Morgunblaðið - 07.12.1999, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 07.12.1999, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1999 37 LISTIR Fágæt upplifun TONLIST Hallgrímskirkja KÓRTÓNLEIKAR Verk eftir Byrd, Tallis, A. Scarlatti, Handl, Sweelinck, Distler & Pou- lenc. Schola Cantorum u. stj. Harð- ar Áskelssonar. Sunnudaginn 5. desember kl. 17. SÁ er kominn út á hálan ís er meta vill óljósar stærðir eins og aðsókn- ai-vanda og aðdráttarafl einstakra tónleikaviðburða, meðan enn liggja ókönnuð af vísindamönnum. Aug- ljóst er þó, að lítill kór á sér færri aðstandendur en stór, og þótt vita- skuld spili fleira inn í var þetta ef- laust meðal ástæðna þess að Schola Cantorum tókst ekki nema að hálffylla Hallgrímskirkju með jóladagskrá sinni sl. sunnudag, þar sem Kvennakór Reykjavíkur aftur á móti fyllti hana út að dyrum viku áður af sama tilefni. En 600 manna aðsókn þætti samt í frásögur fær- andi á flestum stöðum, og hvað listrænu hliðina varðar er manni til efs, að margir aðrir blandaðir kór- ar hér á landi hefðu ráðið við síð- ustu atriði hérumræddrar dag- skrár, Jólapartítu Hugo Distlers og 4 jólamótettur Poulencs. Meðan launaðir atvinnukórar - forsenda flutnings á kröfuhörðustu nútíma- verkum kórbókmennta - heyra enn framtíðinni til má nærri kalla kraftaverk að kórsmíðar á borð við hin fyrrtöldu næðu að hljóma í ís- lenzkum flutningi af þeim gæða- flokki sem raun bar vitni. Tónleikarnir hófust á A solus ortus cardine, einrödduðum greg- orssöng úr latnesku tíðasöngsbók- inni í Sarum-stíl, ensku afbrigði hinna 13 evrópsku „mállýzkna" í fornum gregorskum kirkjusöng, við texta um fæðingu Jesú. Sarumssöngnum brá þrisvar fyrir milli annarra atriða líkt og stefi í drápu í alls 8 erindum sem ýmist voru sungin af einum söngvara, 8 körlum, 10 konum eða öllum kórn- um. Voru honum gerð falleg skil, þó að hér, sem í fyrstu kórverkum næst á eftir, bæri lítilsháttar á aft- urreigingi í tónmyndun, þ.e. þegar læðzt er inn í tóninn og styrkur síðan snögglega aukinn. Trúlega var þó frekar um varkárni í inntón- un að ræða en um meðvitaða „messa di voce“-túlkun uppruna- sinna, og sem betur fór dró síðan úr henni. Ur undurfallegri endurreisnar- messu Byrds fyrir 4 raddir söng kórinn fyrst hið stutta Kyrie og, að Purge me, o Lord eftir Tallis loknu, Sanctus og Agnus Dei, með smekklegri hliðrun á Gloria og Credo vegna árstímans, sem auk þess hefðu ella tekið drjúgan skammt af heildartíma, jafnvel þótt messan nyti sín bezt í heild. Kórinn söng bæði verk mjög vel, burtséð frá heldur daufum enskum framburði í Tallis, þar sem túlkun- in var að auki ögn óróleg, enda virðist kirkjuheyrðin ekki síður óhagstæð miklum sveiflum í dýna- mík en í vökru tónferli. Hið síðara kom berlegast í ljós í hröðum og glaðværum verkum eins og Ex- ultate Deo eftir Alessandro Scar- latti (sérstaklega í Halelújainu) og í Hodie Christus natus est eftir Sweelinck við sérkennilega þrá- stefjabeitingu, en í minna mæli í hinu hómófónískara verki Jakobs Handls, Resonet in laudibus við sálmalagið forna Syngið Guði sæta dýrð, sem hljómaði skýrt og tært miðað við aðstæður, jafnvel þótt fjörlegt væri. 0, magnum mysterium eftir meistara Byrd var fremur dauft og skildi lítið eftir. Öðru máli gegndi um síðustu verkin tvö sem fyrr var getið. Sjöþætt Kórpartíta Hugos Distler um Það aldin út er sprung- ið (og þýzka Magnificat-textann í 3. erindi) frá millistríðsárunum var undirrituðum og sjálfsagt fleirum nýmeti, en í afburðaflutningi Scholae Cantorum birtist það sem hreint og klárt meistaraverk. Furðulítið hefur farið fyrir Distler í alþjóðlegum uppflettiritum, né heldur er hann daglegt brauð á hérlendum kórvettvangi, en hug- vitssemi hans í fjölbreytilegri notkun kórmiðilsins var einstök í þessu bráðsnjalla verki, sem þrátt fyrir á köflum afar margslunginn rithátt og skaraða margröddun náði engu að síður stjörnutærum og afkláruðum áhrifum. Engin versanna voru eins frekar en í snilldaræskuverki Bachs I dauðans böndum Drottinn lá, og jókst samtvinnun efnisþátta eftir því sem á leið fram að lokaerindi. Nefna mætti t.a.m. stretto-með- ferð (II.), samspil líðandi einsöngs (ljómandi með farinn af Elfu Mar- gréti Ingvadóttur) og safaríks heildarkórs í III. sem náði hreint út sagt paradísísku svifi, tvíkóra- andsöng í V. og ólýsanlega heim- sallskyrrð lokaerindisins, So sing- en wir all Amen. Fjórar latneskar jólamótettur Francis Poulencs frá 1951-52 gerðu ekki minni kröfur til kórsins en Distler, þó að satzinn væri hér oftar á nótum þéttriðinnar hómófóníu með víða óvæntri hljómaframvindu, er útheimti tandurhreina inntónun og hníf- jafna samstillingu. Einstaka hátt- liggjandi innkoma í sópran var of- urlítið sár, en í heild má óhikað segja, að hér, líkt og í Partítu Dist- lers, hafi Schola Cantorum undir hnitmiðaðri leiðsögn Harðar Áskelssonar veitt hlustendum upp- lifun af fágætari sortinni, sem komst ótrúlega vel til skila í erfíðu húsi. Ríkarður Ö. Pálsson og margt fleira sem kemur á óvart! Tegund Vélarstærð Hestöfl ABS Loftpúðar CD Innbyggður barnabílstóll Spólvörn Verð frá VW Passat 1.8 20 v 125 já 4 stk nei nei nei 2.195.000 MMC Galant 2.0 16 v 137 já 4 stk nei nei nei 2.295.000 Nissan Maxima 2.0 16v 140 já 2 stk já nei nei 2.925.000 Volvo S40 2.0 16v 140 já 4 stk nei nei nei 2.298.000 Hyundai Sonata 2.0 16v 137 já 4 stk já í aftursæti já 1.948.000 Miðað er við sjálfskipta bBa í öllum tilfelkim Grjótháls 1 Sími 575 1200 Söludeild 5751280 Hyundai Sonata kostar frá 1.948.000 kr. Staðalbúnaður: 2.0I 136 hestafla vél, TCS spólvörn og stöðugleikastýring, ABS hemlalæsivörn, 4 Kknarbelgir, sjálfskipting, hæðarstillanleg öryggisbelti, fjarstýrðar samlæsingar, þjófavörn, hljómflutningskerfi með 6 hátölurum, stillanlegir höfuðpúðar, rafknúnir hliðarspeglar, litað gler, rafknúnar rúður, samlitir stuðarar, innbyggt barnasæti með 4 punkta öryggisbelti og margt margt fleira. HYunoni meira aföllu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.