Morgunblaðið - 07.12.1999, Page 79
I
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1999 79
MAGNAÐ
BÍÓ
/DD/
IGITAL
SESi
SífVtt
Liii^íiu^l 94
Kvik.mrBdir.is ★ ★★★
★ ★
1/2
ÓPE Hausverku
lesið allt um What Becomes Of The Broken Hearted (eitt sinn stríðamenn 2) ó www.stj
iornubio.is
SPEGILL SPEGILL...
l III X R 1 T U III A L
|S EXUALITYII
Ef þú getur ekki fundið
draumaprinsinn,
þá er bara að
búa hann til
James Bond er mættur f sinni stærstu mynd hingað till Pierce
Brosnan, Robert Cartyle, Sophie Marcueau og Denise Richards
fara á kostum og hasaratríðin slá öllu við.
Algjöríega ómissandi mynd.
Sýnd kl. 5, 6.30, 9 og 11.
Eignaðist
dóttur v-
LEIKKONAN Emma Thompson
eignaðist litla dóttur á laugardag
en fréttatilkynning þess efnis
barst til breskra fjölmiðla í gær.
Dóttirin fæddist á St. John spítal-
anum í
Lundúnum
og heilsast
móður og
dóttur vel.
Á þessari
mynd sést...
Emma með
kærastan-
um, Greg
Wise, áður
en litla
daman kom
AP í heiminn.
Haldið í
gamlar hefðir
Á MYNDINNI sést starfsmaður
halda á risastóru veggspjaldi með
málaðri mynd af bandarísku leikkon-
unni Michelle Pfeiffer úr myndinni
„Deep End of the Ocean“ sem hengt
var upp á kvikmyndahús í Madijígi
þegar mynd leikkonunnar var
frumsýnd fyrir rúmum mánuði.
Hefð er fyiir því á Spáni að hand-
mála veggspjöld með kvikmynda-
stjörnum og hefur sá siður verið i
landinu í sextíu ár. Tvær vinnustofur
eru ennþá í Madríd sem sérhæfa sigí
veggspjaldagerðinni, en þær hafa yf-
irleitt um það bil þrjá daga til að ljúka
hverju veggspjaldi fyrir sig áðm- en
það er hengt upp á veggi kvikmynda-
húsanna kvöldi fyrir frumsýningu.
Sýnd kl. 4.50, 6.50,9 og 11.15. b.í.i6.
Iceland Review kynnir Sigur Rós
Tónlistin
nátengd landinu
Sýnd kl. 4.30 oi
B. i. 12 "
MARGMIÐLUNARDISKUR með
hljómsveitinni Sigur Rós fylgir nýj-
asta tölublaði Iceland Review að
þessu sinni sem er jafnframt síðasta
tölublað þessa árþúsunds. Diskur-
inn inniheldur upplýsingar um
hljómsveitina, sjónvarpsupptöku frá
tónleikum sveitarinnar í Islensku
óperunni og lagið „Svefn-g-englar“
sem skreytt er með mögnuðum nátt-
úruljósmyndum Páls Stefánssonar.
Hugmyndin að diskinum fæddist
síðastliðið sumar þegar ákveðið var
að birta grein um Sigur Rós í Icel-
and Review. Að sögn Jóns Kaldal,
ritstjóra tímaritsins er erfitt að út-
skýra tónlist á prenti og hreint úti-
lokað í tilfelli Sigur Rósar þar sem
tónlist hennar er engu öðru lík. „Því
var ákveðið að fara þess á leit við
hljómsveitina að fá hana til sam-
starfs um gerð margmiðlunardisks
svo að kaupendur blaðsins um allan
heim gætu heyrt tónlistina og séð
hana flutta.“ Þetta er í fyrsta sinn
sem margmiðlunardiskur fylgir
blaðinu en í því er einnig að finna
grein um Sigur Rós og ljósmyndir.
