Morgunblaðið - 07.12.1999, Síða 35
MORGUNÐLAÐIÐ
ÞRIÐJUÐAGUR 7. DESEMBER 1999 35
LISTIR
TONLIST
Langholtskirkja
KÓRTÓNLEIKAR
Söngsveitin Fflharmónía og Sigrún
Hjálmtýsdóttir fluttu aðventu- og
jólatónlist. Konsertmeistari var Rut
Ingólfsdóttir og stjórnarndi Bern-
harður Wilkinson. Sunnudagskvöld
kl. 20.30.
SÖNGSVEITIN Fílharmónía er
einn þeirra hópa sem hafa gert sig
gildandi í föstu aðventutónleika-
haldi í höfuðborginni. Fyrstu tón-
leikar kórsins af þrennum sem ráð-
gerðir eru voru gríðar vel sóttir
þrátt fyrir versta veður og viðvar-
anir um að það yrði enn verra.
Langholtskirkja var þéttsetin, alveg
upp í rjáfur, og stemmning í saln-
um. Kórinn hóf upp raust sína án
undirieiks í jóla- og aðventulögum
frá Englandi og Danmörku. Það
þarf ekki að orðlengja það, að kór-
inn er skínandi góður um þessar
mundir, og hefur tekið miklum
framförum síðustu misserin. Margt
af því er heiður kórstjórans, Bern-
harðar Wilkinson, en kórinn á auð-
vitað sjálfur líka sinn þátt í því. Það
sem er mest áberandi í söng Fílhar-
móníu nú er hversu vel og vand-
virknislega hvert einasta lag er
unnið. Innkomur, styrkleikabreyt-
ingar og dýnamík, hreinn söngur,
textaframburður og ekki síst músík-
ölsk mótun hendinga eru meðal
þein-a þátta sem ráða því hvort lag
heppnast í flutningi eða ekki. Allt
þetta hafði kórinn ígrundað og til-
einkað sér í þessum lögum, hafði
fallega túlkun algjörlega í hendi sér,
og fylgdi kórstjóra sínum sem einn
maður. Það er ánægjulegt að heyra
kórinn í svona góðu formi. Fyrsti
hluti tónleikanna, þar sem hann
söng a capella, - án undirleiks, var
ákaflega vel heppnaður. Kórinn
söng hreint og músíkalskt, hvert
lagið af öðru. Lagið sem þekkt er
Söng-
sveit í
upp-
sveiflu
sem jólalagið frá Coventry, - eða
The Coventry Carol var sungið með
íslenskum texta Þorsteins Valdi-
marssonar. Söngur kórsins í þessu
lagi var hreint unaðslegur, og mús-
íkölsk túlkun smaug beint í hjartað.
Eitt danskt jólalag var að finna
meðal þeirra ensku; - Forunderligt
at sige, og var það mjög vel sungið
eins og annað. Ef hægt er að krítis-
era eitthvað í þessum hluta efnis-
skrárinnar má segja að teflt hafi
verið á tæpasta vað með hraðann í
laginu Englakór frá himnahöll, þar
sem fullgeyst var farið í flúrið í
gloríunni.
Lítil strengjasveit, sem Rut Ing-
ólfsdóttir leiddi, kom nú til liðs við
kórinn auk Guðríðar St. Sigurðar-
dóttur sem lék með á orgel og Mon-
iku Abendroth sem lék á hörpu. Sjá
himins opnast hlið í raddsetningu
Buxtehudes er ekkert léttmeti fyrir
kórinn að syngja, - mikið flúr sem
krefst rytmískrar nákvæmni. Á
köflum var taktfestan við það að
riðlast, - kórinn hafði tilhneigingu
til að taka á sprett þegar þindar-
stuðning vantaði í jólaskrautsflúri
Buxtehudes, en náði sér þó alltaf á
strik aftur undir markaðri stjórn
kórstjórans. í verki Bachs, - Vakna
Síons verðir kalla, lék strengjasveit-
in ákaflega fallega, með breiðum
syngjandi tón. Það hljómaði eins og
sveitin væri mun stærri en hún var.
Einradda söngur kórsins var góður.
Sigrún Hjálmtýsdóttir, einsöngv-
ari kvöldsins, söng fyrst atriði úr
Messíasi, - Rejoice greatly, 0 daug-
hter of Zion. Sigrún var ekki upp á
sitt besta og vantaði bæði drif og
stuðning til að halda í við hljóm-
sveitina. I Davíðssálmi Mendels-
sohns, Hear my Prayer, var hún
miklu nær sínu góða sjálfi, og falleg
röddin naut sín miklu betur. Kórinn
söng fleiri ensk lög af andríki og
innlifun. Ave Maria og Ave verum
eftir Elgar voru bæði frábærlega
sungin og Let all the world, mikið
söngverk eftir Vaughan-Williams,
var stórbrotið, þar sem kórinn söng
mjög dýnamískt yfir undirspili
strengjanna þar sem líkt var eftir
slætti kirkjuklukkna. Sigrún Hjálm-
týsdóttir söng með kórnum í Verdi-
legri Ave Mariu eftir Luigi Luzzi og
í Ave Mariu eftir Kaldalóns. Það
vantaði upp á rytmískt jafnvægi,
sérstaklega í Ave Maríu Kaldalóns,
- og byrjunin þar var óróleg, þar
sem hörpuleikarinn reyndi að fylgja
Sigrúnu, sem hafði tilhneigingu til
að syngja hægar en stjórnandinn
hafði gefið hörpuleikaranum inn.
