'nason menntamálaráð- herra segir það merkilegt ski'ef sem ríkisstjórnin hefur nú ákveðið að stíga varðandi byggingu rannsókna- húss við Háskólann á Akureyri. Rík- isstjórn samþykkti að tillögu mennta- málaráðherra og sjávarútvegsráð- herra að taka upp viðræður við full- trúa fasteignafélagins Þyrpingar hf. um byggingu rannsóknai-húss á lóð háskólans á Sólborg. Háskólinn og samstarfsstofnanh' myndu leiga hús- næði af eiganda byggingarinnai'. Rætt er um að reisa allt að 4.000 fer- metra stórt hús, þar sem verður að- staða fyrir háskólann og fjölmargai' samstarfsstofnanir hans og þar yrði svonefnt Matvælasetur. Þá myndi Þyrping hf. nota um 1.000 fermetra af húsnæðinu og leiga það til ýmissa fyr- irtækja sem starfa vilja í nánum tengslum við háskólann. Menntamálaráðherra benti á að framkvæmdir hafí staðið yfir við Há- skólann á Akureyri í því skyni að búa honum betri aðstöðu á Sólborg og væri verið að vinna að nýbyggu þar um þessar mundir. Þá hefði einnig verið talið skynsamlegt að reisa rannsóknahús í tengslum við starf- semi háskólans. Annars vegar hefðu komið fram hug- myndir um að Akureyrarbær legði fram fé til byggingarinnar og ríkið myndi greiða það til baka á nokkrum árum „Eg taldi skynsamlegt að fara þessa leið, að athuga hvort einkaaðili væri tilbúinn að reisa húsið og eiga það og háskólinn og samstarfsstofn- anir hans leigi svo húsnæðið. Þetta vai' sú leið sem ríkisstjómin ákvað að fara,“ sagði Björn. Merkilegt skref „Þetta er að mínu mati afar merki- legt skref,“ sagði Björn um fyrirhug- aða samvinnu háskólans og einkafyi'- irtækis á þessu sviði. Hann sagði mikla reynslu af svipuðu samstarfi í útlöndum og það hefði gefið góða raun. Þarna yrði heldur ekki aðeins rannsóknai'starfsemi sem tengist há- skólanum heldm' myndi Þyi'pin skapa aðstöðu fyrir t.d. hugbúnaðaríyrir- tæki og fleiri sem starfa vilja í nánum tengslum við háskólasamfélagið en það skapaði meiri fjölbreytni bæði í háskólanum og eins í atvinnulífinu. „Við eram að þessu leyti að fara inn á nýja braut, gefum mönnum færi á að þróa rannsóknarstarfsemi í næsta ná- grenni við háskólann en slíkt hefur hvarvetna gefist vel,“ sagði Björn. Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri á Akureyri sagði niðurstöðuna í mál- inu mjög góða og vænti hann þess að menn myndu vinna hratt og fljótt að því. „Með þessu eflist háskólinn og i rauninni Akureyri sem höfuðstaður Norðurlands með þess er verið að skjóta enn styrkari stoðum undir þá starfsemi sem þarna fer fram,“ sagði Kristján. Hann fagnaði því háskólinn hefði eignast öfluga bandamenn, sem væru menntamálaráðherra og sjáv- arútvegsráðherra. Um það loforð bæjaryfii’valda frá 10 ára afmæli há- skólans fyrir tveimur árum, að fjár- magna byggingu rannsóknahússins, sagði bæjarstjóri að nú væri ljóst að sá háttur yrði ekki hafður á. „En við höfum alls staðar og alltaf full not fyi’ii' þessa fjármuni og þeir munu koma bæjarbúum og háskólanum að góðu gagni þó með öðrum hætti verði,“ sagði Kristján. HASKOLINN A AKUREYRI Núverandi aðalskrifstofur / ADAtSðl TFFHTrnTlTi'l!__ ÁFANGI1 •C'O AFANGI I -CO H V FULLGERÐUR Jjyf //Æ —CV\\í )\\ ÁFÁNGI ii ‘i'icRÍfwoai'R' ÍÖSV ÍFANGÁ « - i f V H' rre&N&jU - sId^ri áf ^ —~?