Morgunblaðið - 07.12.1999, Síða 77
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1999 77
FÓLK í FRÉTTUM
BIOIN I BORGINNI
Sæbjörn Valdimarsson/Arnaldw Indriðason
Hildw Loftsdóttir
BÍÓBORGIN
The Theory of Flightk'kVz
Sérstök og alláhugaverð kvikmynd
um tvær ólíkar manneskjur sem láta
drauma sína rætast. Bonham Car-
ter og Branagh standa sig vel.
Tarzan kkk
Tarzan apabróðir fær gamansama
meðhöndlun í vandaðri og skemmti-
legri Disneymynd, sannkallaðri fjöl-
skylduskemmtun.
Vel búna rannsóknarlöggan kkVz
Agætis barnamynd um mannlegt
vélmenni, sérútbúið til þess að tak-
ast á við bófa. Góð tónlist, fínir leik-
arar en sagan mætti vera meiri.
Strokubrúðurin ★★'/!í
Rómantísk gamanmynd um hjóna-
bandsfælni og meðul við henni.
Stjömumar ná vel saman og halda
fjörinu gangandi.
Hlauptu, Lóla, hlauptu kkk
Fantagóð mynd frá Þýskalandi um
unga konu sem hefur 20 mínútur til
þess að bjarga kærastanum sínum
úr ógöngum.
SAMBÍOIN, ÁLFABAKKA
Heimurinn erekki nóg kkVz
19. kafli Bond-bálksins er kunnáttu-
samlega gerð afþreying sem fetar
óhikað troðnar slóðir.
Tarzan ★★★
Tarzan apabróðir fær gamansama
meðhöndlun í vandaðri og skemmti-
legri Disneymynd, sannkallaðri fjöl-
skylduskemmtun.
The Blair Witch Project ★★'/2
Kjaftshögg á Hollywood-kerfíð.
Kostaði fímmaura og gi’æddi millj-
arða og þótt vanti í raun upp á
spennuna sýnir hún vel hvað hægt
er að gera mikið fyrir lítinn pening.
American Pie kkk
Brattasta unglingamyndin um
langa hríð er óforskammað kynlífs-
grín og kemst upp með það. Geðugir
óþekktir leikarar og mátulega áreit-
in atburðarás bjarga línudansinum.
Lygalaupurinn kk
Martin Lawrenee leikur kjaftask og
innbrotsþjóf sem kemst í þá erfiðu
aðstöðu að verða að gerast lögga til
að hafa uppi á þýfinu. Hressileg
della.
Trufluð tilvera; stærri, lengri og
óklippt ★★‘/2
Félagarnir í Suðurgarði orsaka stríð
milli Bandaríkjanna og Kanada með
sóðalegum munnsöfnuði. Ykt mynd
á alla vegu sem gaman er að.
Kóngurinn og ég ★★Vi>
Nýjasta teiknimyndin frá Wamer
Bros. er sæmileg skemmtun. Pers-
ónusköpun og saga hefðu mátti vera
sterkari og höfða betur til bama.
HÁSKÓLABÍÓ
Myrkrahöfðinginn-k ★ ★
Myndrænt afrek og hvert mynd-
skeiðið á fætur öðm er snilldarlega
samsett. Hilmir Snær Guðnason
sýnir að hann er einn okkar besti
leikari af sinni kynslóð. Hann ber
myndina uppi. Veikleiki myndarinn-
ar er leikaravalið að öðra leyti. Með
því áhrifameira sem sést hefur í
langan tíma.
Ufstí&kVz
Heldur misheppnað grín um tvo lán-
lausa menn sem sitja í fangelsi í
sextíu ár, saklausir. Ómögulegt að
sjá hvað er fyndið við það.
Torrente kkk
Spaugileg spænsk gamanmynd um
viðbjóðslegan lögi’eglumann. Full-
gróft ofbeldi fyrir svona léttmeti, en
Torrente er óborganlegur og stend-
ur fyrir allt það versta í manninum.
Lake Placidkk
Furðuleg blanda af gríni og hryll-
ingi. Ósköp mikil vitleysa sem má
samt hafa gaman af. Fínir leikarar.
Framapot kkk
Ákaflega skemmtileg pólitísk háðsá-
deila sem gerist í amerískum
menntaskóla. Alls engin mennta-
skóladella á Hollywood-vísu heldur
vitsmunaleg, fyndin og með fínum
leik Reese Witherspoon og Matt-
hews Brodericks.
Bowfinger kkVz
Geðþekk gamanmynd úr smiðju
Steves Martins með honum og Edd-
ie Murphy í aðalhlutverkum en
myndin fjallar um lánlausan kvik-
myndaframleiðanda og ævintýra-
legar áætlanir hans.
Úngfrúin góða og húsið kkk
Góð kvikmynd, dramatísk og heil-
steypt. Það gneistar af Tinnu Gunn-
laugsdóttur, Ragnhildur Gísladóttir
kemur kannski mest á óvai-t. Syst-
urnar tvær era studdar sterkum
hópi leikara. Eftirminnileg kvik-
mynd sem hverfist um mannleg
gildi af listfengi og ágætri alúð.