Þetta jafnaði sig þegar kórinn kom
inn og Sigrún söng yndislega fal-
lega. Jólalag Adams, - Nóttin helga
var líka órólegt í tempói í byrjun, en
var að öðru leyti mjög vel flutt, og
Sigrún, kór og hljómsveit sungu sig
greinilega inn í jólasálirnar í saln-
um, sem fögnuðu ákaft.
Það átti sinn þátt í því hve vel
heppnaðir og stemmningsríkir þess-
ir tónleikar voru að tónleikagestum
var leyft að syngja með í nokkrum
lögum. Ekki bara að það bryti upp
langa setu, heldur er það ótvírætt
meira gaman að fá að vera með í
leiknum en bara að fylgjast með.
Það var afar hátíðlegt að fylgjast
með troðfullum salnum, kór, ein-
söngvara og hljómsveit Ijúka þess-
ai'i ágætu dagskrá með flutningi
eins okkar fegurstu jólalaga, - lags
Kaldalóns við Ijóð Einars Jónsson-
ar, Nóttin var sú ágæt ein.
Bergþóra Jónsdóttir
Sterkar andstæður blæbrigða
TÖNLIST
Búslaðakirkja
Kammertónleikar
Strengjakvartett undir
stjórn Sigrúnar Eðvaldsdóttur
flutti verk eftir Arriaga,
Jón Leifs og Dvorák.
Sunnudaginn 5. desember.
JUAN Crisóstomo Antonio de
Arriaga y Balzola andaðist er hann
átti tíu daga í það að halda upp á tví-
tugsafmæli sitt. Hann fæddist í Bil-
bao 1806. Fimmtán ára innritaðist
hann í tónlistarháskólann í París og
átján ára hafði hann samið þrjá
strengjakvartetta og var sá fyrsti
þeÚTa viðfangsefni strengjakvart-
etts Sigrúnar Eðvaldsdóttur á tón-
leikum Kammermúsíkklúbbsins sl.
sunnudagskvöld. Með Sigrúnu léku
Sif Tulinius, Helga Þórarinsdóttir og
Richard Talkowsky. Kvartettinn eft-
ir Arriaga er hljómrænt mjög ein-
faldur, stílhreinn og fallega lagrænn,
gæddur æskuþokka og leikgleði,
sem kvartett Sigrúnar náði að út-
færa sérlega skemmtilega í tærum
og vel hljómandi samleik.
Annað viðfangsefni tónleikanna
var E1 Greco-kvartett Jóns Leifs,
sem er þriðji strengjakvai'tett hans
og merktur op. 64. Yfirskrift kafl-
anna er 1) Toledo í þrumuveðri, 2)
Imynd af sjálfsmynd E1 Grecos, 3)
Jesús rekur braskarana úr muster-
inu, 4) Krossfestingin og sá 5) Upp-
risan. Þarna er vísað til frægra mál-
verka eftir meistarann. Þrátt fyrir
það má ekki líta á verk Jóns Leifs
sem útmálun á verkum E1 Grecos,
heldur getur þarna að heyra þau
áhrif, sem þessi verk höfðu á Jón, því
þama er tónmál Jóns Leifs í sínu
skýrasta formi, og tónmálið stallað,
hraungrýtt og hrjóstrugt, eins og
það þekkist best af ósnortinni ís-
lenskri náttúrufegurð. Leikur kvart-
ettsins var hreint út sagt frábær og
lögð megináhersla á leikinn með
blæbrigði og útkoman var ótrúlega
áhrifamikil, svo að trauðla verður
betur gert. Auðheyrt var að vel hafði
verið æft og vel hugað að öllum
blæbrigðum, þar sem heyra mátti
leikið með sterkar andstæðurnar á
einstaklega skýran máta og mun
þessa flutnings verða minnst til við-
miðunar, um að nú hafi menn skilið
þennan sérkennilega listamann,
bæði flytjendur og hlustendur.
Þriðja viðfangsefni tónleikanna
var op. 105, eftir Dvorák. I heild var
kvartettinn mjög vel fluttur, þótt
þarna hafi mátt heyra um of tekið á í
hljómmestu atriðunum og sérstak-
lega, þar sem tónninn var myndaður
nærri „froskinum“ eða hælnum, eins
og einnig er sagt, en þá vildi tónninn
verða einum of sár og nærri því
óhreinn og þvingaður. Þennan kvart-
ett má leika með „mjúkum" tóni og
styrkleikahlutföllin tengjast oftast
rithættinum, þannig að ekki þarf svo
mjög að bæta í styrkinn og spennan
er allt eins hrynræn og tengd hraða
frekar en miklum mun á styrk. Þetta
er sem sagt ekki „svört og hvít“
átakatónlist, heldur fjörug, hryn-
rænt spennandi, lagræn og elskuleg
tónlist, sem þarf að leika fallega, sem
kvartett Sigrúnar reyndar gerði,
nema þar sem ofgert var í styrk.
