Morgunblaðið - 07.12.1999, Side 10

Morgunblaðið - 07.12.1999, Side 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Fyrirspurn um afstöðu forsætisráðherra til yfírlýsingar sparisjóðanna og Kaupþings vegna FBA Segir yfírlýsinguna staðfesta orð sín um baksamning DAVÍÐ Oddsson forsætisráðheiTa sagði á Alþingi í gær að yfirlýsing sem forsvarsmenn Kaupþings og sparisjóðanna sendu frá sér 17. nóvember staðfesti í raun þau um- mæli hans að Kaupþing og Orca- hópurinn hefðu á sínum tíma skuldbundið sig með baksamningi til að halda áfram að kaupa hluta- bréf þar til meirihluta væri náð í FBA. Sagði Davíð það jafnframt undarlegt að Kaupþingsmenn segðu nú að þeir hefðu verið tilbún- ir að kaupa FBA á sambærilegu verði og seinna fékkst fyrir bank- ann því allt annað hefði komið fram í viðræðum þeirra við ríkisstjórn- ma. Alþingi Dagskrá FUNDUR hefst í Alþingi í dag kl. 13.30. Eftirfarandi mál eru á dag- skrá fundarins: 1. Kjör forræðislausra foreldra, beiðni um skýrslu. Hvort leyfð skuli. 2. Byggðastofnun, frh. 1. umræðu (atkv.gr.) 3. Fjáraukalög 1999, nefndarálit og breytingartillaga. 4. Póst- og Qarskiptastofnun, frh. 1. umræðu. 5. Fullgilding samnings um fram- kvæmd, beitingu og þróun Sehengen-gerðanna, fyrri um- ræða. 6. Schengen-upplýsingakerfið á íslandi, l. umræða. 7. Þátttaka íslands í Schengen- samsiarfinu, 1. umræða. 8. Ábúðarlög, 1. umræða. 9. Bann við uppsögnum vegna fjölskylduábyrgðar starfs- manna, 1. umræða. 10. Brunavarnir og brunamál, 1. umræða. 11. Gi unnskólar, 3. umræða. Alþingi Stutt Rætt um íslenska velferðarkerfíð EFNT verður til umræðu utan dag- skrár á Alþingi í dag um íslenska velferðarkerfið. Málshefjandi er Asta Ragnheiður Jóhannesdóttir og verður Ingibjörg Pálmadóttir, heil- brigðis- og tryggingaráðherra, til andsvara. Ráðgert er að umræðan taki um það bil eina klukkustund og hefst hún kl. 13.30. Jóhanna Sigurðardóttir, þing- maður Samfylkingar, hafði í óund- irbúnum fyrirspumatíma lýst eftir viðbrögðum forsætisráðherra við ásökunum forsvarsmanna Kaup- þings og sparisjóðanna, um að Da- víð hefði farið með rangt mál í ut- andagskrárumræðum á Alþingi um einkavæðingu FBA. Sagði Jóhanna trúverðugleika forsætisráðherra í húfi og vildi því fá að vita hvort hann myndi beita sér fyrir því að umræddur baksamningur yrði gerður opinber. Davíð sagði yfirlýsingu Kaup- þings og sparisjóðanna harla sér- staka því að þar væri því haldið fram að ummæli hans fengju ekki staðist, en að þegar yfirlýsingin væri síðan lesin kæmi fram stað- festing á því sem hann hélt fram. „Forsvarsmenn sparisjóðanna og Kaupþings komu á fund all- margra manna í forsætisráðuneyt- inu og óskuðu eftir því að fá að kaupa allan Fjárfestingarbankann, og sögðust vera tilbúnir að greiða fyrir bankann átta og hálfan millj- arð króna, og bættu því svo við á þeim fundi, í fjölda manna viður- vist að slíkt kauptilboð fengjum við aldrei aftur. Núna segja þeir að þeir hafi hins vegar verið tilbúnir að greiða sama verð og við seldum á nú, þeir sögðu bara ekki nokkrum lifandi manni frá því,“ sagði Davíð. „Nú segja þeir að þeir hafi verið tilbúnir að gera það þrátt fyrir yfirlýsingu sína við ríkis- stjórnina um allt aðra hluti.