Morgunblaðið - 07.12.1999, Blaðsíða 66

Morgunblaðið - 07.12.1999, Blaðsíða 66
-4>6 ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ Hlustaðu á mbl.is Á plötuvef mbl.is er að finna ítarlegar upplýsingar um 145 nýjar plötur frá 64 útgefendum og nú geta gestir mbl.is hlustað á eitt til þrjú 30 sekúndna tóndæmi af hverjum titli. Einnig gerir tenging við Amazon.com notendum mögulegt að kaupa mikið úrval geisladiska beint af Netinu. Gerðu jólainnkaupin auðveldari og farðu á mbl.is ! 4»>mbl.is _/kLLTTAf^ e/TTHVVHD NÝTT FRÉTTIR Eitt alvarlegt ofbeldis- brotamál og rán í verslun EITT alvarlegt ofbeldisbrotamál kom upp um helgina sem varðar lát aldraðrar konu. Þá var verslun í Hlíðahverfi rænd og ofbeldi hótað. Mjög fátt var í miðborginni um helgina og gekk skemmtanahald að mestu átakalaust fyrir sig. Lögreglan í Reykjavík mun eins og önnur lögreglulið beina sér- stakri athygli að ölvunarakstri sem þvi miður er algengur þessar síð- ustu vikur fyrir jólahátíðina. Um helgina voru 4 ökumenn stöðvaðir vegna gruns um ölvun. Um helgina var lögreglu tilkynnt um 56 umferðaróhöpp. A laugardag varð árekstur tveggja bifreiða á Vesturlandsvegi við Leirvogsá. Ökumaður og þrír farþegar voru fluttir á slysadeild en meiðsli talin minniháttar. Ökumaður missti stjóm á bifreið sinni á Hafravatnsvegi á laugar- dag. Bifreiðin lenti út af veginum og valt á hliðina. Handtekinn með fíkniefni 18 ára piltur var handtekinn að kvöldi laugardags eftir að hafa reynt að nota vákort á veitingastað í miðborginni. Pilturinn var fluttur á lögreglustöð og fundust á honum ætluð fíkniefni. 3.-6. desember Brotist var inn í veitingastað í Arbæjarhverfi um helgina og það- an stolið nokkrum verðmætum. Brotist var inn í skip sem liggur við Grandabryggju og þaðan stolið myndbandstæki. Á föstudag voru afskipti höfð af tveimur piltum vegna gruns um þjófnað í Kringlunni. Við leit fund- ust ætluð fíkniefni og lyf í bifreið þein-a. Karlmaður handtekinn vegna manndrápsrannsóknar Rúmlega áttræð kona fannst lát- in í íbúð sinni í austurborginni að kvöldi föstudags. Af áverkum að dæma er talið að henni hafi verið ráðinn bani og er málið rannsakað sem manndráp. Karlmaður var handtekinn á laugardag í tengslum við rannsókn málsins og hefur hér- aðsdómur fallist á kröfu lögreglu um gæsluvai-ðhald til 5. janúar nk. Að kvöldi sunnudags barst lög- reglu tilkynning um að verslun í Hlíðahverfi hefði verið rænd. Tveir menn ógnuðu starfsstúlku með bareflum og höfðu á brott lítilshátt- ar fjármuni. Málið er í rannsókn. Tveir piltar undir tvítugu voru stöðvaðir á föstudagskvöld vegna gnins um sölu á landa til ung- menna. Við leit í bifreið þeirra fundust 23 lítrar af landa. Piltarnir voru fluttir á lögreglustöð og hald lagt á „áfengið". Mikilvægt er að borgarar láti lögreglu vita hafi þeir vitneskju um einstaklinga sem eru að selja börnum og unglingum landa og önnur ólögleg efni. Lögreglan ásamt slökkviliði var kölluð að íbúð í Álfheimum aðfara- nótt sunnudags en mikill reykur var í íbúðinni. Reyndist hann koma írá brauðrist. Piltur á 18. ári var handtekinn aðfaranótt sunnudags grunaður um að hafa lagt eld að Fríkirkj- unni. Skemmdir urðu á glugga- kistu. Öryggisvörður hljóp piltinn uppi og færði í hendur lögreglu. Tveir piltar voru handteknir eft- ir að lögreglumenn höfðu orðið vitni að skemmdarverkum þeirra í miðborginni að morgni sunnudags. Piltarnir reyndu að komast undan á hlaupum en voru handteknir og fluttir á lögreglustöð.Tilkynning barst um lausan eld í íbúð í Hlíða- hverfi síðdegis á sunnudag. Reyk- skynjari