Morgunblaðið - 07.12.1999, Side 34

Morgunblaðið - 07.12.1999, Side 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Landsbókasafni afhent langspil úr eigu Hallgríms Helgasonar. F.v. Ein- ar Sigurðsson, Gunnar Helgason og dr. Bjarki Sveinbjörnsson. Verk eftir Hallgrím Helgason gefín Landsbókasafni Islensku bókmenntaverðlaunin Morgunblaðið/Kristinn Sameiginleg tilnefningarhátíð Islensku bókmenntaverðlaunanna og Barnabókaverðlauna Reykjavíkur var haldin í fyrsta sinn í gær en hingað til hefur ekki verið tilnefnt til síðarnefndu verðlaunanna. Á myndinni má sjá þá höfunda sem hlutu tilnefningar að þessu sinni. HANDRIT Hallgríms Helgasonar tónskálds voru afhent til varðveislu í Landsbókasafni Islands 3. nóvem- ber. Fór athöfnin fram í samkomu- sal safnsins, að viðstöddum ættingj- um og vinum tónskáldsins, en hann hefði orðið 85 ár þennan dag. Það efni, sem hér er, varðar ævi hans og strörf. Auk handritanna var safninu gefið langspil tón- skáldsins, sem er hinn fegursti gripur. Er það fyrsta hljóðfærið sem safnið eignast og vistað er í Þjóðarbókhlöðunni. Tónleikar Tónlistarskóla Tónlistarskóli Hafnarfjarðar FYRSTU jólatónleikar Tónlistai'- skóla Hafnarfjarðar í Hásölum verða annað kvöld, miðvikudagskvöld, kl. 20.30, en þá ríður Kammerkór Hafn- arfjarðar á vaðið undir stjórn Helga Bragasonar. Fimmtudaginn 9. des- ember kl. 20 verða jólatónleikar Bókin MIKILVÆGUSTU TUNGUMÁL JARÐAR svarar: Hversu mikilvæg er enska? www.tunga.is Súrefnisvörur Karin Herzog Oxygen face grunndeildar. Mánudaginn og þriðjudaginn 13. og 14. desember kl. 18 heldur forskólinn sína tónleika. Miðvikudaginn 15. desember verða tvennir tónleikar í Hásölum. Kl. 18.00 leika strengjasveitir skólans, en kl. 20.00 verða jólatónleikar mið- deildar. Tónleikar framhaldsdeildar verða fímmtudaginn 16. desember kl. 20.00. Tónlistarskóli Kópavogs Sjö tónleikar verða að þessu sinni í Tónlistarskóla Kópavogs og verða þeir allir haldnir í Salnum, Tónlistar- húsi Kópavogs, nema kirkjutónleik- arnir, sem fara fram í Kópavogs- kirkju. Á miðvikudag verða tvennir tón- leikar. Kl. 18 og kl. 20.30 verða blandaðir tónleikar eldri nemenda. Laugardaginn 11. desember verða tónleikar í Kópavogskirkju. Mánu- daginn 13. desember kl. 20.30 heldur söngdeildin sína tónleika og mið- vikudaginn 15. desember verða blandaðir tónleikar yngri nemenda kl. 18 og kl. 20. Barnabók tilnefnd í fyrsta sinn BARNABÓK var í fyrsta sinn til- nefnd til íslensku bókmenntaverð- launanna við athöfn í Iðnó í gær. Það var bók Andra Snæs Magna- sonar, Sagan af bláa hnettinum, í útgáfu Máls og menningar sem markaði þessi tímamót en þessi verðlaun, sem bókaútgefendur standa fyrir, hafa í gegnum árin meðal annars verið gagnrýnd fyrir að láta barnabækur ekki njóta sannmælis. Svo skemmtilega vildi til að bók Andra Snæs var einnig tilnefnd til Bamabókaverðlauna Reykjavíkur í Iðnó í gær en þetta var í fyrsta sinn sem tilnefnt er til þeirra. Einnig vakti það athygli að á meðal þeirra fímm bóka sem til- nefndar voru til íslensku bók- menntaverðlaunanna í flokki fagur- bókmennta voru þrjár ljóðabækur og aðeins ein skáldsaga fyrir full- orðna lesendur en þessar bækur eru: Harði kjarninn. Njósnir um eigið