“ Fékk upplýsingar frá traustum heimildarmönnum Davíð sagði yfirlýsinguna enn merkilegri hvað varðaði umræddan leynisamning Kauþings og Orca- Morgunblaðið/Halldór Ráðherrarnir Davíð Oddsson og Finnur Ingólfsson svöruðu fyrirspurnum um málefni fjármálastofnaua í gær. hópsins, þar sem þessir aðilar skuldbundu sig til að kaupa áfram hlutabréf á markaðnum til þess að geta náð 50% eignarhaldi á bank- anum. „Þessu var hafnað af hálfu Kaup- þings, að slíkir samningai- væru til. Eg hins vegar fékk það upplýst, frá aðilum sem ég treysti fullkomlega, að svona væri þetta," sagði Davíð. I yfirlýsingu Kaupþings og sparisjóðanna núna segði síðan allt í einu að það að samningurinn inni- héldi ákvæði um frekari hluta- bréfakaup samningsaðila reyndist slíkt unnt, með það að markmiði að sameina Kaupþing og FBA, þyrfti ekki að koma neinum manni á óvart, „en það kom bara öllum á óvart því þeir neituðu því að svona heimild væri fyrir hendi“. Sagði forsætisráðherra því að það eina sem makalaus yfirlýsing forsvarsmanna Kaupþings og sparisjóðanna gerði væri að stað- festa allt það sem þeir segðu að fengi ekki staðist. Engin ástæða væri því fyrir sig að beita sér fyrir því að umræddur baksamningur yrði gerður opinber. Finnur Ingólfsson viðskiptaráðherra svarar fyrirspurn um málefni viðskiptabanka Engar ákvarðanir hafa verið teknar um sameiningu FRAM kom í svari Finns Ingólfs- sonar viðskiptaráðherra við fyrir- spum á Alþingi í gær að engar ákvarðanir hefðu verið teknar um sameiningu fjái-málastofnana. Hann sagði þó að miklu máli skipti að ná fram hagræðingu í bankakerfinu með það að markmiði að draga úr kostnaði og lækka vexti svo hægt væri að bjóða íbúum og fyrirtækj- um í landinu sambærilega fjármála- þjónustu og nágrannalöndin búa við; I fyrirspurnatíma á Alþingi gerði Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, að umtalsefni orð Halldórs Kristjánssonar, bankastjóra Landsbankans, og Helga S. Guðmundssonar, for- manns bankaráðs Landsbankans, í Morgunblaðinu á sunnudag varð- andi hugsanlega sameiningu ein- hverra viðskiptabankanna. Lét Halldór þar m.a. hafa eftir sér að hann vænti tíðinda af sameining- armálunum á næsta ári, og sagði í S WMHM Ite ALÞINGI jafnframt að hann teldi samein- ingu Landsbanka og íslandsbanka líklegasta kostinn. „Nú er það svo,“ sagði Stein- grímur, „að hér tala ekki hverjir sem er. Hér tala tveir sérstakir trúnaðarmenn og menn hand- gengnir hæstvirtum viðskiptaráð- herra. Og það verður að spyrja, og ætla, að þeir tali ekki svo án nokk- urs samráðs eða í trássi við sinn leiðtoga, það er að segja hæstvirt- an viðskiptaráðherra." Steingrímur rifjaði upp að við umræður um sölu á 15% hlut ríkis- ins í Landsbanka og Búnaðar- banka, sem fram fóru á Alþingi síð- astliðinn föstudag, hefðu ekki kom- ið fram neinar upplýsingar um að slíkt væri í farvatninu og spurði hann því hver væri eiginlega staða þessara mála og hvers vegna menn handgengnir viðskiptaráðherra tjáðu sig með þessum hætti. Velti hann því fyrir sér hvort í undirbún- ingi væru byltingarkenndar breyt- ingar á bankaumhverfi í landinu með því að sameina tvo stærstu banka landsins og búa þannig til yfirgnæfandi stóran aðila á þessum markaði. Hagræðing mikilvæg á íslensk- um fj árm ál am arkað i Finnur Ingólfsson viðskiptaráð- herra sagði í svari sínu að skýrt hefði komið fram við umræðurnar á föstudag að hann teldi ekki ástæðu til að hlaupa til frekari sölu á eignarhlut ríkisins í Búnaðar- banka og Landsbanka. Nú skipti meira máli að beita sér fyrir hag- ræðingu á fjármálamarkaði. „Sú hagi-æðing getur meðal ann- ars falist í því að sameina fjármála- fyrirtæki, auka samstarf fjármála- fyrirtækja, leita