hafði vakið íbúana en miklar skemmdir urðu af hita, eldi ogreyk. Fulltrúar Lionsklúbbsins afhentu Sigurbergi gripinn. Viðurkenning vegna nýrra verslunarhátta Gaflarinn 1999 af- hentur í Hafnarfírði Fundur um orkumál á Suðurlandi ATVINNUÞRÓUNARSJÓÐUR Suðurlands og Atorka, félag at- vinnurekenda á Suðurlandi, boða til opins fundar um orkumál á Suður- landi í Hótel Selfossi, miðvikudaginn 8. desember, kl 20.30. Á fundinum munu eftirfarandi að- ilar hafa framsöguerindi: Þorkell Helgason, Orkumálastjóri: Yfirlit yf- ir orkumál á Suðurlandi. Jón Ingi- marsson, Iðnaðarráðuneyti: Vænt- anlegar breytingar á orkulögum Steinar Friðgeirsson, Rarik: Þjón- usta orkuveitna og mögulegar virkj- anir sunnlenskrar orku. Róbert Jónsson, Atv. þr.sj. Suðurl., Orka fyrir Suðurland, möguleikar Suður- lands í orkumálum. Asbjörn Blöndal, Selfossveitur: Þjónusta Selfoss- veitna og óhefðbundnar leiðir í raf- orkuöflun, Vindorkufélagið. - ♦ ♦ ♦ Vistvernd í verki kynnt KYNNING verður í verslunarmið- stöðinni Firði í Hafnarfirði vikuna 6.-10. desember. Kynntverður verk- efnið „vistvernd í verki“ sem snýr að fjölskyldum og hvað þær geta gert til þess að bæta umgengni við um- hverfið. Á staðnum verða milli kl. 15 og 17 alla daga þessarar viku Hulda Steingrímsdóttir verkefnisstjóri, og nefndarmenn staðardagskrárverk- efnisins, en í nefndinni eru Steinunn Guðnadóttir form., Guðrún Hjör- leifsdóttir, Friðrik Ólafsson, Hara- ldur Ólason og Gunnur Baldursdótt- ir. Fyrirtækið ÚTGÁFA Á ÍSLENSKU telur að bókaverð sé of hátt www.tunga.is SIGURBERGUR Sveinsson, kaupmaður í Fjarðarkaupum, var kjörinn Gaflari ársins 1999, á Gafl- arahátíð Lionsklúbbs Hafnarfjarð- ar. Viðurkenningin var sérstaklega veitt fyrir að hafa frá upphafi verslunarinnar innleitt nýja versl- unarhætti í Hafnarfirði. í þeim málum stendur hann enn með pálmann í höndunum, þrátt fyrir síharðnandi samkeppni, segir í fréttatilkynningu. Viðurkenningin, Gaflari ársins, er dúkka sem táknar hinn sígilda hafnfirska gaflara. Henni er komið fyrir á viðarbút úr hafnfirsku tré, sem sniðinn er til af formanni klúbbsins, Friðgeiri H. Guðmun- dssyni. Þá er komið fyrir merkis- spjöldum til hliðanna, sem segja frá hver hlýtur hann hvert ár. Á STJÓRNARFUNDI Sambands ungra framsóknarmanna 2. desem- ber sl. lét Árni Gunnarsson formað- ur þess af störfum eftir að hafa gegnt embættinu undanfarin þrjú og hálft ár. Við stöðu formanns tók varaformaður sambandsins, Einar Skúlason, og mun hann gegna stöð- unni uns nýr formaður verður kosinn Tilgangur Lionsklúbbsins er að safna, með þessari hátíð og sölu barmmerkja, fé til að gera átak í vímuefnavörnum. I ár er söfnunin nefnd Aldamótaátak í vímuefna- vörnum. Hyggst klúbburinn kalla saman áhrifamenn og leita álits þeirra á hvernig fénu verði best varið. Nokkrir úr fjáröflunarnefnd mættu í Fjarðarkaup laugardaginn 4. desember og afhentu Sigurbergi styttuna til varðveislu næsta árið. En þetta er farandgripur og veit- ist ái'lega. Við það tækifæri sýndi Sigurbergur þeim gott safn sögu- legra Ijósmynda úr bænum, sem hann hefir látið vinna upp og stækka og nær það allt aftur á síð- ustu öld. Myndunum er komið fyj'- ir í húsakynnum Fjarðarkaupa. á næsta þingi SUF í Skagafirði í júní árið 2000. Ástæða þessara umskipta eru annir og breytingar á persónu- legum högum Arna en hann hefur tekið við nýju starfi á Sauðárkróki. Á fundinum lýsti stjórn SUF yfir skiln- ingi á þessum breyttu aðstæðum og þakkaði Árna fyrir vel unnin störf í þágu samtakanna. Nýr formaður SUF
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.