Morgunblaðið - 07.12.1999, Page 78
78 ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Ford -fyrirsætukeppnin í Kína
Margrét Una varð í
þriðja sæti í Peking
Morgunblaðið/Þorkell
ÍSLENSK stúlka varð í 3.-4. sæti í
alþjóðlegri fyrirsætukeppni Ford
sem haldin var í Peking í Kína á
laugardagskvöld. Margrét Una
Kjartansdóttir, 16 ára Reykjavíkur-
•íhær, hreppti þriðja sætið í keppn-
inni ásamt Ekaterina Giespath frá
Moldavíu. í fyrsta sæti var Alyssa
Kealy frá Astralíu og í öðru sæti Boj-
ana Dujmovic frá Slóveníu. Þetta er í
tuttugasta sinn sem keppnin er hald-
in og tóku 53 stúlkur frá rúmlega
fjörutíu löndum þátt í keppninni.
Kristín Ásta Kristinsdóttir, starfs-
maður Eskimo-models, segir að
þetta sé mjög mikil viðurkenning
fyrir Margréti Unu, en Kristín Ásta
fór með Margréti til Kína. Kristín
Ásta segir að auk viðurkenningar-
innar fái þrjár efstu stúlkurnar í
keppninni samning við Ford-skrif-
stofuna sem þýði óhjákvænilega
fjárhagslegan ávinning á næstu ár-
* usn fyrir stúlkumar.
Algjört ævintýri
Margrét Una sagðist vera orðin
ansi þreytt eftir langt ferðalag, en á
sunnudag var flogið frá Klna til
Þýskalands og þegar blaðamaður
hitti hana var hún nýkomin heim frá
Þýskalandi og kom með föður sínum,
Kjartani Jónssyni, á fund blaða-
manns.
Margrét sagði förina til Kína hafa
verið mikið ævintýri. „Það er allt
öðruvísi en nokkuð sem ég hef séð og
alveg stórfenglegt að koma þarna.“
Margrét fór ásamt Kristínu
Ástu til Kína viku áður en
sjálf keppnin fór fram og
fyrstu dagana var farið í
skoðunarferðh' um borgina.
„Við fórum og sáum Kína-
múrinn, Forboðnu borgina
og Torg hins himneska frið-
ar. Það er eiginlega ekki
hægt að lýsa þessum stöðum
með orðum. Það er algjör
upplifun að sjá þennan hluta
heimsins."
En ætli Margrét hafi
kynnst mörgum stelpnanna í
keppninni? „Ég kynntist
mest stelpunni sem var með
mér í herbergi. Hún heitir
Nicole og er frá Hollandi. En
ég kynntist líka svolítið
stelpunum frá hinum
Norðurlöndunum.“
Margrét segir að keppnin
sjálf hafi farið fram á mjög
svipaðan hátt og hefðbundin
tískusýning. Fyrirsæturnar
komu fram í íþróttafötum, kvöld-
klæðnaði og kínverskum kjólum.
„Daginn áður hittum við marga um-
boðsmenn fyrirsætuskrifstofa og
sýndum möppurnar okkar. Þar voru
nokkrir frá Ford-skrifstofunum í
New York og París sem voru einnig í
dómnefndinni."
Margrét segist ekki hafa haft
neinar væntingar fyrir keppnina.
„Ég var ákveðin í að hafa gaman af
þessu og njóta þess að fá að ferðast
til þessa framandi lands. En vissu-
lega var það rosalega gaman þegar
tilkynnt var að ég hefði lent í verð-
launasæti. Ég varð rosalega hissa,“
segir Margrét Una og bætir við að
hún viti ekki ennþá hvað þessi veg-
tylla muni hafa í för með sér. „Þetta
er náttúrulega mikil athygli, sem er
góð í þessum bransa, en hvað verður
á eftir að koma í ljós.“
Nú er Margrét í Menntaskólanum
við Sund og hún segir að það sé á
dagskránni að ljúka skólanum. „Ég
fór til London síðasta sumar í þrjár
vikur og vann sem fyrirsæta. Það var
mjög gaman, en ég veit ekki hvort
það gefur rétta mynd af starfinu af
því þetta var svo stuttur tími.