Jón Ásgeirsson
Bomban í
Búkarest
KVIKMYMDIR
Kringlubfó
ÓVINUR ÓVINAR MÍNS
-ENEMY OF MY ENEMY
★ ★
Leikstjóri Gustavo Graef-Marino.
Handritshöfundur Mark Amin, ofl.
Kvikmyndatökustjóri Steven
Wacks. Tónskáld Terry Plumeri.
Aðalleikendur Peter Weller, Daryl
Hannah, Tom Berenger, Adrian
Pintea, Brion James. 90 mín.
Bandarísk. Trimark, 1999.
ÞR JÁR fallnar stjörnur í aðalhlut-
verkum boða aðeins eitt: B-mynd.
Þær eru nauðsynlegar í bland og
skáka oft frænkum sínum framar í
stafrófinu. Óvinur óvinar múiskemst
nærri þeim áfanga og hefur margt til
síns ágætis, lumar meira að segja á
öndvegis B-myndaleikaranum Brion
James, sem hér er dubbaður upp í
hershöfðingja í herráði Bandaríkj-
anna. Orðum skreyttur og heiðurs-
merkjum á ört vaxandi ummáli, víðs-
fjan-i hlutverkum þeirra dusilmenna
og djöflamergja sem verið hafa hans
ær og kýr. Gaman að því.
Tölvusnillingurinn Steve Mitchell
(Peter Weller) er sendur til Búkar-
est til að eyða kjarnorkusprengju,
slæmri eftirleguknd Kalda stríðsins
í kjallara bandaríska sendiráðsins í
borginni. Ekki vill þó betur til en að
þegar okkar maður er að gera sig
kláran í slaginn (með fulltingi Ericu
Long (Hannah), gamallar hjásvæfu
og orðlagðs tölvuhakkara), að ser-
bneskir hryðjuverkamenn hertaka
sendiráðið og taka starfsmenn þess í
gíslingu. Vilja fá stríðsfanga ú Bosn-
íustríðinu í skiptum. Á meðan sitja
tölvuséníin í leyniherbergi og
brugga andskotunum banaráð. Þau
duga skammt og kallaður er til sög-
unnar sérsveitarkappinn, hershöfð-
inginn Buck Swain (Tom Berenger).
Þegar slíkur garpur sem Sveinn
birtist, vita heimsins verstu fól að
dagar þeirra eru taldir.
Að láta sér detta í hug að skipa
Weller, Hannah og Berenger í aðal-
hlutverkin er ekki svo lítið afrek, og
sjálfsagt hvergi verið framkvæman-
legt annars staðar en á aðalstöðvum
B- myndagerðarinnar Trimai'k. Öll
mega þau muna sinn fífil fegurri.
Vitaskuld standa þau fyrir sínu hér;
líkt og karlanginn hann James. I
rauninni er ágætlega haldið á spöð-
unum að flestu leyti. Leikstjórinn
nær þessum fínu átakaatriðum útúr
knöppu fjái-magni og tökustaðirnir
eru sannfærandi. Það besta er að
myndin tekur sig alvarlega og virkar
sem nauðsynlegt krydd í tilveruna.
ES. Heyrst hefur fleygt að stjörn-
urnar þrjár hafi stofnað djasshljóm-
sveitina Combo From Hell, en farið
ekki langt með það.
Sæbjörn Valdimarsson
Léítur og meðfærilegur
með innbyggðum prentara
W. tc*.
Les allar tegundir greiðslukorta
sem notuð eru á íslandi
Hlíðasmára 10
Kópavogi
Sími 544 5060
Fax 544 5061
snjallkort og segulrandarkort
Hraðvirkur hljóðlátur prentari
Fiat Brava 80 HSX Opel Astra 1.2 VWGolf 1.4 GL Toyota Corolla 1.3
Staerð L x B 4.19x1.74 4.06x1.71 4.15 x 1.73 4.29 x 1.69
Vél / hestöfl 1.2 16v/82hö 1.2 8V/65 hö 1.4 8v / 75 hö 1.3 16V/86 hö
ABS hemlar Já Nei Já Nei
Álfelgur Já 15” Nei Nei Nei
Loftpúðar 4 2 4 2
Fiarst.saml. Já Nei Já Nei
Gelslaspilarí Já Nei Nei Nei
Þokuljós Já Nei Já Nei
Verð 1.295.000 1.329.000 1.495.000 1.349.000
ístraktor A?a
BlLAR FYRIR ALLA
*AutoMotorundSport2.99 smidsbúð 2 garoabæ sImi 5400 eoo
1899
1999
Á íslandi frá 1925
FIAT BRAVA
Lægsta bilanatíðni af öllum bilum, þriggja ára og yngri
skv. niðurstöðum þýsku eftirlitsstofnunarinnar DEKRA*.
Sportlegur ítaiskur fjölskyldubíll á hreint frábæru verði.