líf, ljóðabók eftir Sindra Freysson í útgáfu Forlagsins, Hug- ástir, ljóðabók eftir Steinunni Sig- urðardóttur í útgáfu Máls og menn- ingar, Meðan þú vaktir, ljóðabók eftir Þorstein frá Hamri í útgáfu Ið- unnar og skáldsagan Hvíldardagar eftir Braga Ólafsson í útgáfu Bjarts. í tilnefningu í flokki fræðirita og bóka almenns efnis vakti athygli að Mál og menning gefur út fjórar af þeim fimm bókum sem tilnefndar eru að þessu sinni en þær eru: ís- lensk matarhefð eftir Hallgerði Gísladóttur, Jónas Hallgrímsson, ævisaga, eftir Pál Valsson, Orð í tíma töluð eftir Tryggva Gíslason, Sjórán og siglingar eftir Helga Þor- láksson,allar í útgáfu Máls og menningar, og Siguijón Olafsson, ævi og list I-II eftir Áðalstein Ing- ólfsson og fleiri í útgáfu Listasafns Sigurjóns Ólafssonar. Dómnefnd í flokki fagurbók- mennta skipuðu Jón Reykdal, for- maður, Magnea J. Matthíasdóttir og Matthías Viðar Sæmundsson. Dómnefnd í flokki fræðirita skipuðu Kristín Ástgeirsdóttir, formaður, Aðalgeir Kristjánsson og Einar H. Guðmundsson. Fonnenn voru til- nefndir af Félagi íslenskra bókaút- gefenda en hin voru tilnefnd af Rit- höfundasambandi íslands, heimspekideild Háskóla Islands, Rannsóknarráði Islands og Hag- þenki, félagi höfunda fræðirita og kennslugagna. Barnabókaverðlaun Reykjavíkur Lokadómnefnd mun síðan velja eina bók úr hvorum flokki til verð- launanna sem forseti Islands af- hendir eftir áramót. Formaður loka- dómnefndar verður Haraldur Ólafsson, tilnefndur af forseta ís- lands, og með honum starfa for- menn hinna nefndanna tveggja. Tilla: Grýlusaga eftir Gunnar Karlsson í útgáfu Skrípó, Kleinur og Karrí eftir Kristínu Steinsdóttur í útgáfu Vöku- Helgafells, Landn- ámsmennirnir okkar eftir Stefán Aðalsteinsson í útgáfu Máls og menningar, Miljón steinar og Hroll- ur í dalnum eftir Kristínu Helgu Gunnai'sdóttur í útgáfu Máls og menningar og eins og áður sagði Sagan af bláa hnettinum eftir And- ra Snæ Magnason í útgáfu Máls og menningar. Til verðlauna fyrir þýðingu voru tilnefndar eftirtaldar bækur: Harry Potter og viskusteinninn í þýðingu Helgu Haraldsdóttur í útgáfu Bjarts, Hvalir og Stórir kettir, fræðibókaflokkur í þýðingu Örnólfs Thorlacius í útgáfu Skjaldborgar, Ógnaiiangur krókódíll í þýðingu Hjörleifs Hjartarsonar í útgáfu Máls og menningar, Ógnaröfl, spennubókaflokkur, í þýðingu Guðna Kolbeinssonar í útgáfu Æsk- unnar og Sannleikann eða áhættuna í þýðingu Sigrúnar Á. Eiríksdóttur í útgáfu Æskunnai’. Dómnefnd Barnabókaverðlauna Reykjavíkur skipa Sigrún Elsa Smáradóttir, formaður, Guðrún Pétursdóttir og Kristrún Ólafsdótt- ir. Verðlaunin verða að venju veitt um sumarmál á næsta ári. Þakrennur og rör úr Plastisol- vörðu stáli. Heildarlausn á þakrennuvörnum í mörgum litum. SiBA BLIKKAS hf Símar 557 2000 og 557 7100 Skemmuvegi 36 Bleik gata Kópavogi Músík fyrir nú- tíma baðstofur TOJVLIST íslenska óperan EINLEIKSTÓNLEIKAR Arnaldur Amarson flutti gítartón- list eftir Jón Ásgeirsson, Jóhann Sebastian Bach og Fernando Sor. Laugardagkl. 