Kannski er það öðruvísi að vera í
fullri vinnu sem fyrirsæta."
Beint í prófín
- Hvað heillar mest við fyrirsætu-
starfíð?
„í mínu tilfelli eru það fyrst og
fremst ferðalögin og að geta farið til
staða sem maður myndi annars
kannski aldrei heimsækja," segir
Margrét Una sem segir að góð laun
þeirra sem ná langt í bransanum séu
ekki heldur til að draga úr áhugan-
um.
- Nú hefur verið talsverð neikvæð
umræða undanfarið um fyrirsætu-
störfog barnungar stúlkur. Hefur sú
umræða eitthvað dregið úr þér
kjarkinn?
„Nei, eiginlega ekki. En ég held að
það skipti mjög miklu máli að vera
með gott fólk með sér. Mamma fór
með mér út til London síðasta sumar
og ef ég fer út næsta sumar fér hún
líklega með mér aftur. Margrét segir
að þær stelpur á hennar aldri sem
eru í fyrirsætustörfum með henni
hjá Eskimo-models séu allar í skóla
og fari í fríum og taki verkefni er-
lendis í íyrirsætustörfum. Hún segir
að sér finnist mikilvægt að hætta
ekki í skóla því fyrirsætuferillinn er
oft stuttur. Og menntunin er Mar-
gréti ofarlega í huga því prófin í skól-
anum eru byrjuð og því ekkert nema
lærdómur í augsýn. „Ég er að fara í
próf á morgun,“ segir hún og brosir.
Kjartan, faðir Margrétar Unu, er
að vonum stoltur yfir árangri dóttur
sinnar. Hann segir að áhugi hennar
hafi eflaust vaknað á fyrirsætustarf-
inu þegar eldri systir hennar, Helga
Sjöfn, hafi tekið þátt í Ford-fyrir-
sætukeppninni hérna heima fyrir
rúmu ári.
— Eru ekkert nema fyrirsætur á
heimilinu?
„Ja, það má eiginlega segja það,“
segir Kjartan og brosir en bætir síð-
an kíminn við: „Ég hef alltaf verið
innan um fallegt kvenfólk, allt mitt
líf.“
AP
Sigurvegarar alþjóðlegu Ford-fyrirsætukeppninnar í Peking árið 1999.
Frá vinstri: Ekaterina Giespath frá Moldavíu, Margrét Una Kjartans-
dóttir, Alyssa Kealy frá Astralíu og Bojana Dujmovic frá Slóveníu.
Öðruvísi
að ventukr ans ar
Full buð af gjafavörum
lómaverkstæði
[NNA
Skólavörðustíg 12, Bergstaðastrætismegin, sími 551 9090
Besta jólagjöfin!!
• Fyrir námsmanninn...
• Fyrir stjórnandann...
• Fyrir bókaorminn...
Hraðlestrarnámskeið er frábær jólagjöf sem gefur ríkulegan arð
alla ævi. Lestrarhraði margfaldast og afköst í námi og starfi vaxa
ótrúlega.Næsta námskeið hefst 17. janúar n.k. Pantið gjafakort.
Margfaldaðu afköstin!
HRAÐLESTRARSKÓLINN
Sími: 565-9500 Fax: 565-9501
www.ismennt.is/vefir/hradlestrarskolinn
NIKE BÚÐIN
Laugavegi 6
Sófkr og sófasett
★ ^
í úrvali
V/SA
VAKORT
Eftirlýst kort nr.:
4543-3700-0022-1781
4543-3700-0027-9888
4507-4500-0026-7523
4548-9000-0053-6690
4539-8600-0012-1409
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA Islandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
fyrir að klófesta kort
og vísa á vágest
VISA ISLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavík.
Sími 525 2000.