Rugrats - myndin kkVz
Nokkrir bleyjubossar úr teikni-
myndaþáttum lenda í ævintýram á
tjaldinu. Ekki sem verst fyrir fjöl-
skylduna.
KRINGLUBÍÓ
Óvinir óvinar míns kk
Fallnar stjömur í fangbrögðum,
hryðjuverkamenn og kjamorku-
vopn í Búkarest. Þokkalegt B-
myndafjör.
Tarzan kkk
Tarzan apabróðir fær gamansama
meðhöndlun í vandaðri og skemmti-
legri Disneymynd, sannkallaðri fjöl-
skylduskemmtun.
Strokubrúðurin kk'/z
Rómantísk gamanmynd um hjóna-
bandsfælni og meðul við henni.
Stjömumar ná vel saman og
halda fjörinu gangandi.
Kóngurinn ogégkk'A
Nýjasta teiknimyndin frá Warn-
er Bros. er sæmiieg skemmtun.
Persónusköpun og saga hefðu
mátt vera sterkari og höfða bet-
ur til barna.
The Blair Witch Project kkVz
Kjaftshögg á Hollywood-kerfið.
Kostaði fimmaura og græddi
milljarða og þótt vanti í raun upp
á spennuna sýnir hún vel hvað
hægt er að gera mikið fyrir lítinn
pening. Sigur fyrir óháða kvik-
myndagerð í Bandaríkjunum.
LAUGARÁSBÍÓ
Heimurinn er ekki nógkkVz
19. kafli Bond-bálksins er kunnáttu-
samlega gerð afþreying sem fetar
óhikað troðnar slóðir fyrirrennara
sinna.
Örlagavefurkk
Alltof flöt og langdregin mynd sem
fjallar um furðuleg og óheillandi
kynni manns og konu. Harrison
Ford og Kristin Scott-Thomas njóta
sín engan veginn.
Sjötta skilningarvitið kkkk
Fantagóð draugasaga með Brace
Willis. Segir af dreng sem sér
drauga og barnasálfræðingnum sem
reynir að hjálpa honum. Frábær
sviðsetning, frábær leikur, frábær
saga, frábær mynd. Sjáið hana!
Una í Suðurhöfum kk
Framhaldsmynd um Línu Lang-
sokk sem nú er komin í siglingu.
Sami sakleysissvipurinn á prakka-
ranum og í fyni myndinni. Alger-
lega fyrii’ aldurshópinn sem horfir á
Stundina okkai’.
REGNBOGINN
An Ideal HusbandkkVz
Góðir leikarai’ gera vel í gráglettinni
mynd um vandræðagang hinnar
samansaumuðu bresku yfirstéttar á
síðustu öld.
Tarzan kkk
Tarzan apabróðir fær gamansama
meðhöndlun í vandaðri og skemmti-
legri Disneymynd, sannkallaðri fjöl-
skylduskemmtun.
Bardagaklúbburinn kkk
Sannarlega úthugsuð og áhugaverð
saga um tvo félaga sem stofna bar-
dagaklúbb, en myndin er dökk og
mjög ofbeldisfull.
Stjörnustrið - fyrsti hlutl: Ógnvald-
urinn kk
Fyrsti hlutinn í nýjum þríleik
Lucasar veldur nokkram vonbrigð-
um. En þótt sagan sé ekki mikil í
henni og persónusköpunin veik er
fullt af brellum fyrir bömin og sviðs-
myndir fagrar.
<
STJÖRNUBÍÓ
Örlagavefurkk
Alltof flöt og langdregin mynd sem
fjallar um furðuleg og óheillandi
kynni manns og konu. Harrison
Ford og Kristin Scott Thomas njóta
sín engan veginn.
Lygalaupurinn kk
Martin Lawrence leikur kjaftask og
innbrotsþjóf sem kemst í þá erfiðu
aðstöðu að verða að gerast lögga til
að hafa uppi á þýfinu. Hressileg,
della.
Sara Dögg Ásgeirsdóttir í hlutverki Þu-
ríðar í Myrkrahöfðingjanu sem sýnd er í
Háskólabíói.
■£gagn aversl,
Sealy - stícrsti clýt11iframleidandi haiidaiikjanna
Sealy dýnurnar eru liannaöar í samvinnu við færustu bcinascrfræðinga í
bandaríkjunum, enda Jrekkt fyrir dýnukerfi sem gefa rcttan bakstuðning
Ini gctur treyst Sealy á nýrri öld.
Möilv’i
533 3500
Rynningarverð á nýrri gerð af "Posturepedic" heilsudýnu frá Sealy afgerðinni Newberry
Rétt verð Kynningarverð
TWin 97x190 cm. 82.000,- 69.700,-
TwinXl 97x203 cm. 84.000,- 71.400,-
Full 135x190 cm. 104.000,- 88.400,-
FullXl 135x203 cm. 108.000,- 91.800,-
Queen 152x203 cm. 114.000,- 96.900,-
King 193x203 cm. 158.000,- 134.300,-
W-King 183x213 cm. 158.000,- 134.300,-
Verð með stálgrind