Iceland Review hefur komið út í
38 ár og er með áskrifendur í yfir
100 löndum en í blaðinu er m.a. fjall-
að í máli og myndurn um íslenska
náttúru og landslag. „Ástæðan fyrir
því að við völdum að kynna Sigur
Rós er sú að tónlist hennar tengist á
einhvern hátt landinu, náttúru þess,
sauðkindinni og fisknum," sagði Jón
Kaldal er diskurinn var frumsýndur
í Iðnó á dögunum. „Það fellur vel að
því sem fjallað er um í Iceland Rev-
iew.“
Diskurinn var unninn í náinni
samvinnu við hljómsveitina en Gotti
Bernhöft hannaði útlit hans og Árni
Kristinsson hjá Tristan sá um hönn-
un margmiðlunarhliðarinnar. Disk-
inn er hægt að spila í Macintosh og
PC tölvum en einnig er hægt að
setja hann í venjulegan geislaspilara
og hlusta á þrjú lög með hljómsveit-
inni.
Tónlist Sigur Rósar, sem nýverið
kom heim úr velheppnaðri tónleika-
ferð um Evrópu, mun því á næstunni
hljóma víða um heim og ylja áskrif-
endum Iceland Reviewyfir jólin.
Morgunblaðið/Sverrir
Á frumsýningu margmiðlunardisksins í Iðnó lék Kjartan Sveinsson
hljómborðsleikari jólalög á kristalsglös og (f.v.) Páll Stefánsson ljós-
myndari, Jón Kaldal, ritstjóri Iceland Review, Jón Þór Birgisson söngv-
ari og Orri Páll Dýrason trommuleikari fylgdust með;
Ljósmynd: Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir.
Ingvar Þrastarson sló í gegn á fjölskylduhátíð á Hvolsvelli
með frumsömdu trommusólói.
Sjö ára tromm-
ari sló í gegn
Sjö ára trommuleikari, Ingvar
Þrastarson, sló í gegn í hæfileika-
keppni á fjölskylduhátíð Félagsmið-
stöðvarinnar Tvistsins á Hvolsvelli á
dögunum. Ingvar flutti
frumsamið trommusóló
og sigraði í flokki yngri
keppenda með glæsibrag. í
flokki eldri keppenda sigr-
uðu þær stöllur Sif Sigurð-
ardóttir og Kristrún
Hákonardóttir. Þær
fluttu lagið Draumar eftir
erlendan höfund.
Margt var til skemmtun-
ur á hátíðinni sem er árviss
viðburður hjá krökkunum í
félagsmiðstöðinni, m.a. var
boðið upp á danssýningu,
söng og gamanmál ásamt
kaffi og jólasmákökum.
Fjölmargir kepptu í
hæfíleikakeppninni og var
mál manna að krakkarnir
hefðu
að þessu sinni staðið sig
með miklum sóma. Versl-
unin Prfl á Hvolsvelli lánaði
þátttakendum allan fatnað.
Ásta Halla Ólafsdóttir er
forstöðumaður félagsmið-
stöðvarinnar og vann hún
uð undirbúningi hátíðar-
innar í samvinnu við
ki’akka og unglinga á öllum
aldri og einnig tóku fjölm-
ai-gir foreldrar þátt í undirbúning-
num. Það má því með sanni segja að
fjölskylduhátíðin beri nafn með
rentu.
Karm Jónsdóttir og ívar Máni Garðarsson
fylgdust með skemmtiatriðum af áhuga.
Sif Sigurðardóttir og Kristrún Hákonardóttir.
Þær sigruðu í hæfileikakeppninni í flokki eldri
keppenda með laginun Draumar.
NMÉÍ
Thx
Keflavik - simi 421 1170
I \ ul IU I \
GOÐA
o^HUSIÐ
Kiikmyndavtr&losnlB 1999
Bestn iÁmsko kvikniyndin
Bastu imkstjðm - Guðný Hoidórsson
Besto kvmhtilwi - iinno Gumlaugsdótlir
Bœto tónbt - Kamar ðm tttnoson
Besta f«ðun - Rogna Fotsberg
Fiumlag blaids tí ÖsfcoisverSlauna úríð 2000
Sýnd kl. 9.
www.samfilm.is