eftir samstarfi við erlend fjármálafyrirtæki inn á ís- lenskan fjármagnsmarkað og þar fram eftir götunum,“ sagði ráð- herrann. Meginmarkmiðið, að hans sögn, væri „að lækka vaxtakostnað, draga úr rekstrarkostnaði bank- anna þannig að íslensk fyrirtæki og fólk í landinu byggju við sambæri- leg samkeppnisskilyrði hvað þetta snerti og löndin í kringum okkur. Kvaðst Finnur hins vegar hafa sagt að hann ætlaði ekki að beita sér fyrir slíkum breytingum, það kall ætti að koma frá markaðnum. „Það kann vel að vera að markað- urinn sé að taka við sér í þeim efn- um en þessar breytingar verða ekki gerðar nema með tilstyrk Al- þingis, það liggur fyrir,“ sagði Finnur Ingólfsson viðskiptaráð- herra. Þingsályktunartillaga um notkun íslenskra veðurhugtaka Stinningskaldi með metrum á sekundu LÖGÐ hefur verið fram þingsálykt- unartillaga á Alþingi um notkun ís- lenskra veðurhugtaka hjá Veður- stofu íslands. Þar er lagt til að Al- þingi beini því til umhverfisráð- herra að fela Veðurstofu íslands að nota íslensku hugtökin logn, hægur vindur, andvari, kul, gola, stinnings- gola, kaldi, stinningskaldi, allhvass vindur, hvassviðri, stonnur, rok, ofsaveður og fárviðri eins og við á í veðurlýsingum og veðurspám í ljós- vaka- og prentmiðlum samhliða metrum á sekúndu þegar lýst er veðurhæð. Það eru sjö þingmenn Sjálfstæðis- flokks sem eru flutningsmenn tillög- unnar, þau Kristján Pálsson, Guðjón Guðmundsson, Guðmundur Hall- varðsson, Sturla D. Þorsteinsson, Einar K. Guðfinnsson, Ambjörg Sveinsdóttir og Halldór Blöndal. I greinargerð með tillögunni kemur fram að skýringar Veður- stofunnar á því að hætta notkun þessara orða í veðurspám og veð- urlýsingum hafi ekki verið sann- færandi heldur óljósar í meira lagi, enda sé ekkert sem bendi til þess að nauðsynlegt sé að fella þessi hugtök úr orðasafni Veðurstofunn- ar. „Lestur veðurfrétta og veður- spár í ljósvakamiðlum er svo ríkur þáttur í daglegu lífi fólks að ef notkun orða er hætt þar er næsta víst að notkun þeirra leggist niður í daglegu tali.“ 200 ára gömul aðferð Guðmundur Hafsteinsson for- stöðumaður þjónustusviðs Veður- stofunnar, segir að ákveðið hafi ver- ið að fara í gegnum þessar breyt- ingar, enda talið nauðsynlegt að fara úr gamla vindstigakerfinu sem byggist á huglægu mati og 200 ára gamalli aðferð. „Þetta með orðin er kannski kafli út af fyrir sig. Það er auðvitað ágætt í daglegu tali að nota þessi orð og ég hef nú svona hugsað mér að þau geti smátt og smátt komið aftur. Ef þau eru svo veikburða að þau þola ekki að hvíla sig eða að Veðurstofan verði stöðugt að tönnlast á þeim, þá eiga þau nú ekki langa lífdaga held ég,“ segir Guð- mundur. Hann segir að í ýmsum spám, t.d. sjóveðurspánni, haf! lengi verið not- uð tala fyrir vindstig í stað þessara orða og enginn hafí kvartað undan því. Þeir sem mest nota spána, sjó- mennimir, báðust eindregið undan því að nota þessi orð og vildu fá hreina og klára tölu, að sögn Guð- mundar. Hann segir að þeir sem noti að staðaldri veðurspár vilji fá ör- ugga tölu sem ekki sé hægt að mis- skilja eða túlka á mismunandi hátt. Guðmundur telur einnig að það sé hálfgerð misþyrming á svona orðum, sem hafi kannski mismun- andi merkingu eftir t.d. landshlut- um, að negla þau fast niður í eitt- hvert ákveðið vindhraðabil og mega ekki nota þau út fyrir það. Með því sé drepin niður öll tilfinning fyrh’ orðunum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.