í ! )<t 1ÖÖÖÖÖ!' | mmt BYSplífSE.iAVAej Glerárþorp FJAU' ftX: 4000 fermetra rannsókna- hús rís á þessum stað Brekkan Rannsóknahúsið við Háskólann á Akureyri sést á skyggða fletinum, neðst á myndinni, en á henni sjást allar byggingar sem verða munu við háskólann fullbyggðan. Morgunblaðið/Kristján Kveikt á jólatrénu frá Randers AKUREYRINGAR fjölmenntu í miðbæinn sl. laugardag og fylgdust með því er kveikt var á stóra jólatrénu á Ráðhústorgi. Tréð er árleg gjöf frá Randers, vinabæ Akureyrar í Danmörku og er glæsilegt að vanda. Veðurguðirnir voru til friðs framan af degi en um það leyti sem kveikt frá á trénu fór að kyngja niður snjó, þannig að viðstaddir litu fljótlega út eins og snjókarlar og snjókerlingar. Við athöfnina á Ráðhústorgi, lék Lúðrasveit Akureyrar nokkur Iög og Kór Akureyrarkirkju tók lagið. Kristján Þór Júliusson bæjarstjóri og Sigurður Jóhannesson, konsúll Dana, fluttu ávörp en eftir að kveikt hafði verið á trénu, söng Kór Menntaskólans á Akureyri og jólasveinar heilsuðu upp á gesti. Þessu til viðbótar var í tengslum við Jólabæinn Akureyri boðið upp á fjölbreytta dagskrá í miðbænum um helgina. Þá var Landsbankinn með opið hús á laugardag og komu margir í heimsókn í bankann. Sjávarútvegsráðherra vígði nýja Þróunarstöð Útgerðarfélags Akureyringa hf. Fullkomin aðstaða til rann- sókna- og þróunarstarfa SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA, Árni Mathiesen, vígði nýja Þróun- arstöð Útgerðarfélags Akureyr- inga hf. sl. laugardag að viðstöddu fjölmenni. Undanfarna mánuði hefur verið unnið að því að inn- rétta aðstöðu fyrir þróunardeild félagsins og er markmiðið að skapa starfsmönnum deildarinnar fyrsta flokks aðstöðu til rann- sókna- og þróunarstarfa og þar sem þeir geta kynnt erlendum og innlendum viðskiptamönnum af- urðir þess. Guðbrandur Sigurðsson fram- kvæmdastjóri ÚA sagði að opnun Þróunarstöðvarinnar væri eðlilegt framhald á þeim áherslum sem lagðar hafa verið í rekstri félags- ins. „Það sem við erum fyrst og fremst að gera, er að skapa góða umgjörð og aðstöðu fyrir þróunar- starfið og ekki síður að bjóða við- skiptavinum upp á góða aðstöðu þegar þeir eru hér í heimsókn." Guðbrandur sagði að allir fisk- bitar sem seldir eru til Bandaríkj- anna fari þar beint inn á veitinga- hús og þá sem fullbúin neysluvara. Einnig væri félagið að færa sig inn í frekari framhaldsvinnslu, m.a. með því að blanda saman hráefn- um. Slík vinnsla er um 8% af heildarframleiðslunni í landi í ár og taldi Guðbrandur likur á að framhaldsvinnslan ætti eftir að aukast enn frekar. Fjárfesting sem mun styrkja félagið Miklar vonir eru bundnar við Þróunarstöðina og að þegar fram í sækir muni þessi fjárfesting styrkja félagið á margan hátt. Þar Morgunblaðið/Kristján Friðrik Jóhannsson stjórnarformaður UA, Árni Steinar Jóhanns- son alþingismaður, Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra og Guð- brandur Sigurðsson framkvæmdastjóri UA við sýnishorn af fram- leiðslu fyrirtækisins. starfa tveir matvælafræðingar, Arnheiður Eyþórsdóttir og Agnes Joly, sem vinna að því að þróa nýj- ar afurðir og auka gæði fram- leiðsluvara félagsins með því að innleiða fullkomnustu vinnsluað- ferðir sem völ er á hverju sinni. „Við höfum verið með formlegt vöruþróunarstarf frá því í ársbyrj- un 1997 og finnum vel hverju það starf er að skila okkur í rekstrin- utn;“ sagði Guðbrandur. Á neðri hæð Þróunarstöðvarinn- ar er vinnslusvæði þar sem unnt er að prófa aðferðir til framhalds- vinnslu áður en þær eru reyndar í verksmiðjunum sjálfum. Þar er jafnframt unnið að því að íínna lausnir á vandamálum sem upp kunna að koma í framleiðsluferli afurðanna. Jafnframt eru prófuð ýmis hráefni sem til greina kemur að nota við framleiðsluna. Má þar nefna bragðefni, bindiefni og brauðunarvörur. Á efri hæð er eldhús, fundarher- bergi, setustofa og skrifstofa. Þar er því mjög góð aðstaða til að taka á móti erlendum og innlendum við- skiptavinum, kynna þeim fullmat- reiddar afurðir og ræða frekari þróun þeirra.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.