16.00. ÍSLENSKU þjóðlögin virðast tónskáldunum okkar endalaus upp- spretta nýrra tónsmíða, sem betur fer. Það yrði einhverjum tónvísind- anemanum verðugt verkefni að rannsaka þessa hefð - og kanna í hvaða farvegum þjóðlögin okkar liggja í tónsmíðum samtímans. Það liggur í augum uppi að langsamlega stærsti hluti íslenskra þjóðlaga lifir í söng; - í ótal kórútsetningum fjöl- margra tónskálda. Þar er Jón Ás- geirsson fremstur meðal jafningja sem höfundur margra ástsælustu þjóðlagaútsetninga okkar. Nægir þar að nefna lagið Sofðu unga ástin mín sem allir kórar kunna. Nú hefur Jón útsett tíu þjóðlög fyrir einleik- sgítar. Arnaldur Arnarson frum- flutti verkið fyrr á árinu á Seyðis- firði, og lék aftur á tónleikum sínum í Óperunni á laugardaginn. Hvað kórútsetningar íslensku þjóðlag- anna varðar, - þá má halda því fram að þjóðlögin hafi dafnað svo vel í flutningi söngradda vegna þess hve einfaldleiki þeirra og látleysi nýtur sín vel í söng. Þar hefur textinn auð- vitað sitt að segja líka. Gítarinn er hljóðfæri sem þarf ekki að hafa hátt til að vekja á sér athygli. Innrænt og persónulegt „eðli“ hans hentar íslensku þjóðlögunum á sama hátt að mörgu leyti mjög vel og hljóðlátt fas hans er býsna baðstofulegt þeg- ar allt kemur til alls. Hins vegar hlýtur það að vera erfitt að gera mikið úr svo litlum efnivið sem þjóð- lögin eru, - ekki síst þegar hljóðfær- ið er jafn hógvært og gítarinn. Jón Ásgeirsson hefur valið þá leið að leyfa einfaldleika laganna að njóta sín án nokkurs íburðar eða tilgerðar í útsetningunum. Hann nýtir þó möguleika gítarsins ágætlega til að draga fram fjölbreytileika og marka svipmót hvers lags fyrir sig. Þannig verður lag eins og hið litla, fimm tóna og skrefstíga lag Stúlkurnar ganga sunnan með sjó heilmikil og „gítarísk" etýða. Fegurð margra þessara laga nýtur sín sérstaklega vel í stílhreinum gítarútsetningum Jóns, - sérstaklega þau sem hafa yf- ir sér blæ depurðar eða myrkurs eins og Eitt sinn fór ég yfir Rín, á laufblaði einnar lilju; Þig ég unga þekkti best, Sofðu unga ástin mín, Harmabótarkvæðið og jólalagið fal- lega Hátíð fer að höndum ein. Arn- aldur lék þessi litlu lög af miklum þokka og innileik, þótt hann væri hikandi í byrjun. Þriðja lagið, Þig ég unga þekkti best var virkilega fal- lega mótað og vel spilað, og þau lög þar sem mest reyndi á brilljans í spilamennsku voru sérstaklega fín. Gítarnum lætur einkar vel að flytja tónlist Jóhanns Sebastians Bachs þótt samin sé fyrir önnur hljóðfæri. E-dúr partítan er oft leik- in af gítarleikurum, þriðji þáttur hennar, Gavotta, nýtur svo mikils ástfósturs gítarleikara, - að eigin- lega finnst manni þetta nú orðið miklu meiri gítarmúsík en fiðlum- úsík, - þótt upprunaleg gerð verks- ins sé fyrir fiðluna. Túlkun Arnaldai' á verki Bachs var heilsteypt og svip- hrein og leikur hans mjög góður. Bagatellur eftir Fernando Sor eru þokkafullar tónsmíðar sem láta ekki mikið yfir sér, en er bljúg augnabliksmúsík sem gleður hjart- að þegar vel er spilað. Arnaldur Arnarson lék þessi snotru verk af mikilli tilfinningu og alúð. Þriðja bagatellan, Cantabile var sérstak- lega fallega leikin, og Arnaldi tókst að láta þetta hljómræna hljóðfæri syngja blítt eins og tónskáldið ætl- aðist til. Masúrkinn var fisléttur og glaðlegur og lokaþátturinn, Vals, var glæsilegur í flutningi Ai-naldar. Bergþóra Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.